Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 158/2026 · Mál nr. UUA2609013 · Kveðinn upp 4. nóvember 2026

Litli Hvammur

Frávísun
Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.

Árið 2026, miðvikudaginn 4. nóvember, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Unnþór Jónsson varaformaður, Aðalheiður Jóhannsdóttir prófessor og Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður.

Fyrir var tekið mál nr. UUA260913, kæra á ákvörðun sveitarstjóra Mýrdalshrepps frá 13. janúar 2026 um að synja um aðgang að andmælabréfi við deiliskipulagstillögu án yfirstrikana.

  1. Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 15. september 2026, er barst nefndinni 16. s.m., kærir A, Litla-Hvammi 1, Vík í Mýrdalshreppi, þá ákvörðun sveitarstjóra Mýrdalshrepps frá 13. janúar 2026 að synja honum um aðgang að andmælabréfi við deiliskipulagstillögu án yfirstrikana. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að sveitarfélaginu verði gert að veita kæranda aðgang að bréfinu án yfirstrikana.
  1. Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Mýrdalshreppi 16. september 2026.

Málavextir

  1. Hinn 24. apríl 2024 auglýsti Mýrdalshreppur tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóð kæranda, Litla-Hvamm 1. Bárust andmæli við tillöguna með bréfi, dags. 21. maí s.á. Mun sveitarfélagið hafa afhent kæranda umrætt bréf og birt það samhliða opinberlega í tengslum við skipulagsferlið, en áður hafði verið strikað yfir tiltekinn texta í bréfinu. Skipulagstillagan var samþykkt á fundi sveitarstjórnar 20. febrúar 2025 og öðlaðist deiliskipulagið gildi með birtingu auglýsingar þar um í B-deild Stjórnartíðinda 25. apríl s.á. Á fundi kæranda með fulltrúum sveitarfélagsins 12. janúar 2026 mun hann hafa óskað eftir aðgangi að fyrrgreindu bréfi án yfirstrikana. Þeirri beiðni var synjað með tölvupósti sveitarstjóra 13. s.m., með vísan til 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 og laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónu­upplýsinga. Þá var kæranda leiðbeint um að hægt væri að skjóta ákvörðuninni til úrskurðar­nefndar um upplýsingamál.
  1. Með bréfi, dags. 30. janúar 2026, skaut kærandi greindri ákvörðun til úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem með úrskurði, uppkveðnum 4. júní s.á. í máli ÚNU 26020001, taldi að umbeðið bréf væri hluti af stjórnsýslumáli sem kærandi væri aðili að og færi því um rétt hans til aðgangs að því eftir ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Félli bréfið utan gildissviðs upplýsingalaga og yrði því að vísa kærunni frá úrskurðarnefndinni. Jafnframt var vakin athygli á því að bera mætti synjun sveitarstjórans undir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Málsrök kæranda

  1. Kærandi telur að við mat á því hvort kæran hafi komið fram innan kærufrests verði að líta sérstaklega til þess að Mýrdalshreppur hafi veitt rangar kæruleiðbeiningar. Það gangi ekki að kærandi verði fyrir réttarspjöllum og fái ekki efnislega úrlausn í málinu vegna rangra leiðbeininga sveitarfélagsins.
  1. Hin kærða ákvörðun sé röng, ekki í samræmi við lög og án fullnægjandi rökstuðnings. Lögð sé áhersla á að einungis sé farið fram á að hið umrædda bréf verði afhent kæranda sem aðila málsins, en ekki að það verði birt opinberlega. Í bréfinu sé að finna andmæli sem hafi haft þýðingu við úrlausn málsins hjá sveitarfélaginu þar sem tekið hafi verið tillit til þeirra við samþykkt tillögunnar. Kærandi hafi því ljóslega hagsmuni af því að sjá efni bréfsins í heild sinni.
  1. Samkvæmt 15. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eigi kærandi sem aðili að stjórnsýslumáli rétt á aðgangi að skjölum og öðrum gögnum er málið varði. Taki sá réttur til allra gagna tiltekins máls og sé um lögbundinn rétt að ræða sem ekki verði takmarkaður nema í undantekningartilvikum. Eigi ekkert undanþáguákvæði stjórnsýslulaga við um bréfið og hafi sveitarfélagið ekki borið neinar undanþágur fyrir sig. Feli bréfið í sér umsögn og andmæli við deiliskipulagstillögu. Það sé vandséð að í því geti verið að finna upplýsingar sem óheimilt sé að veita aðila máls á grundvelli persónuverndarlaga. Þá liggi fyrir að upplýsingalög nr. 140/2012 eigi ekki við í málinu. Hafi engan veginn verið leitt í ljós að þær upplýsingar sem hafi verið strikað yfir í bréfinu nái til svo viðkvæmra einkahagsmuna að ekki sé heimilt að afhenda þær kæranda.

Málsrök Mýrdalshrepps

  1. Af hálfu sveitarfélagsins er bent á að starfsmenn þess hafi talið að ákveðnar upplýsingar í bréfinu væru viðkvæmar persónuupplýsingar og að ekki væri forsvaranlegt að birta þær opinberlega. Að auki hafi þær upplýsingar ekki verið taldar þess eðlis að þær yrðu lagðar til grundvallar við ákvörðunartöku í málinu. Engu að síður hafi þeir einstaklingar sem sent hafi andmælin óskað eftir því að þau yrðu birt með þeirri breytingu að tilteknir hlutar bréfsins yrðu gerðir ólæsilegir með yfirstrikun.

