Hafnað er kröfu um frestun réttaráhrifa synjunar Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar frá 9. júlí 2026 um að ljá eigendum sjávarjarðanna Austdals, Brimness 1 og 2, Dvergasteins og Selstaða aðild að stjórnsýslumáli um umsókn um byggingarleyfi fyrir mannvirkjum til sjókvíaeldis í Seyðisfirði.
Árið 2026, þriðjudaginn 4. ágúst, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. UUA2607013, kæra á kæra á synjun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar frá 9. júlí 2026 um að ljá eigendum sjávarjarðanna Austdals, Brimness 1 og 2, Dvergasteins og Selstaða aðild að stjórnsýslumáli um umsókn um byggingarleyfi fyrir mannvirkjum til sjókvíaeldis í Seyðisfirði.
Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 17. júlí 2026, er barst nefndinni sama dag, kæra eigendur sjávarjarðanna Austdals, Brimness 1 og 2, Dvergasteins og Selstaða í Seyðisfirði, þá ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunnar frá 9. s.m. að synja þeim um aðild að stjórnsýslumáli um umsókn um byggingarleyfi fyrir mannvirkjum til sjókvíaeldis í Seyðisfirði. Þess er krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi og að viðurkennt verði að kærendur eigi aðild að málinu fyrir Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Til vara er þess krafist að málinu verði vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar og lögmætrar meðferðar þar sem stofnuninni verði gert að taka rökstudda og efnislega afstöðu til allra þeirra sjónarmiða og gagna sem umbjóðendur mínir hafa lagt fram um aðildarhagsmuni sína.
- Þess er jafnframt krafist að lagt verði fyrir Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun að taka ekki ákvörðun um útgáfu byggingarleyfis á meðan málið er til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni 5. gr. laga nr. 30/2011 og meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun hinn 29. júlí 2026.
Málsatvik og rök
- Með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2603016, uppkveðnum 21. maí 2026, var felld úr gildi ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar frá 27. mars s.á. um að synja kærendum um aðild að stjórnsýslumáli vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir mannvirkjum til sjókvíaeldis í Seyðisfirði. Taldi nefndin tilefni til þess að stofnunin legði heildstæðara mat á það hversu sérstaka og verulega hagsmuni einstakir kærendur í málinu hefðu af úrlausn þess með tilliti til laga nr. 160/2010 um mannvirki.
- Með bréfi, dags. 9. júlí 2026, var kærendum tilkynnt um að það væri mat Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar að þeir ættu ekki sérstakra, beinna og lögvarinna hagsmuna að gæta við úrlausn þeirra byggingarleyfisumsókna sem um ræddi. Er það hin kærða ákvörðun í máli þessu.
- Af hálfu kærenda er byggt á því að þrátt fyrir þau fyrirmæli úrskurðarnefndarinnar sem fram hafi komið í úrskurði hennar í máli nr. UUA2603016 hafi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun afmarkað umfjöllun sína í hinni kærðu ákvörðun nær alfarið við eitt atriði, þ.e. hvort staðsetning byggingaráformanna sé í samræmi við gildandi strandsvæðisskipulag Austfjarða. Ekkert sé fjallað efnislega um eignarréttarlega stöðu kærenda innan netlaga, fiskveiðirétt þeirra, grenndaráhrif á fasteignir þeirra og útivistarnýtingu, áhrif á atvinnustarfsemi á sviði ferðaþjónustu, né þau sjónarmið sem fram komi í hagsmunalýsingu einstakra jarðeigenda í bréfi, dags. 22. júní 2026. Með þessu hafi ekki verið framkvæmt það heildstæða mat sem úrskurðarnefndin hafi lagt fyrir, heldur einvörðungu endurtekin sú afstaða að samræmi við skipulag útiloki aðild. Þeirri afstöðu hafi þegar verið hafnað með úrskurði nefndarinnar í fyrra máli.
