Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
Árið 2026, mánudaginn 24. ágúst, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Unnþór Jónsson varaformaður, Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður og Þorsteinn Þorsteinsson byggingarverkfræðingur.
Fyrir var tekið mál nr. UUA262606018, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa Akureyrarbæjar frá 20. júní 2024 um að samþykkja byggingaráform fyrir einbýlishús á lóð nr. 2 við Bjarkarlund, ákvörðun skipulagsráðs frá 27. nóvember s.á. um að heimila breytingu á deiliskipulagi vegna sömu framkvæmda og ákvörðun byggingarfulltrúa frá 30. apríl 2025 um að samþykkja breytta aðaluppdrætti á grundvelli breytinga á deiliskipulagi.
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 19. júní 2026, er barst nefndinni sama dag, kæra íbúar að Reynilundi 2, Akureyri, þá ákvörðun byggingarfulltrúa Akureyrarbæjar frá 20. júní 2024 að samþykkja byggingaráform fyrir einbýlishús á lóð nr. 2 við Bjarkarlund. Einnig er kærð ákvörðun skipulagsráðs frá 27. nóvember 2024 um að heimila breytingu á deiliskipulagi vegna sömu framkvæmda og ákvörðun byggingarfulltrúa frá 30. apríl 2025 um að samþykkja breytta aðaluppdrætti á grundvelli breytinga á deiliskipulagi. Er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi. Var þess jafnframt krafist að framkvæmdir yrðu stöðvaðar á meðan málið væri til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Með úrskurði uppkveðnum 7. júlí 2026 var þeirri kröfu hafnað.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Akureyrarbæ 29. júní 2026.
Málavextir
- Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Akureyrarbæjar 6. júní 2024 var tekin fyrir umsókn um byggingarleyfi, dags. 27. maí s.á., fyrir einbýlishús á lóð nr. 2 við Bjarkarlund. Sótt var um að bílskúr hússins yrði hálfniðurgrafinn. Var erindinu vísað til umsagnar skipulagsráðs. Á fundi ráðsins 12. júní s.á. var erindið tekið fyrir og var það niðurstaða fundarins að fyrirhuguð áform fælu í sér svo óverulegt frávik frá skilmálum deiliskipulags að ekki væri talin þörf á breytingu með vísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Var umsóknin tekin fyrir að nýju á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 20. s.m. og samþykkt.
- Með erindi lóðarhafa, dags. 15. nóvember 2024, sem tekið var fyrir á fundi skipulagsráðs 27. s.m., var óskað eftir breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina. Fram kom að í kjölfar jarðvegskannana hefði verið ákveðið að byggja húsið á súlum og hætt við að hafa bílskúr niðurgrafinn. Þessi breyting myndi leiða til þess að húsið myndi hækka að hluta til, ofan við bílskúr, umfram gildandi skilmála um hámarkshæð og yrði 5,85 m í stað 5,0 m. Samþykkti skipulagsráð erindið og taldi að þar sem um óverulega breytingu væri að ræða skyldi hún grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum að Bjarkarlundi 4, Reynilundi 1 og 3 og Grenilundi 21 og 33, í samræmi við ákvæði 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga. Tók deiliskipulagsbreytingin gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda 6. mars 2025. Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 30. apríl s.á. samþykkti byggingarfulltrúi umsókn lóðarhafa um breytingar á þegar samþykktum aðaluppdráttum fyrir húsið að Bjarkarlundi 2 í samræmi við hina samþykktu deiliskipulagsbreytingu.
Málsrök kærenda
- Kærendur vísa til þess að þeim hafi ekki verið gefinn kostur á að koma að athugasemdum vegna þeirra breytinga sem samþykktar hafi verið á fundi skipulagsráðs 27. nóvember 2024, enda hafi breytingin ekki verið grenndarkynnt fyrir þeim. Augljóst sé að þau eigi hagsmuna að gæta í málinu og að borið hafi að grenndarkynna fyrir þeim áformin. Hús það sem verið sé að byggja á lóð Bjarkarlundar 2 hafi veruleg áhrif á útsýni kærenda til suðurs auk þess sem það skeri sig verulega úr í hverfinu, enda eina húsið á tveimur hæðum.
- Hvað varði kærufrest sé vísað til þess að í framkvæmd hafi verið litið svo á að ef hin kærða ákvörðun sé ekki háð opinberri birtingu miðist tímamarkið við það þegar kærendum hafi sannanlega verið kunnugt um, eða mátt vera kunnugt, um efni hinnar kærðu ákvörðunar. Kærendum hafi ekki orðið það ljóst fyrr en í kringum 10. júní sl. að framkvæmdirnar myndu hafa veruleg áhrif á hagsmuni þeirra, þ.e. þegar þau hafi orðið vör við að verið væri að hefja byggingu á efri hæð hússins.
