Hafnað er kröfu kæranda um að ógilda þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 24. júní 2026 að synja beiðni um beitingu þvingunarúrræða vegna hjólageymslu við mörk lóðar Laugavegs 178.
Árið 2026, miðvikudaginn 2. september, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Unnþór Jónsson varaformaður, Aðalheiður Jóhannsdóttir prófessor og Halldóra Vífilsdóttir arkitekt.
Fyrir var tekið mál nr. UUA2607003, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 24. júní 2026 um að synja beiðni um beitingu þvingunarúrræða vegna hjólageymslu við mörk lóðar Laugavegs 178.
- Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 2. júlí 2026, kærir eigandi eignarhluta 01 0102 að Laugavegi 178, Reykjavík, þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 24. júní 2026 að synja beiðni um beitingu þvingunarúrræða vegna hjólageymslu við mörk lóðar Laugavegs 178. Verður að skilja málskot kæranda svo að þess sé krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Reykjavíkurborg 16. júlí 2026.
Málavextir
- Hinn 5. febrúar 2026 sendi kærandi beiðni til Reykjavíkurborgar þar sem óskað var eftir gögnum, þ.e. byggingarleyfi og umsókn, um hjólageymslu við baklóð Laugavegs 178. Var í erindinu bent á að geymslan hefði verið byggð fyrir nokkrum árum. Starfsmaður umhverfis- og skipulagssviðs svaraði erindinu með tölvupóstum 16. apríl og 6. maí s.á. þar sem fram kom að uppdrættir með hjólageymslunni hefðu ekki fundist, ekki hefði verið sótt um byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni og að um óleyfisframkvæmd væri að ræða. Hinn 1. júní s.á. óskaði kærandi eftir því að borgaryfirvöld myndu beita sér fyrir því að hið ólöglega mannvirkið yrði rifið niður. Hjólageymslan hafi verið byggð yfir bílastæði sem séu í óskiptri sameign.
- Starfsmaður afnota- og eftirlits á umhverfis- og skipulagssviði fór í eftirlitsferð 4. júní 2026 og skoðaði aðstæður á vettvangi. Með bréfi byggingarfulltrúa, dags. 24. júní 2026, var kærandi tilkynnt að embættið hygðist ekki ætla að beita sér fyrir því að mannvirkið yrði fjarlægt þar sem það raskaði ekki öryggis- og almannahagsmunum.
Málsrök kærenda
- Kærandi bendir á að þegar um óleyfisframkvæmd sé að ræða beri Reykjavíkurborg skylda til þess að krefja framkvæmdaraðila um niðurrif mannvirkisins. Það segi sig sjálft að byggingarreglugerð væri ónothæf að þessu leyti ef sveitarfélagið krefði ekki fasteignaeigendur um niðurrif óleyfismannvirkja.
- Samkvæmt fjöleignarhúsalögum nr. 26/1994 beri að afla samþykkis allra sameigenda til þess að skipta óskiptum bílastæðum, sbr. 41. gr., og ef það sé gert þá segi í 33. gr. að nauðsynlegar breytingar þurfi að gera á eignaskiptayfirlýsingu og þinglýsa þeirri breytingu. Breytingin hafi sannanlega ekki verið borin undir meðeiganda og því sé hún ólögleg.
Málsrök Reykjavíkurborgar
- Af hálfu borgaryfirvalda er bent á að í kjölfar ábendingar um hjólageymslu við baklóð Laugavegs 178 hafi komið í ljós að ekki hafi verið sótt um byggingarleyfi fyrir mannvirkinu. Aðstæður hafi verið skoðaðar á vettvangi og hafi mælingar leitt í ljós að það væri 2,34 cm að hæð og 22,8 m2 að flatarmáli. Af loftmynd úr borgarvefsjá að dæma séu yfir 20 m frá því að mannvirkinu á lóð Laugavegs 178. Við nánari skoðun hafi jafnframt komið í ljós að umrædd hjólageymsla sé í raun staðsett innan lóðar Skipholts 35. Byggingarfulltrúi hafi ekki talið tilefni til að beita þvingunarúrræðum laga nr. 160/2010 um mannvirki, en sú ákvörðun hafi byggst á heildstæðu mati á aðstæðum og meðalhófssjónarmiðum.
