Felld er úr gildi sú ákvörðun heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra frá 3. júní 2026 að gefa út starfsleyfi til handa Samherja Íslandi ehf. fyrir heitloftsþurrkun fiskafurða á lóð Austurhlíðarvegar 2 að Laugum í Reykjadal í Þingeyjarsveit.
Árið 2026, þriðjudaginn 15. september, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Unnþór Jónsson varaformaður, Aðalheiður Jóhannsdóttir prófessor og Þorsteinn Þorsteinsson byggingarverkfræðingur.
Fyrir var tekið mál nr. UUA2607004, kæra á ákvörðun heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra frá 3. júní 2026 um að gefa út starfsleyfi fyrir heitloftsþurrkun fiskafurða á lóð Austurhlíðarvegar 2 að Laugum í Reykjadal í Þingeyjarsveit.
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 2. júlí 2026, er barst nefndinni sama dag, kæra A, Tröð, B og C, Hólum II, og D og E, Hólabrekku, öll að Laugum í Reykjadal, þá ákvörðun heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra frá 3. júní 2026 að gefa út starfsleyfi til handa Samherja Íslandi ehf. fyrir heitloftsþurrkun fiskafurða á lóð Austurhlíðarvegar 2. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði ógild, en til vara að starfsleyfinu verði markaður skemmri gildistími, að hámarki 12 mánuðir. Jafnframt var þess krafist að starfsemi leyfishafa yrði stöðvuð til bráðabirgða á meðan málið væri til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni, en þeirri kröfu var hafnað með bráðabirgðaúrskurði, dags. 17. júlí 2026.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra 9. júlí 2026.
Málavextir
- Á lóð nr. 2 við Austurhlíðarveg að Laugum í Reykjadal í Þingeyjarsveit hefur verið starfrækt heitloftsþurrkun á fiskafurðum um árabil. Fyrir liggur að Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra gaf út starfsleyfi 26. september 2011 til handa Útgerðarfélagi Akureyringa ehf., sem sameinaðist Samherja Íslandi ehf. á árinu 2023, fyrir þurrkun á hausum og beinum til útflutnings. Var gildistími leyfisins til 26. september 2023.
- Hinn 13. september 2023 var á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra birt tillaga að starfsleyfi fyrir heitloftsþurrkun fiskafurða til handa leyfishafa. Á fundi heilbrigðisnefndar umdæmisins 20. s.m. var samþykkt að starfsleyfi yrði gefið út að umsagnarfresti liðnum nema athugasemdir sem kynnu að berast við tillöguna gæfu tilefni til annars. Að loknum athugasemdafresti tók nefndin umsóknina fyrir að nýju á fundi 15. nóvember s.á. Í fundargerð kemur fram að athugasemdir hafi borist vegna lyktar og hávaða af völdum starfseminnar sem og vegna hreinsunar frárennslis, staðsetningar verksmiðjunnar auk annarra atriða. Lagði nefndin til að í starfsleyfi yrðu gerðar auknar kröfur til mengunarvarna og vöktunar umfram það sem gert hefði verið í auglýstri tillögu. Var starfsmönnum heilbrigðiseftirlitsins falið að gefa út starfsleyfi með gildistíma í eitt ár. Sama dag gaf eftirlitið leyfið út og var gildistími þess til 15. nóvember 2024.
- Á fundi heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra 18. september 2024 var tekið fyrir og samþykkt erindi leyfishafa um að framlengja gildistíma leyfisins til 15. maí 2025 vegna breyttra forsendna. Hinn 9. apríl s.á. tók nefndin fyrir nýtt erindi leyfishafa um framlengingu á gildistíma. Tekið var fram að fyrir lægi úrbótaáætlun sem gerði ráð fyrir að úrbótum yrði lokið í byrjun nóvember það ár. Samþykkti nefndin að leyfið yrði framlengt til 15. nóvember s.á., en tók fram að forsenda þess að nýtt starfsleyfi yrði gefið út væri að unnið yrði samkvæmt innsendri úrbótaáætlun og að þær kröfur sem fram kæmu í starfsleyfi yrðu uppfylltar.
- Hinn 26. nóvember 2025 var á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra auglýst tillaga að starfsleyfi fyrir hina umræddu starfsemi. Á fundi heilbrigðisnefndar umdæmisins sama dag var samþykkt að starfsleyfið yrði gefið út að umsagnarfresti liðnum nema athugasemdir sem kynnu að berast gæfu tilefni til annars. Fjórar athugasemdir bárust á kynningartíma, m.a. frá hluta af kærendum í máli þessu. Fyrir hönd heilbrigðisnefndar gaf heilbrigðiseftirlitið út starfsleyfi fyrir heitloftsþurrkun fiskafurða 12. janúar 2026 með gildistíma til 12. janúar 2038 og sagði í leyfinu að heimilt væri að taka á móti allt að 8.000 tonnum af hráefni árlega.
- Ákvörðun heilbrigðiseftirlitsins frá 12. janúar 2026 var kærð til úrskurðarnefndarinnar sem með úrskurði í máli nr. UUA2602020, uppkveðnum 1. júní s.á., vísaði kærumálinu frá á þeim grundvelli að heilbrigðiseftirlitið hefði skort valdheimild til að gefa út hið kærða leyfi og því lægi ekki fyrir lokaákvörðun í skilningi 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í kjölfarið var starfsleyfisumsóknin tekin fyrir að nýju á fundi heilbrigðisnefndar 3. júní 2026. Var fært til bókar að nefndin teldi að með þeim úrbótum og skilyrðum sem sett hefðu verið í leyfinu hefði verið brugðist við framkomnum athugasemdum á fullnægjandi hátt. Var samþykkt að gefa út starfsleyfið með gildistíma til 12. janúar 2038 með því skilyrði að það yrði tekið til heildarendurskoðunar fyrir 12. janúar 2028.
Málsrök kærenda
- Í kæru er vísað til þess að það sé ljóst að kærandinn Ahafi lögvarða hagsmuni af úrlausn kærumálsins, en hann sé með lögheimili og reki ferðaþjónustu í um 400–500 m fjarlægð frá verksmiðju leyfishafa. Kærendurnir B og C, sem séu foreldrar kærandans A, séu ábúendur Hóla II í Þingeyjarsveit og landeigendur Torfdalstjarnar að hálfu. Íbúðarhús þeirra og lóð sé í um 200 m fjarlægð frá verksmiðjunni. Þá séu kærendurnir D og E eigendur og ábúendur á Hólabrekku að Laugum sem sé í um 280 m fjarlægð frá starfseminni. Samantekið eigi kærendur allir lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins, sbr. m.a. úrskurð úrskurðarnefndarinnar í máli nr. 33/2018.
