Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
Árið 2026, fimmtudaginn 6. ágúst, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. UUA2605004, kæra á ákvörðun skipulags- og framkvæmdaráðs Norðurþings um að synja um leyfi til að setja tvo hringlaga glugga með opnanlegu fagi á suðurhlið hússins að Hafnarstétt 13, Húsavík.
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 7. maí 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir Gentle Giants-Hvalaferðir ehf., Hafnarstétt 13, Húsavík ákvörðun skipulags- og framkvæmdaráðs sveitarfélagsins Norðurþings frá 31. mars s.á um að synja að hluta til umsókn félagsins um byggingarleyfi. Nánar greint var því synjað að komið yrði fyrir tveimur hringlaga gluggum með opnanlegum fögum á suðurhlið hússins að Hafnarstétt 13. Fallist var á hinn bóginn á að koma mætti þar fyrir gluggum með fullnægjandi eldvörn og gera aðrar umbeðnar breytingar á veggklæðningu. Er þess krafist að fellt verði úr gildi framangreint ákvæði. Jafnframt er þess krafist að lagt verði fyrir Norðurþing að taka erindi kæranda til meðferðar á ný.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Norðurþingi maí 2026.
Málavextir
- Á lóðinni að Hafnarstétt 15, stóð frá árinu 1958 svokallaður Helguskúr. Skúrin hafði staðið á grundvelli stöðuleyfis frá árinu 2017, þrátt fyrir að staðsetning hans samræmdist ekki deiliskipulagi svæðisins og var hann rifinn í upphafi árs 2026.
- Hinn 18. mars 2026 sótti kærandi um leyfi til þess að setja tvo hringlaga glugga með opnanlegu fagi á suðurhlið hússins að Hafnarstétt 13, Húsavík. Einnig var óskað leyfis til að klæða suðurhlið hússins með lerkiklæðningu í bland við múrsteina til samræmis við norðurhlið hússins. var tekin fyrir á fundi skipulags- og framkvæmdaráðs Norðurþings 31. mars 2026. Í fundargerð fundarins kemur fram það álit ráðsins að veggur Hafnarstéttar 13, sem liggi þétt upp við lóðarmörk að Hafnarstétt 15 verði að vera EI60 svo hann rýri ekki byggingarrétt aðliggjandi óbyggðrar lóðar samkvæmt gildandi deiliskipulagi fyrir Miðhafnarsvæði Húsavíkur frá árinu 2017. Sé því ekki fallist á að sett verði opnanleg gluggafög við lóðamörk. Ráðið geti hins vegar fallist á að settir verði gluggar með fullnægjandi eldvörn. Ekki voru gerðar athugasemdir við að sett yrði timburklæðning á vegginn. Kæranda var tilkynnt um ákvörðunina með bréfi, dags. 7. apríl 2026.
- Í framhaldi þessa óskaði kærandi frekari rökstuðnings og barst hann með bréfi Norðurþings dags. 13. apríl 2026. Kom þar fram að grundvöllur ákvörðunarinnar væri umsögn slökkviliðs Norðurþings sem byggði á áliti eldvarareftirlits slökkviliðs Akureyrar. Þá væri afmörkun lóðarinnar og byggingarreitur hvorrar lóðar skilgreindur í gildandi deiliskipulagi.
Málsrök kæranda
- Kærandi bendir á að þótt byggingarreitur á lóð nr. 15 við Hafnarstétt nái að mörkum lóðar hans leiði það ekki sjálfkrafa til þess að opnanleg gluggafög á suðurhlið húss hans skerði byggingarrétt á þeirri lóð. Það liggi ekki fyrir að fyrirhuguð bygging á lóðinni nr. 15 verði staðsett þétt upp við hús hans. Nægt rými sé innan lóðarinnar til að staðsetja byggingu fjær lóðamörkum. Þá liggi hvorki fyrir hvernig mannvirki verði útfært á lóð nr. 15 né að opnanleg gluggafög á Hafnarstétt 13 muni í reynd takmarka nýtingu lóðarinnar. Afmörkun byggingarreitsins á lóð nr. 15 taki mið af staðsetningu Helguskúrs, sem hafi verið ólögmæt og að hluta staðið utan lóðarmarka eða byggingarreits. Hin kærða ákvörðun byggist því á forsendum sem hafi orðið til við ólögmætt ástand.