- Atvik málsins séu svo til samhljóða þeim sem hafi verið uppi í kærumáli úrskurðarnefndarinnar nr. 126/2017, sbr. einnig mál nr. 36/2020. Í báðum málunum hafi nefndin lagt áherslu á að markmiðið með grenndarkynningu sé að veita hagsmunaaðilum andmælarétt auk þess að vera liður í rannsókn máls. Engin efnisleg rök séu fyrir því að þau hafi ekki fengið grenndarkynningu á tillögu að deiliskipulagsbreytingu, en með því að gera það ekki hafi Akureyrarbær ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni.
Málsrök Akureyrarbæjar
- Akureyrarbær vísar til þess að frestur til að kæra ákvarðanir byggingarfulltrúa frá 20. júní 2024 og 30. apríl 2025 hafi verið löngu liðinn þegar kæra hafi borist úrskurðarnefndinni, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Þá séu skilyrði 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 til að taka kæru til meðferðar að liðnum kærufresti ekki uppfyllt. Við það mat beri meðal annars að líta til þess að málið varði andstæða hagsmuni kærenda og leyfishafa.
- Sama eigi við um hina kærðu deiliskipulagsbreytingu. Hún hafi tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda 5. mars 2025 og kærufrestur því runnið út mánuði síðar. Ekki geti talist afsakanlegt í skilningi 28. gr. stjórnsýslulaga að kærendum hafi ekki orðið kunnugt um ákvörðun sem birt hafi verið með lögboðnum hætti í Stjórnartíðindum.
- Þá telur sveitarfélagið að kærendur skorti lögvarða hagsmuni samkvæmt 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011. Umrædd deiliskipulagsbreyting felist eingöngu í því að hæð hluta húss að Bjarkarlundi 2 hækki úr 5,0 m í 5,85 m. Að mati sveitarfélagsins hafi breytingin hvorki í för með sér skuggavarp á fasteign kærenda né verulega skerðingu á útsýni þeirra. Þá séu 52 m á milli húsanna og um 61 m frá þeim hluta hússins sem breytingin varði að húsi kærenda.
- Verði málinu ekki vísað frá úrskurðarnefndinni með vísan til framangreinds er þess krafist að kröfum kærenda verði hafnað á efnislegum grundvelli. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi hafi verið grenndarkynnt fyrir eigendum þeirra fasteigna sem taldir hafi getað orðið fyrir grenndaráhrifum, en engar athugasemdir hafi borist. Með hliðsjón af umfangi breytingarinnar, staðháttum og fordæmum úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála hafi ekki verið talið að grenndarkynna þyrfti skipulagsbreytinguna fyrir kærendum.
- Jafnframt sé því mótmælt að breytingin hafi veruleg áhrif á útsýni kærenda. Framlagðar ljósmyndir kærenda gefi að mati sveitarfélagsins ekki rétta mynd af endanlegri hæð mannvirkisins, enda hafi þær verið teknar á meðan steypumót hafi enn verið uppi. Ljósmyndir sveitarfélagsins sýni aftur á móti að hækkunin hafi lítil sem engin áhrif á útsýni frá fasteign kærenda. Ekki sé um skuggavarp að ræða og möguleg breyting á útsýni sé takmörkuð við lítinn hluta sjónlínu frá fasteign þeirra.
- Samkvæmt skipulagslögum hafi sveitarfélagið víðtækt vald til að móta og þróa byggð innan marka laganna. Fasteignaeigendur geti almennt ekki vænst þess að skipulag og byggingar í nágrenni þeirra haldist óbreytt til framtíðar. Breytingar á deiliskipulagi geti eðli máls samkvæmt haft einhver áhrif á útsýni, birtu og ásýnd byggðar án þess að slíkt leiði sjálfkrafa til þess að lögvarðir hagsmunir nágranna teljist skertir. Að mati sveitarfélagsins sé umrædd deiliskipulagsbreyting hvorki haldin form- né efnisannmörkum og því beri að hafna kröfu um ógildingu hennar.
- Þá hafi undirbúningur byggingarleyfa og breytingar á samþykktum aðaluppdráttum verið lögmæt. Þar sem hin samþykkta mannvirkjagerð hafi verið í samræmi við gildandi deiliskipulag hafi afgreiðsla byggingarfulltrúa verið réttmæt og beri því að hafna kröfu kærenda um ógildingu byggingarleyfis.
Viðbótarathugasemdir kærenda
- Kærendur mótmæla því að ljósmyndir sveitarfélagsins vegna framkvæmdanna sýni rétta mynd af stöðunni. Myndirnar séu teknar frá götu og endurspegli þannig ekki útsýnið úr húsi kærenda auk þess sem fasteign þeirra standi hærra en gatan. Kærendur leggi því fram mynd sem tekin sé úr augnhæð úr húsi þeirra og sýni þá skerðingu sem um ræði. Sé því hafnað að útsýni úr fasteign þeirra muni lítið breytast.
—–
- Leyfishafa var gefinn kostur á að koma á framfæri sjónarmiðum sínum í málinu, en hann hefur ekki tjáð sig um kærumál þetta.
