Felld er úr gildi ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar frá 9. júlí 2026 er varðar synjun um að veita eigendum sjávarjarðanna Austdals, Brimness 1 og 2, Dvergasteins, Selstaða og Sörlastaðavíkur aðild að stjórnsýslumáli um byggingarleyfisumsóknir Kaldvíkur hf. fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði.
Árið 2026, föstudaginn 9. október, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Arnór Snæbjörnsson formaður, Aðalheiður Jóhannsdóttir prófessor og Þorsteinn Þorsteinsson byggingar-verkfræðingur.
Fyrir var tekið mál nr. UUA2607013, kæra á ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar frá 9. júlí 2026 er varðar synjun um að veita eigendum sjávarjarðanna Austdals, Brimness 1 og 2, Dvergasteins, Selstaða og Sörlastaðavíkur aðild að stjórnsýslumáli um byggingarleyfisumsóknir Kaldvíkur hf. fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði.
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 17. júlí 2026 kæra þau A, B, C, D og E, eigendur sjávarjarðanna Austdals, Brimness 1 og 2, Dvergasteins og Selstaða í Seyðisfirði, þá ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunnar (HMS) frá 27. mars s.á. að synja þeim um aðild að stjórnsýslumáli um umsókn um byggingarleyfi fyrir mannvirkjum til sjókvíaeldis í Seyðisfirði. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi og að aðild kærenda að greindu stjórnsýslumáli verði viðurkennd. Til vara er þess krafist að málinu verði vísað að nýju til HMS til nýrrar og lögmætrar meðferðar, þar sem stofnuninni verði gert að taka rökstudda og efnislega afstöðu til allra þeirra sjónarmiða og gagna sem kærendur hafi lagt fram um aðildarhagsmuni sína, þ.m.t. þeirra er varða Sörlastaðavík.
- Þess var krafist í kærunni að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar yrði frestað, en með úrskurði nefndarinnar, dags. 4. ágúst 2026, var þeirri kröfu hafnað. Þá var óskað flýtimeðferðar málsins, en þeirri beiðni var synjað með bréfi formanns úrskurðarnefndarinnar til kærenda, dags. 6. ágúst 2026.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá HMS 29. júlí 2026.
Málsatvik
- Félagið Kaldvík hf. hefur áform um að hefja sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Tillögur að rekstrarleyfum fiskeldis til félagsins vegna þessa, skv. 7. gr. laga nr. 71/2008 um fiskeldi, voru auglýstar á vefsíðu Matvælastofnunar 12. desember 2024. Kom þar fram að frestur til að skila inn athugasemdum væri til 20. janúar 2025. Á sama tíma var á vefsíðu Umhverfisstofnunar auglýst tillaga að starfsleyfi skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir fyrir sömu starfsemi. Til hvorugrar leyfisveitingarinnar hafði þó komið þegar kæra í máli þessu barst úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála og álitu kærendur að ótilhlýðilegum töfum á málsmeðferð hafi verið til að dreifa. Með úrskurði nefndarinnar frá 9. desember 2025 í máli nr. 146/2025 var hafnað kröfu þeirra um að úrskurðað yrði um að óhæfilegur dráttur hefði orðið á málsmeðferð umsóknar um rekstrarleyfi vegna sjókvíaeldis í Seyðisfirði.
- Hinn 25. mars 2026 beindu kærendur erindi að HMS þar sem þess var m.a. krafist að eigendum sjávarjarða „við nýtingarsvæði í Seyðisfirði“ yrði veitt aðild að stjórnsýslumáli um byggingarleyfi vegna sjókvíaeldis. Með tölvubréfi 27. mars s.á. var þessari beiðni hafnað með vísan til þess að „af gögnum málsins, þ.m.t. aðaluppdráttum og staðsetningu mannvirkja“ yrði ráðið að þau væru utan þeirra marka sem netlög sjávarjarða næðu til. Var einnig í bréfi þessu staðhæft að áhrifasvæði veiðibanns skv. 35. gr. reglugerðar nr. 540/2020 um fiskeldi skerti ekki fiskveiðirétt eigenda jarðanna. Af þessu leiddi, eins og rakið er í bréfinu, að kærendur ættu ekki rétt til aðgangs að gögnum máls sem aðilar stjórnsýslumáls, en gætu óskað eftir þeim samkvæmt upplýsingalögum nr. 140/2012.
