Úrskurðarorð
Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar frá 18. júní 2026 um að leggja dagsektir á lóðarhafa lóðar nr. 2 við Skútahraun.
Árið 2026, þriðjudaginn 4. ágúst, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. UUA2607012, kæra á þeirri ákvörðun byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar frá 18. júní 2026 að leggja dagsektir á lóðarhafa lóðar nr. 2 við Skútahraun.
Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 17. júlí 2026, er barst nefndinni sama dag, er kærð f.h. félaganna Bitter ehf., VHE ehf. og Nesnúps ehf. sú ákvörðun byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar frá 18. júní 2026 að leggja dagsektir á lóðarhafa lóðar nr. 2. við Skútahraun, að fjárhæð 20.000 kr. á dag frá og með 2. júlí s.á. Þess er krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi en kærendur eru meðal lóðarhafa að lóðinni.
- Þess er jafnframt krafist að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar verði frestað á meðan málið er til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Hafnarfjarðarkaupstað 23. júlí 2026.
Málsatvik og rök
- Í bréfi byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar, dags. 8. maí 2026, til lóðarhafa lóðar nr. 2 við Skútahraun, kom fram að hlið hefði verið sett upp á lóðinni í ósamræmi við skipulagskvöð, enda ljóst að það hindraði umferð að kjallara á lóðum nr. 3 og 5 við Drangahraun. Var „eigendum hliðsins gert að opna hliðið eða veita eigendum Drangahrauns aðgang“ að því. Var lóðarhöfunum veittur frestur til 25. maí 2026 til að bregðast við og vísað til þess að yrði tilmælunum ekki sinnt myndi byggingarfulltrúi taka ákvörðun um framhald málsins með hliðsjón af 1. mgr. 55 gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki og gr. 2.9.1. í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Gæti sú ákvörðun falið í sér að húsnæðinu yrði lokað án frekari tafar, eða að lagðar yrðu á dagsektir í samræmi við 56. gr. sömu laga. Framlengdi byggingarfulltrúi síðar frestinn til 16. júní 2026.
- Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 18. júní 2026 tók byggingarfulltrúi ákvörðun um að leggja dagsektir á lóðarhafa lóðar nr. 2 við Skútahraun, frá og með 2. júlí s.á., 20.000 kr. á dag, samkvæmt heimild 56. gr. laga nr. 160/2010. Voru bréf þess efnis send á lóðarhafana þar sem einnig var leiðbeint um kæruheimild og kærufrest til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Er það hin kærða ákvörðun í máli þessu og er innheimta dagsektanna hafin.
- Af hálfu kærenda er bent á að hin kærða ákvörðun sé íþyngjandi og beinist eingöngu að kærendum og hafi þegar haft fjárhagsleg réttaráhrif gagnvart þeim. Mæli ástæður því eindregið með frestun réttaráhrifa. Haldi innheimta og frekari álagning dagsekta áfram á meðan málið sé til meðferðar geti kæruheimild kærenda orðið þýðingarlaus. Engar knýjandi ástæður liggi fyrir sem geri það að verkum að varhugavert sé að bíða efnisúrlausnar nefndarinnar.
- Hafnarfjarðarkaupstað var gefinn kostur á að tjá sig um framkomna kröfu um frestun réttaráhrifa en umsögn barst ekki.
Niðurstaða
- Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en jafnframt er kæranda þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda til bráðabirgða séu þær hafnar eða yfirvofandi. Sé um að ræða ákvörðun sem ekki felur í sér heimild til framkvæmda getur úrskurðarnefndin með sömu skilmálum frestað réttaráhrifum hennar komi fram um það af hálfu kæranda, sbr. 3. mgr. sömu lagagreinar. Með sama hætti er kveðið á um það í 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar en þó sé heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar til bráðabirgða meðan málið er til meðferðar hjá kærustjórnvaldi þar sem ástæður mæli með því. Tilvitnuð lagaákvæði bera með sér að meginreglan sé sú að kæra til æðra stjórnvalds frestar ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og eru heimildarákvæði fyrir frestun réttaráhrifa kærðrar ákvörðunar undantekning frá nefndri meginreglu sem skýra beri þröngt. Verða því að vera ríkar ástæður eða veigamikil rök fyrir ákvörðun um stöðvun framkvæmda.
- Tekið er fram í athugasemdum með 5. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 130/2011 að ákvæði greinarinnar byggist á almennum reglum stjórnsýsluréttar um réttaráhrif kæru og heimild úrskurðaraðila til að fresta réttaráhrifum ákvörðunar, sbr. 29. gr. stjórnsýslulaga. Í athugasemdum með þeirri grein í frumvarpi til stjórnsýslulaga er tiltekið að heimild til frestunar réttaráhrifa þyki nauðsynleg þar sem kæruheimild geti ella orðið þýðingarlaus. Þar kemur einnig fram að almennt mæli það á móti því að réttaráhrifum ákvörðunar sé frestað ef fleiri en einn aðili sé að máli og þeir eigi gagnstæðra hagsmuna að gæta. Það mæli hins vegar með því að fresta réttaráhrifum ákvörðunar ef aðili máls sé aðeins einn og ákvörðun er íþyngjandi fyrir hann, veldur honum t.d. tjóni. Þetta sjónarmið vegi sérstaklega þungt í þeim tilvikum þar sem erfitt yrði að ráða bót á tjóninu enda þótt ákvörðunin yrði síðar felld úr gildi af hinu æðra stjórnvaldi.
- Í máli þessu er kærð sú ákvörðun byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar frá 18. júní 2026 að leggja á dagsektir á lóðarhafa lóðar nr. 2 við Skútahraun, að fjárhæð 20.000 kr. á dag, frá og með 2. júlí s.á. Innheimta dagsekta er hafin. Kærendur hafa nýtt sér heimild til að bera lögmæti hinnar kærðu ákvörðunar undir úrskurðarnefndina. Um íþyngjandi ákvörðun er að ræða, sem beinist einungis að lóðarhöfum. Eins og málsatvikum er háttað þykir rétt að fresta réttaráhrifum ákvörðunarinnar enda liggja ekki fyrir knýjandi ástæður sem gera það að verkum að varhugavert sé að bíða niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar um ágreiningsefni máls þessa.
Úrskurðarorð
Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar frá 18. júní 2026 um að leggja dagsektir á lóðarhafa lóðar nr. 2 við Skútahraun.
