Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 114/2026 · Mál nr. UUA2608008 · Kveðinn upp 7. september 2026

Sækot

BráðabirgðaúrskurðurFormannsúrskurður
Úrskurðarorð

Hafnað er kröfu um frestun réttaráhrifa ákvörðunar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að starfsemi Sánagús ehf. í Sækoti teljist starfsleyfisskyld.

Árið 2026, mánudaginn 7. september, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:

Mál nr. UUA2608008, kæra á ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá 6. ágúst 2026 um að starfsemi Sánagús ehf. í Sækoti teljist starfsleyfisskyld.

Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur

  1. Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 17. ágúst 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir Sánagús ehf., Rauðarárstíg 22, Reykjavík, þá ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur að starfsemi félagsins í Sækoti við Ægissíðu í Reykjavík teljist starfsleyfisskyld. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi. Til vara er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi og málinu vísað aftur til nýrrar meðferðar hjá heilbrigðiseftirlitinu þar sem fram fari fullnægjandi rannsókn á raunverulegu eðli starfseminnar og lagalegri flokkun hennar. Þess er jafnframt krafist að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar verði frestað. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.
  2. Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur 25. ágúst 2026.

Málsatvik og rök

  1. Með tölvupósti til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur 19. september 2024 upplýsti kærandi um að fyrirhugað væri að opna sánu fyrir svonefnt sánagús í Sækoti við Ægissíðu í Reykjavík. Í kjölfarið áttu kærandi og heilbrigðiseftirlitið í töluverðum samskiptum og varð úr að heilbrigðiseftirlitið óskaði eftir áliti Umhverfis- og orkustofnunar um starfsleyfisskyldu baðstofa og starfsleyfisskyldu færanlegra baðstofa. Var þeim erindum svarað með bréfum, dags. 17. apríl 2026. Þar kom annars vegar fram að það væri mat stofnunarinnar að baðstofur sem væru varanlega skeyttar við landið og reknar í beinum tengslum við baðvatn féllu undir skilgreininguna á baðstað í náttúrunni, sbr. 3-liður 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 460/2015 um baðstaði í náttúrunni. Í hinu bréfinu kom fram það mat stofnunarinnar að færanlegar baðstofur féllu undir skilgreiningu á hugtakinu baðstofa sem ekki væri rekin í tengslum við sund- og baðstaði sbr. 2. tl. 1. mgr. 2. gr., sbr. og 5. mgr. 10. gr. reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
  1. Í bréfi heilbrigðiseftirlitsins til kæranda, dags. 6. ágúst 2026, var vísað til greindra álita Umhverfis- og orkustofnunar og bent á að hvort sem starfsemin félli undir reglugerð nr. 814/2010 eða reglugerð nr. 460/2015 þá þyrfti starfsemi baðstofa að uppfylla ákvæði 9. og 10. gr. reglugerðar nr. 814/2010 varðandi búningsaðstöðu og aðgengi að salerni og sturtum. Í samræmi við það teldi heilbrigðiseftirlitið að starfsemi kæranda væri starfsleyfisskyld og starfsemi óheimil á meðan slíkt leyfi væri ekki til staðar.
  1. Kærandi álítur að heilbrigðiseftirlitið hafi ekki sýnt með nægjanlegum hætti fram á að umræddur rekstur falli undir þann starfsleyfisflokk sem hin kærða ákvörðun byggi á. Ekki hafi verið lagt fullnægjandi mat á skipulag starfseminnar né rökstutt með nægilega skýrum hætti hvernig hún sé heimfærð undir 102. tl. viðauka IV. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, þ.e. sem „sund- og baðstaður“.
  1. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vísar til þess að þar sem engin eiginleg stjórnvaldsákvörðun hafi verið tekin í málinu sé engum réttaráhrifum til að fresta. Tilvísun bréfaskrif heilbrigðiseftirlitsins hafi verið til að upplýsa rekstraraðila um starfsleyfisskyldu og ábending um að sækja um starfsleyfi, sem sé í samræmi við álit Umhverfis- og orkustofnunar. Rekstraraðila hafi verið bent á að nauðsyn þess að sækja um starfsleyfi til áframhaldandi starfsemi. Ekki hafi verið tekin ákvörðun um stöðvun starfsemi né beitingu þvingunarúrræða og þá hafi málið ekki verið lagt fyrir afgreiðslufund heilbrigðiseftirlitsins.

Niðurstaða

  1. Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en jafnframt er kæranda þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda til bráðabirgða séu þær hafnar eða yfirvofandi. Sé um að ræða ákvörðun sem ekki felur í sér heimild til framkvæmda getur úrskurðarnefndin með sömu skilmálum frestað réttaráhrifum hennar komi fram um það af hálfu kæranda, sbr. 3. mgr. sömu lagagreinar. Með sama hætti er kveðið á um það í 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar en þó sé heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar til bráðabirgða meðan málið er til meðferðar hjá kærustjórnvaldi þar sem ástæður mæli með því. Tilvitnuð lagaákvæði bera með sér að meginreglan sé sú að kæra til æðra stjórnvalds frestar ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og eru heimildarákvæði fyrir frestun réttaráhrifa kærðrar ákvörðunar undantekning frá nefndri meginreglu sem skýra beri þröngt. Verða því að vera ríkar ástæður eða veigamikil rök fyrir ákvörðun um stöðvun framkvæmda.
  2. Í máli þessu er deilt um ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að starfsemi kærenda sé starfsleyfisskyld sbr. 102. tl. IV viðauka laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Þegar litið er til fyrrgreindra lagaákvæða og eðlis þeirrar ákvörðunar sem kærð hefur verið verður ekki séð að ríkar ástæður eða veigamikil rök standi til frestunar réttaráhrifa hennar. Hin kærða ákvörðun felur ekki í sér beitingu þvingunarúrræða eða ráðstafana sem telja verði að valdið geti kæranda tjóni á meðan málið er til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Verður því að telja að ekki sé tilefni til að fallast á kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar í máli þessu.

Úrskurðarorð

Hafnað er kröfu um frestun réttaráhrifa ákvörðunar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að starfsemi Sánagús ehf. í Sækoti teljist starfsleyfisskyld.