- Á rekstraraðila, sem umsækjanda um starfsleyfi, hvíli sú skylda að starfsemi samræmist ákvæðum viðeigandi laga svo og að nauðsynlegar upplýsingar liggi fyrir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfis sé tekin. Ljóst sé af þeim gögnum sem liggi fyrir að úrbætur hafi verið nauðsynlegar fyrir áframhaldandi starfsemi. Alls kostar óljóst sé hvort og þá hvaða úrbætur hafi verið gerðar. Við meðferð kærumáls nr. ÚUA2602020 hafi leyfishafi bent á að nauðsynlegt væri að hafa starfsemina í gangi til að framkvæma megi mælingar og meta árangur aðgerða og að mælingar muni eiga sér stað þegar starfsemi sé í fullum afköstum. Af því leiði væntanlega að nú liggi fyrir mælingar á úrbótum.
- Á heilbrigðisnefndinni hvíli rannsóknarskylda. Með hliðsjón af því hafi henni borið að afla frekari upplýsinga og mælinga áður en ákvörðun hafi verið tekin um útgáfu starfsleyfisins. Sér í lagi hafi það verið mikilvægt vegna fyrri athugasemda heilbrigðiseftirlitsins. Áréttað sé að ákvörðun heilbrigðisnefndarinnar hafi legið fyrir innan við tveimur sólarhringum eftir að úrskurður úrskurðarnefndarinnar hafi verið kveðinn upp og því ómögulegt fyrir heilbrigðisnefndina að kanna málið til hlítar.
- Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar hafi falið það í sér að heilbrigðisnefndinni hafi borið að taka málið til skoðunar, þ.m.t. athugasemdir kærenda, og málsmeðferð eftirlitsins. Í raun virðist nefndin þó ekki hafa gert annað en að samþykkja fyrri afgreiðslu heilbrigðiseftirlitsins á grundvelli sjö mánaða gamalla upplýsinga.
- Í 7. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir sé vikið að útgáfu starfsleyfis, en í 5. mgr. segi að útgefandi þess skuli taka ákvörðun um útgáfu starfsleyfis „innan fjögurra vikna frá því að frestur til að gera athugasemdir við tillögur að starfsleyfi rann út“. Sé það ekki gert verði lögin ekki skilin á annan veg en að útgefanda beri að hefja málsmeðferð að nýju. Athugasemdafrestur við tillögu að hinu kærða starfsleyfi hafi verið til 24. desember 2025 og því hafi frestur heilbrigðisnefndar til að afgreiða málið runnið út 21. janúar 2026. Þrátt fyrir að frestur 5. mgr. 7. gr. sé almennt túlkaður leyfisumsækjendum til hagsbóta sé ljóst að hann hafi einnig það markmið að tryggja að ákvörðun um útgáfu starfsleyfa sé byggð á þeim gögnum og upplýsingum sem liggja fyrir við töku ákvörðunarinnar. Sé markmiðið þannig að halda ákveðinni samfellu, svo að mál sé að fullu upplýst með tilliti til samtímagagna. Um sé að ræða bæði efnis- og formannmarka sem leiða eigi til ógildingar hinnar kærðu ákvörðunar.
- Tímafrestir í málsmeðferð samkvæmt lögum nr. 7/1998 séu grundvallarþáttur við ákvörðun um útgáfu starfsleyfis sem tryggja eigi réttaröryggi og aðkomu almennings og þeirra sem lögvarða hagsmuni hafi af úrlausn slíkra mála. Endurspeglist það m.a. í áðurnefndum úrskurði nefndarinnar í máli nr. 33/2018.
- Viðurkennt hafi verið í skýrslum vegna sambærilegrar starfsemi að ómögulegt sé að „koma í veg fyrir mengun“ frá starfsemi sem þessari. Í tilviki þessa máls sé verksmiðja leyfishafa inni í miðri íbúðabyggð. Það hafi að auki verið forsenda fyrir endurnýjun leyfisins að úrbætur yrðu gerðar á mengunarvarnarbúnaði, en ekki sé þó ljóst hvað hafi verið gert í því sambandi.
- Gerð sé athugasemd við að ákveðið hafi verið að gefa út nýtt starfsleyfi án þess að búið væri að koma upp mengunarvarnarbúnaði og með skilyrðunum „nema athugasemdir sem kunni að berast gefi tilefni til annars“. Hafi þannig verið búið að ákveða að gefa skyldi út starfsleyfið, óháð því hvaða ráðstafana leyfishafi gripi til. Enda hafi komið skýrlega fram við málsmeðferð kærumáls nr. ÚUA2602020 að ekki væri unnt að mæla árangur aðgerða fyrr en rekstur verksmiðjunnar væri kominn í fulla starfsemi. Hefði heilbrigðisnefndinni verið í lófa lagið að afla upplýsinga um hvort ráðstafanir leyfishafa hefðu haft einhver áhrif. Betur hefði farið á að veita starfsleyfi til skamms tíma svo unnt væri að meta úrbætur í stað þess að veita það skilyrðislaust til 12 ára, en með möguleika á endurskoðun eftir tvö ár, sbr. úrskurð úrskurðarnefndarinnar í kærumáli nr. 68/2019 þar sem hafnað hafi verið að ógilda ákvörðun um að veita starfsleyfi heitloftsþurrkunar í sex mánuði í stað 12 ára. Starfsemin hafi verið í gangi í um sex mánuði en kærendur hafi þó ekki orðið varir við að úrbætur hafi skilað settu markmiði, enda hafi lyktarmengun versnað ef eitthvað.
- Lengi hafi legið fyrir að starfsemin uppfyllti ekki kröfur um hreinsun frárennslisvatns og meðferð útblásturslofts. Starfsemin valdi verulegri, margháttaðri og óásættanlegri mengun, einkum í formi ólyktar, sem fari langt fram úr því sem nærliggjandi íbúum sé skylt að þola. Í dómi Hæstaréttar í máli nr. 523/2011 hafi því verið slegið föstu að lyktarmengun frá stóru svínabúi væri „veruleg og mun meiri en almennt megi gera ráð fyrir til sveita“. Þá renni mengað frárennsli um vatnsvæði Laxár í Aðaldal með viðkomu í Torfdalstjörn, Eyvindarlæk og Vestmannsvatni.