- Með úrskurði úrskurðarnefndarinnar frá 21. maí 2026 í máli nr. UUA2603016 var ákvörðun HMS sem var í tölvubréfinu frá 27. mars s.á. felld úr gildi og kom fram í úrskurðinum að við meðferð úrskurðarmálsins hafi kærendur fært fram nokkuð ítarlegri rök en áður fyrir aðildarhagsmunum og væri tilefni fyrir HMS að leggja heildstæðara mat á það hversu sérstaka og verulega hagsmuni einstakir kærendur í málinu hefðu af úrlausn þess með tilliti til laga um mannvirki. Var því um leið beint til kærenda að færa fram greinargóðan rökstuðning um aðildarhagsmuni sína sem leitt gæti til töku nýrrar ákvörðunar hjá HMS um aðild þeirra að málinu að undangenginni nægilegri rannsókn máls, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.
- Með bréfum kærenda í máli þessu til HMS, dags. 26. maí og 22. júní 2026, var gerð nánari grein fyrir þeim hagsmunum sem þeir töldu sig hafa af stjórnsýslumáli um byggingarleyfi fyrir sjókvíum Kaldvíkur hf. sem fyrirhugaðar væru í Selstaðavík og Sörlastaðavík í Seyðisfirði. Höfuðdrættir í fyrra bréfinu, dags. 26. maí 2026, voru í fyrsta lagi að hlutar fyrirhugaðra eldissvæða, þ.m.t. ankerisfestingar, væru innan eða við „ytri mörk“ netlaga landareigna kærenda. Í öðru lagi greindi að réttur til fiskveiði í netlögum landareigna væri skertur. Í þriðja lagi að veruleg grenndaráhrif yrðu frá starfseminni með losun mengandi efna, lýsingu um nætur, hávaða allan daginn og áhrifa á ásýnd og útsýni. Í fjórða lagi að strandsvæðisskipulag Austfjarða væri þeim annmörkum háð að það næði út fyrir staðarleg valdmörk laga þar sem skipulagsreitir næðu yfir netlög landareigna kærenda jafnframt því að vanhæfur starfsmaður hafi komið að afgreiðslu skipulagsins í innviðaráðuneytinu. Loks í fimmta lagi var fundið að ýmsum atriðum sem við rannsókn stjórnsýslumáls. Álitu kærendur að þeir einir gætu veitt HMS þær upplýsingar um „staðbundnar aðstæður og réttindastöðu sína“ sem væru nauðsynlegar til að rannsókn yrði fullnægjandi. Það eitt og sér réttlætti að þeim yrði játuð aðild að málinu og var krafist afhendingar gagna, frests til andmæla og að beðið yrði með ákvörðun á meðan. Voru í bréfi þessu einnig áréttuð sjónarmið sem færð höfðu verið fram fyrir úrskurðarnefndinni við meðferð kærumáls nr. UUA2603016.
- Í síðara bréfinu frá 22. júní 2026 var fjallað um aðildarhagsmuni hvers og eins kæranda með tilliti til þátta eins og landslagsgæða, ásýndar fjarðarins, náttúruupplifunar og möguleika til framtíðarnýtingar landareigna og þá einkum með tilliti til ferðaþjónustu og menningarupplifunar. Þótt bréf þetta sé efnismikið verður af því naumast ráðið hvort landareignir eða jarðir þessar séu í eyði utan Dvergasteins og Selstaða og er hvergi getið húsakosts né áhafnar. Af gögnum má ráða að samskipti voru milli lögmanns kærenda og fulltrúa HMS eftir að erindi þetta barst, þar sem fram voru færðar nánari upplýsingar og gefnar skýringar.
