Persónuverndarstefna
Hvernig persónuupplýsingar eru unnar og varðveittar, í hvaða tilgangi, hvernig þeim er miðlað og hvernig öryggis þeirra er gætt. Stefnan tekur aðeins til einstaklinga.
Ábyrgðaraðili
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer af hálfu nefndarinnar. Nefndin er til húsa að Borgartúni 21, Höfðaborg, 105 Reykjavík. Sími nefndarinnar er 575-8710 og netfang hennar er uua@uua.is.
Nefndin hefur tilnefnt Ingu Helgu Sveinsdóttur lögfræðing sem persónuverndarfulltrúa. Erindi er hægt að senda á netfangið uua@uua.is, b.t. persónuverndarfulltrúa, eða senda bréf til nefndarinnar.
Tilgangur og heimild til vinnslu
Nefndin starfar samkvæmt lögum nr. 130/2011 og hefur það hlutverk að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana og ágreiningsmála á sviði umhverfis- og auðlindamála. Til þess að sinna lögskipuðum verkefnum sínum er nefndinni nauðsynlegt að vinna með persónuupplýsingar einstaklinga og byggja þau verkefni því aðallega á lögum.
Tegundir persónuupplýsinga
Nefndin vinnur með persónuupplýsingar eins og auðkenni einstaklinga, t.d. nafn og kennitölu; búsetustað og samskiptaupplýsingar, t.d. póstfang, heimilisfang, netfang og símanúmer; og fjárhagslegar upplýsingar, t.d. um eignarhald á fasteign. Vinnslan felur m.a. í sér að nefndin safnar, skráir, geymir, eyðir, afhendir og aðlagar upplýsingar.
Hvaðan berast upplýsingarnar?
Nefndin fær upplýsingar aðallega frá einstaklingum sjálfum þegar þeir kæra til nefndarinnar. Nefndin aflar einnig persónuupplýsinga frá opinberum aðilum við málsmeðferð, m.a. frá því stjórnvaldi sem tók hina kærðu ákvörðun, s.s. sveitarfélögum og ríkisstofnunum, og öðrum ríkisstofnunum, s.s. fasteignaskrá.
Miðlun og birting úrskurða
Nefndin afhendir persónuupplýsingar til annarra stofnana þegar lög mæla svo fyrir, t.d. þegar kæra er send til umsagnar þess stjórnvalds er tók hina kærðu ákvörðun.
Nefndin birtir úrskurði sína samkvæmt lagaskyldu. Þeir eru nafnhreinsaðir og auðkenni einstaklinga hreinsuð eftir því sem mögulegt er. Nauðsynlegt er þó að fram komi staðsetning fasteignar og annað það sem hefur þýðingu fyrir úrlausn málsins.
Réttindi einstaklinga
Einstaklingur á rétt á að fá aðgang að og afrit af öllum persónuupplýsingum sem nefndin vinnur um hann, með þeim undantekningum sem kunna að eiga við. Réttur á aðgangi að gögnum máls getur einnig byggst á 15. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 14. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012.
Einstaklingur á rétt á að fá rangar persónuupplýsingar um sig leiðréttar og að bæta við upplýsingar sem hann telur ófullnægjandi. Réttur til eyðingar á ekki við þar sem nefndin er bundin af lögum um opinber skjalasöfn til að varðveita allar upplýsingar sem henni berast.
Einstaklingur getur lagt fram kvörtun til Persónuverndar sem fer með eftirlit á sviði persónuverndar.
Öryggi og varðveisla
Upplýsingar eru varðveittar á tryggum stað og engin óviðkomandi hefur aðgang að þeim. Tölvukerfi nefndarinnar eru rekin af Rekstrarfélagi Stjórnarráðsins, sem er með vottun samkvæmt staðlinum ÍST ISO/IEC 27001. Þagnarskylda hvílir á öllu starfsfólki nefndarinnar.
Nefndin hagar skjalamálum sínum í samræmi við lög nr. 77/2014, um opinber skjalasöfn. Óheimilt er að eyða skjölum og gögnum nema að fengnu leyfi Þjóðskjalasafns Íslands, þar sem þeim er skilað til varðveislu.
Starfsmenn og umsækjendur
Nefndin vinnur með persónuupplýsingar um starfsmenn sína til að geta greitt þeim laun og um umsækjendur um störf við mat umsókna, á þeim grundvelli að það sé nauðsynlegt til að efna samning eða gera ráðstafanir að beiðni hins skráða áður en samningur er gerður.
