Hafnað er þeirri kröfu kærenda að fresta réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 7. og 15. október 2026 um tafarlausa stöðvun og lokun mannvirkisins að Fiskislóð 41 og synjun um beiðni kærenda um frest til úrbóta og frestun lokunar á mannvirki og stöðvun rekstrar.
Árið 2026, föstudaginn 23. október, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. UUA2610017, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 7. október 2026 um tafarlausa stöðvun notkunar og lokun mannvirkisins að Fiskislóð 41 í Reykjavík, auk synjunar á beiðni um frest til úrbóta og frestunar fyrri ákvörðunar frá 15. s.m.
Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 16. október 2026, er barst nefndinni sama dag, kæra Vagneignir ehf., eigandi fasteignarinnar að Fiskislóð 41 í Reykjavík, og Höfðadekk ehf., rekstraraðili dekkjaverkstæðis og dekkjalagers í sömu fasteign, ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 7. október 2026 um tafarlausa stöðvun og lokun mannvirkisins að Fiskislóð 41 ásamt ákvörðun hans frá 15. s.m. um að synja beiðni kærenda um frest til úrbóta og frestun lokunar á mannvirki og stöðvun rekstrar. Er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og til vara að þær verði felldar úr gildi að því leyti sem þær taki til annarra hluta mannvirkisins en dekkjalagers og dekkjaverkstæðis.
- Þess er að auki krafist að réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana verði frestað til bráðabirgða á meðan kæran sé til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Reykjavíkurborg 22. október 2026.
Málsatvik og rök
- Við skoðun byggingarfulltrúa og fulltrúa slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins 30. júní 2026 vegna fyrirhugaðrar lokaúttektar mannvirkisins að Fiskislóð 41, fasteignanúmer 2327526, kom í ljós að mannvirkið var ekki fullgert og uppfyllti ekki lögbundnar öryggiskröfur, m.a. hvað varðaði brunavarnir. Í bréfi byggingarfulltrúa, dags. 6. júlí s.á., var eiganda mannvirkisins tilkynnt um fyrirhugaða ákvörðun um að stöðva notkun og fyrirskipa lokun mannvirkisins. Í svarbréfi, dags. 13. s.m., óskaði eigandi eftir fresti til 31. ágúst s.á. til að ljúka tilteknum úrbótum og til 30. september s.á. til að ljúka uppsetningu vatnsúðakerfis.
- Með bréfi til byggingarfulltrúa, dags. 18. september s.á., upplýsti eigandi mannvirkisins um stöðu mála og bráðaaðgerðir vegna brunavarna sem ljúka ætti fyrir 25. s.m., en meðfylgjandi var m.a. umsögn um brunavarnir. Í tölvupósti frá 29. s.m. kom fram sú afstaða Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins að fyrirhugaðar bráðaaðgerðir væru ekki nægjanlegar einar og sér. Málið væri litið alvarlegum augum og að notkun mannvirkisins væri ekki talin ásættanleg.
- Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins upplýsti byggingarfulltrúa með bréfi, dags. 5. október s.á., að slökkviliðið legðist gegn því að öryggis/lokaúttektarvottorð yrði gefið út og að notkun mannvirkisins yrði því ekki leyfð að óbreyttu.
- Með bréfi, dags. 7. október s.á., tilkynnti byggingarfulltrúi kærendum ákvörðun um að banna tafarlaust alla notkun mannvirkisins að Fiskislóð 41 og fyrirskipaði lokun þess. Tók ákvörðunin til mannvirkisins í heild. Fram kom að óheimilt væri að taka mannvirkið eða einstaka hluta þess aftur í notkun fyrr en bætt hefði verið úr þeim annmörkum sem vörðuðu öryggi þess, nauðsynlegar úttektir hefðu farið fram og að byggingarfulltrúi hefði staðfest að skilyrði fyrir notkun væru uppfyllt. Þá kom fram að með hliðsjón af eðli og umfangi þeirra annmarka sem fyrir lægju, óvissu um heildarástand brunavarna og afstöðu slökkviliðs yrði ekki séð að vægari úrræði en lokun alls mannvirkisins væru nægileg til að tryggja þá öryggishagsmuni sem væru í húfi. Ríkir almannahagsmunir, einkum sem lytu að vernd lífs og heilsu þeirra sem staðsettir væru í mannvirkinu, krefðust þess að notkun þess yrði stöðvuð án tafar.
- Eigendur mannvirkisins óskuðu eftir því með tölvupósti þann 14. s.m., að byggingarfulltrúi veitti frest til 1. nóvember s.á., til að ljúka lokafrágangi brunavarna og að framkvæmd ákvörðunar um lokun mannvirkisins yrði frestað til sama dags. Var beiðnin rökstudd með vísan til ríkra mótvægisaðgerða sem gripið hefði verið til eða skuldbindingar um að ráðast í tafarlaust, stöðu lokafrágangs á vatnsúðakerfi hússins og meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar.