- Með hinni kærðu ákvörðun, sem kunngjörð var með bréfi HMS, dags. 9. júlí 2026, var kærendum synjað að nýju um aðild að máli um byggingarleyfi til sjókvía í Seyðisfirði. Fyrir ákvörðun þeirri voru færð margvísleg rök. Í fyrsta lagi kom fram að ítarlegt strandsvæðisskipulag hafi verið unnið fyrir Austfirði og hafi verið lagt mat á umhverfisáhrif skipulagsins til að tryggja að það stuðlaði að sjálfbærri þróun og að dregið yrði úr neikvæðum áhrifum á umhverfið. Hafi stjórnvaldið tryggt að fyrirhugað mannvirki verði utan netlaga og í samræmi við skipulagið þar sem gert sé ráð fyrir staðbundinni nýtingu svo sem fiskeldi, en netlög hafi verið mæld af Náttúrufræðistofnun. Voru um leið færðar fram athugasemdir sem viku að undirbúningi leyfisveitingar með tilliti til nánari staðsetningar. Í öðru lagi kom fram að það sé hlutverk leyfisveitanda við afgreiðslu byggingarleyfis að leggja mat á það hvort sú framkvæmd sem sótt sé um samræmist gildandi skipulagi en ekki að endurmeta þær skipulagslegu forsendur sem þegar hafi verið tekin afstaða til við gerð skipulags. Hafi hagsmunaaðilum verið gefinn kostur á því við gerð skipulagsins að tjá sig. Lúti athugasemdir kærenda fyrst og fremst að slíkum skipulagslegum forsendum sem þegar hafi sætt lögboðinni málsmeðferð. Af þeim sökum væri það álit stofnunarinnar að málsaðild væri eigi til að dreifa. Sú afstaða sem í þessu bréfi var sett fram er hin kærða ákvörðun í máli þessu.
- Í hinni kærðu ákvörðun var ekki tekin afstaða til krafna eigenda landareignarinnar Sörlastaðavíkur, þar sem ekki lá fyrir gilt umboð eiganda jarðarinnar til lögmanns.
Málsrök kæranda
- Af hálfu kærenda eru færðar fram allítarlegar röksemdir í kæru. Á það sé bent að með ákvörðun HMS hafi ekki verið lagt heildstætt mat á einstaklingsbundna lögvarða hagsmuni kærenda í samræmi við fyrri niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar, þar sem umfjöllun sé nær alfarið bundin við umfjöllun um strandssvæðisskipulag Austfjarða og afmörkun netlaga. Sé ekkert fjallað um aðra hagsmuni þeirra, svo sem á fiskveiðirétt, grenndaráhrif, útivistarnýtingu, áhrif á ferðaþjónustu né önnur atriði sem kærendur hafi ljáð máls á. Þá sé umfjöllun um skörun veiðibanns frá mannvirkjum fiskeldis ófullnægjandi auk þess að horft sé hjá því að ankerisfestingar séu innan eða við ytri mörk netlaga samkvæmt mælingu frá Náttúrufræðistofnun á stórstraumsfjöruborði frá árinu 2025. Þá er gagnrýnt að HMS hafi lagt að jöfnu mögulega efnislega niðurstöðu byggingarleyfisumsóknar og hvort aðild sé til að dreifa að stjórnsýslumáli.
Athugasemdir HMS
- Af hálfu HMS var á það bent að í kærumáli UUA2603016, þar sem felld hafi verið úr gildi synjun um að ljá kærendum kæruaðild að máli þessu, hafi verið lagt fyrir þá að færa fram greinargóðan rökstuðning fyrir aðildarhagsmunum sínum sem stjórnvaldið gæti lagt heildstætt mat á með tilliti til laga um mannvirki. Hafi rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun tekið mið af því og þeim skilyrðum sem sett séu fyrir samþykkt byggingarleyfis. Þau sjónarmið sem kærendur byggi á lúti að meginstefnu að eignarréttarlegum hagsmunum og skipulagslegum forsendum framkvæmdarinnar, en óumdeilt sé að fyrirhuguð mannvirki verði staðsett utan netlaga, svo sem fram hafi komið í fyrri úrskurði nefndarinnar. Sé það hlutverk stjórnvaldsins við afgreiðslu byggingarleyfis að leggja mat á það hvort sú framkvæmd sem sótt sé um leyfi fyrir samrýmist gildandi skipulagi, en ekki að endurmeta skipulagslegar forsendur leyfisveitingar. Var í framhaldi fjallað um hverja landareign kærenda og hvort fiskeldisáform úti fyrir ströndum þeirra væru í samræmi við strandssvæðisskipulag og utan netlaga og álitið að svo væri.