- Sérstakt tilefni hafi verið til að rannsaka afmörkun og lagalegan grundvöll byggingarreits lóðarinnar og hvort nauðsynlegt sé að haga byggingarrétti á henni með núverandi hætti. Slíkt sjálfstætt og atviksbundið mat hafi ekki farið fram. Í hinni kærðu ákvörðun sé einungis vísað almennt til þess að suðurveggur mannvirkis á lóð nr. 13 liggi við lóðamörk og þurfi að uppfylla tilteknar brunavarnarkröfur svo byggingarréttur aðliggjandi lóðar skerðist ekki. Ekki sé gerð grein fyrir því í hverju ætluð skerðing felist eða hvort unnt sé að mæta brunavarnarsjónarmiðum með vægari úrræðum. Þá sé hvorki vísað með fullnægjandi hætti til þeirra ákvæða deiliskipulags eða byggingarreglugerðar sem leiði til synjunar, né útskýrt hvers vegna framkvæmdin verði ekki heimiluð með skilyrðum. Rökstuðningur ákvörðunarinnar sé því ófullnægjandi og gefi tilefni til að ætla að rannsókn málsins hafi verið ábótavant. Ekki nægi að vísa almennt til mögulegs og óútfærðs byggingarréttar á aðliggjandi lóð án þess að sýnt hafi verið fram á raunveruleg og veruleg áhrif á þann rétt. Slík málsmeðferð samrýmist hvorki rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 né þeim kröfum sem gera verði við takmörkun eignarréttar og heimilda eiganda til að ganga frá og nýta fasteign sína. Ákvörðunin varði heila húshlið og hafi verulega þýðingu fyrir birtu, notagildi og eðlilega nýtingu mannvirkisins. Kærandi sé ekki að óska eftir auknum byggingarheimildum heldur einungis að fá að ljúka frágangi.
- Fyrri staða Helguskúrs við mörk lóðanna nr. 13 og 15 við Hafnarstétt hafi verið óeðlileg og ólögmætt. Ómálefnalegt sé að kærandi beri áfram hallann af því. Hefði skúrinn ekki verið til staðar þegar byggt hafi verið á lóð kæranda hefði mátt vænta þess að suðurhlið hússins hefði verið fullfrágengin með venjulegum hætti. Kærandi hafi því mátt gera ráð fyrir að honum yrði heimilað að ljúka frágangi hennar eftir að skúrinn yrði fjarlægður, nema skýr og lögmæt sjónarmið mæltu því í mót.
- Þótt brunavarnarsjónarmið geti verið málefnaleg leiði þau ekki sjálfkrafa til þess að synja beri alfarið um opnanleg gluggafög. Sveitarfélaginu hafi borið að kanna hvort unnt væri að tryggja fullnægjandi brunavarnir með vægari úrræðum, svo sem skilyrðum um gerð glugga, brunatæknilegum lausnum eða öðrum ráðstöfunum. Synjunin sé íþyngjandi og hafi áhrif á hagnýtingu fasteignarinnar. Því hafi verið tilefni til að afla frekari gagna og gefa kæranda kost á að leggja fram brunatæknilega útfærslu eða greinargerð hönnuðar. Slík málsmeðferð hefði verið í betra samræmi við rannsóknarreglu, meðalhófsreglu og andmælarétt, sbr. 10., 12. og 13. gr. stjórnsýslulaga.
