Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 118/2026 · Mál nr. UUA2608013 · Kveðinn upp 11. september 2026

Jöfursbás

BráðabirgðaúrskurðurFrávísunFormannsúrskurður
Úrskurðarorð

Kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda við Jöfursbás 3 í Reykjavík til bráðabirgða er vísað frá úrskurðarnefndinni.

Árið 2026, föstudaginn 11. september, tók Unnþór Jónsson, varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, sbr. 1. mgr. 2., fyrir:

Mál nr. UUA2608013, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 30. júlí 2026 um að synja kröfu um stöðvun framkvæmda að Jöfursbás 3.

Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur

  1. Með ódagsettu bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 31. ágúst 2026, kæra A, B, C og D, eigendur fasteigna að Jöfursbás 5b í Reykjavík, þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 30. júlí s.á. að synja kröfu um stöðvun framkvæmda að Jöfursbás 3. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi, en til vara að málinu verði vísað aftur til byggingarfulltrúa til nýrrar meðferðar þar sem framkvæmdin verði rannsökuð með fullnægjandi hætti.
  2. Kærendur gera jafnframt kröfu um að framkvæmdir verði stöðvaðar við þann hluta Jöfursbáss 3 sem standi næst Jöfursbás 5b á meðan málið er til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.
  3. Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Reykjavíkurborg 4. september 2026.

Málsatvik og rök

  1. Með erindi til byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar 9. júlí 2026 kröfðust íbúar að Jöfursbás 5b tímabundinnar stöðvunar framkvæmda við Jöfursbás 3 á meðan upplýst yrði hvort framkvæmdir væru í samræmi við gildandi skipulag, samþykkt byggingarleyfi og uppdrætti og skuggavarpsmat gagnvart Jöfursbás 5b. Til að leggja mat á hvort eitthvert skilyrða 1. mgr. 55. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki væri fyrir hendi lét byggingarfulltrúi framkvæma stöðuskoðun 27. s.m. að Jöfursbás 3 í samræmi við gr. 3.7.3. í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Í bréfi byggingarfulltrúa til kærenda, dags. 30. s.m., var beiðni um stöðvun framkvæmda synjað með vísan til niðurstöðu í téðri stöðuskoðun. Kom fram að byggingarnar væru í samræmi við nýjustu samþykkta aðaluppdrætti, áfangaúttektir og að séruppdrættir væru í samræmi við verkstöðu. Þá væri ekki séð að útgefið byggingarleyfi væri í ósamræmi við gildandi skipulag. Taldi byggingarfulltrúi því ekki tilefni til að stöðva framkvæmdir á grundvelli 1. mgr. 55. gr. laga nr. 160/2010.
  2. Kærendur vísa til þess að ákvörðun byggingarfulltrúa um að synja um stöðvun framkvæmda sé hvorki nægilega rökstudd né byggð á fullnægjandi rannsókn. Skoðunarskýrsla sem ákvörðunin byggi á sýni ekki með rekjanlegum hætti að framkvæmdin sé í samræmi við samþykkt hönnunargögn og gildandi skipulag að því er varði þá byggingu sem standi næst Jöfursbás 5b. Verulegur vafi sé á hvort framkvæmdin hafi verið metin með fullnægjandi hætti hvað varði fjarlægð, hæð, byggingarmassa, skuggavarp, birtu og útsýni. Framkvæmdir séu í fullum gangi og byggingin sem standi næst Jöfursbás 5b sé risin í sjö hæðir og hafi veruleg áhrif á útsýni, birtu og notagildi svala. Ef framkvæmdir haldi áfram á meðan málið sé til meðferðar geti réttarstaða kærenda skerst verulega.
  3. Reykjavíkurborg vísar til þess að framkvæmdir að Jöfursbás 3 séu að öllu leyti í samræmi við útgefið byggingarleyfi og samþykkta aðaluppdrætti. Í tilefni af kröfu kærenda hafi byggingarfulltrúi látið fara fram stöðuskoðun 27. júlí 2026. Sú skoðun hafi ekki leitt í ljós frávik frá samþykktu byggingarleyfi, auk þess sem lagt hafi verið mat á samræmi leyfisins við gildandi deiliskipulag. Þrátt fyrir að hagsmunir kærenda séu skiljanlegir verði að líta til þess að stöðvun framkvæmda sé íþyngjandi gagnvart framkvæmdaraðila, sérstaklega þegar framkvæmdir fari fram á grundvelli gildra leyfa og engin frávik hafi komið í ljós.
  4. Af hálfu leyfishafa er bent á að stöðvunarkrafa kærenda sé svo óljós að ekki sé hægt að taka afstöðu til hennar að óbreyttu þar sem hún varði ótilgreindan hluta Jöfursbáss 3, þ.e. þann hluta „sem stendur næst Jöfursbás 5b“. Beri að vísa frá stöðvunarkröfu kærenda frá. Þá séu lagaskilyrði fyrir því að fallast á stöðvunarkröfu ekki uppfyllt þar sem hvorki brýn nauðsyn né aðrar ástæður standi til þess að fallast beri á stöðvunarkröfuna. Ekki sé líklegt að kæran muni breyta hinni kærðu ákvörðun byggingarfulltrúa auk þess sem stöðvun framkvæmda muni hafa verulegt fjárhagslegt tjón í för með sér fyrir leyfishafa.

Niðurstaða

  1. Á grundvelli 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur nefndin heimild til að stöðva framkvæmdir í tengslum við meðferð kæru­mála. Um er að ræða undantekningu frá þeirri meginreglu að kæra til nefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og ber að skýra umrædda heimild þröngt. Krafa um stöðvun framkvæmda er einungis tæk til efnismeðferðar þegar hin kærða ákvörðun felur í sér heimild til framkvæmda, sbr. einnig orðalag 3. mgr. lagagreinarinnar.
  2. Í máli þessu er kærð ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 30. júlí 2026 þar sem hafnað var kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda við Jöfursbás 3, en sú ákvörðun felur ekki í sér heimild til framkvæmda. Sá ágreiningur sem fyrir er í máli þessu varðar meðal annars hvort framkvæmdin sé í samræmi við samþykkt hönnunargögn og gildandi skipulag, en byggingarleyfi hússins hefur hins vegar ekki verið kært. Verði fallist á kröfu um ógildingu þeirrar ákvörðunar byggingarfulltrúa að stöðva ekki framkvæmdir mun byggingarleyfið eftir sem áður halda gildi sínu. Með hliðsjón af framanröktum sjónarmiðum getur úrskurðarnefndin ekki tekið kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða til efnismeðferðar. Verður þeirri kröfu því vísað frá nefndinni.

Úrskurðarorð

Kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda við Jöfursbás 3 í Reykjavík til bráðabirgða er vísað frá úrskurðarnefndinni.