Athugasemdir leyfisumsækjanda
- Af hálfu umsækjanda um byggingarleyfi fyrir sjókvíum í Seyðisfirði, Kaldvíkur hf., var tekið undir sjónarmið HMS fyrir úrskurðarnefndinni og lögð áhersla á að kærendum hefði ekki auðnast að færa önnur rök fyrir aðildarhagsmunum en þau sem almenn mættu teljast og varði möguleg áhrif sjókvíaeldis og óútfærð framtíðaráform þeirra um nýtingu landareigna sinna. Sé með þessu ekki sýnt fram á hvernig ráðgerðar framkvæmdir skerði réttindi eða aðra lögvarða hagsmuni einstakra kærenda. Þá hafi ekki verið sýnt fram á að þau áhrif sem vísað sé til séu svo bein, sérstök og veruleg gagnvart kærendum að þau greini hagsmuni þeirra frá almennum hagsmunum annarra af starfsemi og umhverfi í Seyðisfirði. Var um leið tekið undir rök HMS um að mannvirki verði utan netlaga og jafnvel þótt bann við veiði muni ná að einhverju leyti yfir netlög hafi kærendur ekki gert líklegt að sú skörun skerði raunverulega og lögmæta nýtingu réttinda í netlögum. Eins hafi ekki verið sýnt fram á að verulegra einstaklingsbundinna grenndaráhrifa muni gæta vegna áformaðra mannvirkja. Sama gildi um tilvísun þeirra til almennra umhverfissjónarmiða.
Viðbótarathugasemdir kærenda
- Í viðbótarathugasemdum kærenda eru færð fram mótmæli við umsögnum leyfisveitanda og umsækjanda um byggingarleyfi. Eru þar einnig áréttuð sjónarmið hans um að miða skuli afmörkun netlaga við 115 metra frá stórstraumsfjöru en ekki hina svonefndu dýptarreglu Jónsbókar. Afstöðumyndir HMS og umsækjanda um byggingarleyfi sýni báðar þessar afmarkanir og skarist 150 metra veiðibannssvæði, mælt frá rammafestingum sjókvía, í báðum tilvikum við netlög landareigna í Selsstaðavík og Sörlastaðavík.
- Eftir að frestur til athugasemda var liðinn komu kærendur á framfæri upplýsingum um samskipti sín við Náttúrufræðistofnun sem þeir töldu að sýndu fram á að ekki hafi verið miðað við ystu mörk jarða við ákvörðun netlaga. Var með þessu vísað til þess að frá landareignunum Skálanesi og Austdal væri á stórstraumsfjöru fjöldi skerja og flesja sem standi upp úr sjó „dágóðan spotta frá fjörunni“ og beri að miða netlögin við þau. Var um þetta nánar vísað til úrskurða Óbyggðanefndar og af þeim leitt að miða verði netlög frá „ystu skerjum“.
Niðurstaða
- Í máli þessu er deilt um þá ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnunar (HMS) frá 9. júlí 2026 um að synja kærendum um aðild að stjórnsýslumáli sem varðar umsókn um byggingarleyfi fyrir mannvirkjum í sjó skv. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki. Ákvarðanir um veitingu slíks byggingarleyfis er heimilt að kæra til úrskurðarnefndarinnar, sbr. 59. gr. sömu laga. Ákvarðanir um málsmeðferð eru almennt ekki kæranlegar fyrr en stjórnsýslumál er til lykta leitt, sbr. 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, en taka verður kæru í máli þessu til meðferðar þar sem hún er endanleg gagnvart kærendum.
- Í 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er kveðið á um að þeir einir geti skotið máli til úrskurðarnefndarinnar sem eigi lögvarða hagsmuni tengda hinni kærðu ákvörðun. Að stjórnsýslurétti hefur skilyrðið um lögvarða hagsmuni fyrir kæruaðild verið túlkað svo að þeir einir teljist aðilar kærumáls sem eigi einstaklegra hagsmuna að gæta af úrlausn máls umfram aðra og jafnframt að þeir hagsmunir séu verulegir.
