Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 140/2026 · Mál nr. UUA2607006 · Kveðinn upp 15. október 2026

Réttarvegur

Ógilding
Úrskurðarorð

Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar frá 25. júní 2026 um að samþykkja umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnu- og kaffiskúr við Réttarveg í Höfnum.

Árið 2026, fimmtudaginn 15. október, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Unnþór Jónsson varaformaður, Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður og Þorsteinn Þorsteinsson byggingar­verkfræðingur.

Fyrir var tekið mál nr. UUA2607006, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjanes­bæjar frá 25. júní 2026 um að samþykkja umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnu- og kaffiskúr við Réttarveg í Höfnum.

  1. Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 8. júlí 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir eigandi, Réttarvegi 9 í Höfnum, þá ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar frá 25. júní s.á. að samþykkja umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnu- og kaffiskúr við Réttarveg í Höfnum. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Kærandi fór jafnframt fram á að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar yrði frestað á meðan málið væri til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni. Var þeirri kröfu hafnað með úrskurði nefndarinnar uppkveðnum 13. ágúst 2026.
  1. Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Reykjanesbæ 5. ágúst 2026.

Málavextir

  1. Með erindi Sveins Enoks Jóhannssonar til skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar, dags. 10. mars 2026, var óskað eftir heimild til að hafa tímabundin afnot af landi í eigu bæjarins við Réttarveg í Höfnum til að koma fyrir vinnuaðstöðu til námskeiðahalds. Um væri að ræða lítinn kaffiskúr og salernisaðstöðu fyrir þátttakendur. Var óskað eftir að heimildin myndi gilda í þrjú ár. Erindið var tekið fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 20. s.m. og samþykkt með fyrirvara um samþykki eiganda fasteignar að Réttarvegi 2. Var afgreiðslan staðfest á fundi bæjarstjórnar 7. apríl s.á.
  1. Í kjölfarið átti sami aðili í nokkrum samskiptum við sveitarfélagið um áform sín þar sem honum var leiðbeint um að sækja um byggingarleyfi í umfangsflokki 1, en bent á að ef ekkert væri „tengt í [skúrinn]“ myndi stöðuleyfi duga. Í kjölfar þess sótti hann um stöðuleyfi fyrir 10 m2 torgsöluhúsi við Réttarveg. Í umsókninni kom fram að umsækjandi hefði fengið afnot af „svæðinu við Réttarveg“ til næstu þriggja ára og að með umsókninni væri óskað eftir stöðuleyfi fyrir kaffiskúr sem myndi nýtast sem aðstaða fyrir þátttakendur námskeiða. Húsið yrði ekki tengt við veitur. Umsóknin var tekin fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 25. júní s.á. og var erindið samþykkt og stöðuleyfi fyrir vinnu- og kaffiskúr veitt til 25. júní 2027.

Málsrök kæranda

  1. Kærandi vísar til þess að sótt hafi verið um stöðuleyfi fyrir „torgsöluhús“, en að í bókun afgreiðslufundar byggingarfulltrúa sé samþykkt leyfi fyrir „vinnu- og kaffiskúr“ sem eigi að nýtast sem starfsstöð fyrir atvinnutengda námskeiðastarfsemi. Um sé að ræða efnislega aðra og víðtækari heimild en sótt hafi verið um og ekki verði séð að farið hafi fram sjálfstætt mat á því hvort skilyrði væru uppfyllt fyrir þeirri notkun sem raunverulega standi til, þ.e. vinnuaðstöðu tengdri skipulagðri atvinnustarfsemi.
  1. Samkvæmt gr. 2.6.1. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 sé skylt að sækja um stöðuleyfi fyrir tiltekna og tæmandi talda lausafjármuni sem ætlað sé að standa lengur en tvo mánuði utan sérstaklega skipulagðra geymslusvæða. Sá lausafjármunur sem byggingarfulltrúi hafi samþykkt sé hins vegar ætlaður til að nýtast sem föst starfsstöð fyrir atvinnustarfsemi til þriggja ára. Slík notkun falli ekki undir neinn þeirra liða sem taldir séu upp í gr. 2.6.1. reglugerðarinnar, enda sé þar ekki um að ræða „lausafjármuni“ í hefðbundnum skilningi ákvæðisins, heldur varanlega starfsstöð. Byggingarfulltrúi hafi því í reynd samþykkt heimild sem gangi út fyrir gildissvið gr. 2.6.1., en rétt hefði verið að krefjast þess að sótt yrði um byggingarleyfi í stað stöðuleyfis.
  1. Umhverfis- og skipulagsráð hafi bundið samþykki sitt fyrir tímabundnum afnotum af landinu því skilyrði að fyrir lægi samþykki eiganda fasteignar að Réttarvegi 2, en raunin sé að íbúar þess húss séu þeir einu sem ekki sjái skúrinn frá húsi sínu. Aðrir nágrannar, þar á meðal kærandi sem verði fyrir beinum áhrifum af staðsetningu og starfsemi skúrsins, hafi ekki verið upplýstir um umsóknina né gefinn kostur á að tjá sig áður en ákvörðun hafi verið tekin. Skilyrði um samþykki nágranna hafi ekki verið fullnægt með réttum hætti gagnvart þeim aðilum sem eigi raunverulegra hagsmuna að gæta, auk þess sem farið hafi verið í bága við kröfur um vandaða málsmeðferð og andmælarétt, sbr. m.a. ákvæði 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Málsrök Reykjanesbæjar