- Mengun frá starfseminni brjóti gegn því markmiði laga nr. 7/1998 að tryggja landsmönnum „heilnæm lífsskilyrði“, en í þessu sambandi sé bent á að hugtakið „mengun“ taki skýrt til „ólyktar“ skv. 3. gr. laganna og 3. gr. reglugerðar nr. 787/1999 um loftgæði. Í reglugerðinni sé lögð sú skylda á forráðamenn fyrirtækja að sjá um að lofttegundir sem séu „daunillar eða lyktarmiklar“ valdi ekki óþægindum í nánasta umhverfi. Starfsemin sé jafnframt í andstöðu við þær grundvallarskyldur rekstraraðila samkvæmt reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit, að gera allar viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir mengun og að starfsemin leiði ekki til umtalsverðrar mengunar.
- Verksmiðjan sé á vatnasviði Mývatns og Laxár og beri því að fylgja þeim ströngu kröfum sem settar séu fram í reglugerð nr. 665/2012 um verndun Mývatns og Laxár. Samkvæmt 18. gr. beri rekstraraðilum á svæðinu að uppfylla allar kröfur laga og reglna um mengunarvarnir. Sé ljóst að verulega hafi skort á það í tilviki umræddrar verksmiðju.
- Það sé ámælisvert að heilbrigðisnefndin hafi endurnýjað starfsleyfið án þess að ganga úr skugga um að starfsemin uppfylli skilyrði laga um mengunarvarnir, sbr. dóm Hæstaréttar í máli nr. 4/2017 þar sem reynt hafi á umfang rannsóknarskyldu stjórnvalds. Í því sambandi sé einnig vísað til úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 36/2025, þar sem starfsleyfi hafi verið fellt úr gildi á grundvelli þess að málið hafi ekki verið nægilega rannsakað. Þar hafi nefndin talið að það hefði verið rétt af heilbrigðiseftirlitinu að krefjast þess að hljóðmælingar færu fram frá starfsemi umdeilds skotvallar áður en tekin hafi verið endanleg afstaða til leyfisveitingar.
- Í greinargerð með hinu kærða starfsleyfi segi að engin mælanleg viðmið séu til varðandi lykt frá atvinnustarfsemi í íslenskum lögum og reglugerðum og að engar raunhæfar aðferðir séu fyrir hendi til sýnatöku og rannsóknar á sýnum í tengslum við lyktarmengun. Kærendur telja að skilja megi athugasemdina sem svo að engar kröfur um lyktarmengun sé hægt að gera fyrir útgáfu starfsleyfis. Heilbrigðiseftirlitið geti þó og eigi að beita kerfisbundnu lyktarmati, t.d. á skalanum 0–5, þótt ekki séu til tæknilegir „mælar“ í sömu mynd og fyrir hávaða. Þannig hafi í úrskurði úrskurðarnefndar um hollustuhætti og mengunarvarnir í máli nr. 6/2009 verið staðfest að eftirlit sem falist hafi í daglegu mati starfsmanns á lyktarstyrk væri gild aðferð. Skortur á ISO-stöðluðum mælitækjum leysi stjórnvald ekki undan rannsóknarskyldu skv. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Málsrök heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra
- Fyrir hönd heilbrigðisnefndar er bent á að niðurstaða í fyrra kærumáli hafi lotið að formlegum annmarka á ákvarðanatöku og hafi ekki falið í sér efnislega afstöðu til starfsleyfisins, skilyrða þess, rannsóknar máls, mengunarvarna eða umhverfisáhrifa hinnar umdeildu starfsemi. Í kjölfar úrskurðarins hafi heilbrigðisnefndin tekið málið fyrir og samþykkt samhljóða útgáfu starfsleyfisins. Með því hafi hinn formlegi annmarki verið leiðréttur.
- Um hafi verið að ræða sömu umsókn, sömu starfsemi, sama rekstraraðila og sömu starfsstöð og áður. Engar efnislegar breytingar hafi orðið á starfseminni. Því hafi engin þörf verið á nýju auglýsinga- og athugasemdaferli. Hvorki orðalag 7. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir né markmið ákvæðisins leiði til þeirrar niðurstöðu að endurtaka beri alla málsmeðferð þegar í ljós hafi komið formlegur annmarki á ákvarðanatöku stjórnvalds.
- Því sé hafnað að heilbrigðisnefndin hafi ekki uppfyllt kröfur 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 áður en ákvörðun hafi verið tekin. Umfangsmikilla gagna hafi verið aflað, þ. á m. áhrifamats á vatnshlot í samræmi við lög nr. 36/2011 um stjórn vatnamála, upplýsinga um nýjan mengunarvarnabúnað (DAF-hreinsibúnað), lofthreinsun og hljóðvarnir og vöktunaráætlun sem taki bæði til frárennslis og viðtaka. Einnig hafi verið viðhaft sérfræðilegt samráð við Umhverfis- og orkustofnun og vettvangsúttekt gerð á starfsstöð áður en komið hafi að útgáfu starfsleyfisins.
- Þegar heilbrigðisnefnd hafi tekið málið fyrir að nýju 3. júní 2026 hafi viðbótargögn legið fyrir, þ. á m. niðurstöður hljóðmælinga frá mars og apríl 2026 sem sýni að hljóð frá starfseminni sé innan viðmiðunarmarka reglugerðar um hávaða á mælistöðum. Einnig hafi legið fyrir frárennslismælingar frá maí og júní 2026 sem sýni að magn mengandi efna í frárennsli sé undir þeim kröfum sé gerðar sé í starfsleyfinu og í reglugerverki. Bendi það til þess að hreinsibúnaður sé að skila árangri.
