Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 104/2026 · Mál nr. UUA2605010 · Kveðinn upp 24. ágúst 2026

Vogaland

Ógildingu hafnað
Úrskurðarorð

Hafnað er kröfu kærenda um að ógilda þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 21. apríl 2026 um að synja erindi um að smáhýsi á lóð Vogalands 7 verði fjarlægt og að aðhafast ekki frekar vegna staðsetningar þess.

Árið 2026, mánudaginn 24. ágúst, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Unnþór Jónsson varaformaður, Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður og Þorsteinn Þorsteinsson byggingar­verkfræðingur.

Fyrir var tekið mál UUA2605010, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 21. apríl 2026 um að synja kröfu um að smáhýsi á lóð Vogalands 7 verði fjarlægt og að aðhafast ekki frekar vegna staðsetningar þess.

  1. Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 20. maí 2026, kæra eigendur, Vogalandi 9, þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 21. apríl 2026 að synja erindi þeirra um að smáhýsi á lóð Vogalands 7 verði fjarlægt og að aðhafast ekki frekar vegna staðsetningar þess. Er þess krafist að ákvörðunin verði ógild.
  1. Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Reykjavíkurborg 30. júní 2026.

Málavextir

  1. Í byrjun september 2025 reistu lóðarhafar Vogalands 7 smáhýsi, nánar tiltekið sánaklefa, á lóð sinni við lóðarmörk Vogalands 9. Annar eigenda Vogalands 9 hafði samband við Reykjavíkur­borg 9. s.m. og upplýsti borgaryfirvöld um að ekki hefði verið aflað samþykkis þeirra vegna staðsetningar smáhýsisins. Með bréfi byggingarfulltrúa til lóðarhafa, dags. 29. september 2025, var bent á að samþykki eigenda Vogalands 9 væri áskilið fyrir smáhýsinu í samræmi við f-lið gr. 2.3.5. í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Voru lóðarhafar upplýstir um þau áform embættisins að gera þeim að fjarlægja smáhýsið af lóðinni eða færa það 3,0 m frá lóðarmörkum Vogalands 9. Með bréfi byggingarfulltrúa, dags. 20. október 2025, var lóðarhöfum gert að fjarlægja eða færa smáhýsið og var sú ákvörðun kærð til úrskurðarnefndarinnar. Með úrskurði í máli nr. UUA2511055 frá 27. febrúar 2026 var ákvörðun byggingarfulltrúa frá 20. október 2025 felld úr gildi.
  1. Með tölvupósti til byggingarfulltrúa 9. mars 2026 fóru kærendur fram á að lóðarhöfum Vogalands 7 yrði gert að fjarlægja hið umdeilda smáhýsi eða færa það frá lóðarmörkum. Með tölvupósti frá starfsmanni umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar 21. apríl s.á. voru kærendur upplýstir um að úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 27. febrúar s.á. væri fullnaðarúrskurður og að byggingarfulltrúi hygðist ekki aðhafast frekar. Er það hin kærða ákvörðun í máli þessu, en sem fyrr greinir barst úrskurðarnefndinni kæra 20. maí 2026. Í tölvupósti frá lögfræðingi Reykjavíkurborgar 3. júní s.á. var komið á framfæri rökstuðningi vegna ákvörðunarinnar. Með bréfi byggingarfulltrúa til kærenda, dags. 8. júní s.á., var ákvörðun um að synja um beitingu þvingunarúrræða rökstudd frekar.