- Til þess er fyrst að taka að með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2603016, uppkveðnum 21. maí 2026, var felld úr gildi ákvörðun HMS frá 27. mars s.á. um að synja kærendum um aðild að stjórnsýslumáli vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir mannvirkjum til sjókvíaeldis í Seyðisfirði. Taldi nefndin tilefni til þess að stofnunin legði heildstæðara mat á það hversu sérstaka og verulega hagsmuni einstakir kærendur í málinu hefðu af úrlausn þess með tilliti til laga nr. 160/2010 um mannvirki. Með bréfi, dags. 9. júlí 2026, var kærendum tilkynnt um að það væri mat HMS að þeir ættu ekki sérstakra, beinna og lögvarinna hagsmuna að gæta við úrlausn þeirra byggingarleyfisumsókna sem um ræddi. Er það hin kærða ákvörðun í máli þessu.
- Af hálfu kærenda er byggt á því að þrátt fyrir þau fyrirmæli úrskurðarnefndarinnar sem fram hafi komið í úrskurði hennar í máli nr. UUA2603016 hafi HMS afmarkað umfjöllun sína í hinni kærðu ákvörðun nær alfarið við eitt atriði, þ.e. hvort staðsetning fyrirhugaðra mannvirkja sé í samræmi við gildandi strandsvæðisskipulag Austfjarða. Ekkert sé fjallað efnislega um eignarréttarlega stöðu kærenda innan netlaga, fiskveiðirétt þeirra, grenndaráhrif á fasteignir þeirra og útivistarnýtingu, áhrif á atvinnustarfsemi á sviði ferðaþjónustu, né þau sjónarmið sem fram komi í hagsmunalýsingu einstakra jarðeigenda í bréfi, dags. 22. júní 2026. Með þessu hafi ekki verið framkvæmt það heildstæða mat sem úrskurðarnefndin hafi lagt fyrir, heldur einvörðungu endurtekin sú afstaða að samræmi við skipulag útiloki aðild. Þeirri afstöðu hafi þegar verið hafnað með úrskurði nefndarinnar í fyrra máli.
- Af hálfu HMS hefur í máli þessu verið á það bent að í fyrri úrskurði úrskurðarnefndarinnar hafi verið lagt fyrir kærendur að færa fram greinargóðan rökstuðning fyrir aðildarhagsmunum sínum sem stjórnvaldið gæti lagt heildstætt mat á með tilliti til laga um mannvirki. Hafi rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun tekið mið af málsrökum kærenda og þeim skilyrðum sem sett séu fyrir samþykkt byggingarleyfis. Þau sjónarmið sem kærendur byggi á lúti að meginstefnu að eignarréttarlegum hagsmunum og skipulagslegum forsendum. Á þessi sjónarmið stofnunarinnar verður að fallast að því leyti til að rökstuðningur kærenda fyrir aðildarhagsmunum sínum víkur að verulegu leyti að hagsmunum sem telja verður almenns eðlis og ekki sérstaka fyrir þá sem landeigendur.
- Af þessu tilefni verður nánar á það bent að lög um mannvirki og byggingarreglugerð nr. 112/2012 miða einkum að því að tryggja faglegan undirbúning mannvirkjagerðar og virkt eftirlit með því að kröfum um öryggi mannvirkja og heilnæmi sé fullnægt. Um áhrif mannvirkja á mögulega framtíðarnýtingu næstu landareigna eða skerðingu útsýnis frá þeim er hvergi fjallað í lögum um mannvirki. Að slíkum atriðum getur þó verið vikið í skipulagi og er ekki útilokað að horft sé til útsýnishagsmuna við heildarmat á því hvort aðild sé til að dreifa að stjórnsýslumáli sem varði byggingarleyfi. Þá má nefna að í byggingarreglugerð eru settar fram meginreglur um að hávaða og að óþægindum vegna hans verði haldið í lágmarki sem og að við hönnun og uppsetningu á lýsingu skuli koma í veg fyrir ljósmengun og tryggja að lýsing valdi nágrönnum ekki óþægindum.
