Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 129/2026 · Mál nr. UUA2609007 · Kveðinn upp 25. september 2026

Álfhólsvegur

Frávísun
Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.

Árið 2026, föstudaginn 25. september, tók Unnþór Jónsson, varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, fyrir:

Mál nr. UUA2609007, beiðni um úrskurð vegna eignaskiptayfirlýsingar Álfhólsvegar 27 og drátt á afgreiðslu fyrirspurnar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

  1. Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 6. september 2026, er barst nefndinni 8. s.m., fer einn eigandi, Álfhólsvegi 27, Kópavogi, fram á úrskurð vegna eignaskiptayfirlýsingar Álfhólsvegar 27 og aðgerðarleysis Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
  1. Úrskurður þessi er kveðinn upp með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, sbr. 1. mgr. 2. gr. sömu laga.

Málsatvik og rök

  1. Árið 1987 keypti kærandi þriggja herbergja íbúð í kjallara að Álfhólsvegi 27. Upphaflega var húsið byggt sem parhús en því var síðar skipt upp í fleiri íbúðir. Fyrir liggur dómur Landsréttar 19. nóvember 2021 í máli nr. 373/2020 þar sem viðurkennt var að þvottarými í kjallara hússins væri í sameign, en af kæru verður ráðið að kærandi telji það rými vera séreign sína samkvæmt þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu frá 21. október 1987.
  1. Kærandi vísar til þess að hann hafi lengi reynt að fá húsfélag hússins til að gera nýja eignaskiptayfirlýsingu, en þörf sé á að fara yfir eignaskiptin og skráningu hússins. Beiðnum hans hafi ítrekað verið hafnað. Þá hafi kærandi leitað til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar og hafi hann óskað eftir skýringum á tilteknum gögnum og upplýsingum um hvernig þau hafi verið notuð við skráningu og meðferð eignarinnar. Hann hafi ekki fengið fullnægjandi svör frá stofnuninni. Kærandi hafi efasemdir um skjal frá 9. júní 1978 sem vísað hafi verið til í fyrrgreindum Landsréttardómi og telji nauðsynlegt að fá skýringar á því hvernig það hafi orðið til, hver hafi gert það, í hvaða tilgangi það hafi verið gert og hvernig það hafi orðið hluti af þeim gögnum sem byggt hafi verið á í málinu. Þá samræmist íbúð í húsinu hugsanlega ekki kröfum laga nr. 160/2010 um mannvirki, m.a. vegna atriða sem varði brunavarnir og flóttaleiðir. Ekkert hafi verið gert þrátt fyrir ábendingar kæranda þar um.

Niðurstaða

  1. Samkvæmt 1. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur úrskurðarnefndin það hlutverk að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana og ágreiningsmálum vegna annarra úrlausnaratriða á sviði umhverfis- og auðlindamála eftir því sem mælt er fyrir um í lögum á því sviði. Einskorðast valdheimildir úrskurðarnefndarinnar við endurskoðun á lögmæti þeirra ákvarðana sem undir hana verða bornar lögum samkvæmt.
  1. Í máli þessu óskar kærandi eftir því að úrskurðarnefndin taki erindi hans til meðferðar og úrskurði um nánar tilgreind atriði. Jafnframt að úrskurðarnefndin gefi skýra og rökstudda niðurstöðu um tiltekin atriði, s.s. um tilurð skjala og fleira. Þá óskar kærandi enn fremur afstöðu úrskurðarnefndarinnar til þess hvaða úrræða hann hafi vegna ágreinings eignaskiptayfirlýsingar og leiðréttingu á skráningu hússins.
  1. Fjallað er um eignaskiptayfirlýsingar í lögum nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Samkvæmt 2. mgr. 16. gr. laganna fer um rétt og heimild eigenda til að vefengja eignaskiptayfirlýsingu eftir fyrirmælum 18. gr. laganna. Þá kemur einnig fram í 7. mgr. lagaákvæðisins að telji eigandi rétti sínum hallað með eignaskiptayfirlýsingu geti hann nýtt sér heimildir og úrræði sem mælt sé fyrir um í 18. gr. laganna. Samkvæmt 4. mgr. 18. gr. laganna getur hver eigandi sem telur hlutfallstölur rangar eða eignarhlutföllin í húsinu óeðlileg eða ósanngjörn krafist breytinga og leiðréttinda þar á, en nánari fyrirmæli þar um er að finna í 5. og 6. mgr. ákvæðisins. Á hinn bóginn fellur það ekki undir valdsvið úrskurðarnefndarinnar að svara lögfræðilegum álitaefnum um eignaskiptayfirlýsingar eða rannsaka tilurð tiltekinna skjala í því sambandi, en ágreiningur um bein eða óbein eignarréttindi verður ekki til lykta leiddur fyrir úrskurðarnefndinni.
  1. Ekki verður séð að í máli þessu sé til að dreifa ákvörðun sem borin verður undir úrskurðarnefndina. Þá verður jafnframt ekki séð að ákvæði 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, um heimild til að kæra óhæfilegan drátt á afgreiðslu máls til stjórnvalds sem ákvörðun í málinu verður kærð til, eigi við vegna fyrirspurnar kæranda til Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skýringu á tilteknu gagni. Verður kærumáli þessu því vísað frá úrskurðarnefndinni.

Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.