Hafnað er kröfum kærenda um frestun réttaráhrifa til bráðabirgða á grundvelli hinna kærðu ákvarðana Matvælastofnunar.
Árið 2026, föstudaginn 30. október, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Arnór Snæbjörnsson formaður, Aðalheiður Jóhannsdóttir prófessor, Geir Oddsson auðlindafræðingur, Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður og Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur.
Fyrir var tekið mál nr. UUA2610014, kæra á ákvörðunum Matvælastofnunar frá 11. september 2026 um að veita rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi á laxi í Seyðisfirði með 10.000 tonna hámarkslífmassa, þar af 6.500 tonn af frjóum laxi.
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 12. október 2026, er barst nefndinni sama dag, kæra samtökin VÁ! og eigendur sjávarjarðanna Austdals, Brimness 1 og 2, Dvergasteins og Selstaða í Seyðisfirði, þær ákvarðanir Matvælastofnunar frá 11. september 2026 að veita Kaldvík hf. rekstrarleyfin FE-1135a og FE-1135b fyrir sjókvíaeldi á laxi í Seyðisfirði með 10.000 tonna hámarkslífmassa, þar af 6.500 tonn af frjóum laxi. Er þess krafist að ákvarðanirnar verði felldar úr gildi.
- Þess er jafnframt krafist að réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana verði frestað á meðan málið er til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni, sbr. 3. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Verður nú tekin afstaða til þeirra krafna.
Málsatvik og rök
- Hinn 28. ágúst 2018 sótti Fiskeldi Austfjarða ehf., nú Kaldvík hf., um rekstrarleyfi til sjókvíaeldis á 10.000 tonna hámarkslífmassa af laxi í Seyðisfirði. Sama ár lagði félagið fram frummatsskýrslu um fyrirhugað eldi hjá Skipulagsstofnun á grundvelli áðurgildandi laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Álit Skipulagsstofnunar um umhverfismat framkvæmdarinnar lá fyrir 31. desember 2021. Matvælastofnun auglýsti tillögu að umsóttum rekstrarleyfum 12. desember 2024 með umsagnarfresti til og með 20. janúar 2025. Hinn 11. september 2026 gaf stofnunin út rekstrarleyfin FE-1135a og FE-1135b til handa Kaldvíkur fyrir kynslóðaskiptu sjókvíaeldi á laxi í sjókvíum í Seyðisfirði með 10.000 tonna hámarkslífmassa, þar af 6.500 tonn af frjóum laxi.
- Kærendur vísa til 3. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, enda sé um að ræða ákvörðun sem feli ekki í sér heimild til framkvæmda. Til meðferðar séu hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun umsóknir leyfishafa þessa máls um byggingarleyfi fyrir sjókvíum. Séu hin kærðu rekstrarleyfi grundvöllur þeirrar umsóknar. Fyrirséð sé að byggingarleyfin verði veitt á meðan mál þetta sé til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni og að framkvæmdir hefjist þá þegar. Mikilvægt sé að koma í veg fyrir að framkvæmdir hefjist.
- Leyfishafi bendir á að ríkar ástæður eða veigamikil rök verði að vera fyrir ákvörðun um stöðvun framkvæmda eða frestun réttaráhrifa. Það mæli á móti frestun réttaráhrifa ef fleiri en einn aðili séu að máli, sbr. úrskurði nefndarinnar í málum nr. 33/2024 og 49/2024 sem báðir hafi varðað rekstrarleyfi sjókvíaeldis. Hagsmunir leyfishafa séu gagnstæðir hagsmunum kærenda. Krafa kærenda sé studd þeim rökum einum að byggingarleyfi kunni að verða gefin út á meðan kæran sé til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Aftur á móti muni starfsemi að öllum líkindum ekki hefjast áður en úrskurður gengur í málinu. Rekstrarleyfi taki ekki gildi fyrr en að lokinni úttekt Matvælastofnunar, sbr. 11. gr. laga nr. 71/2008, og sé úrskurðar að vænta innan lögbundins málsmeðferðartíma nefndarinnar. Þá sé hin umrædda starfsemi heldur ekki óafturkræf. Kæran verði því ekki þýðingarlaus þótt réttaráhrifum leyfisins verði ekki frestað.
- Matvælastofnun hefur ekki tjáð sig um kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa.
Niðurstaða
- Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála segir að kæra til nefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar. Kærandi geti þó krafist úrskurðar um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða séu þær hafnar eða yfirvofandi, sbr. 2. mgr. lagagreinarinnar, og getur úrskurðarnefndin með sömu skilmálum frestað réttaráhrifum ákvörðunar sem ekki felur í sér stöðvun framkvæmda, sbr. 3. mgr. Um undantekningu er að ræða frá þeirri meginreglu sem fram kemur í 1. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar. Í athugasemdum með nefndri lagagrein í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum er tekið fram að við mat á því hvort fresta eigi réttaráhrifum ákvörðunar beri að líta til réttmætra hagsmuna allra aðila málsins auk þess sem horfa þurfi til þess hversu líklegt sé að ákvörðuninni verði breytt. Almennt mæli það á móti því að réttaráhrifum ákvörðunar sé frestað ef fleiri en einn aðili séu að máli og þeir eigi gagnstæðra hagsmuna að gæta. Einnig er í athugasemdunum nefnd þau tilvik þar sem kæruheimild verði í raun þýðingarlaus verði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar ekki frestað. Af sama toga eru athugasemdir með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 130/2011, en þar segir um 5. gr. að í málum sem varði framkvæmdir sem hafi áhrif á umhverfið kunni kæruheimild að verða þýðingarlaus ef úrskurðarnefndin hafi ekki heimild til að fresta réttaráhrifum ákvörðunar.
- Í kærumáli þessu eru aðilar máls fleiri en einn og hafa þeir andstæðra hagsmuna að gæta. Ekki liggur skýrlega fyrir hvenær fyrirhugað er að taka eldissvæði leyfishafa í notkun, en af hans hálfu er þó tekið fram að allar líkur séu á því að starfsemi hefjist ekki á meðan málið er til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Þá er ljóst að leyfishafi hefur ekki aflað tilskilinna leyfa til að geta hafið starfsemi sína. Að virtum framangreindum sjónarmiðum er það álit úrskurðarnefndarinnar að ekki sé ástæða til að beita undantekningarheimild 5. gr. laga nr. 130/2011 og fresta réttaráhrifum hinna kærðu rekstrarleyfa.
- Rétt þykir að taka fram að ýmis álitaefni eru uppi í málinu og ber leyfishafi alla áhættu af því að hefja starfsemi á grundvelli hinna kærðu leyfa á meðan ekki liggur fyrir endanleg niðurstaða um lögmæti þeirra.
Úrskurðarorð
Hafnað er kröfum kærenda um frestun réttaráhrifa til bráðabirgða á grundvelli hinna kærðu ákvarðana Matvælastofnunar.