Niðurstaða
- Í máli þessu er deilt um þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 24. júní 2026 að synja kröfu um að embættið beiti sér fyrir því að hjólageymsla við mörk lóðar Laugavegs 178 verði rifin niður. Kæruheimild til úrskurðarnefndarinnar er í 59. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki.
- Það er hlutverk byggingarfulltrúa hvers sveitarfélags að hafa eftirlit með því að mannvirki og notkun þeirra sé í samræmi við útgefin leyfi og beita eftir atvikum þvingunarúrræðum, sbr. 55. og 56. gr. laga um mannvirki. Er nánar kveðið á um það í 2. mgr. 55. gr. laganna að sé byggingarframkvæmd hafin án þess að leyfi sé fengið fyrir henni eða hún brjóti í bága við skipulag geti byggingarfulltrúi krafist þess að hið ólöglega mannvirki eða byggingarhluti sé fjarlægt.
- Tekið er fram í athugasemdum við 55. gr. með frumvarpi því sem varð að mannvirkjalögum að sú breyting hafi verið gerð frá fyrri lögum, varðandi mannvirki sem reist séu í óleyfi, að byggingarfulltrúa sé heimilt en ekki skylt að krefjast niðurrifs þeirra, að jarðrask sé afmáð eða starfsemi sé hætt. Þar kemur að auki fram að eðlilegt sé að ákvörðun um beitingu slíkra úrræða sé metin í hverju tilviki, m.a. með tilliti til meðalhófs. Ákvörðun um niðurrif mannvirkis eða byggingarhluta þess er því háð mati stjórnvalds hverju sinni og gefur sveitarfélögum kost á að bregðast við sé gengið gegn almannahagsmunum þeim er búa að baki mannvirkjalögum, svo sem skipulags-, öryggis- og heilbrigðishagsmunum. Fer það því eftir atvikum hvort nefndum þvingunarúrræðum verður beitt í tilefni af framkvæmd sem telst vera ólögmæt. Með hliðsjón af þessu verður ekki talið að einstaklingum sé tryggður lögvarinn réttur til að knýja byggingaryfirvöld til beitingar þvingunarúrræða vegna einstaklingshagsmuna, enda eru þeim tryggð önnur réttarúrræði til að verja hagsmuni sína. Þótt beiting þvingunarúrræða sé háð mati stjórnvalds þarf ákvörðun þess efnis að vera studd efnislegum rökum, m.a. með hliðsjón af þeim hagsmunum sem búa að baki fyrrgreindum lagaheimildum og fylgja þarf meginreglum stjórnsýsluréttarins, s.s. um rannsókn máls og að málefnaleg sjónarmið búi að baki ákvörðun.
- Í rökstuðningi byggingarfulltrúa fyrir hinni kærðu ákvörðun kemur fram að í gr. 9.7.5. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 sé kveðið á um að bil milli bygginga skuli vera nægjanlega mikið til að ekki sé hætta á að eldur nái að breiðast út á milli þeirra. Þá er vísað til þess að í leiðbeiningum frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun hafi verið settar fram almennar viðmiðanir til að uppfylla greinda meginreglu, en hún sé sú að ef engin brunamótstaða sé á milli bygginga skuli miða minnstu fjarlægð við 10 m. Fjarlægð hjólageymslunnar frá húsinu að Laugavegi 178 sé yfir 20 m. Því sé lítil hætta á að eldur berist á milli bygginga. Þar sem öryggis- og almannahagsmunum væri ekki raskað hygðist byggingarfulltrúi ekki beita sér fyrir því að óleyfisframkvæmdin yrði fjarlægð.
- Með hliðsjón af framangreindu verður að telja að ákvörðun byggingarfulltrúa um að synja beiðni um beitingu þvingunarúrræða vegna hinnar umdeildu hjólageymslu sé studd haldbærum rökum sem ekki er efni til að hnekkja. Verður kröfu kæranda um ógildingu hinnar kærðu ákvörðunar því hafnað.
Úrskurðarorð
Hafnað er kröfu kæranda um að ógilda þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 24. júní 2026 að synja beiðni um beitingu þvingunarúrræða vegna hjólageymslu við mörk lóðar Laugavegs 178.