- Rannsókn málsins hafi ekki einungis byggst á fyrirhuguðum úrbótum, heldur einnig á raungögnum um stöðu starfseminnar áður en verksmiðjan hafi stöðvað rekstur og áður en úrbætur hafi verið gerðar. Í því skyni hafi verið tekið sýni af fráveituvatni í október 2025, þar sem mældar hafi verið m.a. svifagnir, olía, fita og lífrænt álag. Hávaði frá verksmiðjunni hafi verið mældur í október 2025, þegar starfsemin hafi verið í rekstri. Niðurstöður mælinganna liggi fyrir í málinu og hafi verið hafðar til hliðsjónar við mat á eðli og umfangi mengunar frá starfseminni. Benda verði á að í rannsóknarreglunni felist ekki krafa um fullkomna vissu eða að allar mögulegar mælingar hafi verið gerðar áður en leyfi hafi verið veitt, heldur að stjórnvald taki ákvörðun á grundvelli þeirra gagna sem eðlilegt og raunhæft sé að afla á viðkomandi stigi. Í þessu tilviki hafi leyfið jafnframt verið veitt með skilyrðum um áframhaldandi vöktun, mælingar og endurskoðun.
- Í hinu kærða starfsleyfi sé að finna ítarleg skilyrði um lofthreinsun útblásturslofts með ósonbúnaði og þvottaturni. Þar sé einnig að finna kröfur um vinnslu fersks hráefnis og að koma eigi í veg fyrir uppsöfnun úrgangs. Jafnframt séu gerðar hávaðavarnir og krafa um úttekt á hávaða eftir að starfsemi hefjist á ný. Auk þess sé gerð krafa um heildarendurskoðun leyfisins innan tveggja ára frá gildistöku þess. Slík krafa sé mun strangari en almennt tíðkist, enda geri lög nr. 7/1998 og reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit, ráð fyrir að endurskoðun starfsleyfa geti farið fram með allt að 16 ára millibili. Hafi ákvæðið verið sett í ljósi athugasemda íbúa, m.a. vegna áhyggja af áhrifum starfseminnar á umhverfi og vatnshlot. Með því móti hafi verið tryggt að starfsleyfið væri ekki einungis í samræmi við gildandi laga- og reglugerðarkröfur, heldur einnig m.a. með hliðsjón af því sjónarmiði að unnt væri að endurmeta skilyrði þess á grundvelli raunverulegrar reynslu af rekstrinum.
- Því sé ranglega haldið fram í kæru að verksmiðjan sé staðsett í „miðri íbúðabyggð“. Skipulagsfulltrúi hafi staðfest að lóðin væri á iðnaðar- og athafnasvæði í gildandi aðalskipulagi og að notkun húsnæðisins fyrir fiskverkun væri í samræmi við samþykkta notkun fasteignarinnar.
- Við meðferð málsins hafi sérstaklega verið horft til áhrifa starfseminnar á vatnshlot í samræmi við lög nr. 36/2011. Í því skyni hafi verið aflað áhrifamats á vatnshlot, þar sem metið hafi verið hvort starfsemin gæti leitt til þess að umhverfismarkmiðum vatnshlota yrði ekki náð. Samkvæmt niðurstöðu áhrifamatsins, ásamt þeim skilyrðum sem sett séu í starfsleyfinu um hert losunarmörk, hreinsun frárennslis og vöktun, sé ekki talið líklegt að starfsemin hafi neikvæð áhrif á vistfræðilegt eða efnafræðilegt ástand viðkomandi vatnshlota. Í starfsleyfinu sé jafnframt gerð krafa um reglubundna vöktun frárennslis og viðtaka, sem og skil gagna í samræmi við kerfi stjórnar vatnamála. Með þessum skilyrðum sé tryggt að heilbrigðiseftirlitið hafi raunhæft úrræði til að fylgjast með áhrifum starfseminnar og grípa til viðeigandi ráðstafana reynist þess þörf. Að þessu virtu hafi fullt tillit verið tekið til reglugerðar nr. 66/2012 um vernd Laxár og Mývatns og laga nr. 36/2011.
- Í ljósi endurtekinna kvartana hafi verið sett skýr, ströng og mælanleg skilyrði um mengunarvarnir og eftirfylgni, m.a. um hljóðúttekt innan þriggja mánaða við full afköst og árlega eftir það, sýnatökur þrisvar sinnum á ári úr frárennsli og við innrennsli í Torfdalstjörn, sem og ákvæði um heildarendurskoðun starfsleyfisins innan tveggja ára.
—–
Leyfishafa var gefinn kostur á að koma á framfæri sjónarmiðum sínum í málinu, en hann hefur ekki tjáð sig um efnishlið þessa kærumáls.
Niðurstaða
- Í máli þessu er deilt um þá ákvörðun heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra frá 3. júní 2026 að gefa út starfsleyfi til handa Samherja Íslandi ehf. fyrir heitloftsþurrkun fiskafurða að Austurhlíðarvegi 2 að Laugum í Reykjadal í Þingeyjarsveit. Kæruheimild til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er í 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og barst kæra innan kærufrests.
- Samkvæmt 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála geta þeir einir kært stjórnvaldsákvörðun til úrskurðarnefndarinnar sem eiga lögvarða hagsmuni tengda ákvörðun sem kæra á. Verður að skýra þetta ákvæði í samræmi við almennar reglur stjórnsýsluréttarins um aðild að kærumálum þar sem áskilið er að kærandi eigi einstaklingsbundinna hagsmuna að gæta af úrlausn máls umfram aðra og jafnframt að þeir hagsmunir séu verulegir. Almennt ber þó að gæta varfærni við að vísa málum frá á þeim grunni að kæranda skorti lögvarða hagsmuni tengda kærðri ákvörðun nema augljóst sé að það hafi ekki raunhæfa þýðingu fyrir slíka hagsmuni að fá úr ágreiningi leyst.
- Kærandinn A er búsettur að Tröð í Laugum, þar sem hann rekur einnig ferðaþjónustu, en hús það sem stendur á lóðinni er í um 600 m fjarlægð frá verksmiðju leyfishafa. Þá er kærandinn B þinglýstur eigandi Hóla II og kærandinn C skráð þar til lögheimilis, en íbúðarhús lóðarinnar er í um 160 m fjarlægð frá verksmiðjunni. Loks eru kærendurnir D og E eigendur Hólabrekku að Laugum, en íbúðarhús þeirrar lóðar er í rúmlega 220 m fjarlægð frá téðri verksmiðju. Að virtum gögnum málsins og þeirri starfsemi sem um ræðir þykir ekki óvarlegt að gera ráð fyrir því að lyktarmengunar af völdum starfsemi leyfishafa verði vart eða geti orðið vart á greindum lóðum, sbr. einnig niðurstöðu um kæruaðild í úrskurði úrskurðarnefndarinnar í máli nr. 113/2016. Með því verður að telja að hin umdeilda starfsemi snerti lögvarða hagsmuni kærenda og verður þeim því játuð aðild að máli þessu.