  1. Af hálfu sveitarfélagsins er vísað til þess að við afgreiðslu málsins hafi verið farið eftir þeim gögnum sem fyrir hafi legið í málinu. Ekkert sem fram hafi komið af hálfu kæranda dragi lögmæti hinnar kærðu ákvörðunar í efa. Það hafi verið mat sveitarfélagsins að þar sem lóð kæranda væri í talsverðri fjarlægð frá hinum umdeilda skúr hefði hann ekki haft lögvarinna hagsmuna að gæta af útgáfu hins umdeilda stöðuleyfis. Á þeim grundvelli geri sveitarfélagið kröfu um að málinu sé vísað frá nefndinni á grundvelli 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

—–

  1. Leyfishafa var gefinn kostur á að koma á framfæri sjónarmiðum sínum í málinu, en hann hefur ekki tjáð sig um kærumál þetta.

Niðurstaða

  1. Í máli þessu er kærð ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar frá 25. júní 2026 um að samþykkja umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnu- og kaffiskúr við Réttarveg í Höfnum. Kæruheimild til úrskurðarnefndarinnar er í 59. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki og barst kæra innan kærufrests.
  1. Samkvæmt 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála geta þeir einir kært stjórnvaldsákvörðun til nefndarinnar sem eiga lögvarða hagsmuni tengda ákvörðun sem kæra á. Í samræmi við aðildarhugtak stjórnsýsluréttarins hefur þetta skilyrði verið túlkað svo að þeir einir teljist eiga lögvarða hagsmuni sem eiga einstaklegra hagsmuna að gæta af úrlausn máls umfram aðra og jafnframt að þeir hagsmunir séu verulegir.
  1. Með hinni kærðu ákvörðun var veitt stöðuleyfi fyrir vinnu- og kaffiskúr í tengslum við námskeiðahald leyfishafa. Kærandi þessa máls er búsettur að Réttarvegi 9, sem er í um 80 m fjarlægð frá staðsetningu umrædds skúrs. Af stað­háttum má ráða að kærandi sjái skúrinn frá fasteign sinni. Með hliðsjón af því og þeirri starfsemi sem fyrirhuguð er í skúrnum er ekki útilokað að hið kærða stöðuleyfi geti haft áhrif á hagsmuni kæranda umfram aðra. Uppfyllir kærandi því skilyrði kæruaðildar samkvæmt áðurnefndri 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011.
  1. Í 9. tl. 1. mgr. 60. gr. laga nr. 160/2010 er tekið fram að í reglugerð skuli setja ákvæði um skilyrði fyrir veitingu stöðuleyfa fyrir gáma, báta, torgsöluhús, stór samkomutjöld og þess háttar sem ætlað sé að standa utan skipulagðra svæða fyrir slíka hluti í lengri tíma en tvo mánuði. Í reglugerð skuli kveða á um atriði sem varði öryggi og hollustuhætti vegna þessara lausafjármuna og um heimildir byggingarfulltrúa til að krefjast þess að þeir séu fjarlægðir ef ekki séu uppfyllt ákvæði reglugerðarinnar.
  1. Í kafla 2.6. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 er fjallað um stöðuleyfi. Í gr. 2.6.1. kemur fram að sækja skuli um stöðuleyfi til leyfis­veitanda til að láta tiltekna lausafjármuni standa lengur en tvo mánuði utan þeirra svæða sem sérstaklega séu skipulögð og ætluð til geymslu slíkra lausafjármuna. Er þar annars vegar um að ræða hjólhýsi á tíma­bilinu frá 1. október til 1. maí, en hins vegar gáma, báta, torgsöluhús, frístundahús í smíðum, sem ætlað sé til flutnings, og stór samkomutjöld. Í ákvæðinu eru þeir lausafjármunir sem geta verið háðir stöðuleyfi tæmandi taldir, en hvað það varðar má benda á að í leiðbeiningum Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulags­stofnunar við ákvæðið er tekið fram að ekki sé heimilt að veita stöðuleyfi fyrir aðra muni.
  1. Með umsókn leyfishafa, dags. 11. maí 2026, var sótt um stöðuleyfi fyrir torgsöluhúsi. Hvorki í lögum um mannvirki, byggingarreglugerð né áðurnefndum leiðbeiningum Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar er að finna skilgreiningu á hugtakinu torgsöluhús. Í sam­ræmi við almennan málskilning er þó nærtækt að líta svo á að með torgsöluhúsi sé átt við færanlegt hús, smáhýsi eða sölubás þar sem fram fer sölustarfsemi. Af fyrirliggjandi gögnum er á hinn bóginn ljóst að skúrinn á að nýtast sem vinnu- og kaffiaðstaða vegna námskeiðahalds á svæðinu. Að þessu virtu verður ekki talið að umræddur skúr falli undir hugtakið torgsöluhús í skilningi gr. 2.6.1. í byggingarreglugerð. Þá verður skúrinn heldur ekki felldur undir aðra liði greinds ákvæðis, en sem fyrr greinir hefur reglugerðarákvæðið að geyma tæmandi upptalningu á lausafjármunum sem veita má stöðuleyfi fyrir. Var byggingarfulltrúa því ekki heimilt að gefa út stöðuleyfi fyrir umræddan skúr og verður hin kærða ákvörðun þegar af þeirri ástæðu felld úr gildi.

Úrskurðarorð

Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar frá 25. júní 2026 um að samþykkja umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnu- og kaffiskúr við Réttarveg í Höfnum.