Úrskurðarorð
Vísað er frá kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda á grundvelli hinnar kærðu deiliskipulagsákvörðunar.
Hafnað er kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu deiliskipulagsákvörðunar.
Árið 2026, þriðjudaginn 15. september, tók Unnþór Jónsson, varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, sbr. 1. mgr. 2. gr., fyrir:
Mál nr. UUA2609005, kæra á ákvörðun bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar frá 3. júní 2026 um að samþykkja deiliskipulag Gauksstaða (L196408).
Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 4. september 2026, er barst nefndinni sama dag, kæra eigendur Sunnubrautar 25, Gauksstaðavegar 6, Gauksstaðavegar 2, Varavegar 8, Varavegar 9, Gauksstaðavegar 4, Sunnubrautar 28, og Gauksstaða L130742, þá ákvörðun bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar frá 3. júní 2026 að samþykkja deiliskipulag fyrir Gauksstaði (L196408). Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi.
- Kærendur gera einnig kröfu um að allar framkvæmdir á skipulagssvæðinu verði stöðvaðar til bráðabirgða á meðan kæran er til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Jafnframt er þess krafist að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar verði frestað. Verður nú tekin afstaða til þessara krafna.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Suðurnesjabæ 14. september 2026.
Málsatvik og rök
- Með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 158/2025, dags. 27. febrúar 2026, var felld úr gildi ákvörðun bæjarráðs Suðurnesjabæjar frá 25. júní 2025 um að samþykkja tillögu að deiliskipulagi Gauksstaða (L196408), en í tillögunni fólst að útbúa á landareigninni gistirými í ferðaþjónustuhúsum auk þjónustubyggingar. Taldi úrskurðarnefndin að með því að bæta umhverfismati skipulagsins við eftir kynningarferli hefði tillögunni verið breytt í grundvallaratriðum og því hefði borið að auglýsa hana að nýju, sbr. 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
- Tillaga að deiliskipulagi Gauksstaða var auglýst að nýju 13. mars 2026 með umsagnarfresti til og með 27. apríl s.á. Á fundi bæjarráðs 27. maí s.á. var tillaga að deiliskipulagi Gauksstaða samþykkt og málinu vísað til staðfestingar hjá bæjarstjórn sem staðfesti afgreiðsluna á fundi sínum 3. júní s.á. Tók deiliskipulagið gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda 6. ágúst 2026.
- Kærendur vísa til þess að þegar hafi borist umsókn um framkvæmdaleyfi vegna sjóvarna við Gauksstaði. Í útboðsteikningu vegna þeirra komi fram að fyrirhuguð sjóvörn og landfylling séu útfærðar sem samofin framkvæmd. Um sé að ræða umfangsmiklar ráðagerðir sem séu óafturkræfar og vafasamar að formi og efni til. Umsóknin hafi verið samþykkt af framkvæmda- og skipulagsráði og bæjarstjórn hafi heimilað skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi á grundvelli innsendra hönnunargagna. Framkvæmdaleyfið bíði einungis formlegrar útgáfu skipulagsfulltrúa og því sé yfirvofandi hætta á að framkvæmdir á svæðinu hefjist áður en úrskurðarnefndin hafi tekið kæruna til efnislegrar afgreiðslu. Nauðsynlegt sé að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar verði frestað og að framkvæmdir verði stöðvaðar til bráðabirgða á meðan málið sé til meðferðar.
- Af hálfu Suðurnesjabæjar er vísað til þess að gildistaka deiliskipulags feli ekki í sér heimildir til að hefja framkvæmdir og því sé að jafnaði ekki tilefni til að beita heimild til stöðvunar framkvæmda eða frestunar réttaráhrifa í kærumálum er varði gildi deiliskipulagsákvarðana. Þar sem deiliskipulagsákvörðun ein og sér veiti ekki leyfi til að hefja framkvæmdir séu framkvæmdir yfirleitt hvorki hafnar né heldur þurfi sérstaka stjórnvaldsákvörðun, svo sem veiting byggingar- eða framkvæmdaleyfis. Hafna beri kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda, enda liggi ekki fyrir kæra á framkvæmdaleyfi.
- Af hálfu leyfishafa er gerð krafa um að synjað verði um frestun réttaráhrifa og stöðvun framkvæmda.
Niðurstaða
- Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar, en jafnframt er kæranda þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda til bráðabirgða séu þær hafnar eða yfirvofandi. Þá getur úrskurðarnefndin með sömu skilmálum frestað réttaráhrifum ákvörðunar sem felur ekki í sér heimild til framkvæmda, komi fram krafa um það af hálfu kæranda, sbr. 3. mgr. nefndrar 5. gr. Með hliðsjón af orðalagi ákvæðisins kemur einungis til álita að taka fyrir kröfu um stöðvun framkvæmda þegar hin kærða ákvörðun felur í sér heimild til framkvæmda. Með því að hin kærða ákvörðun felur ekki í sér slíka heimild verður að vísa frá kröfu kærenda þar að lútandi.
- Kveðið er á um það í 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar, en þó sé heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar til bráðabirgða meðan málið er til meðferðar hjá kærustjórnvaldi þar sem ástæður mæli með því. Tilvitnuð lagaákvæði bera með sér að meginreglan sé sú að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og ber að skýra undanþágur frá þeirri meginreglu þröngt. Verða því að vera ríkar ástæður eða veigamikil rök fyrir ákvörðun um stöðvun framkvæmda og frestun réttaráhrifa. Þá hefur þýðingu hvort kæruheimild kunni að vera þýðingarlaus ef réttaráhrifum ákvörðunarinnar verði ekki frestað, sbr. athugasemdir við 5. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 130/2011.
- Sem fyrr greinir felur hið kærða deiliskipulag ekki í sér heimild til þess að hefja framkvæmdir heldur þarf að koma til sérstök stjórnvaldsákvörðun, t.a.m. ákvörðun sveitarstjórnar um að samþykkja framkvæmdaleyfi eða ákvörðun byggingarfulltrúa um samþykkt byggingaráforma. Í kærumáli vegna slíkra stjórnvaldsákvarðana er unnt að gera kröfu um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða samkvæmt tilvitnaðri 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011, enda framkvæmdir fyrst þá yfirvofandi í skilningi 2. málsliðar ákvæðisins. Er því að jafnaði ekki tilefni til að fresta réttaráhrifum í kærumáli er varðar gildi skipulagsákvörðunar.
- Með hliðsjón af framangreindu og þar sem ekki verður séð að kæra verði þýðingarlaus þótt réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar verði ekki frestað á meðan málið er til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni verður kröfu kærenda þess efnis hafnað.
Úrskurðarorð
Vísað er frá kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda á grundvelli hinnar kærðu deiliskipulagsákvörðunar.
Hafnað er kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu deiliskipulagsákvörðunar.
