Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 159/2026 · Mál nr. UUA2609025 · Kveðinn upp 4. nóvember 2026

Lindargata

FrávísunFormannsúrskurður
Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.

Árið 2026, miðvikudaginn 4. nóvember, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:

Mál nr. UUA2609025, kæra vegna óhæfilegs dráttar byggingarfulltrúans í Reykjavík á afgreiðslu erinda kæranda vegna óleyfisframkvæmdar á lóð Lindargötu 12.

  1. Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 28. september 2026, kærir fyrirsvarsmaður Fortuna Favet ehf., eiganda íbúðar 0201 að Lindargötu 12, óhæfilegan drátt byggingarfulltrúans í Reykjavík á afgreiðslu erinda kæranda vegna óleyfisframkvæmdar á lóð Lindargötu 12. Er þess krafist að úrskurðað verði um hvort óhæfilegur dráttur hafi orðið á afgreiðslu erinda kæranda og að lagt verði fyrir byggingarfulltrúann í Reykjavík að ljúka afgreiðslu málsins án frekari tafa.

Málsatvik og rök

  1. Með bréfi byggingarfulltrúans í Reykjavík til framkvæmdaraðila, dags. 27. apríl 2026, var honum gert að fjarlægja viðbyggingu sem reist hefði verið á baklóð Lindargötu 12, Reykjavík. Veittur var 30 daga frestur til þess að verða við kröfunni en að öðrum kosti yrðu lagðar á dagsektir. Í kjölfarið skaut framkvæmdaraðili ákvörðun embættisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem farið var fram á að hún yrði felld úr gildi. Hinn 9. september s.á. kvað nefndin upp úrskurð í máli UUA2605013, þar sem kröfum framkvæmdaraðila var hafnað.
  1. Kærandi kveðst hafa beint erindum til Reykjavíkurborgar 17. og 29. júlí 2026 þar sem hann hafi óskað upplýsinga um stöðu málsins og afstöðu borgarinnar til gildis ákvörðunar byggingarfulltrúa. Erindinu hafi ekki verið svarað að öðru leyti en því að afgreiðslutíminn væri lengri vegna sumarleyfa. Hinn 17. september s.á. hafi hann beint ítarlegu erindi til Reykjavíkurborgar um framfylgd ákvörðunar byggingarfulltrúa og borginni verið veittur fimm daga frestur til þess að bregðast við erindinu, sem ekki hafi verið gert.
  1. Við meðferð þessa máls hjá úrskurðarnefndinni upplýsti framkvæmdaraðili að hann hefði þegar hafið vinnu við að fjarlægja óleyfisframkvæmdina á lóð Lindargötu 12. Með tölvubréfi til nefndarinnar 27. október 2026 upplýsti Reykjavíkurborg nefndina jafnframt að málið hefði verið tekið fyrir á „fundi með byggingarfulltrúa“ 22. s.m. Í bókun fundarins komi fram að búið sé að verða við kröfu um að fjarlægja viðbyggingu á lóð Lindargötu 12 og því muni byggingarfulltrúi ekki hafa frekari afskipti.

Niðurstaða

  1. Unnt er að kæra óhæfilegan drátt á afgreiðslu máls til þess stjórnvalds sem ákvörðun í málinu verður kærð til skv. 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kæra í máli þessu lýtur að afgreiðslu byggingarfulltrúans í Reykjavík á erindum kæranda þar sem farið er fram á að embættið fylgi eftir ákvörðun sinni frá 27. apríl 2026 um að beita þvingunarúrræðum skv. 55. og 56. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki vegna óleyfisframkvæmdar lóð Lindargötu 12. Kæruheimild vegna stjórnvaldsákvarðana tekna á grundvelli nefndra laga er að finna í gr. laganna.
  1. Samkvæmt 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 laga um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála geta þeir einir skotið kærumáli til úrskurðarnefndarinnar sem eiga lögvarða hagsmuni af úrlausn þess. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg og framlögðum ljósmyndum frá framkvæmdaraðila hefur viðbygging á baklóð Lindargötu 12 verið fjarlægð í samræmi við ákvörðun byggingarfulltrúa þess efnis. Hefur kærandi af þeim sökum ekki lengur lögvarða hagsmuni af úrlausn nefndarinnar í málinu. Verður kærumáli þessu því vísað frá úrskurðarnefndinni.

Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.