Málsrök kærenda

  1. Kærendur vísa til þess að það sé óumdeilt að ekki hafi verið aflað leyfis frá þeim vegna staðsetningar smáhýsisins og að það sé innan þriggja metra frá lóðamörkum Vogalands 7 og Vogalands 9. Mannvirkið sé hærra en 250 cm, mælt frá jarðvegi. Þetta hafi ekki verið rannsakað af hálfu byggingarfulltrúa.
  1. Í kjölfar niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar í fyrra kærumáli hafi kærendur sent byggingar­fulltrúa erindi, dags. 9. mars 2026, þar sem þess hafi verið krafist að litið yrði til tiltekinna sjónarmiða þegar málið yrði tekið aftur til efnislegrar meðferðar. Engin frekari sjónarmið eða upplýsingar hafi borist frá byggingarfulltrúa fyrr en 21. apríl s.á. þegar kærendum hafi verið tilkynnt að úrskurðurinn væri fullnaðarúrskurður á stjórnsýslustigi og því væri niðurstaða hans bindandi fyrir byggingarfulltrúa. Af niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar í því máli mætti ráða að byggingar­fulltrúa bæri að taka málið aftur til efnislegrar meðferðar og hafa til hliðsjónar þau sjónarmið sem fram hefðu komið í úrskurðinum. Í kjölfarið bæri að taka nýja stjórnvalds­ákvörðun um smáhýsið, hvort það bæri að fjarlægja eða ekki. Slíka ákvörðun gætu málsaðilar eftir atvikum kært.
  1. Um frekari röksemdir sé vísað til athugasemda í fyrra kærumáli. Framkvæmdum hafi verið haldið áfram eftir að kærendur hafi mótmælt þeim og því hafi eigendur Vogalands 7 verið í vondri trú. Það geti ekki skapað þeim rétt síðar meir, þrátt fyrir sjónarmið um samanburð á tjóni og óþægindum aðila eða hagsmunamat á aðstæðum.

Málsrök Reykjavíkurborgar

  1. Borgaryfirvöld vísa til þess að engin skilyrði séu til að fallast á kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúa um að beita ekki þvingunarúrræðum vegna hins umdeilda smá­hýsis á mörkum lóða Vogalands 7 og Vogalands 9. Ákvörðunin hafi verið studd þeim rökum að ekki væri séð að smáhýsið ógnaði öryggis- og almannahagsmunum. Minnsta fjarlægð þess frá húsi kærenda væri 9,2 m og því ekki talin vera sambrunahætta fyrir hendi. Í ljósi þessa hafi byggingarfulltrúi ákveðið að beita sér ekki fyrir því að smáhýsið yrði fjarlægt með beitingu þvingunarúrræða. Efnisleg rök hafi legið að baki ákvörðuninni í samræmi við 55. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Hin kærða ákvörðun hefði verið rökstudd með viðhlítandi hætti með bréfi byggingarfulltrúa til kærenda, dags. 3. júní 2026.
  1. Lög nr. 160/2010 tryggi einstaklingum ekki rétt til að knýja byggingarfulltrúa til að beita þvingunarúrræðum vegna einstaklingshagsmuna. Mikilvægt sé að líta til þess að byggingar­fulltrúa sé heimilt en ekki skylt að krefjast þess að mannvirki sem reist séu í óleyfi séu fjarlægð. Meta beri í hverju tilviki aðstæður og atvik og horfa sérstaklega til þess hvort gengið sé gegn almannahagsmunum þeim sem búi að baki lögunum, svo sem skipulags-, öryggis- og heilbrigðishagsmunum. Það hafi verið mat byggingarfulltrúa í máli þessu að umrætt smáhýsi ógnaði ekki öryggis- eða almannahagsmunum íbúa á svæðinu.
  1. Rannsókn byggingarfulltrúa hafi að öllu leyti verið fullnægjandi og í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga. Starfsmenn embættisins hafi farið og metið aðstæður á vettvangi, m.a. með tilliti til sambrunahættu og öryggis aðliggjandi lóðarhafa. Skoðunarskýrsla, sem staðfesti stærð og gerð smáhýsisins og fjarlægð þess frá húsi kærenda, hafi síðan verið grundvöllur ákvörðunar byggingarfulltrúa um að synja kröfu kærenda um beitingu þvingunarúrræða.

Athugasemdir eigenda Vogalands 7

  1. Vísað er til þess að röksemdir kærenda lúti að sömu forsendum og haldið hafi verið fram í fyrra kærumáli, þ.e. að samþykki þeirra hafi ekki legið fyrir og að smáhýsið væri of nálægt lóða­mörkum. Fyrir liggi í umræddum úrskurði að þvingunarráðstöfunum verði ekki beitt á grundvelli þessarar málsástæðu einvörðungu, þ.e. á grundvelli hagsmuna þriðja aðila. Þeim verði fyrst og fremst beitt til gæslu almannahagsmuna. Beri því að vísa kærunni frá.
  1. Því sé ranglega haldið fram í kæru að byggingarfulltrúi hafi ekki rannsakað aðstæður nægilega, en í athugasemdum byggingarfulltrúa í fyrra máli hafi komið fram að fulltrúar hans hafi mælt og ljósmyndað smáhýsið. Því megi ætla að aðstæður hafi verið metnar þannig að engar aðrar ástæður gætu legið fyrir ákvörðun um þvingunaraðgerðir en þær sem vísað hafi verið til í ákvörðun byggingarfulltrúa, dags. 20. október 2025, sem einvörðungu hafi tekið til þess að samþykki eigenda Vogalands 9 hafi ekki legið fyrir.