Málsrök Norðurþings
- Við meðferð málsins hafi verið leitað umsagnar slökkviliðs Norðurþings, sem aflað hafi álits eldvarnarsviðs slökkviliðs Akureyrar sem hafi talið að opnanleg gluggafög myndu skerða brunamótstöðu veggjarins. Þar sem veggurinn stæði á lóðamörkum gæti það jafnframt takmarkað nýtingu aðliggjandi lóðar, meðal annars vegna aukinna krafna um fjarlægð milli bygginga. Eldvarnareftirlit Norðurþings hafi tekið undir það mat. Þótt unnt væri að veita framkvæmdinni jákvæða umsögn meðan ekkert hús stæði á lóðinni sunnan við Hafnarstétt 13, myndu auknar brunavarnarkröfur hvíla á framtíðarbyggingu þar. Af þeim sökum hafi ekki verið fallist á beiðni kæranda um opnanleg gluggafög.
- Helguskúr hafi ekki þýðingu fyrir úrlausn málsins. Hann hafi verið reistur áður en deiliskipulag svæðisins hafi tekið gildi og þar sé gert ráð fyrir að hann verði fjarlægður. Lóðamörk og byggingareitir komi skýrt fram á gildandi deiliskipulagsuppdrætti. Því sé hafnað að skúrinn hafi hindrað eðlilegan frágang eða fulla nýtingu suðurhliðar hússins að Hafnarstétt 13. Fyrri staðsetning hans hafi heldur ekki áhrif á mat á því hvort heimila ætti opnanleg gluggafög á veggnum.
- Samkvæmt gildandi deiliskipulagi liggi lóðirnar að Hafnarstétt 13 og 15, ásamt byggingarreitum þeirra, samhliða. Skipulagið geri því ráð fyrir að mannvirki á lóðunum geti staðið nálægt hvort öðru. Við þær aðstæður þurfi veggur milli mannvirkjanna að uppfylla kröfu um tveggja klukkustunda brunamótstöðu, EI120. Opnanleg gluggafög geti ekki verið á slíkum vegg nema gripið sé til sérstakra brunavarnarráðstafana.
- Suðurveggur Hafnarstéttar 13 uppfylli aðeins kröfu um brunamótstöðu í flokki EI60 og opnanleg gluggafög myndu skerða brunamótstöðu hans enn frekar. Samþykki umsóknarinnar myndi því takmarka uppbyggingu á lóðinni að Hafnarstétt 15 samkvæmt gildandi deiliskipulagi, meðal annars er varði staðsetningu byggingar, fjarlægð milli mannvirkja og mögulega gerð sérstaks eldvarnarveggjar. Slíkar kvaðir væru umfram þær takmarkanir sem leiði af gildandi deiliskipulagi og myndu skerða byggingarrétt á lóðinni.
- Norðurþing telji ákvörðunina samræmast gildandi skipulagi og vera til þess fallna að tryggja byggingarrétt og hagsmuni beggja lóða. Sveitarfélaginu sé ekki skylt að samþykkja framkvæmdir á einni lóð sem skerði byggingarmöguleika aðliggjandi lóðar. Því sé jafnframt hafnað að brotið hafi verið gegn meðalhófsreglu, enda séu möguleikar kæranda ekki takmarkaðir umfram það sem nauðsynlegt sé með hliðsjón af skipulagi svæðisins og hagsmunum aðila. Ekki skipti máli þótt ekki liggi fyrir hvar framtíðarbygging á Hafnarstétt 15 verði staðsett, þar sem framkvæmdirnar myndu engu að síður skerða þá uppbyggingarmöguleika sem deiliskipulagið heimili.
- Hin kærða ákvörðun hafi því verið tekin á grundvelli lögmætra og málefnalegra sjónarmiða og ekki verið gengið lengra en nauðsynlegt sé. Fallist hafi verið á timburklæðningu og glugga með fullnægjandi eldvörn, með því skilyrði að framkvæmdirnar skerði ekki uppbyggingarmöguleika aðliggjandi lóðar. Hvað varði stiga við Hafnarstétt 9 hafi sérstaklega verið gert ráð fyrir honum í deiliskipulagi svæðisins. Stiginn skerði hvorki réttindi né hagsmuni kæranda eða annarra.