—–
- Samkvæmt 1. gr. laga nr. 7/1998 er markmið laganna að búa landsmönnum heilnæm lífsskilyrði og vernda þau gildi sem felast í heilnæmu og ómenguðu umhverfi, jafnframt því að koma í veg fyrir eða draga úr losun út í andrúmsloft, vatn og jarðveg og koma í veg fyrir myndun úrgangs í því skyni að vernda umhverfið. Í 3. gr. laganna er hugtakið mengun skilgreint, en þar segir að mengun sé þegar örverur, efni og efnasambönd og eðlisfræðilegir þættir valdi óæskilegum og skaðlegum áhrifum á heilsufar almennings, röskun lífríkis eða óhreinkun lofts. Þá segir einnig að mengun taki m.a. til ólyktar. Samkvæmt 5. gr. sömu laga er ráðherra heimilt að setja reglugerð til að stuðla að framkvæmd mengunarvarna og skulu þar m.a. vera almenn ákvæði um starfsleyfi fyrir allan atvinnurekstur sem haft getur í för með sér mengun, sbr. 1. tl. nefndrar lagagreinar. Á grundvelli þeirrar heimildar hefur verið sett reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit.
- Í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 er kveðið á um að allur atvinnurekstur, sbr. I., II. og IV. viðauka, skuli hafa gilt starfsleyfi sem Umhverfis- og orkustofnun eða heilbrigðisnefndir gefa út. Hin umdeilda starfsemi í máli þessu er háð starfsleyfi heilbrigðisnefndar sem heitloftsþurrkun fiskafurða skv. 46. tl. viðauka IV með lögum nr. 7/1998, sbr. einnig lið 5.7. í X. viðauka með reglugerð nr. 550/2018. Við útgáfu starfsleyfis ber heilbrigðisnefnd að fara að þeim málsmeðferðarreglum sem tilgreindar eru í nefndum lögum og reglugerð að teknu tilliti til ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
- Eins og rakið var í málavöxtum var nokkur aðdragandi að útgáfu hins kærða starfsleyfis. Tillaga að leyfinu var auglýst á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra 26. nóvember 2025 og var tekið fram að athugasemdafrestur væri fjórar vikur frá auglýsingu. Samþykkti heilbrigðisnefnd sama dag að leyfið yrði gefið út að umsagnarfresti liðnum nema athugasemdir sem kynnu að berast við tillöguna gæfu tilefni til annars. Gera verður athugasemd við þá afgreiðslu, enda ber leyfisveitanda ekki að taka afstöðu til þess hvort umsótt starfsleyfi verði gefið út fyrr en að lokinni auglýsingu, sbr. 5. mgr. 7. gr. laga nr. 7/1998. Þó er ekki um neinn slíkan annmarka að ræða sem varðað getur gildi hinnar kærðu ákvörðunar.
- Að lokinni auglýsingu gaf heilbrigðiseftirlitið út hið umsótta starfsleyfi 12. janúar 2026. Sú ákvörðun var kærð til úrskurðarnefndarinnar sem með úrskurði í máli nr. ÚUA2602020 vísaði kærumálinu frá á þeim grundvelli að heilbrigðiseftirlitið hefði skort valdheimild til að gefa út hið kærða leyfi og því lægi ekki fyrir lokaákvörðun í skilningi 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga. Í kjölfarið var á fundi heilbrigðisnefndar 3. júní 2026 starfsleyfisumsóknin tekin fyrir að nýju og samþykkt að gefa út starfsleyfi með gildistíma til 12. janúar 2038. Er leyfið samhljóða fyrra starfsleyfi. Hafa kærendur fundið að þessari afgreiðslu þar sem áðurnefnd 5. mgr. 7. gr. laga nr. 7/1998 kveður á um að útgefandi starfsleyfis skuli innan fjögurra vikna frá því að frestur til að gera athugasemdir við tillögur að starfsleyfi rann út taka ákvörðun um útgáfu þess, en ljóst er að farið var verulega yfir hinn lögboðna afgreiðslufrest þegar það var gefið út.
- Við mat á hverju framangreint varði er til þess að líta að tímamörkin í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 7/1998 eru fyrst og fremst sett til hagræðis fyrir umsækjanda starfsleyfis. Þá gerir ákvæðið ekki ráð fyrir að auglýsa skuli starfsleyfistillögu að nýju þótt umsókn verði ekki afgreidd innan tilskilins frests. Verður því ekki talið að umræddur málsmeðferðarannmarki geti einn og sér leitt til ógildingar hinnar kærðu ákvörðunar. Ekki verður talið að forsendur leyfisveitingarinnar hafi tekið slíkum breytingum frá því að umsagnarfresti lauk þar til heilbrigðisnefndin tók hina kærðu ákvörðun að tilefni hafi verið fyrir stjórnvaldið að auglýsa tillöguna að nýju. Hefði slík tilhögun einnig vart verið samrýmanleg málshraðareglu 9. gr. stjórnsýslulaga. Að þessu virtu verður að hafna framangreindum sjónarmiðum kærenda.
- Það er skilyrði fyrir útgáfu starfsleyfis að sá atvinnurekstur sem sótt er um sé í samræmi við skipulag samkvæmt skipulagslögum eða lögum um skipulag haf- og strandsvæða, sbr. 3. málsl. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998. Fyrir liggur að lóð Austurhlíðarvegar 2 að Laugum í Reykjadal er á iðnaðarsvæði samkvæmt Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010–2022, en samkvæmt f-lið 2. mgr. gr. 6.2. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 er þar heimiluð umfangsmikil iðnaðarstarfsemi eða starfsemi sem er talin geta haft mengun í för með sér. Uppfyllir hin umþrætta starfsemi því skilyrði laganna um samræmi við skipulag.
