Úrskurðarorð
Hafnað er kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða á grundvelli hinnar kærðu ákvörðunar byggingarfulltrúa.
Árið 2026, miðvikudaginn 7. október, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. UUA2609008, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík um að samþykkja byggingarleyfisumsókn vegna breytinga á innra skipulagi í kjallara og á 1. hæð fyrir veitingastað í flokki II að Vesturgötu 3 í Reykjavík.
Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur
- Með ódagsettu bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 9. september 2026, kæra A, B, C, D og E, eigendur íbúða í fjöleignarhúsinu að Vesturgötu 3, Reykjavík, þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík að samþykkja byggingarleyfisumsókn vegna breytinga á innra skipulagi í kjallara og á 1. hæð fyrir veitingastað í flokki II að Vesturgötu 3 í Reykjavík. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi og til vara að sá hluti ákvörðunarinnar sem snúi að framkvæmdum á ytra byrði hússins verði felld úr gildi.
- Þess er að auki krafist að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar verði frestað og að framkvæmdir verði stöðvaðar á meðan kæran er til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Þar sem um er að ræða kæru vegna samþykktar á byggingarleyfisumsókn verður tekin afstaða til kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda, en krafa um frestun réttaráhrifa á ekki við í máli þessu.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Reykjavíkurborg 22. september 2026.
Málsatvik og rök
- Með umsókn, dags. 20. maí 2026, sótti M 14 ehf. um byggingarleyfi fyrir breytingu á starfsemi veitingahúss í kjallara og á 1. hæð hússins að Vesturgötu 3 í Reykjavík. Sótt var um leyfi til að breyta innra skipulagi í kjallara og á fyrstu hæð fyrir veitingastað í flokki II, fyrir 155 gesti í rými 0101 í veitinga- og íbúðarhúsi, mhl. 01. Fyrir var í húsinu kaffihús fyrir 159 manns, en íbúðir á 2. og 3. hæð þess.
- Á fundi húsfélags Vesturgötu 3 hinn 28. s.m. var tekin fyrir tillaga um að fyrirhuguð starfsemi M 14 ehf. í húsnæðinu fæli í sér breytingu á hagnýtingu séreignar sem hefði í för með sér verulega meira ónæði, röskun og óþægindi fyrir aðra eigendur, umfram það sem áður hefði verið og búast hefði mátt við, sbr. 1. mgr. 27. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Lagði fyrirsvarsmaður M 14 ehf. fram mótmæli við tillögunni. Var tillagan samþykkt með atkvæðum fimm eigenda gegn atkvæði eins.
- Með bréfi, dags. 11. júní s.á., sendu kærendur byggingarfulltrúa og Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur athugasemdir við byggingar- og starfsleyfisumsóknir vegna fyrirhugaðrar starfsemi í umræddu húsi. Töldu kærendur að ekki væru skilyrði að lögum til að samþykkja byggingar- og starfsleyfisumsóknir fyrir Vesturgötu 3 og gerðu kröfu um að umsóknunum yrði hafnað. Voru í kjölfarið gerðar breytingar á umsókninni þannig að hún tæki eingöngu til framkvæmda innanhúss. Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 5. ágúst s.á. var umsóknin samþykkt, en samkvæmt samþykktum aðaluppdráttum er um að ræða breytingar á innra skipulagi í kjallara og á fyrstu hæð og engin breyting er gerð á útliti hússins.
- Kærendur höfðu samband við byggingarfulltrúa með tölvupósti 4. september s.á. og greindu frá því að iðnaðarmenn væru í framkvæmdum við útsogsrör utanhúss. Bent var á að samkvæmt samþykktri byggingarleyfisumsókn væru einungis heimilaðar framkvæmdir innanhúss og því væri um óleyfisframkvæmdir að ræða. Var þess krafist að byggingarfulltrúi gripi til viðeigandi ráðstafana og stöðvaði framkvæmdir við útsogsrör og ytra byrði hússins. Í kjölfar frekari samskipta upplýsti byggingarfulltrúi að ekki væri verið að gera útlitslegar breytingar á húsinu heldur fælu framkvæmdirnar eingöngu í sér endurnýjun stokks á útsogsröri í samræmi við athugasemdir Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
- Kærendur vísa til þess að þar sem framkvæmdir séu þegar hafnar á ytra byrði og sameiginlegu lagnakerfi fjöleignarhússins, án samþykkis húsfélagsins, og í trássi við orðalag samþykktra hönnunargagna sé brýnt að framkvæmdir verði stöðvaðar til að koma í veg fyrir frekara óafturkræft tjón á sameign og verndargildi hússins. Þá muni kærendur bíða tjóns af opnun fyrirhugaðs veitingastaðar ef framkvæmdum ljúki.
- Af hálfu Reykjavíkurborgar er þess krafist að kröfum kærenda um frestun réttaráhrifa og stöðvun framkvæmda verði hafnað með vísan til 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála og 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, svo og þeirra sjónarmiða sem búi að baki ákvæðunum. Framkvæmdirnar séu afturkræfar og því verði ekki talið að knýjandi þörf sé á að stöðva þær meðan málið sé til meðferðar hjá nefndinni. Þá verði ekki séð að kæran verði þýðingarlaus þótt réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar verði ekki frestað á meðan.
- Leyfishafi fer fram á að kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda verði hafnað. Það að framkvæmd sé hafin eða yfirvofandi leiði ekki til stöðvunar heldur verði að meta hvort sérstakar aðstæður séu fyrir hendi, einkum með hliðsjón af hættu á tjóni sem erfitt eða ómögulegt yrði að bæta síðar, afturkræfni framkvæmda, raunhæfri vernd kæruréttar og gagnstæðum hagsmunum aðila. Framkvæmdum þeim sem stöðvunarkrafa kærenda beinist að sé lokið og því engar yfirstandandi eða yfirvofandi framkvæmdir til staðar sem unnt sé að stöðva með bráðabirgðaúrskurði nefndarinnar. Stöðvun geti því ekki þjónað þeim tilgangi að koma í veg fyrir frekara meint óafturkræft tjón.
Niðurstaða
- Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála segir að kæra til nefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar. Kærandi geti þó krafist úrskurðar um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða séu þær hafnar eða yfirvofandi, sbr. 2. mgr. lagagreinarinnar, og getur úrskurðarnefndin með sömu skilmálum frestað réttaráhrifum ákvörðunar sem ekki felur í sér stöðvun framkvæmda, sbr. 3. mgr. Um undantekningu er að ræða frá þeirri meginreglu sem fram kemur í 1. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar.
- Í máli þessu er gerð krafa um stöðvun framkvæmda á grundvelli samþykkts byggingarleyfis sem felur í sér leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi í kjallara og á 1. hæð fyrir veitingastað í flokki II að Vesturgötu 3 í Reykjavík. Samkvæmt þeim upplýsingum sem liggja fyrir úrskurðarnefndina er öllum framkvæmdum á grundvelli hins kærða byggingarleyfis lokið. Með hliðsjón af því verður að líta svo á að ekki sé til dreifa þeim lögbundnu skilyrðum fyrir stöðvun framkvæmda á grundvelli 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 að framkvæmdir séu annað hvort hafnar eða yfirvofandi. Verður kröfu kærenda þar um því hafnað.
Úrskurðarorð
Hafnað er kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða á grundvelli hinnar kærðu ákvörðunar byggingarfulltrúa.