- Þá sé því hafnað að rökstuðningur hinnar kærðu ákvörðunar hafi verið ófullnægjandi. Af ákvörðuninni, síðari rökstuðningi frá 13. apríl 2026 og öðrum gögnum málsins komi skýrlega fram hvaða sjónarmið liggi henni til grundvallar. Ákvörðunin byggist á gildandi deiliskipulagi, ákvæðum byggingarreglugerðar og mati á brunavörnum og áhrifum framkvæmdanna á byggingarmöguleika aðliggjandi lóðar. Þau sjónarmið séu lögmæt og málefnaleg.
Viðbótarathugasemdir kæranda
- Kærandi bendir á að í gr. 9.7.5. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 sé kveðið á um þá meginreglu að bil milli bygginga skuli vera nægjanlega mikið til að ekki sé hætta á að eldur nái að breiðast út á milli þeirra. Tölulegar fjarlægðir í töflu 9.09 í reglugerðinni séu hins vegar viðmiðunartölur. Samkvæmt b- og c-liðum í gr. 9.2.2. í reglugerðinni sé hönnuðum heimilað að víkja frá þessum viðmiðunarmörkum með sértækri brunahönnun eða tækniskiptum, svo framarlega sem sýnt sé fram á að brunaöryggi sé tryggt.
- Þótt að ábyrgð á brunahönnun hvíli á hönnuði sbr. 23. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki, beri stjórnvaldi skylda til þess að leiðbeina um leiðir að ásættanlegri niðurstöðu fremur en að hafna erindi. Sú málsmeðferð samrýmist hvorki byggingarreglugerðinni né meðalhófsreglu stjórnsýslulaga.
—–
- Aðilar máls þessa hafa fært fram ítarlegri rök fyrir máli sínu, sem ekki verða rakin hér frekar, en úrskurðarnefndin hefur haft þau öll til hliðsjónar við úrlausn málsins.
Niðurstaða
- Í máli þessu er deilt um lögmæti ákvörðunar skipulags- og framkvæmdaráðs Norðurþings frá 31. mars 2026 um að synja þeim hluta umsóknar kæranda um byggingarleyfi sem laut að því að koma fyrir tveimur hringlaga gluggum með opnanlegum fögum á suðurhlið hússins að Hafnarstétt 13. Kæruheimild til úrskurðarnefndarinnar er í 59. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki.
- Það er hlutverk byggingarfulltrúa sveitarfélags að taka ákvörðun um það hvort samþykkja skuli eða hafna umsókn um byggingarleyfi samkvæmt ákvæðum laga nr. 160/2010 um mannvirki, sbr. 2. mgr. 9. gr., 11. gr. og 13. gr. laganna. Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laga um mannvirki er sveitarstjórn heimilt með sérstakri samþykkt að kveða á um að í sveitarfélaginu starfi byggingarnefnd sem fjalli um byggingarleyfisumsókn áður en byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi. Slík samþykkt, sem sæta skal staðfestingu félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, er ekki í gildi fyrir Norðurþing.
- Í gr. 1.10. í viðauka við samþykkt um stjórn og fundarsköp Norðurþings nr. 1407/2023, sem sett er með stoð í 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 er kveðið á um að skipulags- og byggingarfulltrúa sé heimilt að vísa ákvörðun um m.a. útgáfu byggingarleyfis, til afgreiðslu ráðsins, megi ætla að aðili máls muni ekki una niðurstöðu máls eða ef lög, reglur eða stefna eru ekki skýr eða ljóst er að ákvörðun er stefnumarkandi. Vegna ákvæða mannvirkjalaga getur afgreiðsla ráðsins þó einungis verið leiðbeinandi fyrir byggingarfulltrúa. Þar sem ekki nýtur við efnislegri afstöðu byggingarfulltrúa til ágreiningsefnis máls þessa verður því að vísa máli þessu frá úrskurðarnefndinni.
Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