—–
- Kærendur telja að starfsemi leyfishafa hafi í för með sér óásættanlega lyktarmengun sem sé umfram það sem íbúum sé skylt að þola. Benda þeir m.a. á að hugtakið mengun í skilningi laga nr. 7/1998 taki m.a. til ólyktar, sbr. 3. gr. laganna, og að leyfishafa sé skylt samkvæmt reglugerð nr. 550/2018 að gera allar ráðstafanir til að koma í veg fyrir mengun, sbr. 52. og 54. gr. hennar.
- Samkvæmt gr. 4.9 í leyfinu ber leyfishafa að koma í veg fyrir lyktarmengun frá starfsemi sinni með því að vinna ferskt hráefni og tryggja að úrgangur og hráefni sem er óhæft til vinnslu safnist ekki upp á athafnasvæði fyrirtækisins. Í gr. 4.10 segir jafnframt að útblástursloft frá þurrkklefum og vinnslusölum skuli hreinsað með lofthreinsibúnaði. Notast skuli við óson eða sambærilegt efni til lykteyðingar í þurrkklefum. Allt loft úr eftirþurrkun skuli leitt í þvottaturn til lykteyðingar áður en því sé sleppt út í umhverfið. Fram kemur í gr. 1.7.2. að ef mengun vegna starfseminnar reynist meiri en búist var við þegar leyfið var gefið út geti leyfisveitanda verið heimilt, og eftir atvikum skylt, að endurskoða og breyta starfsleyfi áður en gildistími þess er liðinn vegna breyttra forsendna. Í viðauka með starfsleyfinu, þar sem finna má svör heilbrigðiseftirlitsins við athugasemdum sem bárust á kynningartíma starfsleyfistillögunnar, er bent á að erfitt sé að staðfesta lyktarmengun með mælingum og að ekki séu fyrir hendi viðmiðunarmörk um lykt í íslenskum lögum og reglugerðum.
- Í greinargerð starfsleyfisins er því lýst að við endurnýjun starfsleyfis leyfishafa árið 2023 hafi komið í ljós að starfsemin uppfyllti ekki nútímakröfur um hreinsun frárennslisvatns og meðferð útblásturslofts. Réðst leyfishafi í úrbætur á starfsemi sinni sem fólust m.a. í því að settur var upp DAF-hreinsibúnaður annars vegar og ósonkerfi „til lykteyðingar“ hins vegar og liggur fyrir staðfesting heilbrigðiseftirlitsins, dags. 8. janúar 2026, um að þær úrbætur hafi verið framkvæmdar. Í umsögn leyfishafa í kærumáli nr. ÚUA2602020 er ósonkerfinu lýst með eftirfarandi hætti:
Óson verður blandað í loft í öllum 5 forþurrkunarklefum vinnslunnar og færibandaþurrkara. Eftirþurrkunarloft verður hreinsað í nýjum þvottaturni sambærilegum þeim sem lýst er í kafla 2.3.7.3.1 í BAT, þar sem það er hreinsað áður en því er sleppt út. Til viðbótar er notað ósonblandað vatn til að auka virkni þvottaturnsins, sbr. kafla 2.4.1 í BAT. Slík kerfi eru víða notuð í iðnaði til að draga úr lykt og byggja á reynslu hérlendis og erlendis.
- Fram hefur komið af hálfu kærenda að þrátt fyrir téðar umbætur berist enn veruleg lyktarmengun frá starfseminni. Um skýringu á því má líta til minnisblaðs heilbrigðisfulltrúa til skipulagsfulltrúa, dags. 3. júlí 2026, um stöðu fráveitumála á Laugum í Reykjadal. Segir þar að sýnatökur við innrennsli í Torfdalstjörn sýni fram á verulegan árangur af þeim úrbótum sem ráðist hafi verið í, einkum hvað varði gerlamengun, svifagnir og lífrænt álag sem berist niður að Torfdalstjörn. Reglulega berist kvartanir þó enn vegna óþægilegrar lyktar. Segir því næst:
Líklegt verður að telja að um árabil hafi bæði fráveita sveitarfélagsins og frárennsli frá atvinnustarfsemi stuðlað að uppsöfnun lífrænna efna í botnseti tjarnarinnar. Við niðurbrot slíkra efna í súrefnissnauðu seti geti myndast lyktarmikil efni, svo sem brennisteinsvetni og önnur rokgjörn niðurbrotsefni sem geta valdið þeirri ýldulykt sem lýst hefur verið af íbúum.
Því er raunhæft að ætla að hluti lyktarvandans geti stafað af sögulegri uppsöfnun mengunarefna í tjörninni fremur en eingöngu af núverandi losun fráveituvatns.
- Ekki verður á grundvelli fyrirliggjandi gagna lagt mat á hvort tilgáta heilbrigðisfulltrúa um mögulegar uppsprettur lyktar á svæðinu eigi við rök að styðjast. Á hinn bóginn liggur fyrir að leyfishafi réðst í úrbætur á mengunarvörnum starfseminnar í því skyni að draga úr lykt frá henni og staðfesti heilbrigðiseftirlitið að þær úrbætur hefðu verið framkvæmdar. Fyrir liggur að m.a. var tekin í notkun ósonkerfi, en nýting á slíku kerfi er þekkt aðferð við hreinsun útblásturslofts til að koma í veg fyrir óæskilega lykt.
- Með hliðsjón af framangreindu og þeim skilyrðum sem sett eru í gr. 4.9 og 4.10 í starfsleyfinu verður ekki fallist á kröfu kærenda um ógildingu leyfisins á þeim grundvelli að hlutlæg viðmið um lyktarmengun hafi ekki verið sett eða að skilyrði starfsleyfisins hvað það varðar séu ófullnægjandi.
- Framangreind niðurstaða haggar þó ekki skyldu heilbrigðiseftirlitsins til að viðhafa virkt eftirlit með starfseminni, þ. á m. hvort lyktarmengun af völdum starfseminnar sé umfram það sem búist var við, sbr. fyrrgreinda gr. 1.7.2. í starfsleyfinu. Berist frekari kvartanir um lyktarmengun getur stjórnvaldinu verið skylt að rannsaka það og grípa til viðeigandi ráðstafana, þar á meðal endurskoðunar starfsleyfisins.
