Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
Árið 2026, miðvikudaginn 21. október, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Arnór Snæbjörnsson formaður, Unnþór Jónsson varaformaður og Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður.
Mál nr. UUA2610020, kæra á ákvörðun sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps frá 16. september 2026 um að samþykkja umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gerð leiðigarðs og rásar í Austurkvísl Þjórsárkvísla.
- Með ódagsettu bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 16. október 2026, kærir Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands, þá ákvörðun sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps frá 16. september 2026 að samþykkja umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gerð leiðigarðs og rásar í Austurkvísl Þjórsárkvísla. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Jafnframt er þess krafist að framkvæmdir verði stöðvaðar á meðan kærumálið er til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni. Þykir málið nægilega upplýst til að það verði tekið til endanlegs úrskurðar og verður því ekki tekin afstaða til þeirrar kröfu kæranda.
Málsatvik og rök
- Hinn 12. maí 2025 sendi Landsvirkjun tilkynningu til Skipulagsstofnunar til ákvörðunar um það hvort gerð leiðigarðs og rásar í Austurkvísl Þjórsárkvísla væri háð mati á umhverfisáhrifum, sbr. 19. og 20. gr. laga nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Í tilkynningunni kom fram að fyrirhugaðar framkvæmdir fælust í því að færa Austurkvísl Þjórsárkvísla í fyrri farveg með gerð nýrrar rásar og leiðigarðs. Gert væri ráð fyrir mótun grunnrar rásar, tæplega 600 m langrar og 50 m breiðrar. Væri tilgangur framkvæmdarinnar að leiðrétta breytingar sem orðið hefðu á rennsli kvíslarinnar á malareyrum ofan Þjórsárlóns og veita henni aftur í lónið. Framkvæmdin myndi skila auknu og tryggara framboði raforku og minnka um leið þörf fyrir nýja virkjunarkosti.
- Skipulagsstofnun tók ákvörðun um matsskyldu framkvæmdarinnar 4. júlí 2025. Komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að framkvæmdin væri ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skyldi því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Var ákvörðunin kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem felldi hana úr gildi með úrskurði frá 23. júní 2026 í máli nr. UUA2602014. Í kjölfar úrskurðarins áttu Landsvirkjun og Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS), sem tók við verkefnum og hlutverki Skipulagsstofnunar 19. febrúar 2026, í samskiptum um framhald málsins. Fór svo að Landsvirkjun óskaði eftir því að HMS tæki erindið aftur til meðferðar á grundvelli nýrra gagna. Ákvörðun HMS um matsskyldu framkvæmdarinnar lá fyrir 28. ágúst 2026 og var það niðurstaða stofnunarinnar að framkvæmdin væri ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Kærandi ásamt tveimur öðrum samtökum skutu þeirri ákvörðun til úrskurðarnefndarinnar, en það kærumál, sem er nr. UUA2609006, bíður úrlausnar nefndarinnar.
- Á fundi sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps 16. september 2026 var tekin fyrir umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir gerð leiðigarðs og rásar í Austurkvísl Þjórsárkvísla. Var umsóknin samþykkt með fjórum atkvæðum nefndarmanna, en einn nefndarmaður sat hjá við afgreiðslu málsins.
- Kærandi bendir á að hin kærða ákvörðun varði leyfi til framkvæmda sem falli undir lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Eigi samtökin kæruaðild skv. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Gerir kærandi athugasemd við að sveitarstjórn hafi ekki samþykkt leyfisumsóknina með skilyrðum, t.a.m. um að leyfið öðlist aðeins gildi þegar öll sérleyfi liggi fyrir. Verði síðar bætt í leyfisbréf skilyrði um að framkvæmdir megi ekki hefjast fyrr en leyfi Náttúruverndarstofnunar liggi fyrir geti það breytt inntaki hinnar kærðu ákvörðunar sveitarstjórnar. Þar sem deiliskipulag liggi ekki fyrir vegna framkvæmdarinnar sé einungis heimilt að veita leyfi ef framkvæmdin sé í samræmi við aðalskipulag og skilgreinda landnotkun, en ekki hafi verið sýnt fram á það skilyrði sé uppfyllt.
Niðurstaða
- Samkvæmt b-lið 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála teljast umhverfisverndar-, útivistar- og hagsmunasamtök eiga lögvarinna hagsmuna að gæta af ákvörðunum um að veita leyfi vegna framkvæmda sem falla undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana, m.a. vegna ætlaðs brots á þátttökuréttindum almennings með athöfnum eða athafnaleysi eða annars ágalla sem kunni að hafa verið á málsmeðferð. Í athugasemdum við 4. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 130/2011 segir að ákvörðun um matsskyldu ráði því hvort almenningur fái rétt til frekari þátttöku í gegnum matsferlið og hvort hann njóti kæruaðildar vegna ákvarðana stjórnvalda um að veita leyfi vegna framkvæmda, sbr. b-lið. Er þá vísað til þess að undir b-lið falli framkvæmdir sem alltaf séu matsskyldar skv. III. kafla þágildandi laga um mat á umhverfisáhrifum, en þau lög féllu úr gildi 1. september 2021 við gildistöku laga nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
- Við töku hinnar kærðu ákvörðunar sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps frá 16. september 2026 um að samþykkja framkvæmdaleyfisumsókn Landsvirkjunar lá fyrir sú niðurstaða Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Í máli þessu er því ekki um að ræða ákvörðun sem veitir leyfi vegna framkvæmda sem falla undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana í skilningi b-liðar 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011. Þótt greind matsskylduákvörðun hafi verið kærð til úrskurðarnefndarinnar verður að virtu orðalagi ákvæðisins og lögskýringargögnum þeim sem áður er vísað til að telja að girt sé fyrir að kærandi njóti kæruaðildar í máli þessu.
- Með hliðsjón af framangreindu verður ekki hjá því komist að vísa kærumáli þessu frá úrskurðarnefndinni, enda er engan lagagrundvöll að finna fyrir kæruaðild kæranda.
Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
