Hafnað er kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar bæjarstjórnar Garðabæjar frá 3. september 2026 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi fyrir veislusal til útleigu á spildu A úr landi Grundar á Álftanesi.
Árið 2026, miðvikudaginn 21. október, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, fyrir:
Mál nr. UUA2609012, kæra á ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar frá 3. september 2026 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi fyrir veislusal til útleigu á spildu A úr landi Grundar á Álftanesi.
Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur
- Með ódagsettu bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 15. september 2026, kæra A og B, Breiðabólsstöðum á Álftanesi, þá ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar frá 3. september s.á. að samþykkja umsókn um byggingarleyfi fyrir veislusal til útleigu á spildu A úr landi Grundar á Álftanesi.
- Þess er að auki krafist að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar verði frestað þannig að byggingarleyfi verði ekki gefið út eða ekki komi til framkvæmda á meðan málið sé til meðferðar hjá nefndinni. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.
- Úrskurður þessi er kveðinn upp með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Málsatvik og rök
- Á fundi skipulagsnefndar Garðabæjar 11. júní 2026 var tekin fyrir umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á atvinnuhúsnæði á spildu A úr landi Grundar á Álftanesi. Samkvæmt umsókninni var gert ráð fyrir veitingastað í flokki II, sbr. 17. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Var samþykkt að grenndarkynna umsóknina skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og staðfesti bæjarstjórn þá afgreiðslu á fundi sínum 18. s.m. Málið var tekið fyrir að nýju á fundi skipulagsnefndar 27. ágúst s.á. Var það niðurstaða skipulagsnefndar að gera ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis á grundvelli grenndarkynntra gagna og nánar tilgreindra breytinga á byggingarlýsingu. Var málinu vísað til bæjarráðs sem samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar á fundi sínum 1. september s.á. Vísaði nefndin málinu í kjölfarið til bæjarstjórnar sem samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar á fundi sínum 3. september 2026.
- Kærendur vísa til þess að hin kærða ákvörðun sé haldin verulegum efnis- og formannmörkum. Hún byggi á rangri beitingu 44. gr. skipulagslaga, ófullnægjandi rannsókn á skipulagslegum forsendum og um sé að ræða tilraun til að leysa úr breyttri landnotkun með byggingarleyfi. Er þess krafist að úrskurðarnefndin fresti réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar þannig að byggingarleyfi verði ekki gefið út eða komi ekki til framkvæmda á meðan málið sé til meðferðar hjá nefndinni. Slík ráðstöfun sé nauðsynleg til að koma í veg fyrir að ólögmæt notkun festist í sessi og að skapaðar verði staðreyndir sem síðar verði erfitt eða ómögulegt að vinda ofan af.
- Af hálfu Garðabæjar er ekki gerð athugasemd við kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar.
Niðurstaða
- Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en jafnframt er kæranda þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda til bráðabirgða séu þær hafnar eða yfirvofandi. Sé um að ræða ákvörðun sem ekki feli í sér heimild til framkvæmda geti úrskurðarnefndin með sömu skilmálum frestað réttaráhrifum hennar komi fram um það beiðni af hálfu kæranda, sbr. 3. mgr. sömu lagagreinar. Með sama hætti er kveðið á um það í 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar en þó sé heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar til bráðabirgða meðan málið sé til meðferðar hjá kærustjórnvaldi þar sem ástæður mæli með því. Tilvitnuð lagaákvæði bera með sér að meginreglan sé sú að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og eru heimildarákvæði fyrir frestun réttaráhrifa kærðrar ákvörðunar undantekning frá nefndri meginreglu sem skýra beri þröngt. Verði því að vera ríkar ástæður eða veigamikil rök fyrir ákvörðun um að fresta réttaráhrifum.
- Tekið er fram í athugasemdum með 5. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 130/2011 að ákvæði greinarinnar byggist á almennum reglum stjórnsýsluréttar um réttaráhrif kæru og heimild úrskurðaraðila til að fresta réttaráhrifum ákvörðunar, sbr. 29. gr. stjórnsýslulaga. Í athugasemdum með þeirri grein í frumvarpi til stjórnsýslulaga er tiltekið að heimild til frestunar réttaráhrifa þyki nauðsynleg þar sem kæruheimild geti ella orðið þýðingarlaus. Þar kemur einnig fram að almennt mæli það á móti því að réttaráhrifum ákvörðunar sé frestað ef fleiri en einn aðili sé að máli og þeir eigi gagnstæðra hagsmuna að gæta. Það mæli hins vegar með því að fresta réttaráhrifum ákvörðunar ef aðili máls sé aðeins einn og ákvörðun er íþyngjandi fyrir hann, veldur honum t.d. tjóni.
- Í máli þessu er um að ræða samþykki á byggingarleyfisumsókn vegna breyttrar notkunar atvinnuhúsnæðis, en af gögnum málsins verður ráðið að umsækjandi hafi um nokkurt skeið rekið þá starfsemi sem mál þetta varðar. Að virtum málsatvikum og þeim sjónarmiðum sem rakin hafa verið hér að framan þykir ekki rétt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar, enda liggja ekki fyrir knýjandi ástæður sem gera það að verkum að varhugavert sé að bíða niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar um ágreiningsefni máls þessa.
Úrskurðarorð
Hafnað er kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar bæjarstjórnar Garðabæjar frá 3. september 2026 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi fyrir veislusal til útleigu á spildu A úr landi Grundar á Álftanesi.