Viðbótarathugasemdir kærenda

  1. Kærendur benda á að óskað hafi verið eftir upplýsingum um stjórnsýsluframkvæmd og venjur þegar smáhýsi væru staðsett við lóðamörk án leyfis, en þær upplýsingar hafi ekki verið veittar. Kærendur hafi ætlað að styðjast við sjónarmið um jafnræðisreglur stjórnsýsluréttar og að þau ættu rétt til sambærilegrar málsmeðferðar og beitt væri við úrlausn sambærilegra mála sem kærendur telji augljóslega vera á þá leið að byggingarfulltrúi hafi um áratugaskeið að jafnaði látið eigendur og byggingaraðila óleyfisframkvæmda fjarlægja þær. Þá hafi verið óskað eftir upplýsingum um hvort smáhýsið hafi verið mælt að hæð, en upplýsingar eða skýringar um það hafi ekki verið veittar.
  1. Kærendur hafi reynt að mæla það og virðist það vera a.m.k. 265 cm að hæstu hæð mælt frá jarðvegi. Byggingarreglugerð tilgreini að öll smáhýsi verði að vera lægri en 250 cm að hæstu hæð mælt frá jarðvegi. Sé smáhýsið því einnig ólögmætt að því leytinu til. Þá liggi ekki fyrir mæling af hálfu byggingarfulltrúa á fjarlægð smáhýsisins frá lóðarmörkum, en það sé að mati kærenda minna en 50 cm. Það sé bagaleg staða fyrir kærendur að ekki liggi fyrir skrifleg gögn eða mælingar af hálfu byggingarfulltrúa á hæð hússins og gæti gert það að verkum að þeim yrði ómögulegt að fara í beina aðfarargerð á grundvelli þeirra gagna sem fyrir liggi í málinu eins og gerð sé krafa um í lögum nr. 90/1989 um aðför. Byggingarfulltrúa beri að rannsaka málið nægjanlega svo að fyrir liggi skýrslur og skrifleg gögn um staðreyndir málsins.
  1. Lagalegar forsendur fyrir beitingu þvingunarúrræða á grundvelli 55. gr. mannvirkjalaga séu mun víðtækari en byggingarfulltrúi vísi til. Fyrirliggjandi ástæður í kærumálinu séu m.a. að leyfis hafi ekki verið aflað og að hæð mannvirkis virðist einnig vera yfir mörkum. Því til viðbótar hafi byggingaraðilar hafið framkvæmdir í vondri trú.
  1. Vísun byggingarfulltrúa til meðalhófs varðandi synjun á beitingu þvingunarúrræða hafi ekki verið rökstudd á fullnægjandi hátt. Byggingarfulltrúi hafi ekki vegið og metið það grundvallar­sjónarmið kærenda að hinar umdeildu framkvæmdir séu án leyfis og að reglur um nálægð við lóðamörk og hámarkshæð mannvirkisins hafi verið brotnar.

