Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 135/2026 · Mál nr. UUA2609020 · Kveðinn upp 8. október 2026

Litli-Hvammur

FrávísunFormannsúrskurður
Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.

Árið 2026, fimmtudaginn 8. október, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:

Mál nr. UUA262609020, kæra á ákvörðun sveitarstjórnar Mýrdalshrepps frá 27. ágúst 2026 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Litla-Hvamms I.

  1. Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 27. september 2026, er barst nefndinni sama dag, kæra A, B og C, eigendur að hluta af jörðinni Litli-Hvammur (L163063), þá ákvörðun sveitarstjórnar Mýrdalshrepps frá 27. ágúst 2026 að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Litla-Hvamms I (L173920). Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
  1. Úrskurður þessi er kveðinn upp með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Málsatvik og rök

  1. Hinn 14. febrúar 2025 samþykkti sveitarstjórn Mýrdalshrepps deiliskipulag fyrir Litla-Hvamm (L173920). Tók skipulagið gildi við birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda 25. apríl s.á. Náði deiliskipulagið yfir eina lóð þar sem fyrir var ein bygging, en með skipulaginu voru settar frekari byggingarheimildir ásamt kvöð um aðkomu. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs 13. mars 2026 var samþykkt að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulaginu er fólst í því að stækka byggingarreit og heimila byggingu tveggja frístundahúsa án þess þó að breyting væri gerð á hámarksbyggingarmagni. Var tillagan grenndarkynnt 15. júlí s.á. með athugasemdafresti til 11. ágúst s.á. Bárust athugasemdir á kynningartíma frá kærendum þessa máls. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs 21. s.m. var tillagan tekin fyrir að nýju og bókað að brugðist hafi verið við framkomnum athugasemdum. Samþykkti ráðið tillöguna og staðfesti sveitarstjórn þá afgreiðslu á fundi sínum 27. s.m.
  1. Kærendur benda á að land þeirra liggi að deiliskipulagssvæðinu bæði að norðan og sunnan. Samkvæmt hinni kærðu ákvörðun verði byggingarreitur, þar sem heimilt verður að reisa tvö frístundahús, staðsettur að lágmarki 15 m frá syðri mörkum lóðarinnar. Af breytingunni leiði aukin innsýn, umferð og dvöl fólks, breytt ásýnd gagnvart landi kærenda og takmarkaðri möguleikar á nýtingu hluta af landi kærenda. Deiliskipulagsbreytingin sé í ósamræmi við aðalskipulag auk þess sem hún geti ekki talist óveruleg. Þá hafi ekki verið tekin rökstudd afstaða til athugasemda kærenda sem þeir hafi komið á framfæri við kynningu skipulagstillögunnar.

Niðurstaða

  1. Samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal sveitarstjórn senda Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun samþykkta deiliskipulagsbreytingu, sem metin hefur verið sem óveruleg, og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda. Slík auglýsing er skilyrði gildistöku deiliskipulags og markar jafnframt upphaf eins mánaðar kærufrests til úrskurðarnefndarinnar, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Auglýsing um gildistöku hinnar umræddu deiliskipulags­breytingar hefur ekki enn verið birt í B-deild Stjórnartíðinda. Liggur því ekki fyrir ákvörðun sem bindur enda á mál í skilningi 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 sem kæranleg er til úrskurðarnefndarinnar. Verður kærumáli þessu því vísað frá úrskurðarnefndinni.

Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.