- Var erindinu synjað með tölvupósti byggingarfulltrúa hinn 15. s.m. Kom þar fram að ekki væru skilyrði til að verða við beiðninni. Benti byggingarfulltrúi meðal annars á að byggingarfulltrúi hefði ekki heimild samkvæmt lögum nr. 160/2010 um mannvirki til að heimila notkun mannvirkis sem ekki hefði fengið vottun um öryggisúttekt. Um væri að ræða lögbundna kröfu sem byggingarfulltrúi gæti hvorki vikið frá né frestað. Þá væri það mat byggingarfulltrúa að án virks vatnsúðakerfis væri ekki unnt að tryggja með fullnægjandi hætti öryggi starfsfólks, viðskiptavina, viðbragðsaðila eða eigenda nærliggjandi fasteigna komi til bruna. Um væri að ræða verulegan og alvarlegan annmarka á brunavörnum mannvirkisins sem ekki yrði bætt úr með tímabundnum mótvægisaðgerðum einum. Kom að lokum fram að mál mannvirkisins yrði tekið til tafarlausrar afgreiðslu þegar sýnt hefði verið fram á að vatnsúðakerfi, inntaksrými, stjórnbúnaði og öðrum þáttum brunavarna hafi verið lokið í samræmi við samþykkt hönnunargögn og nauðsynlegar úttektir farið fram þannig að unnt væri að gefa út lögboðið vottorð um öryggisúttekt.
- Kærendur vísa til þess að tjón vegna stöðvunar notkunar og lokunar mannvirkisins verði verulegt og óbætanlegt. Um sé að ræða háannatíma dekkjaverkstæðisins vegna vetrardekkjaskipta, fjöldi hjólbarða viðskiptavina sé í geymslu sem þeir muni ekki hafa aðgang að og geti því ekki skipt um hjólbarða. Fjöldi starfsmanna verði aðgerðarlaus og áætlað tekjutap verði gríðarlegt, enda sé háannatími vetrardekkjaskipta. Verði ekki fallist á frestun verði kæran að þessu leyti þýðingarlaus þar sem tjónið verði að fullu orðið áður en efnisúrskurður liggi fyrir. Þá sé ekki víst að viðskiptavinir geti leitað annað ef þeir þurfi af öryggisástæðum að skipta yfir á vetrardekk. Tengingu og forprófun úðakerfisins muni ljúka fyrir lok október 2026 og óskað verði lokaúttektar eigi síðar en 1. nóvember s.á. Frestun réttaráhrifa þurfi því aðeins að standa í um tvær vikur, eða þar til úttekt hafi farið fram. Öryggi verði tryggt á meðan frestun réttaráhrifa standi yfir og kærendur hafi lýst því yfir að þeir skuldbindi sig til að hlíta tilteknum skilyrðum á þeim tíma.
- Af hálfu Reykjavíkurborgar er vísað til þess að ákvörðun byggingarfulltrúa hafi m.a. byggt á skoðunarskýrslu, dags. 12. október 2026 og að sú ákvörðun standi óbreytt, en málið sé enn til vinnslu hjá embætti byggingarfulltrúa. Ákvörðun um að stöðva notkun hússins að Fiskislóð 41 og fyrirskipa lokun þess hafi byggt á því að vottorð um öryggisúttekt hafi ekki verið gefið út, sbr. 1. mgr. 55. gr. laga um mannvirki, sbr. og 1. mgr. 35. gr. sömu laga. Það hafi verið mat byggingarfulltrúa að mannvirkið ylli öryggis- og almannahættu vegna ófullnægjandi brunavarna. Því væri nauðsynlegt að fyrirskipa lokun mannvirkisins til að tryggja öryggi starfsfólks, viðskiptavina og nærliggjandi bygginga. Í húsinu sé rekið dekkjaverkstæði og -þjónusta og því sé mikil eldhætta fyrir nærliggjandi byggingar komi upp eldur í húsinu. Við ákvörðun sína hafi byggingarfulltrúi tekið afstöðu til þess hvort hætta stafaði af ástandi brunavarna með hliðsjón af umsögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Málið hafi því verið fullrannsakað þegar hin kærða ákvörðun hafi verið tekin og ákvörðunin hafi verið rökstudd með fullnægjandi hætti. Með hliðsjón af málavöxtum, alvarleika málsins og ófullnægjandi brunavörnum, sem og þeirri staðreynd að óheimilt sé að hefja notkun hússins, sé farið fram á að kröfum kærenda verði hafnað.
