Hvernig á að kæra?
Kæra þarf að vera skrifleg. Fljótlegast og öruggast er að senda kæru og gögn í gegnum Mínar síður, þar sem innskráning er með rafrænum skilríkjum.
Gættu að kærufresti
Kærufrestur er almennt einn mánuður frá því að kæranda varð kunnugt um eða mátti vera kunnugt um þá ákvörðun sem kæra skal. Sé um að ræða ákvarðanir sem sæta opinberri birtingu telst kærufrestur frá birtingunni.
Notaðu reiknivélina hér til hliðar til að sjá hvenær fresturinn rennur almennt út.
Hvað þarf að koma fram í kæru?
- 1Hvaða ákvörðun er kærðStjórnvald, dagsetning og efni ákvörðunar.
- 2Hvernig hún snertir hagsmuni kærandaÞeir einir geta kært sem eiga lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins.
- 3Hvaða kröfur eru gerðarT.d. að ákvörðunin verði felld úr gildi.
- 4KæruheimildHeppilegt er að vísa til kæruheimildar í lögum ef kæranda er kunnugt um hana.
Æskilegt er að gögn sem varða málið fylgi kærunni, sérstaklega sú ákvörðun sem kæra beinist að. Óskað er eftir að fylgiskjöl séu merkt og skrá um þau fylgi ef þess er kostur, sérstaklega þegar vísað er í þau í kæru, umsögn, greinargerð eða athugasemdum.
Sendu kæruna rafrænt
Kærur, greinargerðir og gögn skal senda rafrænt í gegnum Mínar síður. Þar er hentugt eyðublað fyrir kæruefni og fylgiskjölum er hlaðið inn. Þar sem innskráning er með rafrænum skilríkjum þarf ekki að undirrita kæruna með eigin hendi.
Senda kæru á Mínum síðum Senda á uua@uua.is
Einnig má senda kæru með tölvupósti á uua@uua.is, og þarf hún þá að vera undirrituð eigin hendi. Frá 1. nóvember 2025 skilar nefndin gögnum rafrænt til Þjóðskjalasafns Íslands og því þarf ekki að senda gögn á pappír. Ef ekki eru tök á að skila kæru rafrænt er tekið á móti henni og öðrum pappírsgögnum á skrifstofunni að Borgartúni 21.
Meðferð málsins
Kæran er send til umsagnar þess stjórnvalds sem tók hina kærðu ákvörðun. Nefndin leggur áherslu á að kveða upp vandaða úrskurði eins fljótt og kostur er og jafnan innan þriggja mánaða frá því að málsgögn bárust frá stjórnvaldi. Sé mál viðamikið skal kveða upp úrskurð innan sex mánaða frá sama tímamarki.
Úrskurðir eru birtir á vefnum. Leita í úrskurðum →
