Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
Árið 2026, þriðjudaginn 27. október, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. UUA2609011, kæra á afgreiðslu byggingarfulltrúa Dalvíkurbyggðar á erindum kæranda vegna framkvæmda á lóð nr. 3 við Grundargötu, Dalvík.
- Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er barst nefndinni 14. september 2026, kærir eigandi Bræðrastígs ehf., lóðarhafa lóðar nr. 8 við Sandskeið, Dalvík, afgreiðslu byggingarfulltrúa Dalvíkurbyggðar á erindum kæranda vegna framkvæmda á lóð nr. 3 við Grundargötu. Er þess krafist að framkvæmdirnar verði skoðaðar með tilliti til þess hvort þær standist lög og hvort leyfi hafi verið gefin út fyrir þeim. Þá er þess jafnframt krafist að mannvirki á lóðarmörkum verði löguð í samræmi við byggingarleyfi eða eftir atvikum fjarlægð ef byggingarleyfi liggi ekki fyrir.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Dalvíkurbyggð 16. október 2026.
Málsatvik og rök
- Kærandi er lóðarhafi lóðar nr. 8 við Sandskeiði á Dalvík, en á aðliggjandi lóð, nr. 3 við Grundargötu, stendur „garðhús“ og skjólveggur á steyptum stoðvegg sem nýlega hefur verið framlengdur. Með bréfi, dags. 22. júní 2026, var lóðarhafa lóðar nr. 3 við Grundargötu gert að fjarlægja vegg á lóðamörkum þar sem ekki lægi fyrir samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóðar. Bréfinu var mótmælt með tölvubréfi 23. s.m. þar sem framkvæmdaraðili benti á að umræddur veggur væri ekki hærri en sem næmi fjarlægð frá lóðarmörkum og væri reistur í samráði við fulltrúa byggingarfulltrúa. Í kjölfarið lét byggingarfulltrúi mæla lóðina og reyndist veggurinn í um 1 m fjarlægð frá lóðarmörkum og hæð hans 1 m. Taldi byggingarfulltrúi því ekki þurfa samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóðar fyrir þeim hluta veggjarins samkvæmt e-lið gr. 2.3.5 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
- Í tölvubréfi 24. ágúst 2026 upplýsti kærandi byggingarfulltrúa um að samkomulagi á milli lóðarhafa Grundargötu 3 og kæranda hefði verið rift. Með tilliti til þess fór kærandi fram á það að veggur og garðhús á lóðarmörkum yrði skoðað. Óskaði kærandi jafnframt eftir gögnum og upplýsingum um framkvæmdir á lóð Grundargötu 3. Meðal þeirra voru mæliblöð fyrir Sandskeið 8, gildandi deiliskipulag og byggingarskilmálar fyrir svæðið, samþykktar teikningar og/eða byggingarleyfi fyrir framkvæmdum á lóðamörkum og hvort eldri eða nýrri hluti veggjar á lóðarmörkum hefði verið samþykktur af byggingarfulltrúa. Erindi kæranda var svarað af byggingarfulltrúa með tölvubréfum 27 s.m. og 2. september s.á. þar sem fram kom að ekki hafi fundist samþykktar teikningar sem sýni landhæð eða hæðir á lóðamörkum. Þá nægðu fyrirliggjandi upplýsingar ekki til þess að staðfesta á hvaða grundvelli eldri mannvirki á lóð Grundargötu 3 hafi verið reist eða hvort samþykki byggingaryfirvalda hefði legið fyrir á þeim tíma. Varðandi nýrri hluta veggjarins var bent á að hann hafi verið skoðaður og talinn í lagi miðað við hæð og fjarlægð frá lóðarmörkum. Þá kvaðst byggingarfulltrúi ekki taka afstöðu til eldra samkomulags á milli lóðarhafa, enda væri það einkaréttarlegs eðlis.
