Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710

Ársyfirlit 2023

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er sjálfstæð stjórnsýslunefnd. Hlutverk hennar er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana og ágreiningsmálum vegna annarra úrlausnaratriða á sviði umhverfis- og auðlindamála. Á það er lögð áhersla að kveða upp vandaða úrskurði eins fljótt og kostur er og jafnan innan þriggja mánaða frá því að málsgögn bárust frá stjórnvaldi, svo sem mælt er fyrir um í lögum um nefndina nr. 130/2011. Sé mál viðamikið skal nefndin kveða upp úrskurð innan sex mánaða frá sama tímamarki.

Á árinu 2023 afgreiddi úrskurðarnefndin 174 mál og þar af lauk 130 málum með efnisúrskurði, 33 með frávísunarúrskurði, 4 með framsendingu og 7 með því að kærandi afturkallaði kæru sína.

Úrskurðarnefndin kvað upp 170 úrskurði á árinu, en í sumum tilvikum eru nokkur kærumál sameinuð í eitt og kveðinn upp einn úrskurður fyrir þau öll. Þá getur í úrskurði einnig verið tekið á kröfu um stöðvun framkvæmda eða frestun réttaráhrifa til bráðabirgða og er í slíkum úrskurði því ekki að finna endanlega niðurstöðu.

Meðalafgreiðslutími lokinna kærumála hjá úrskurðarnefndinni var 2,7 mánuðir en sé einvörðungu litið til þeirra mála sem lauk með úrskurði var meðalafgreiðslutími 2,9 mánuðir.

Efni þeirra kærumála sem afgreidd voru á árinu

Deiliskipulag43
Byggingarleyfi31
Þvingunarúrræði23
Framkvæmdaleyfi17
Önnur byggingarmál13
Starfsleyfi10
Virkjunarleyfi10
Matsskylduákvörðun8
Rekstrarleyfi4
Framkvæmdir í og við veiðivötn3
Nýtingarleyfi3
Skipulagsgjald3
Þjónustugjald3
Önnur skipulagsmál2
Sölubann1