—-
- Í hinu kærða starfsleyfi kemur fram í gr. 6.2 að starfsleyfishafi skuli láta gera úttekt á hávaða innan þriggja mánaða frá gildistöku starfsleyfisins og skuli hún ná til hávaða á öllum tímum sólarhrings og vera framkvæmd af fagaðila sem notar til þess viðurkennda mæliaðferð. Úttektin skuli gerð þegar vinnslan er á fullum afköstum. Í gögnum málsins liggur fyrir skjal verkfræðings um hávaðamælingu sem gerð var 12. mars og 24. apríl 2026. Í henni er greint frá mælingum sem gerðar voru á sex mismunandi stöðum sem heilbrigðiseftirlitið telur að sýni fram á að hávaði frá starfseminni sé innan þeirra viðmiða sem sett eru í reglugerð nr. 724/2008 um hávaða. Skjalið segir á hinn bóginn ekki til um það hvenær dagsins mælingin var framkvæmd og hvort vinnsla leyfishafa hafi verið á fullum afköstum, eins og fyrrgreint starfsleyfisskilyrði mælir fyrir um. Verður hvað það varðar að benda á að reglugerð nr. 724/2008 kveður á um mismunandi mörk fyrir hávaða frá atvinnustarfsemi eftir því hver sé tími dagsins, sbr. tafla III í viðauka reglugerðarinnar. Að þessu virtu verður að telja greinda hljóðmælingu ófullnægjandi.
—–
- Lög nr. 36/2011 um stjórn vatnamála hafa það að markmiði að vernda vatn og vistkerfi þess, hindra frekari rýrnun vatnsgæða og bæta ástand vatnavistkerfa til þess að vatn njóti heildstæðrar verndar, sbr. 1. mgr. 1. gr. Voru lögin sett til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/60/EB um aðgerðaramma bandalagsins um stefnu í vatnamálum.
- Fjallað er um flokkun vatnshlota, umhverfismarkmið og ástandsmat í III. kafla laga nr. 36/2011. Segir í 1. mgr. 11. gr. að flokka skuli vatn í vatnshlot og gerðir vatnshlota og meta þau. Skal mat á yfirborðsvatnshloti skv. 2. mgr. ákvæðisins byggjast á fyrirliggjandi gögnum hverju sinni og taka mið af skilgreindum líffræðilegum gæðaþáttum auk vatnsformfræðilegra og efna- og eðlisefnafræðilegra þátta eftir því sem við á. Þá skal ástand grunnvatns metið eftir magnstöðu þess og efnafræðilegum þáttum, sbr. 3. mgr. Mat á gæðaþáttum yfirborðs- og grunnvatnshlota skal skv. 4. mgr. byggjast á umhverfismarkmiðum í samræmi við ákvæði sem ráðherra setur í reglugerð. Að endingu segir í 5. mgr. að í vatnaáætlun skuli sett umhverfismarkmið sem séu í samræmi við ákvæði III. kafla. Þá segir í 12. gr. að vernda skuli yfirborðs- og grunnvatnshlot og „tryggja að ástand þeirra versni ekki“. Með því er kveðið á um skylduna til að koma í veg fyrir hnignun vatnshlota sem er eitt af meginmarkmiðum áðurgreindrar vatnatilskipunar Evrópusambandsins.
- Í samræmi við fyrirmæli 3. mgr. 28. gr. laganna skal leyfisveitandi við afgreiðslu umsóknar um leyfi til nýtingar vatns tryggja að leyfið sé í samræmi við þá stefnumörkun um vatnsvernd sem fram kemur í vatnaáætlun. Hið kærða starfsleyfi felur í sér nýtingu á vatni sem viðtaka fyrir losun mengandi efna. Hvíldi því sú skylda á heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra við meðferð starfsleyfisumsóknar leyfishafa að leggja mat á hvort fyrirhuguð starfsemi væri í samræmi við umhverfismarkmið gildandi vatnaáætlunar viðeigandi vatnshlota sem og tryggja að sú starfsemi myndi ekki leiða til þess að ástand viðkomandi vatnshlota versnaði, sbr. 12. gr. laga nr. 36/2011.
- Vatnaáætlun Íslands 2022–2027 hefur að geyma þá almennu og bindandi stefnumörkun að öll vatnshlot á Íslandi eigi að vera í a.m.k. góðu ástandi nema að veitt hafi verið undanþága frá umhverfismarkmiðum og að ástand vatnshlots megi ekki „falla um ástandsflokk“.
- Meðal gagna málsins er áhrifamat fiskþurrkunarverksmiðju á Laugum í Reykjadal á vatnshlot, sem unnið var í nóvember 2025 af verkfræðistofu fyrir leyfishafa. Byggir áhrifamatið á leiðbeiningum Umhverfisstofnunar um mat á áhrifum framkvæmda og starfsemi á vatnshlot frá árinu 2024, en þær munu hafa verið unnar með hliðsjón af leiðbeiningaritum Evrópusambandsins við tilskipun 2000/60/EB.
- Í áhrifamati vegna starfsemi leyfishafa er því lýst að frárennsli sé hleypt í manngerða tjörn, Torfdalstjörn, og frá henni sé lækur sem leiði vatnið að votlendi við bakka Reykjadalsár. Áin renni áfram að Vestmannsvatni og þaðan renni Eyvindarlækur sem síðan renni til Laxár í Aðaldal. Frá Laugum að Laxá séu um 13 km í loftlínu. Segir að þótt áhrif af losun frárennslis séu mest í Torfdalstjörn sé möguleiki á að áhrif „dreifist áfram með í nærliggjandi vatnshlot og neðanstraums“. Er þannig gert ráð fyrir fimm vatnshlotum á áhrifasvæði fiskþurrkunar leyfishafa, nánar tiltekið grunnvatnshlotinu Fljótsheiði (vatnshlotanúmer 102–65–G), straumvatnshlotinu Reykjadalsá (102–1723–R), stöðuvatnshlotinu Vestmannsvatni (102–1461–L), straumvatnshlotinu Eyvindarlæk (102–1736–R) og straumvatnshlotinu Laxá í Aðaldal (102–1814–R).
