Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710

Ársyfirlit 2024

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er sjálfstæð stjórnsýslunefnd. Hlutverk hennar er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana og ágreiningsmálum vegna annarra úrlausnaratriða á sviði umhverfis- og auðlindamála. Af hálfu nefndarinnar er lögð áhersla á að kveða upp vandaða úrskurði eins fljótt og kostur er, jafnan innan þriggja mánaða frá því að málsgögn berast frá stjórnvaldi, ellegar innan sex mánaða frá sama tímamarki í viðamiklum málum, svo sem mælt er fyrir um í lögum um nefndina nr. 130/2011.

Á árinu 2024 bárust úrskurðarnefndinni kærur í 182 málum og var afgreiðslu lokið í 153 málum, þar af lauk 95 málum með efnisúrskurðum, 42 málum með frávísunarúrskurðum, 15 málum með því að kærendur afturkölluðu kærur sínar og 1 máli með framsendingu.

Efni þeirra kærumála sem afgreidd voru á árinu

Byggingarleyfi30
Deiliskipulag25
Starfsleyfi19
Þvingunarúrræði18
Framkvæmdaleyfi16
Þjónustugjald10
Rekstrarleyfi8
Önnur byggingarmál6
Úttekt5
Dráttur á afgreiðslu máls4
Önnur skipulagsmál4
Matsskylduákvörðun3
Virkjunarleyfi2
Kerfisáætlun1
Stjórnvaldssekt1
Önnur mál1