Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Forsíða/Um nefndina

Um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála

Hlutverk nefndarinnar er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana og ágreiningsmálum vegna annarra úrlausnaratriða á sviði umhverfis- og auðlindamála eftir því sem mælt er fyrir um í lögum á þessu sviði.

Hvernig er nefndin skipuð?

Nefndin starfar á grundvelli laga nr. 130/2011 og er sjálfstæð í störfum sínum. Formaður er jafnframt forstöðumaður og hefur starfið að aðalstarfi. Hann er skipaður til fimm ára að undangenginni auglýsingu og skal uppfylla starfsgengisskilyrði héraðsdómara. Varaformaður er staðgengill forstöðumanns, uppfyllir sömu hæfisskilyrði og er skipaður með sama hætti til fimm ára.

Aðrir nefndarmenn eru skipaðir til fjögurra ára í senn eftir tilnefningu Hæstaréttar. Þeir skulu allir hafa háskólapróf og sérþekkingu á tilteknu sviði:

SkipulagsmálByggingarmálUmhverfismálJarðvísindi, orkumál og jarðrænar auðlindirVistfræði og lífríki þurrlendis, ferskvatns og sjávarLögfræði

Formaður og varaformaður

Skipaðir af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Arnór SnæbjörnssonFormaður og forstöðumaður
Unnþór JónssonVaraformaður, staðgengill forstöðumanns

Samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar Íslands

Aðalheiður Jóhannsdóttir
Prófessor í umhverfis- og auðlindarétti, aðalmaður
Varamaður: Kristinn Már Reynisson, lögfræðingur
Geir Oddsson
Auðlindafræðingur, aðalmaður
Varamaður: Helga Jóhanna Bjarnadóttir, umhverfis- og efnaverkfræðingur
Halldóra Vífilsdóttir
Arkitekt, aðalmaður
Varamaður: Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt
Karólína Finnbjörnsdóttir
Lögmaður, aðalmaður
Varamaður: Ingi B. Poulsen, lögmaður
Kristín Svavarsdóttir
Vistfræðingur, aðalmaður
Varamaður: Bjarni Kristófer Kristjánsson, prófessor í fiskeldi- og fiskalíffræði
Þorsteinn Sæmundsson
Jarðfræðingur, aðalmaður
Varamaður: Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur
Þorsteinn Þorsteinsson
Byggingarverkfræðingur, aðalmaður
Varamaður: Sigurður Erlingsson, prófessor

Meðferð mála

Að jafnaði er nefndin skipuð þremur fulltrúum við meðferð máls en fimm í stærri málum. Formaður getur einn afgreitt mál sem eru einföld úrlausnar og varða ekki verulega hagsmuni.

Reglur um formannsúrskurði

Formaður getur einn kveðið upp úrskurð í máli með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011 í eftirtöldum tilvikum:

  1. a.Ef vísa skal máli frá vegna þess að það eigi ekki undir úrskurðarnefndina, kærandi eigi ekki lögvarða hagsmuni eða að kærufrestur sé liðinn.
  2. b.Þegar krafist er stöðvunar framkvæmda til bráðabirgða, enda sé mál einfalt og hagsmunir ekki verulegir.
  3. c.Þegar leyst er úr efni máls og úrlausn þess varðar aðeins lagaleg álitaefni, hefur ekki fordæmisgildi og snertir ekki mikla hagsmuni.

Leiki vafi á um það hvort framangreindar heimildir eigi við um tiltekið mál getur formaður leitað úrlausnar úrskurðarnefndarinnar svo skipaðri sem hún myndi vera við meðferð viðkomandi máls. Formaður tekur þó ekki þátt í afgreiðslu nefndarinnar samkvæmt ákvæði þessu. Formaður skal gera nefndinni grein fyrir þeim úrskurðum sem hann kveður upp með stoð í reglunum.

Tengdar stofnanir

SkipulagsstofnunHúsnæðis- og mannvirkjastofnunUmhverfis- og auðlindaráðuneytiðUmhverfisstofnun