- Í téðu áhrifamati er að finna lýsingu á ástandi framangreindra vatnshlota sem byggist á upplýsingum úr Vatnavefsjá. Um vatnshlotið Fljótsheiði segir að magnstaða og „staða efnafræðilegra umhverfismarkmiða er góð“, en telja verður að með því sé átt við efnafræðilegt ástand vatnshlotsins sé gott. Hvað vatnshlotin Reykjadalsá, Vestmannsvatn og Eyvindarlæk varðar segir að vistfræðilegt ástand sé mjög gott en efnafræðilegt ástand sé óþekkt. Þá segir að vistfræðilegt ástand straumvatnshlotsins Laxá í Aðaldal teljist óflokkað þar sem upplýsingar vanti og að efnafræðilegt ástand sé óþekkt. Segir nú í Vatnavefsjá að vistfræðilegt ástand sé gott, byggt á sérfræðiáliti.
- Vatnavefsjá þjónar því hlutverki að vera landfræðilegt upplýsingakerfi um m.a. flokkun og ástand vatnshlota, sbr. 3. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 535/2011 um flokkun vatnshlota, eiginleika þeirra, álagsgreiningu og vöktun. Taka verður fram að upplýsingar sem birtar eru í Vatnavefsjá teljast ekki hluti af gildandi vatnaáætlun nema þær verði raktar til efnis hinnar staðfestu áætlunar eða hafi verið teknar inn í hana að uppfylltum skilyrðum laga nr. 36/2011. Eru slíkar upplýsingar eftir sem áður leiðbeinandi við gerð áhrifamata. Hér vekur athygli að þær upplýsingar sem koma fram í Vatnavefsjá um ástand vatnshlotanna hvíla að mörgu leyti á engum eða litlum gögnum, sbr. tilvísun í óþekkt vistfræðilegt ástand eða óflokkað efnafræðilegt ástand. Að auki er ljóst að þótt vistfræðilegt ástand vatnshlotanna Vestmannsvatns og Eyvindarlækjar sé talið mjög gott kemur fram í Vatnavefsjá að ástandsmatið sé byggt á líkindum og að þörf sé á gögnum til að staðfesta ástandsflokkun.
- Í lokakafla áhrifamatsins er að finna hið eiginlega mat á áhrifum starfseminnar á vatnshlot auk þess sem gerð er grein fyrir leiðum til að forðast eða lágmarka áhrif. Fram kemur í áhrifamatinu að heildarvatnsnotkun vinnslunnar af köldu vatni sé um 110 m3 á sólarhring og fari það í frárennsli. Auk þess sé notað heitt vatn, um 50 m3/klst, sem fari í sérstaka lögn og sé því ekki blandað við kalt frárennsli. Áhrif á grunnvatn og yfirborðsvatn felist einkum í ofauðgun og þörungavexti af völdum næringarefna, uppsöfnun hreinsiefna og gruggs og froðumyndun vegna fitu, próteins og svifagna. Til að draga úr áhrifum þurfi að hreinsa næringarefni, svifagnir og fitu úr frárennsli. Þá er lýst áformum leyfishafa um notkun hreinsibúnaðar (e. Dissolved Air Floatation) og miðlunartanks sem eigi að ná viðmiðum í reglugerð um frárennsli. Jöfnunartankur tryggi að toppar mengunarefna berist ekki í frárennsli og tryggi virkni hreinsibúnaðar. Með því muni starfsemin ekki leiða til þess að umhverfismarkmið vatnshlotanna náist ekki. Að auki er komist að þeirri niðurstöðu að næringarefni, svifagnir og fita verði í óverulegu magni, lítil hætta verði á ofauðgun í straumvatnshlotum neðanstraums eða mengun í grunnvatnshloti og sjónmengun vegna myndunar froðu í frárennsli og lykt frá tjörn verði óveruleg eða engin. Þá er tekið fram að í áhrifamatinu sé ekki lagt mat á áhrif frárennslis í tjörnina frá öðrum aðilum.
- Gera verður þá athugasemd að umrætt áhrifamat hafi verið byggt á ófullnægjandi upplýsingum um ástand vatnshlotanna. Er enda vart hægt að leggja viðhlítandi mat á áhrif starfsemi eða framkvæmdar á vatnshlot nema fyrir liggi áreiðanlegar upplýsingar um ástand þess. Verður hvað það varðar að horfa til ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins í máli E-7/25 þar sem dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að vatnatilskipun Evrópusambandsins girði fyrir að veitt sé leyfi til framkvæmdar, sem til greina kemur að áhrif geti haft á ástand grunnvatnshlota, áður en „slíkt mat“, þ.e. ástandsmat, hefur farið fram og niðurstöður þess hafa verið settar fram í vatnaáætlun samkvæmt viðmiðum tilskipunarinnar. Jafnframt er það niðurstaða dómstólsins að tilskipunin komi ekki í veg fyrir að leyfi til framkvæmdar sé veitt þótt vatnaáætlun geymi ekki flokkun og ástandsmat vatnshlots, svo fremi sem flokkun og mat hafi farið fram í samræmi við þær kröfur sem vatnatilskipunin geri. Að teknu tilliti til 3. gr. laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið verður að ljá þessum niðurstöðum vægi við úrlausn málsins.
- Með hliðsjón af framangreindu verður að telja að heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra hafi ekki uppfyllt þá skyldu sem á því hvíldi skv. 3. mgr. 28. gr. og 12. gr. laga nr. 36/2011 um að gæta að stefnumörkun um vatnsvernd í gildandi vatnaáætlun og sjá til þess að ástand þeirra vatnshlota sem verða fyrir áhrifum af völdum starfsemi leyfishafa myndi ekki versna. Breytir engu í þeim efnum þótt niðurstaða fyrirliggjandi áhrifamats hafi verið sú að starfsemin leiði ekki til þess að umhverfismarkmið vatnshlotanna náist ekki, enda byggði sú niðurstaða á ófullnægjandi gögnum um ástand þeirra. Verður og að benda á að straumvatnshlotið Laxá í Aðaldal nýtur sérstakrar verndar samkvæmt lögum nr. 97/2004 um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu og var því ríkara tilefni en ella til þess að tryggja að fullnægjandi upplýsingar lægju fyrir áður en leyfið var veitt. Að teknu tilliti til alls þessa verður ekki hjá því komist að fallast á kröfu kærenda um ógildingu hinnar kærðu ákvörðunar.
Úrskurðarorð
Felld er úr gildi sú ákvörðun heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra frá 3. júní 2026 að gefa út starfsleyfi til handa Samherja Íslandi ehf. fyrir heitloftsþurrkun fiskafurða á lóð Austurhlíðarvegar 2 að Laugum í Reykjadal í Þingeyjarsveit.