Niðurstaða

  1. Í máli þessu er deilt um þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík að beita ekki þvingunar­úrræðum vegna smáhýsis á lóðamörkum Vogalands 7 og Vogalands 9. Kæruheimild til úrskurðarnefndarinnar er í 59. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki.
  1. Eins og rakið er að framan beindi byggingarfulltrúi tilmælum til eigenda Vogalands 7 að fjarlægja hið umdeilda smáhýsi þar sem ekki lægi fyrir samþykki eigenda Vogalands 9 í samræmi við f. lið gr. 2.3.5. byggingarreglugerðar nr. 112/2012. Sú ákvörðun var kærð til úrskurðarnefndarinnar sem felldi hana úr gildi með úrskurði í máli nr. UUA2511055 frá 27. febrúar 2026. Í kjölfarið óskuðu eigendur Vogalands 9 eftir að byggingarfulltrúi tæki nýja ákvörðun og að eigendum Vogalands 7 yrði gert að fjarlægja smáhýsið eða færa það frá mörkum lóðar þeirra. Synjaði byggingarfulltrúi því erindi 21. apríl 2026 og er það hin kærða ákvörðun í máli þessu, en frekari rökstuðningur fyrir ákvörðuninni var veittur 3. og 8. júní s.á.
  1. Það er hlutverk byggingarfulltrúa hvers sveitarfélags að hafa eftirlit með því að mannvirki og notkun þeirra sé í samræmi við útgefin leyfi og beita eftir atvikum þvingunarúrræðum, sbr. 55. og 56. gr. laga um mannvirki. Er nánar kveðið á um það í 2. mgr. 55. gr. laganna að sé byggingarframkvæmd hafin án þess að leyfi sé fengið fyrir henni eða hún brjóti í bága við skipulag geti byggingarfulltrúi krafist þess að hið ólöglega mannvirki eða byggingarhluti sé fjarlægt.
  1. Tekið er fram í athugasemdum við 55. gr. með frumvarpi því sem varð að mannvirkjalögum að sú breyting hafi verið gerð frá fyrri lögum, varðandi mannvirki sem reist séu í óleyfi, að byggingarfulltrúa sé heimilt en ekki skylt að krefjast niðurrifs þeirra, að jarðrask sé afmáð eða starfsemi sé hætt. Þar kemur að auki fram að eðlilegt sé að ákvörðun um beitingu slíkra úrræða sé metin í hverju tilviki, m.a. með tilliti til meðalhófs. Ákvörðun um niðurrif mannvirkis eða byggingarhluta þess er því háð mati stjórnvalds hverju sinni og gefur sveitarfélögum kost á að bregðast við sé gengið gegn almannahagsmunum þeim er búa að baki mannvirkjalögum, svo sem skipulags-, öryggis- og heilbrigðishagsmunum. Fer það því eftir atvikum hvort nefndum þvingunarúrræðum verður beitt í tilefni af framkvæmd sem telst vera ólögmæt. Með hliðsjón af þessu verður ekki talið að einstaklingum sé tryggður lögvarinn réttur til að knýja byggingar­yfirvöld til beitingar þvingunarúrræða vegna einstaklingshagsmuna, enda eru þeim tryggð önnur réttarúrræði til að verja hagsmuni sína. Þótt beiting þvingunarúrræða sé háð mati stjórn­valds þarf ákvörðun þess efnis að vera studd efnislegum rökum, m.a. með hliðsjón af þeim hagsmunum sem búa að baki fyrrgreindum lagaheimildum og fylgja þarf meginreglum stjórn­sýsluréttarins, s.s. um rannsókn máls og að málefnaleg sjónarmið búi að baki ákvörðun.
  1. Í rökstuðningi byggingarfulltrúa fyrir hinni kærðu ákvörðun kom fram að framkvæmt hefði verið heildstætt og atviksbundið mat á aðstæðum á mörkum lóða Vogalands 7 og Vogalands 9. Það hafi verið mat byggingarfulltrúa að smáhýsið ógnaði ekki öryggis- eða almanna­hagsmunum, væri kyrfilega fast við jörðu og að fjarlægð þess frá húsi kærenda ylli ekki sam­brunahættu. Væri því ekki séð að almannahagsmunum væri raskað með staðsetningu mann­virkisins.
  1. Með hliðsjón af framangreindu verður að telja að ákvörðun byggingarfulltrúa um að synja beiðni um beitingu þvingunarúrræða vegna hins umdeilda smáhýsis sé studd haldbærum rökum sem ekki er efni til að hnekkja. Fulltrúar byggingarfulltrúa lögðu sérstakt mat á aðstæður og þótt betur hefði farið á því að hæð smáhýsisins og fjarlægð frá lóðamörkum hefði verið mæld verður með hliðsjón af rökstuðningi hinnar kærðu ákvörðunar að telja að málið hafi verið rannsakað með fullnægjandi hætti. Verður af þeim sökum kröfu kærenda um ógildingu hinnar kærðu ákvörðunar.

Úrskurðarorð

Hafnað er kröfu kærenda um að ógilda þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 21. apríl 2026 um að synja erindi um að smáhýsi á lóð Vogalands 7 verði fjarlægt og að aðhafast ekki frekar vegna staðsetningar þess.