Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Forsíða/Fréttir

Fréttir

Tilkynningar, ársyfirlit og málastaða úrskurðarnefndarinnar.

Ársyfirlit 2025

Á árinu 2025 bárust úrskurðarnefndinni kærur í 193 málum og var afgreiðslu lokið í 220 málum, en þar af lauk 116 málum með efnisúrskurðum, 74 málum með frávísunarúrskurðum, 28 málum lauk með því að kærendur afturkölluðu kærur sínar og tveimur málum með framsendingu.

Pappírslaus stjórnsýsla

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur tekið upp rafrænt gagnasafn í samræmi við reglur Þjóðskjalasafns Íslands um rafræn gagnasöfn afhendingarskyldra aðila. Samtímis hófst nýtt skjalavörslutímabil til næstu fimm ára frá 1. nóvember 2025. Með þessu mun draga mjög úr notkun pappírs á skrifstofu úrskurðarnefndarinnar, sem er í anda verkefnisins um Græn skref, sem nefndin tekur þátt í.

Ársyfirlit 2024

Á árinu 2024 bárust úrskurðarnefndinni kærur í 182 málum og var afgreiðslu lokið í 153 málum, þar af lauk 95 málum með efnisúrskurðum, 42 málum með frávísunarúrskurðum, 15 málum með því að kærendur afturkölluðu kærur sínar og 1 máli með framsendingu.

Ársyfirlit 2023

Á árinu 2023 afgreiddi úrskurðarnefndin 174 mál og þar af lauk 130 málum með efnisúrskurði, 33 með frávísunarúrskurði, 4 með framsendingu og 7 með því að kærandi afturkallaði kæru sína.

Stafræn þjónusta – ný þjónustugátt opnuð

Tenging við gáttina er í gegnum Mínar síður. Við hvetjum alla kærendur, bæði almenning, félög og lögmenn að nota rafrænu gáttina.

Fyrirmyndarstofnun 2020

Við erum stolt af viðurkenningu Sameykis en nefndin varð í 3. sæti yfir stofnanir með færri en 20 starfsmenn.