Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 150/2026 · Mál nr. UUA2610005 · Kveðinn upp 27. október 2026

Óðinsgata

BráðabirgðaúrskurðurFrávísunFormannsúrskurður
Úrskurðarorð

Kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda við byggingu mannvirkis á lóð Óðinsgötu 28 er vísað frá úrskurðarnefndinni.

Árið 2026, þriðjudaginn 27. október, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:

Mál nr. UUA2610005, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 8. september 2026 um að synja kröfu um stöðvun framkvæmda og fjarlægingu mannvirkis á lóð nr. 28 við Óðinsgötu.

Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur

  1. Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 7. október 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir eigandi eignarhluta 01 0101 í fjölbýlishúsinu að Óðinsgötu 28 í Reykjavík, þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 8. september 2026 að synja kröfu um stöðvun framkvæmda og fjarlægingu mannvirkis á lóð Óðinsgötu 28. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og málinu vísað aftur til byggingarfulltrúa til nýrrar meðferðar og ákvörðunar þar sem fram fari fullnægjandi rannsókn og heildstætt mat á hvort og hvaða úrræðum beri að beita samkvæmt lögum nr. 160/2010 um mannvirki.
  1. Þess er jafnframt krafist að framkvæmdir verði stöðvaðar við byggingu mannvirkis á lóð Óðinsgötu 28 á meðan málið sé til efnislegrar meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.