- Með vísan til þeirrar meginreglu að málskot fresti ekki réttaráhrifum stjórnvaldsákvörðunar hafi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun ítrekað hafnað beiðnum kærendum um að fresta veitingu byggingarleyfis þar til endanleg niðurstaða kærumáls þessa liggi fyrir. Kærendur bendi á að í tilgreindu máli er varðað hafi byggingarleyfisumsókn til sjókvíaeldis í Ísafjarðardjúpi hafi byggingarleyfi verið gefið út áður en niðurstaða um réttmæti synjunar um aðild úrskurðarnefndarinnar hafi legið fyrir, með þeim afleiðingum að hluti rekstrarleyfis reyndist ógilt eftir að framkvæmdir hafi þegar verið hafnar. Álíti kærendur að endurtekning slíkrar málsmeðferðar, þar sem byggingarleyfi yrði veitt áður en úrlausn úrskurðarnefndarinnar um aðild lægi fyrir gerði andmælarétt þeirra að engu og ylli þeim óafturkræfum réttarspjöllum og tjóni. Sé þess því krafist með vísan til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála að lagt verði fyrir Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun að taka ekki ákvörðun um byggingarleyfi fyrr en niðurstaða liggi fyrir í máli þessu.
- Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun var gefinn kostur á að tjá sig um framkomna kröfu um frestun réttaráhrifa en umsögn barst ekki.
Niðurstaða
- Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en jafnframt er kæranda þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda til bráðabirgða séu þær hafnar eða yfirvofandi. Sé um að ræða ákvörðun sem ekki felur í sér heimild til framkvæmda getur úrskurðarnefndin með sömu skilmálum frestað réttaráhrifum hennar komi fram um það af hálfu kæranda, sbr. 3. mgr. sömu lagagreinar. Með sama hætti er kveðið á um það í 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar en þó sé heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar til bráðabirgða meðan málið er til meðferðar hjá kærustjórnvaldi þar sem ástæður mæli með því. Tilvitnuð lagaákvæði bera með sér að meginreglan sé sú að kæra til æðra stjórnvalds frestar ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og eru heimildarákvæði fyrir frestun réttaráhrifa kærðrar ákvörðunar undantekning frá nefndri meginreglu sem skýra beri þröngt. Verða því að vera ríkar ástæður eða veigamikil rök fyrir ákvörðun um stöðvun framkvæmda.
- Í máli þessu er deilt um ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnunar frá 9. júlí 2026 um að synja kærendum um aðild að stjórnsýslumáli sem varðar umsókn um byggingarleyfi fyrir mannvirkjum í sjó skv. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki. Ákvarðanir um veitingu slíks byggingarleyfis er heimilt að kæra til úrskurðarnefndarinnar, sbr. 59. gr. sömu laga. Ákvarðanir um málsmeðferð eru almennt ekki kæranlegar fyrr en stjórnsýslumál er til lykta leitt, sbr. 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 en taka verður kæru í máli þessu til meðferðar þar sem hún er endanleg gagnvart hlutaðeigandi. Verður því til bráðarbirgða leyst úr kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar.
- Hin kærða ákvörðun felur ekki í sér heimildir til að hefja framkvæmdir heldur þarf að koma til sérstök stjórnvaldsákvörðun sem kæranleg er til úrskurðarnefndarinnar, s.s. samþykki byggingaráforma og útgáfa byggingarleyfis, sbr. 11. og 13. gr. laga nr. 160/2010. Í kærumáli vegna slíkrar leyfisveitingar er eftir atvikum unnt að gera kröfu um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða samkvæmt 5. gr. laga nr. 130/2011. Að jafnaði er því ekki tilefni til að beita heimild til frestunar réttaráhrifa í kærumálum er varða gildi ákvörðunar um synjun um aðild að stjórnsýslumáli. Þegar litið er til fyrrgreindra lagaákvæða og eðlis þessara ákvarðana verður ekki séð að knýjandi nauðsyn sé á að fallast á kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa vegna hinnar kærðu ákvörðunar í máli þessu.
Úrskurðarorð
Hafnað er kröfu um frestun réttaráhrifa synjunar Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar frá 9. júlí 2026 um að ljá eigendum sjávarjarðanna Austdals, Brimness 1 og 2, Dvergasteins og Selstaða aðild að stjórnsýslumáli um umsókn um byggingarleyfi fyrir mannvirkjum til sjókvíaeldis í Seyðisfirði.
