Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 132/2026 · Mál nr. UUA2609022 · Kveðinn upp 6. október 2026

Kringla II

FrávísunFormannsúrskurður
Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.

Árið 2026, þriðjudaginn 6. október, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:

Mál nr. UUA2609022, kæra á ákvörðun sveitarstjórnar Grímsnes- og grafningshrepps frá 1. maí 2002 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Kringlu II.

  1. Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 28. september 2026, kærir eigandi landspildunnar „Kringlu 2 lóð 11“, L191501, þá ákvörðun sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps frá 1. maí 2002 að samþykkja breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Kringlu II. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Málsatvik og rök

  1. Fyrir liggur deiliskipulag dags. í apríl 1998 fyrir svæði í landi Kringlu í Grímsnesi þar sem sýndar eru 14 lóðir sem ætlaðar eru fyrir hrossabeit og sumarbústaði. Hinn 1. maí 2002 samþykkti sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps breytingu á deiliskipulaginu vegna aðkeyrslu að lóðum nr. 3, 5, 7, 9 og 11. Deiliskipulagsbreytingin tók gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda 10. júní 2002.
  1. Af hálfu kæranda er bent á að málsmeðferðarreglum og ákvæðum laga hafi ekki verið fylgt við umrædda deiliskipulagsbreytingu. Samkvæmt þágildandi skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 hafi sveitarstjórn verið óheimilt að breyta deiliskipulagi á þann hátt að umferð eða aðkoma yrði færð yfir einkaland án kynningar og andmælaréttar viðkomandi landeiganda. Breytingin hafi hins vegar farið fram án vitundar og samþykkis kæranda. Hann hafi leyft eigendum lóðar nr. 9 að nýta veg sem lægi yfir lóð nr. 11 af greiðasemi en það hafi aldrei staðið til að vegslóðinn yrði gerður að varanlegri aðkomu að lóðinni. Slíkur umferðarréttur feli í sér kvöð sem hefði þurft að þinglýsa á lóð hans. Án samþykkis landeiganda eða formlegs eignarnáms feli slík skipulagskvöð í sér ólögmæta skerðingu á friðhelgi eignarréttar skv. 72. gr. stjórnarskrárinnar.

Niðurstaða

  1. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er kærufrestur til nefndarinnar einn mánuður frá því að kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um þá ákvörðun sem kæra lýtur að. Sé um að ræða ákvörðun sem sætir opinberri birtingu telst kærufrestur frá fyrstu birtingu ákvörðunar skv. 2. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
  1. Í 28. gr. stjórnsýslulaga er fjallað um áhrif þess ef kæra berst að liðnum kærufresti. Ber þá skv. 1. mgr. ákvæðisins að vísa kæru frá nema að afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða veigamiklar ástæður mæli með því að hún verði tekin til efnismeðferðar. Tiltekið er í athugasemdum með 28. gr. í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum að við mat á því hvort skilyrði séu til að taka mál til meðferðar að loknum kærufresti þurfi að líta til þess hvort aðilar að málinu séu fleiri en einn og með andstæða hagsmuni, eins og raunin er í máli þessu.
  1. Hin kærða ákvörðun var birt í B-deild stjórnartíðinda 10. júní 2002 og tók kærufrestur til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála að líða degi síðar, sbr. 1. mgr. 8. gr. stjórnsýslulaga, sbr. ákvæði II. til bráðabirgða við lög nr. 130/2011. Kæra í máli þessu barst úrskurðarnefndinni 28. september 2026. Verður kærumáli þessu því vísað frá nefndinni enda ekki talið unnt að taka málið til meðferðar að liðnum kærufresti samkvæmt fyrrgreindum undantekningarákvæðum 28. gr. stjórnsýslulaga, enda hefur lögmælt opinber birting ákvörðunar þá þýðingu að almenningi telst vera kunnugt um hina birtu ákvörðun.

Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.