Niðurstaða

  1. Í máli þessu er deilt um lögmæti þeirrar ákvörðunar sveitarstjóra Mýrdalshrepps frá 13. janúar 2026 að synja kæranda um aðgang að andmælabréfi við deiliskipulagstillögu án yfirstrikana. Hinn 30. s.m. skaut kærandi þeirri ákvörðun til úrskurðarnefndar um upplýsingamál í samræmi við leiðbeiningar sem veittar voru um kæruheimild í ákvörðuninni. Vísaði úrskurðarnefndin aftur á móti kærunni frá með úrskurði uppkveðnum 4. júní 2026 þar sem nefndin taldi umbeðið bréf vera hluta af stjórnsýslumáli sem kærandi væri aðili að og færi því um rétt hans til aðgangs að því eftir ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Af því leiddi að ákvarðanir um aðgang að gögnum í slíkum tilvikum yrðu ekki bornar undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál heldur bæri að beita sérstakri kæruheimild í 2. mgr. 19. gr. stjórnsýslulaga. Jafnframt var vakin athygli á því að stjórnvaldsákvarðanir sem teknar væru á grundvelli skipulagslaga nr. 123/2010 sættu kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 1. mgr. 52. gr. laganna. Synjun sveitarstjóra um að veita kæranda aðgang að umbeðnu skjali yrði því að mati nefndarinnar borin undir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
  1. Samkvæmt 52. gr. skipulagslaga fer um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæruna samkvæmt lögum nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Þar segir í 2. mgr. 4. gr. laganna að kærufrestur til nefndarinnar sé einn mánuður frá því að kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Aftur á móti er þar tilgreint að það eigi þó ekki við ef mælt sé fyrir um annan kærufrest í þeim lögum sem kæranleg ákvörðun byggist á. Samkvæmt 2. málsl. 2. mgr. 19. gr. stjórnsýslulaga skal kæra á synjun eða takmörkun um aðgang að gögnum máls borin fram innan 14 daga frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðunina. Er það sá kærufrestur sem gildir um hina kærðu ákvörðun, en sem áður greinir var hún tilkynnt kæranda með tölvupósti 13. janúar 2026. Var kærufrestur því liðinn þegar kæra barst úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála 16. september s.á.
  1. Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nema skilyrði 1. eða 2. töluliðar ákvæðisins eigi við. Í máli þessu kemur einkum til skoðunar hvort 1. töluliður eigi hér við, þ.e. hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr.
  1. Líkt og áður greinir voru leiðbeiningar sem gefnar voru í hinni kærðu ákvörðun um kæruheimild og hvert beina ætti kæru rangar, en skv. 2. tölulið 2. mgr. 20. gr. sömu laga skal í ákvörðun veita leiðbeiningar um kæruheimild, þegar hún er fyrir hendi, kærufresti og kærugjöld, svo og hvert beina eigi kæru. Þegar svo ber undir að stjórnvald fullnægir ekki leiðbeiningarskyldu sinni skv. nefndri 20. gr. stjórnsýslulaga, sbr. einnig 7. gr. sömu laga, leiðir það almennt til þess að afsakanlegt verði talið í skilningi 1. töluliðar 1. mgr. 28. gr. laganna að kæra hafi ekki borist fyrir lok kærufrests. Aftur á móti er ljóst að í úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál voru veittar leiðbeiningar um kæruheimild til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og bent á að takmörkun á aðgangi að gögnum málsins væri kæranleg á grundvelli 2. mgr. 19. gr. stjórnsýslulaga. Þótt ekki hafi verið tekið fram í úrskurðinum að kærufrestur væri einungis 14 dagar er ljóst að á þeim tímapunkti lágu fyrir kæranda réttar upplýsingar um hvert ætti að skjóta ákvörðuninni og á hvaða grundvelli. Var kæranda þá í lófa lagið að afla frekari upplýsinga um kæruheimildina og gera reka að því að vísa málinu til úrskurðarnefndarinnar sem fyrst í ljósi þess að lögbundinn kærufrestur var þá löngu liðinn. Með hliðsjón af því að kæra barst nefndinni meira en þremur mánuðum eftir uppkvaðningu úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál verður ekki talið að atvik eða ástæður mæli með því að kæran verði tekin til efnismeðferðar á grundvelli undantekningarheimildar 28. gr. stjórnsýslulaga. Ber því að vísa henni frá úrskurðarnefndinni með vísan til fyrirmæla 1. mgr. sama lagaákvæðis.
  1. Rétt þykir að taka fram að ekkert virðist vera því til fyrirstöðu að kærandi óski að nýju eftir aðgangi að téðu bréfi hjá sveitarfélaginu. Synji sveitarfélagið honum að nýju um aðgang að bréfinu án yfirstrikana er sú ákvörðun eftir atvikum kæranleg til úrskurðarnefndarinnar með hliðsjón af framanröktu.

Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.