Málsatvik og rök

  1. Með erindi til byggingarfulltrúa hinn 23. maí 2026 óskaði kærandi eftir upplýsingum um hvort veitt hefði verið leyfi fyrir skúr á lóð nr. 28 við Óðinsgötu. Á umræddri lóð, sem er eignarlóð í óskiptri sameign, er fjöleignarhús sem skiptist í tvo eignarhluta og á kærandi íbúð á neðri hæð þess. Samkvæmt þinglýstum gögnum tilheyrir efri hæð hússins, eignarhluta 01 0201, einnig 8,4 m2 Var þar um að ræða geymsluskúr sem hefur verið rifinn og var greindur skúr reistur í stað hans.
  1. Í svörum frá skrifstofu skipulags- og byggingarmála kom fram að um óleyfisframkvæmd væri að ræða og að málið yrði sent til deildar afnota og eftirlits til skoðunar. Með tölvupósti frá deild afnota og eftirlits 1. júní s.á. var kæranda tilkynnt að farið hefði verið í eftirlit þann sama dag, en að ekki hafi verið hægt að staðfesta að verið væri að reisa stóran skúr. Búið væri að smíða undirstöður en ekki væri hægt að staðfesta að um væri að ræða framkvæmd á skúr eða önnur mannvirkjagerð sem væri háð byggingarleyfi. Var kæranda bent á að samkvæmt samþykktum teikningum og eignaskiptayfirlýsingu væri gert ráð fyrir skúr þarna á lóðinni, sem hefði verið sótt um niðurrif fyrir árið 2024. Ef ætlunin væri að reisa skúr að nýju þyrfti að sækja um byggingarleyfi fyrir því eða breyta eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga á birtri stærð og hlutfallstölu í lóð. Þar sem um væri að ræða lóð í óskiptri sameign var kæranda leiðbeint um að eiga samtal við meðeiganda sinn, enda ættu ákvæði laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús við í málinu.
  1. Kæranda barst tölvupóstur frá framkvæmdaraðila hinn 22. júní 2026 þar sem fram komu fyrirætlanir um áframhaldandi smíði skúrs á umræddri lóð og áframsendi kærandi tölvupóstinn á deild afnota og eftirlits. Var kæranda svarað með tölvupósti 23. s.m. þar sem vísað var til ákvæða byggingarreglugerðar nr. 112/2012 er varða minniháttar mannvirkjagerð sem undan­þegin sé byggingarheimild og -leyfi. Þá var kærandi einnig upplýstur um hlutverk og valdheimildir byggingarfulltrúa. Með tölvupósti 30. s.m. var kærandi upplýstur um að framkvæmdar­aðila hefði verið sendur tölvupóstur þar sem fram hafi komið að ábending hefði borist um að verið væri að reisa mannvirki á lóðinni sem væri háð byggingarleyfi og að sækja hefði þurft um byggingarleyfi ef mannvirkið rúmaðist ekki innan marka ákvæðis byggingar­reglugerðar um smáhýsi. Kærandi átti í áframhaldandi tölvupóstsamskiptum við starfsmenn Reykjavíkurborgar vegna málsins.
  1. Með tölvupósti frá 13. júlí 2026 var kæranda leiðbeint um að ef hann óskaði eftir því að bera erindi sitt varðandi hina umdeildu mannvirkjagerð undir byggingarfulltrúa til formlegrar afgreiðslu þyrfti að tilgreina hvers væri krafist svo hægt væri að taka afstöðu til erindisins. Með tölvupósti frá 15. s.m. fór kærandi fram á að byggingarfulltrúi gæfi út tafarlausa stöðvun á framkvæmdum og fylgdi málinu eftir með formlegri niðurrifskröfu. Kæranda var tilkynnt með bréfi, dags. 8. september s.á. að erindi hans hefði verið tekið til skoðunar með tilliti til meðalhófs og heildstætt mat lagt á aðstæður. Hið umdeilda mannvirki stæði upp við 39 cm breiðan steyptan vegg á lóðamörkum og væri hæðin sú sama á veggnum og skúrnum. Í ljósi þess að fjarlægð frá skúr að útvegg fasteignarinnar lóð nr. 28 við Óðinsgötu mældist 6,71 m eða yfir lágmarks fjarlægðarviðmiðunum og að upplýst hafi verið að skúrinn yrði einangraður með steinull, yrði ekki séð að öryggis- eða almannahagsmunum væri ógnað. Því myndi byggingarfulltrúi ekki beita sér fyrir því að mannvirkið yrði fjarlægt, en að skorað yrði á eigendur að sækja um byggingarleyfi fyrir greindu mannvirki.
  1. Kærandi vísar til þess að ekki liggi fyrir byggingarleyfi og að framkvæmdum sé ekki lokið, m.a. sé ekki búið að setja einangrun eða leggja rafmagn í skúrinn. Samkvæmt upplýsingum frá eiganda mannvirkisins standi til að reka þar glerverkstæði með glerslípivél og tengdum búnaði og tengja þangað rafmagn, en aðalrafmagnstafla hússins sé inni í íbúð kæranda. Skúrinn sé byggður upp við mannvirki á lóð Bergstaðastrætis 37 og nái upp fyrir þak þess. Steinveggur á lóðamörkum hafi verið hækkaður og hæð skúrsins miðuð við þá hækkun. Þakhæðin sé jafnframt meiri en hæð þess steypta veggjar sem byggingarfulltrúi hafi lagt til grundvallar ákvörðun sinni. Með vísan til öryggis- og brunavarnahagsmuna sé krafist stöðvunar framkvæmda meðan málið sé til meðferðar.
  1. Af hálfu Reykjavíkurborgar er bent á að ekki sé tilefni til að verða við kröfu um stöðvun framkvæmda. Hin kærða ákvörðun feli ekki í sér heimild til frekari framkvæmda og ekki séu ekki fyrir hendi aðstæður sem réttlæti stöðvun framkvæmda eða aðrar bráðabirgðaráðstafanir á meðan kæran sé til meðferðar.
  1. Framkvæmdaraðilar vísa til þess að nokkur tími sé síðan skúrinn hafi orðið fokheldur og ekki hafi verið unnið frekar við smíði hans síðan. Fyrirhugað sé að bíða með frekari framkvæmdir þar til úrlausn málsins fyrir kærunefnd húsamála og úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála liggi fyrir.

Niðurstaða

  1. Á grundvelli 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur nefndin heimild til að stöðva framkvæmdir í tengslum við meðferð kæru­mála. Um er að ræða undantekningu frá þeirri meginreglu að kæra til nefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og ber að skýra umrædda heimild þröngt. Krafa um stöðvun framkvæmda er einungis tæk til efnismeðferðar þegar hin kærða ákvörðun felur í sér heimild til framkvæmda, sbr. einnig orðalag 3. mgr. lagagreinarinnar.
  1. Í máli þessu er kærð ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 8. september 2026 þar sem synjað er kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda og fjarlægingu mannvirkis á lóð Óðinsgötu 28. Ekki hefur verið gefið út byggingarleyfi fyrir hinum umdeilda skúr, en byggingarfulltrúi hefur skorað á eigendur að sækja um byggingarleyfi fyrir umræddu mannvirki. Felur hin kærða ákvörðun því ekki í sér heimild til framkvæmda. Með hliðsjón af því getur úrskurðarnefndin ekki tekið kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða til efnismeðferðar. Verður þeirri kröfu því vísað frá nefndinni.

Úrskurðarorð

Kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda við byggingu mannvirkis á lóð Óðinsgötu 28 er vísað frá úrskurðarnefndinni.