Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
Árið 2026, fimmtudaginn 13. ágúst, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. UUA2607005, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa í Reykjanesbæjar frá 26. febrúar 2026 um að staðfesta merkjalýsingu fyrir Njarðvíkurbraut 25.
- Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 6. júlí 2026, kærir eigandi, Njarðvíkurbraut 23 í Reykjanesbæ, þá ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar frá 26. febrúar 2026 að staðfesta merkjalýsingu fyrir Njarðvíkurbraut 25. Er þess krafist að ákvörðunin verði ógild.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Reykjanesbæ 5. ágúst 2026.
Málsatvik og rök
- Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar 26. febrúar 2026 var staðfest merkjalýsing fyrir Njarðvíkurbraut 25. Málið var tekið upp að nýju á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 23. júlí s.á. Á þeim fundi var merkjalýsingin afturkölluð á þeim grundvelli að ákvörðunin hefði byggt á ófullnægjandi gögnum.
- Kærandi vísar til þess að byggingarfulltrúi hafi tekið ákvörðun um að minnka lóð Njarðvíkurbrautar 23 án þess að geta sýnt fram á afsal á hluta eignarinnar. Með ákvörðuninni hafi hann því gerst brotlegur við lög. Byggingarfulltrúi hafi ekki heimilt til þess að skerða eignarréttindi, líkt og hann hafi gert með ákvörðun sinni.
- Af hálfu Reykjanesbæjar er vísað til þess að staðfesting á merkjalýsingunni hafi verið afturkölluð og verði ekki samþykkt aftur fyrr en samþykki eigenda aðliggjandi fasteigna liggi fyrir. Þá sé ekki um að ræða ákvörðun sem sé kæranleg til úrskurðarnefndarinnar auk þess sem kærufrestur sé liðinn.
Niðurstaða
- Samkvæmt 1. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur nefndin það hlutverk að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana og ágreiningsmálum vegna annarra úrlausnaratriða á sviði umhverfis- og auðlindamála eftir því sem mælt er fyrir um í lögum á þessu sviði.
- Um merkjalýsingar gilda lög nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna og reglugerð nr. 160/2024 um merki fasteigna. Ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli nefndra laga og reglugerðar eru ekki kæranlegar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.Þar sem kæruheimild skortir að lögum til að úrskurðarnefndin skeri úr þeim ágreiningi sem fyrir hendi er verður máli þessu vísað frá.
Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