Niðurstaða
- Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en jafnframt er kærendum þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda til bráðabirgða séu þær hafnar eða yfirvofandi. Samkvæmt 3. mgr. greinarinnar er kærendum heimilt að krefjast frestunar réttaráhrifa sé um að ræða ákvörðun sem ekki felur í sér heimild til framkvæmda. Með sambærilegum hætti er kveðið á um það í 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar en þó sé heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar til bráðabirgða meðan málið sé til meðferðar hjá kærustjórnvaldi þar sem ástæður mæli með því. Tilvitnuð lagaákvæði bera með sér að meginreglan sé sú að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og eru heimildarákvæði fyrir frestun kærðrar ákvörðunar undantekning frá nefndri meginreglu sem skýra ber þröngt. Verða því að vera ríkar ástæður eða veigamikil rök fyrir ákvörðun um frestun réttaráhrifa.
- Tekið er fram í athugasemdum með 5. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 130/2011 að ákvæði greinarinnar byggist á almennum reglum stjórnsýsluréttar um réttaráhrif kæru og heimild úrskurðaraðila til að fresta réttaráhrifum ákvörðunar. Í athugasemdum við áðurnefnda 29. gr. í frumvarpi því er varð að stjórnsýslulögum er tiltekið að heimild til frestunar réttaráhrifa þyki nauðsynleg þar sem kæruheimild geti ella orðið þýðingarlaus. Þar kemur einnig fram að almennt mæli það á móti því að réttaráhrifum ákvörðunar sé frestað ef fleiri en einn aðili sé að máli og þeir eigi gagnstæðra hagsmuna að gæta. Það mæli hins vegar með því að fresta réttaráhrifum ákvörðunar ef aðili máls sé aðeins einn og ákvörðun er íþyngjandi fyrir hann, veldur honum t.d. tjóni. Þetta sjónarmið vegi sérstaklega þungt í þeim tilvikum þar sem erfitt yrði að ráða bót á tjóninu enda þótt ákvörðunin yrði síðar felld úr gildi af hinu æðra stjórnvaldi.
- Í máli þessu er kærð ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 7. október 2026 um tafarlausa stöðvun og lokun mannvirkisins að Fiskislóð 41 auk ákvörðunar hans frá 15. s.m. um að synja beiðni kærenda um frest til úrbóta og frestun lokunar á mannvirki og stöðvun rekstrar. Við mat á því hvort beita beri heimildinni verður að líta til þeirra hagsmuna sem í húfi eru. Þótt það mæli með frestun réttaráhrifa að ákvörðun sé íþyngjandi og geti valdið aðila tjóni verður jafnframt að líta til mikilvægra almannahagsmuna, einkum þegar ákvörðun er ætlað að koma í veg fyrir öryggis- og almannahættu. Meðal markmiða laga nr. 160/2010 um mannvirki er að vernda líf og heilsu manna, eignir og umhverfi, sbr. a-lið 1. gr. laganna. Samkvæmt 1. mgr. 35. gr. þeirra er óheimilt að taka mannvirki í notkun nema það uppfylli öryggis- og hollustukröfur og útgefandi byggingarleyfis hafi gefið út vottorð um öryggisúttekt. Þá er í 3. mgr. 55. gr. laganna mælt fyrir um lokun mannvirkis reynist öryggi þess ábótavant við öryggis- eða lokaúttekt, þar til úr hefur verið bætt. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur vottorð um öryggisúttekt ekki verið gefið út fyrir mannvirkið. Þá liggur jafnframt fyrir að Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur með eindregnum hætti hafnað þeim tillögum að bráðaaðgerðum til að bæta ástand brunavarna í mannvirkinu sem kærendur í máli þessu hafa lagt til.
- Ljóst er að lokun og stöðvun notkunar mannvirkisins getur haft veruleg fjárhagsleg og rekstrarleg áhrif á kærendur, en einnig verður að horfa til þeirra hagsmuna sem stefnt er að tryggja með hinni kærðu ákvörðun, þ.e. öryggi starfsmanna, viðskiptavina og viðbragðsaðila komi til bruna. Að virtum þeim annmörkum sem lýst hefur verið og afstöðu slökkviliðsins verður að telja varhugavert að fresta réttaráhrifum lokunarinnar meðan beðið er efnisúrlausnar málsins. Fyrirhuguð verklok við úrbætur breyta ekki því mati.
- Að framangreindu virtu þykja þeir almanna- og öryggishagsmunir sem hinni kærðu ákvörðun er ætlað að vernda vega þyngra en hagsmunir af frestun réttaráhrifa hennar. Verður kröfu um frestun því hafnað.
Úrskurðarorð
Hafnað er þeirri kröfu kærenda að fresta réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 7. og 15. október 2026 um tafarlausa stöðvun og lokun mannvirkisins að Fiskislóð 41 og synjun um beiðni kærenda um frest til úrbóta og frestun lokunar á mannvirki og stöðvun rekstrar.
