Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
Árið 2026, miðvikudaginn 23. september, tók Unnþór Jónsson, varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, sbr. 1. mgr. 2. gr., fyrir:
Mál nr. UUA2608014, kæra á ákvörðun sveitastjórnar Flóahrepps frá 9. júlí 2026 um að samþykkja nýtt deiliskipulag Langholts 1.
- Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 28. ágúst 2026, kærir eigandi, Langholti 2 í Flóahreppi, þá ákvörðun sveitarstjórnar Flóahrepps frá 9. júlí 2026 að samþykkja nýtt deiliskipulag Langholts 1. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir skipulagsyfirvöld að taka málið til löglegrar málsmeðferðar.
Málsatvik og rök
- Á fundi skipulagsnefndar Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs. 12. nóvember 2025 var lögð fram tillaga að nýju deiliskipulagi vegna lóðarinnar Langholt 1 í Flóahreppi. Í tillögunni fólst að skilgreindar yrðu þrjár nýjar lóðir teknar úr landi Langholts. Gert var ráð fyrir einum byggingarreit innan hverrar lóðar þar sem heimilt væri að byggja íbúðarhúsnæði, bílageymslu, gesthús, skemmu og gróðurhús. Var mælst til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að deiliskipulagið yrði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að erindið yrði „grenndarkynnt innan hverfisins“. Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 18. s.m. að auglýsa deiliskipulagstillöguna og var hún auglýst 27. nóvember s.á. með athugasemdafresti til 19. desember s.á.
- Skipulagstillagan var tekin fyrir að nýju á fundi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita 25. mars 2026 auk umsagna og athugasemda sem bárust við kynningu. Var tillagan samþykkt og mælst til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að samþykkja hana, sem sveitarstjórn og gerði á fundi sínum 7. apríl s.á. Í kjölfarið var samþykkt tillaga send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til lögboðinnar yfirferðar sem með bréfi, dags. 5. júní s.á., gerði athugasemd við að birt yrði auglýsing um samþykkt þess í B-deild Stjórnartíðinda vegna formgalla og benti að auki á atriði sem bregðast þyrfti við. Í samræmi við þær athugasemdir voru gerðar frekari breytingar á skipulagstillögunni og uppfærð tillaga var síðan lögð fram og samþykkt a fundi sveitarstjórnar 9. júlí s.á. Deiliskipulagið tók gildi með auglýsingu þar um í B-deild Stjórnartíðinda 10. júlí 2026.
- Kærandi vísar til þess að í hinu kærða deiliskipulagi sé gert ráð fyrir að aðkoma að lóðunum Höfða og Höfða 1 fari um Hallandaveg. Kærandi sé landeigandi Langholts 2 og fari með eignarhald lands undir veginum eins og skorið hafi verið úr með dómi Landsréttar frá 25. september 2025 í máli nr. 507/2024. Aðkoma að Höfða og Höfða 1 sé því ekki tryggð. Engin kvöð um umferð að nýjum íbúðarhúsalóðum hvíli á Hallandavegi að því leyti sem vegurinn liggi um og yfir land kæranda. Bent sé á að þessi leið sé ekki eina aðkomuleiðin að Höfða og Höfða 1 þar sem einfalt sé að fara fyrir neðan bæinn Hallanda. Gera verði þá lágmarkskröfu að við skipulagsgerð sé til að dreifa skjölum sem sýni fram á eignarhald, kvaðir og aðrar forsendur sem liggi skipulaginu til grundvallar, en engin slík gögn liggi fyrir.
Niðurstaða
- Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er kærufrestur til nefndarinnar einn mánuður frá því að kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um þá ákvörðun sem kæra lýtur að. Sé um að ræða ákvörðun sem sætir opinberri birtingu telst kærufrestur frá fyrstu birtingu ákvörðunar skv. 2. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Samkvæmt 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal birta auglýsingu um samþykkt deiliskipulag í B-deild Stjórnartíðinda.
- Í 28. gr. stjórnsýslulaga er fjallað um áhrif þess ef kæra berst að liðnum kærufresti. Ber þá skv. 1. mgr. ákvæðisins að vísa kæru frá nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða veigamiklar ástæður mæli með því að hún verði tekin til efnismeðferðar. Tiltekið er í athugasemdum með 28. gr. í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum að við mat á því hvort skilyrði séu til að taka mál til meðferðar að loknum kærufresti þurfi að líta til þess hvort aðilar að málinu séu fleiri en einn og með andstæða hagsmuni, eins og raunin er í máli þessu.
- Hin kærða ákvörðun var birt í B-deild Stjórnartíðinda 10. júlí 2026 og tók kærufrestur að líða degi síðar, sbr. 1. mgr. 8. gr. stjórnsýslulaga. Kæra í máli þessu barst úrskurðarnefndinni 28. ágúst 2026, eða rúmlega einum og hálfum mánuði síðar, og var kærufrestur þá liðinn. Verður kærumáli þessu því vísað frá úrskurðarnefndinni enda ekki talið unnt, eins og atvikum er háttað, að taka málið til meðferðar að liðnum kærufresti samkvæmt fyrrgreindum undantekningarákvæðum 28. gr. stjórnsýslulaga, enda hefur lögmælt opinber birting ákvörðunar þá þýðingu að almenningi telst vera kunnugt um hina birtu ákvörðun.
Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