Niðurstaða
- Í máli þessu er deilt um lögmæti ákvörðunar byggingarfulltrúa Akureyrarbæjar frá 20. júní 2024 um að samþykkja byggingaráform fyrir einbýlishús á lóð nr. 2 við Bjarkarlund, ákvörðun skipulagsráðs frá 27. nóvember s.á. um að heimila breytingu á deiliskipulagi vegna sömu framkvæmda og ákvörðun byggingarfulltrúa frá 30. apríl 2025 um að samþykkja breytta aðaluppdrætti á grundvelli deiliskipulagsbreytingarinnar. Kæruheimild er í 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 59. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki.
- Akureyrarbær fer fram á frávísun málsins í heild sinni á þeim grundvelli að kærendur skorti lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins annars vegar og hins vegar að kæra hafi borist að liðnum kærufresti.
- Samkvæmt 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála geta þeir einir kært stjórnvaldsákvarðanir til nefndarinnar sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kærð er. Verður að túlka þetta ákvæði í samræmi við almennar reglur stjórnsýsluréttar um aðild að kærumálum þar sem við mat á því hvort lögvarðir hagsmunir séu fyrir hendi ber að líta til þess hvort hlutaðeigandi eigi einstaklegra og verulegra hagsmuna að gæta við úrlausn málsins. Almennt ber þó að gæta varfærni við að vísa málum frá á þeim grunni að kærendur skorti lögvarða hagsmuni tengda kærðri ákvörðun nema augljóst sé að það hafi ekki raunhæfa þýðingu fyrir lögverndaða hagsmuni þeirra að fá leyst úr ágreiningi þeim sem stendur að baki kærumálinu.
- Kærufrestur til úrskurðarnefndarinnar er einn mánuður frá því að kæranda varð eða mátti vera kunnugt um hina kærðu ákvörðun, sbr. 2. mgr. 4. gr. nr. 130/2011. Sé um að ræða ákvarðanir sem sæta opinberri birtingu telst kærufrestur frá birtingu ákvörðunar. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er fjallað um áhrif þess að kæra berst að liðnum kærufresti. Ber þá samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins að vísa kæru frá nema að afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til efnismeðferðar. Í 2. mgr. 28. gr. laganna kemur fram að kæru skuli ekki sinnt ef meira en ár sé liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.
- Að því er varðar ákvörðun byggingarfulltrúa frá 20. júní 2024 liggur fyrir að með henni voru samþykkt byggingaráform þar sem gert var ráð fyrir að bílgeymsla hússins að Bjarkarlundi 2 yrði hálfniðurgrafin. Fallið var frá þeim áformum þegar breyttir aðaluppdrættir voru samþykktir 30. apríl 2025 í kjölfar breytingar á deiliskipulagi fyrir lóðina. Verður því ekki talið að úrskurður um lögmæti þeirrar ákvörðunar hafi þýðingu fyrir hagsmuni kærenda og ber því að vísa þeim hluta kærunnar frá úrskurðarnefndinni, sbr. áðurnefnd 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011.
- Hin kærða ákvörðun skipulagsráðs frá 27. nóvember 2024 um að heimila breytingu á deiliskipulagi fyrir íbúðasvæði sunnan Reynilundar vegna Bjarkarlundar 2 var birt með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda 6. mars 2025 og tók kærufrestur að líða degi síðar, sbr. 1. mgr. 8. gr. stjórnsýslulaga. Kæra í máli þessu barst úrskurðarnefndinni 19. júní 2026 og var kærufrestur þá liðinn. Verður þeim hluta kærunnar því vísað frá úrskurðarnefndinni, enda er ekki unnt að taka málið til meðferðar að liðnum kærufresti samkvæmt fyrrgreindum undantekningarákvæðum 28. gr. stjórnsýslulaga þar sem lögmælt opinber birting ákvörðunar hefur þá þýðingu að almenningi telst vera kunnugt um hina birtu ákvörðun.
- Hvað varðar þá ákvörðun byggingarfulltrúa frá 30. apríl 2025 að samþykkja breytta aðaluppdrætti hússins að Bjarkarlundi 2 er ljóst að með því var heimilað að hækka hluta hússins um 0,85 m. Að virtum fyrirliggjandi gögnum málsins er ljóst að sú breyting mun ekki hafa áhrif gagnvart kærendum hvað varðar landnotkun, skuggavarp eða innsýn svo nokkru nemi. Aftur á móti verður að leggja til grundvallar að hún feli í sér einhverja skerðingu á útsýni frá fasteign kærenda. Að teknu tilliti til þess að einungis er um að ræða 0,85 m hækkun á húsi sem er í um 60 m fjarlægð frá lóð kærenda verður þó að álíta þau áhrif óveruleg. Uppfylla kærendur því ekki skilyrði kæruaðildar vegna þeirrar ákvörðunar byggingarfulltrúa að samþykkja breytta aðaluppdrætti.
- Með hliðsjón af öllu framangreindu verður kærumáli þessu vísað frá úrskurðarnefndinni.
Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
