Hafnað er kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa ákvörðunar byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar frá 25. júní 2026 um að samþykkja umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnu- og kaffiskúr á horni Réttarvegar í Höfnum.
Árið 2026, fimmtudaginn 13. ágúst, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. UUA2607006, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar frá 25. júní 2026 um að samþykkja umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnu- og kaffiskúr á horni Réttarvegar í Höfnum.
Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 8. júlí 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir eigandi, Réttarvegi 9, þá ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar frá 25. júní 2026 að samþykkja umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnu- og kaffiskúr á horni Réttarvegar í Höfnum. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
- Þess er jafnframt krafist að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar verði frestað á meðan málið er til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Reykjanesbæ 5. ágúst 2026.
Málsatvik og rök
- Með erindi, dags. 10. mars 2026 óskaði Sveinn Enok Jóhannsson eftir heimild til að hafa tímabundin afnot af landi við Réttarveg í Höfnum til að koma fyrir vinnuaðstöðu fyrir námskeiðahald. Um væri að ræða lítinn kaffiskúr og salernisaðstöðu fyrir þáttakendur. Var óskað eftir að heimildin myndi gilda í þrjú ár. Erindið var tekið fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar 20. s.m. og samþykkt með fyrirvara um samþykki eiganda fasteignar við Réttarveg 2. Var afgreiðslan staðfest á fundi bæjarstjórnar 7. apríl s.á. Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 25. júní s.á. var tekin fyrir umsókn, dags. 11. maí s.á., um stöðuleyfi fyrir 10 m2 torgsöluhúsi á horni Réttarvegar. Var erindið samþykkt og stöðuleyfi veitt til 25. júní 2027.
- Kærandi vísar til þess að sótt hafi verið um stöðuleyfi fyrir torgsöluhúsi skv. umsókn dags. 11. maí 2026, en að í bókun afgreiðslufundar byggingarfulltrúa frá 25. júní s.á. sé samþykkt umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnu- og kaffiskúr. Um sé að ræða efnislega aðra og víðtækari heimild en sótt hafi verið um. Samkvæmt gr. 2.6.1. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 sé skylt að sækja um stöðuleyfi fyrir tiltekna, tæmandi talda lausafjármuni sem sé ætlað að standa lengur en tvo mánuði utan sérstaklega skipulagðra geymslusvæða. Það sem byggingarfulltrúi hafi samþykkt sé ætlað að nýtast sem föst starfsstöð fyrir endurtekið námskeiðahald og atvinnustarfsemi til þriggja ára. Slík notkun falli ekki undir neinn af þeim liðum sem taldir séu upp í gr. 2.6.1. reglugerðarinnar. Þá hafi umhverfis- og skipulagsráð bundið samþykki sitt því skilyrði að fyrir lægi samþykki eiganda fasteignar við Réttarveg 2. Íbúar að Réttarvegi 2 séu hins vegar þeir einu sem sjái ekki skúrinn frá húsi sínu. Aðrir nágrannar, þar á meðal kærandi, sem verði fyrir beinum áhrifum af staðsetningu og starfsemi hans, hafi ekki verið upplýstir um umsóknina né verið gefinn kostur á að tjá sig áður en ákvörðun hafi verið tekin.
- Af hálfu Reykjanesbæjar er farið fram á að kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar verði hafnað.
Niðurstaða
- Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en jafnframt er kæranda þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda til bráðabirgða séu þær hafnar eða yfirvofandi. Með sama hætti er kveðið á um það í 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar en þó sé heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar til bráðabirgða meðan málið sé til meðferðar hjá kærustjórnvaldi þar sem ástæður mæli með því. Tilvitnuð lagaákvæði bera með sér að meginreglan sé sú að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og eru heimildarákvæði fyrir frestun framkvæmda kærðrar ákvörðunar undantekning frá nefndri meginreglu sem skýra beri þröngt.
- Tekið er fram í athugasemdum um 5. gr. frumvarps þess sem varð að lögum nr. 130/2011 að ákvæði greinarinnar byggist á almennum reglum stjórnsýsluréttar um réttaráhrif kæru og heimild úrskurðaraðila til að fresta réttaráhrifum ákvörðunar, sbr. 29. gr. stjórnsýslulaga. Í athugasemdum með þeirri grein í frumvarpi til stjórnsýslulaga er tiltekið að heimild til frestunar réttaráhrifa þyki nauðsynleg þar sem kæruheimild geti ella orðið þýðingarlaus. Þar kemur einnig fram að almennt mæli það á móti því að réttaráhrifum ákvörðunar sé frestað ef fleiri en einn aðili sé að máli og þeir eigi gagnstæðra hagsmuna að gæta. Það mæli hins vegar með því að fresta réttaráhrifum ákvörðunar ef aðili máls sé aðeins einn og ákvörðun sé íþyngjandi fyrir hann. Þetta sjónarmið vegi sérstaklega þungt í þeim tilvikum þar sem erfitt yrði að ráða bót á tjóninu enda þótt ákvörðunin yrði síðar felld úr gildi af æðra stjórnvaldi.
- Í máli þessu er gerð krafa um frestun réttaráhrifa ákvörðunar um samþykkt umsóknar um stöðuleyfi fyrir vinnu- og kaffiskúr á horni Réttarvegar í Höfum. Það er eðli stöðuleyfis að um er að ræða leyfi til að staðsetja tiltekinn hlut eða mannvirki á tilteknum stað tímabundið. Eru slík leyfi mest veitt til 12 mánaða í senn nema ákvæði skipulags mæli fyrir um annað.
- Með hliðsjón af framangreindum lagaákvæðum og þeim sjónarmiðum sem liggja þeim að baki, sem og því að um er að ræða afturkræfar framkvæmdir, verður ekki talin knýjandi þörf á að stöðva framkvæmdir á meðan málið er til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Verður kröfu kæranda þar um því hafnað.
Úrskurðarorð
Hafnað er kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa ákvörðunar byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar frá 25. júní 2026 um að samþykkja umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnu- og kaffiskúr á horni Réttarvegar í Höfnum.