- Til þess að hefja fiskeldi í sjókvíum þarf önnur leyfi til en byggingarleyfi, þ.e. rekstrarleyfi fiskeldis samkvæmt lögum um fiskeldi nr. 71/2008, þar sem m.a. er fjallað um legu og útbúnað fiskeldisstöðva sem og starfsleyfi samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir sem varðar hvers konar mengunarvarnir, þ.m.t. hávaða frá starfsemi og mögulega ljósmengun. Hvíla þessar leyfisveitingar á tveimur ólíkum lagabálkum. Í úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 36/2022 var komið inn á valdmörk Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar samkvæmt lögum þessum og kom fram að Umhverfisstofnun, útgefanda starfsleyfa, væri óheimilt að útfæra efni þeirra með hliðsjón af skilyrðum sem sett væru í lögum um fiskeldi eða reglugerð um fiskeldi nr. 540/2020 að undanskildum ákvæðum um burðarþolsmat og áhættumat erfðablöndunar. Að breyttu breytanda gildir hið sama við undirbúning byggingarleyfis samkvæmt lögum um mannvirki. Það er þó síður en svo auðhægt að greina málefnislega þau skilyrði sem sett eru fyrir þessum ólíku leyfisveitingum sem geta skarast í nokkru.
- Að áliti úrskurðarnefndarinnar er nægilegt að fjalla um kröfu kærenda um málsaðild með hliðsjón af meintri skerðingu þeirra réttinda sem landareignum fylgja í fjöru og til sjávar, þ.e. heimilda landeigenda til hlunnindanýtingar. Geta heimildir þessar stafað af ýmist opinberum rétti eða einkarétti. Að áliti úrskurðarnefndarinnar hafa kærendur ekki sýnt fram á það að áformuð mannvirki muni liggja í netlögum og þá hvort sem miðað er við 60 faðma frá stórstraumsfjöruborði eða sjávardýpi samkvæmt Jónsbókarlögum sem kærendur vilja meina að ráði einkarétti þeirra til fiskveiði og þá samkvæmt fornyrðaskýringum Páls Vídalín lögmanns. Um heimildir landeigenda til hlunnindanýtingar má þó jafnframt vísa til einkaréttar innan 60 faðma frá stórstraumsfjörumáli samkvæmt lögum nr. 39/1914 um beitutekju sem og rétt til reka sem náð getur til fljótandi reka miðað við svonefnt rekamark, sbr. 2. kapítula rekabálks Jónsbókar, sem enn er birtur í Lagasafninu. Þá er ljóst að heimild til umferðar báta, til lendingar og uppsáturs fylgir sjávarjörðum. Eins má nefna að landeigendur verða að sæta almennri skerðingu á veiðiréttindum, m.a. til skotveiði, verði veitt byggingarleyfi fyrir sjókvíum fyrir landi þeirra, sem stafað geta af nauðsyn þess að draga úr hættu og tryggja öryggi fólks. Gera má einnig ráð fyrir einhverjum grenndaráhrifum vegna ráðgerðra mannvirkja á landareignum kærenda.
- Af hálfu kærenda hefur verið bent á að bann við veiðum í grennd við mannvirki fiskeldis skv. 35. gr. reglugerðar um fiskeldi nr. 540/2020 muni ná til netlaga og verður ekki annað ráðið af gögnum þessa úrskurðarmáls en að svo sé. Þá er ljóst af strandsvæðisskipulagi Austfjarða að þótt gert sé ráð fyrir að fiskeldi sé heimilað á reitum fyrir staðbundna nýtingu í Seyðisfirði að skipulagið hefur ekki að geyma skilmála um umfang slíkrar starfsemi eða nánari staðsetningu framleiðslutækja innan reitsins. Að virtum gögnum þessa máls í heild sinni álítur úrskurðarnefndin að óvarlegt hafi verið af HMS að neita kærendum um aðild að því máli sem hér um ræðir, þ.e. umsókn um byggingarleyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Verður af þeim sökum álitið rétt að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi og beina því til stofnunarinnar að taka erindi kærenda til meðferðar enn að nýju beinist að henni erindi þess efnis.
- Meðal kærenda í máli þessu er eigandi landareignarinnar Sörlastaðavíkur. Með hinni kærðu ákvörðun var kröfu hans vísað frá HMS þar sem ekki lá fyrir fullnægjandi umboð lögmanns til að reisa kröfu gagnvart stjórnsýsluaðila. Verður ekki gerð athugasemd við þá málsmeðferð.
Úrskurðarorð
Felld er úr gildi ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar frá 9. júlí 2026 er varðar synjun um að veita eigendum sjávarjarðanna Austdals, Brimness 1 og 2, Dvergasteins, Selstaða og Sörlastaðavíkur aðild að stjórnsýslumáli um byggingarleyfisumsóknir Kaldvíkur hf. fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði.
