Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 107/2026 · Mál nr. UUA2608005 · Kveðinn upp 25. ágúst 2026

Ytri-Hólmur

BráðabirgðaúrskurðurFrávísunFormannsúrskurður
Úrskurðarorð

Kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda við endurnýjun vatnslagnar og niðurrif/byggingu lokahúss við Berjadalsá í landi Ytra-Hólms er vísað frá úrskurðarnefndinni.

Árið 2026, þriðjudaginn 25. ágúst, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:

Mál nr. UUA2608005, kæra á ákvörðunum skipulagsfulltrúa Hvalfjarðarsveitar frá 16. júlí og 12. ágúst 2026 um að hafna kröfu um stöðvun á yfirstandandi framkvæmdum við endurnýjun vatnslagnar og niðurrif/byggingu lokahúss við Berjadalsá í landi Ytra-Hólms.

Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur

  1. Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 14. ágúst 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir Hólmsbúð ehf., Ytri-Hólmi 1, Akranesi, ákvarðanir skipulagsfulltrúa Hvalfjarðarsveitar frá 16. júlí og 12. ágúst 2026 um að hafna kröfu um stöðvun á yfirstandandi framkvæmdum Veitna ohf. við endurnýjun vatnslagnar og niðurrif/byggingu lokahúss við Berjadalsá í landi Ytra-Hólms. Er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi.
  1. Þess er jafnframt krafist að yfirstandandi framkvæmdir í landi kæranda verði stöðvaðar á meðan málið er til efnislegrar meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.

Málsatvik og rök

  1. Með tölvupósti til Hvalfjarðarsveitar 9. júlí 2026 gerði kærandi athugasemdir við framkvæmdir Veitna ohf. í landi Ytri-Hólms og óskaði eftir skýringum vegna þeirra. Þá fór hann fram á að framkvæmdir yrðu stöðvaðar. Í kjölfar samskipta við skipulagsfulltrúa ítrekaði kærandi með tölvupósti 13. s.m. kröfu sína um að skipulags- og/eða byggingarfulltrúi hlutaðist til um tafarlausa stöðvun framkvæmda. Skipulagsfulltrúi synjaði þeirri kröfu með tölvupósti 16. s.m.
  1. Kærandi sendi skipulagsfulltrúa annað erindi með tölvupósti 28. júlí s.á. þar sem óskað var eftir svörum og gögnum er vörðuðu hinar umdeildu framkvæmdir í landi Ytri-Hólms. Benti kærandi á að framkvæmdirnar væru verulegar og hefðu í för með sér gífurlegt rask á landinu og ættu ekki að vera undanþegnar byggingar- eða framkvæmdaleyfi. Gerði kærandi kröfu um að sveitarfélagið endurskoðaði ákvörðun sína um að aðhafast ekkert í málinu og var krafa um tafarlausa stöðvun framkvæmda ítrekuð. Með tölvupósti frá skipulagsfulltrúa 12. ágúst s.á. var hafnað kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda.
  1. Kærandi vísar til þess að hinar umdeildu framkvæmdir hafi upphaflega verið kynntar sem minniháttar endurnýjun á um 200 m langri asbestlögn í sama lagnastæði og sú eldri hefði legið. Við framkvæmdirnar hafi hins vegar verið ráðist í verulegar breytingar á lagnaleiðum, dýpkun og breikkun lagnastæðis, auk niðurrifs á eldra lokahúsi án samþykkis eða samráðs við landeigenda. Hafin sé bygging nýs og tvöfalt stærra lokahúss án nokkurra leyfa frá skipulagsyfirvöldum eða landeigendum auk þess sem ráðist hafi verið í stórfellda fleygun á klettum á svæðinu. Ákvörðun skipulagsfulltrúa um að endurnýjun vatnslagna sé undanþegin framkvæmdaleyfi byggi á röngu mati á umfangi framkvæmdarinnar. Í málinu sé yfirvofandi og áframhaldandi óafturkræft tjón á eignarlandi kæranda. Verið sé að brjóta og fleyga fast klettaberg og rífa og reisa mannvirki í leyfisleysi. Hagsmunir kæranda af því að vernda eignarland sitt gegn ólögmætum og óafturkræfum spjöllum vegi mun þyngra en hagsmunir framkvæmdaraðila af því að halda framkvæmdum áfram í leyfisleyfi.
  1. Af hálfu Hvalfjarðarsveitar er talið að ekki séu nægar forsendur til að stöðva framkvæmdir til bráðabirgða. Það hafi verið mat sveitarfélagsins að umræddar framkvæmdir, þ.e. endurnýjun vatnslagnar, teldust hvorki meiri háttar né væru þær líklegar til að hafa áhrif á umhverfi og ásýnd svæðisins sem væri nú þegar raskað. Því væri ekki framkvæmdaleyfisskylda framkvæmd að ræða í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lokahúsið væru heldur ekki háð byggingarleyfi, sbr. i-lið 1. mgr. gr. 2.3.6. í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Umræddar framkvæmdir séu ekki til þess fallnar að valda óafturkræfu tjóni eða náttúruspjöllum á þegar röskuðu svæði vatnsveitunnar.

Niðurstaða

  1. Á grundvelli 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur nefndin heimild til að stöðva framkvæmdir í tengslum við meðferð kæru­mála. Um er að ræða undantekningu frá þeirri meginreglu að kæra til nefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og ber að skýra umrædda heimild þröngt. Krafa um stöðvun framkvæmda er einungis tæk til efnismeðferðar þegar hin kærða ákvörðun felur í sér heimild til framkvæmda, sbr. einnig orðalag 3. mgr. lagagreinarinnar.
  1. Í máli þessu eru kærðar ákvarðanir skipulagsfulltrúa Hvalfjarðarsveitar frá 16. júlí og 12. ágúst 2026 þar sem hafnað var kröfu kæranda um stöðvun á yfirstandandi framkvæmdum við endurnýjun vatnslagnar og niðurrif/byggingu lokahúss við Berjadalsá í landi Ytri-Hólms. Þótt ágreiningur málsins varði m.a. leyfisskyldu framkvæmdanna er ljóst að hinar kærðu ákvarðanir fela ekki í sér heimild til framkvæmda. Með hliðsjón af framanröktum sjónarmiðum getur úrskurðarnefndin ekki tekið kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða til efnismeðferðar. Verður þeirri kröfu því vísað frá nefndinni.

Úrskurðarorð

Kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda við endurnýjun vatnslagnar og niðurrif/byggingu lokahúss við Berjadalsá í landi Ytra-Hólms er vísað frá úrskurðarnefndinni.