Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
Árið 2026, fimmtudaginn 8. október, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, fyrir:
Mál nr. UUA2607007, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 12. maí 2026 um að samþykkja umsókn um leyfi til að steypa garðveggi og breyta lóðarhönnun við einbýlishús á lóð nr. 6 við Lækjarás.
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 8. júlí 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir eigandi, Lækjarási 4, þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 12. maí 2026 að samþykkja umsókn um leyfi til að steypa garðveggi og breyta lóðarhönnun við einbýlishús á lóð nr. 6 við Lækjarás. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og réttaráhrifum hennar frestað. Þykir málið nú nægilega upplýst til að það verði tekið til endanlegs úrskurðar og verður því ekki tekin afstaða til kröfu um frestun réttaráhrifa ákvörðunarinnar. Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Reykjavíkurborg 22. júlí 2026.
- Úrskurður þessi er kveðinn upp með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Málsatvik og rök
- Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúans í Reykjavík 6. maí 2026 var tekin fyrir og samþykkt umsókn um leyfi til að steypa garðvegg og breyta lóðarhönnun við einbýlishús á lóð nr. 6 við Lækjarás. Á árituðum aðaluppdráttum er því lýst að um endurbætur á lóð sé að ræða sem miði að því að bæta aðgengi, öryggi og heildarútlit hennar. Þá er því m.a. lýst að fyrirhugaður garðveggur meðfram suðurhlið verði 1,35 m innan við lóðamörk og að hæð hans verði 1,35 m.
- Kærandi telur að hin kærða ákvörðun sé í andstöðu við ákvæði laga nr. 160/2010 um mannvirki og byggingarreglugerðar nr. 112/2012. Samkvæmt gr. 7.2.3. í byggingarreglugerð sé girðing eða skjólveggur á mörkum lóða alltaf háður samþykki beggja lóðarhafa, en kærandi hafi ekki veitt leyfi fyrir áformuðum garðvegg. Þá eigi e-liður gr. 2.3.5. reglugerðarinnar ekki við um umrædda framkvæmd, enda geri ákvæðið ráð fyrir að framkvæmdir á lóðamörkum séu háðar skriflegu samkomulagi við lóðarhafa aðliggjandi lóðar. Þar sem slíkt samþykki liggi ekki fyrir beri að ógilda hina kærðu ákvörðun. Þá megi sjá af samþykktum teikningum að hinn steypti garðveggur muni vera langt umfram 1,35 m að hæð, en að mati kæranda verði veggurinn um 4,5 m að hæð þar sem hann muni verða hæstur.
- Leyfishafi bendir á að umræddur garðveggur verði 1,35 m frá lóðamörkum og 1,35 m að hæð. Slíkur veggur sé undanþeginn byggingarheimild, sbr. e-lið gr. 2.3.5. í byggingarreglugerð, og sé lóðarhafa aðliggjandi lóðar óviðkomandi. Ekki verði séð að kærandi hafi lagt fram hlutlæg gögn sem hnekki því sem fram komi á samþykktum aðaluppdráttum.
- Undir rekstri kærumáls þessa tilkynnti starfsmaður á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar úrskurðarnefndinni með tölvupósti 15. júlí 2026 að byggingarfulltrúi hefði stöðvað framkvæmdir og að til skoðunar væri að afturkalla hina kærðu ákvörðun. Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 22. september s.á. voru samþykktar breytingar á byggingaráformunum. Hinn 1. október s.á. barst úrskurðarnefndinni og kæranda tilkynning frá Reykjavíkurborg um afgreiðslu byggingarfulltrúa á nýjum aðaluppdráttum. Kom auk þess fram að breytingin væri þess eðlis að ekki væri þörf á samþykki kæranda sem lóðarhafa aðliggjandi lóðar þar sem hæð og staðsetning garðveggjar yrði innan þeirra marka sem byggingarreglugerðin heimilaði.
Niðurstaða
- Í máli þessu er kærð sú ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 12. maí 2026 að samþykkja umsókn um leyfi til að steypa garðveggi og breyta lóðarhönnun við einbýlishús á lóð nr. 6 við Lækjarás. Eins og rakið er að framan samþykkti byggingarfulltrúi á afgreiðslufundi sínum 22. september 2026 umsókn leyfishafa um breytingu á umræddum byggingaráformum og voru nýir uppdrættir áritaðir til samþykktar. Með því hefur hin kærða ákvörðun byggingarfulltrúa ekki lengur réttarverkan að lögum þar sem heimild leyfishafa til hinnar umþrættu framkvæmda byggir nú á áðurnefndri ákvörðun embættisins frá 22. september 2026, en sú ákvörðun hefur ekki verið kærð til úrskurðarnefndarinnar. Af þeim sökum hefur kærandi ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að fá skorið úr um gildi ákvörðunar byggingarfulltrúa frá 12. maí 2026 og verður kærumáli þessu því vísað frá úrskurðarnefndinni.
Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