- Kærandi bendir á að þegar hann hafi keypt fasteignina að Sandskeiði 8 hafi hann verið upplýstur um samkomulag á milli fyrri eigenda og eiganda fasteignarinnar að Grundargötu 3 vegna mannvirkja á mörkum lóðanna. Samkvæmt því hefðu mannvirkin fengið að standa gegn því að eigandi Sandskeiðs 8 fengi afnot af hluta lóðar Grundargötu 3. Nú hafi veggur á lóð Grundargötu 3 verið framlengdur þannig að kærandi hafi ekki lengur aðgang að þeim hluta lóðarinnar sem samkomulagið hafi náð til. Bent sé á að hækkun lóðar, stoðveggur, girðing og garðhús geri það að verkum að mikill snjór og vatn safnist saman á lóð kæranda og geri hana að miklu leyti ónothæfa. Þá sé tilgangur kærunnar að fá úr því skorið hvort rétt hafi verið staðið að framkvæmdum á lóð Grundargötu 3 og hvort leyfi hafi verið fyrir þeim.
- Af hálfu Dalvíkurbyggðar er bent á að ýmis samskipti hafi átt sér stað á milli sveitarfélagsins og kæranda en hann hafi ekki lagt fram neinar kröfur sem lúti að tiltekinni stjórnsýsluákvörðun. Þá liggi engin kæranleg ákvörðun fyrir í málinu sem sætt geti kæru til úrskurðarnefndarinnar. Kæranda hafi verið bent á að samkomulag á milli lóðarhafa vegna tiltekinna mannvirkja og afnota af lóð sé einkaréttarlegur ágreiningur sem sveitarfélagið hefði ekki aðkomu að.
Niðurstaða
- Samkvæmt 1. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur úrskurðarnefndin það hlutverk að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana og ágreiningsmálum vegna annarra úrlausnaratriða á sviði umhverfis- og auðlindamála eftir því sem mælt er fyrir um í lögum á því sviði. Kæruheimild til nefndarinnar er m.a. að finna í 59. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki vegna stjórnvaldsákvarðana sem teknar eru á þeim lagagrundvelli.
- Með erindi kæranda til byggingarfulltrúa Dalvíkurbyggðar 24. ágúst 2026, óskaði kærandi nánar tilgreindra gagna og upplýsinga í tengslum við nýlegar framkvæmdir og eldri mannvirki á lóð nr. 3 við Grundargötu. Áttu kærandi og byggingarfulltrúi í frekari samskiptum í kjölfarið en ekki verður séð að kærandi hafi farið fram á að byggingarfulltrúi tæki stjórnvaldsákvörðun í málinu, svo sem ákvörðun um beitingu þvingunarúrræða. Ber afgreiðsla byggingarfulltrúa á hinn bóginn þess merki að um afgreiðslu á fyrirspurn hafi verið að ræða sem verður ekki lögð að jöfnu við kæranlega stjórnvaldsákvörðun. Hefur og sveitarfélagið greint frá því að ekki hefur verið tekin nein ákvörðun á grundvelli mannvirkjalaga vegna framkvæmda á lóð nr. 3 við Grundargötu. Að því virtu er ekki til að dreifa kæranlegri stjórnsýsluákvörðun í máli þessu, sem skotið verður til úrskurðarnefndarinnar, sbr. 2. mgr. 1. gr. og 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Verður kærumálinu því vísað frá nefndinni.
- Í kæru til úrskurðarnefndarinnar gerir kærandi þær kröfur að mannvirki á lóð Grundargötu 3 verði löguð í samræmi við byggingarleyfi og eftir atvikum fjarlægð ef byggingarleyfi liggi ekki fyrir. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur slíkri kröfu þó ekki verið beint að sveitarfélaginu. Rétt þykir að leiðbeina kæranda um að telji hann að framkvæmdir á lóð Grundargötu 3 hafi ekki farið fram lögum samkvæmt geti hann beint erindi til byggingarfulltrúa sveitarfélagsins þess efnis og farið fram á beitingu þvingunarúrræða á grundvelli 55. og 56. gr. laga um mannvirki.
Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
