Úrskurðarorð
Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar frá 20. ágúst 2026 um að leggja dagsektir á einn lóðarhafa lóðar nr. 2 við Skútahraun.
Árið 2026, mánudaginn 14. september, tók Unnþór Jónsson, varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, sbr. 1. mgr. 2., fyrir:
Mál nr. UUA2609002, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar frá 20. ágúst 2026 um að leggja dagsektir á einn lóðarhafa lóðar nr. 2 við Skútahraun.
Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 3. september 2026, er barst nefndinni sama dag, kæra VHE ehf., Bitter ehf., Nesnúpur ehf. og Smárakirkja, lóðarhafar lóðar nr. 2 við Skútahraun, þá ákvörðun byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar frá 20. ágúst s.á. að leggja dagsektir á VHE ehf. að fjárhæð kr. 100.000 frá og með 7. september s.á. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að frekari álagning eða innheimta dagsekta á grundvelli hennar verði stöðvuð. Jafnframt er þess krafist að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar verði frestað á meðan málið er til meðferðar hjá nefndinni. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Hafnarfjarðarkaupstað 10. september 2026.
Málsatvik og rök
- Í bréfi byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar til lóðarhafa lóðar nr. 2 við Skútahraun, dags. 8. maí 2026, kom fram að hlið hefði verið sett upp á lóðinni í ósamræmi við skipulagskvöð. Var og vísað til þess að það hindraði umferð að kjallara á lóðum nr. 3 og 5 við Drangahraun. Var „eigendum hliðsins“ gert að opna það eða veita „eigendum Drangahrauns aðgang“ að því. Var lóðarhöfunum veittur frestur til 25. maí 2026 til að bregðast við og vísað til þess að yrði tilmælunum ekki sinnt myndi byggingarfulltrúi taka ákvörðun um framhald málsins með hliðsjón af 1. mgr. 55. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki og gr. 2.9.1. í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Gæti sú ákvörðun falið í sér að húsnæðinu yrði lokað án frekari tafa eða að lagðar yrðu á dagsektir í samræmi við 56. gr. sömu laga. Framlengdi byggingarfulltrúi síðar frestinn til 16. júní 2026.
- Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 18. júní 2026 tók byggingarfulltrúi ákvörðun að leggja dagsektir á einn lóðarhafa lóðar nr. 2 við Skútahraun frá og með 2. júlí s.á. að fjárhæð kr. 20.000. Var ákvörðunin kærð til úrskurðarnefndarinnar, en með tölvupósti hinn 12. ágúst s.á. tilkynnti sveitarfélagið að ákvörðunin hefði verið afturkölluð og dagsektir felldar niður. Byggingarfulltrúi tók málið fyrir að nýju á afgreiðslufundi 19. s.m. þar sem samþykkt var að leggja á dagsektir að fjárhæð kr. 100.000 á lóðarhafa Skútahrauns 2 frá og með 7. september s.á.. Var einum lóðarhafa Skútahrauns 2, þ.e. VHE ehf., tilkynnt um ákvörðunina með bréfi, dags. 20. s.m.
- Kærendur vísa til þess að um sé að ræða íþyngjandi ákvörðun sem beinist einkum að VHE ehf., en hafi jafnframt veruleg áhrif á aðra kærendur sem lóðarhafa. Ef innheimta eða álagning dagsekta haldi áfram á meðan málið sé til meðferðar geti kæruheimild kærenda orðið þýðingarlaus. Engar knýjandi ástæður liggi fyrir sem geri það að verkum að varhugavert sé að bíða efnisúrlausnar nefndarinnar.
- Af hálfu Hafnarfjarðarkaupstaðar er kröfu um frestun réttaráhrifa mótmælt. Í málinu valdi hin ólögmæta lokun verulegu tjóni og hindrun á eðlilegri atvinnustarfsemi nágrannalóða að Drangahrauni 3 og 5, auk þess sem hún skerði aðkomu neyðarbíla og slökkviliðs. Brýnir almanna- og öryggishagsmunir krefjist þess að réttaráhrifum sé ekki frestað.
Niðurstaða
- Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en jafnframt er kæranda þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda til bráðabirgða séu þær hafnar eða yfirvofandi. Sé um að ræða ákvörðun sem ekki felur í sér heimild til framkvæmda getur úrskurðarnefndin með sömu skilmálum frestað réttaráhrifum hennar komi fram krafa um það af hálfu kæranda, sbr. 3. mgr. sömu lagagreinar. Með sama hætti er kveðið á um það í 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar en þó sé heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar til bráðabirgða meðan málið er til meðferðar hjá kærustjórnvaldi þar sem ástæður mæli með því. Tilvitnuð lagaákvæði bera með sér að meginreglan sé sú að kæra til æðra stjórnvalds frestar ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og eru heimildarákvæði fyrir frestun réttaráhrifa kærðrar ákvörðunar undantekning frá nefndri meginreglu sem skýra beri þröngt. Verða því að vera ríkar ástæður eða veigamikil rök fyrir ákvörðun um stöðvun framkvæmda.
- Tekið er fram í athugasemdum með 5. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 130/2011 að ákvæði greinarinnar byggist á almennum reglum stjórnsýsluréttar um réttaráhrif kæru og heimild úrskurðaraðila til að fresta réttaráhrifum ákvörðunar, sbr. 29. gr. stjórnsýslulaga. Í athugasemdum með þeirri grein í frumvarpi til stjórnsýslulaga er tiltekið að heimild til frestunar réttaráhrifa þyki nauðsynleg þar sem kæruheimild geti ella orðið þýðingarlaus. Þar kemur einnig fram að almennt mæli það á móti því að réttaráhrifum ákvörðunar sé frestað ef fleiri en einn aðili sé að máli og þeir eigi gagnstæðra hagsmuna að gæta. Það mæli hins vegar með því að fresta réttaráhrifum ákvörðunar ef aðili máls sé aðeins einn og ákvörðun er íþyngjandi fyrir hann, veldur honum t.d. tjóni. Þetta sjónarmið vegi sérstaklega þungt í þeim tilvikum þar sem erfitt yrði að ráða bót á tjóninu enda þótt ákvörðunin yrði síðar felld úr gildi af hinu æðra stjórnvaldi.
- Í máli þessu er kærð sú ákvörðun byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar frá 20. ágúst 2026 að leggja á dagsektir á einn lóðarhafa lóðar nr. 2 við Skútahraun, að fjárhæð 100.000 kr., frá og með 7. september s.á. Um íþyngjandi ákvörðun er að ræða sem beinist einungis að einum lóðarhafa af fjórum og hafa kærendur nýtt sér heimild til að bera lögmæti hinnar kærðu ákvörðunar undir úrskurðarnefndina. Verður ekki talið, eins og atvikum er hér háttað og með hliðsjón af eðli þeirrar ákvörðunar sem um ræðir, að aðkallandi almanna- eða öryggishagsmunir leiði til þess að hafna beri kröfu um frestun réttaráhrifa.
- Að teknu tilliti til framangreinds verður fallist á kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa.
Úrskurðarorð
Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar frá 20. ágúst 2026 um að leggja dagsektir á einn lóðarhafa lóðar nr. 2 við Skútahraun.
