Hafnað er kröfu kæranda um að leggja fyrir Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að taka erindi kæranda um beitingu þvingunarúrræða til afgreiðslu án frekari tafa.
Árið 2026, miðvikudaginn 4. nóvember, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Unnþór Jónsson varaformaður, Aðalheiður Jóhannsdóttir prófessor og Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður.
Fyrir var tekið mál nr. UUA2609003, kæra vegna óhæfilegs dráttar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á afgreiðslu erinda vegna kvartana um hávaða frá atvinnustarfsemi Tjarnarbíós að Tjarnargötu 12.
- Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 3. september 2026, kærir húsfélag Suðurgötu 15 óhæfilegan drátt Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á afgreiðslu erinda kæranda vegna kvartana um hávaða frá atvinnustarfsemi Tjarnarbíós að Tjarnargötu 12. Er þess krafist að tekin verði afstaða til þess hvort um óhæfilegan drátt á afgreiðslu máls sé að ræða og að lagt verði fyrir Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að afgreiða erindi kæranda án frekari tafa.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur 7. október 2026.
Málavextir
- Fyrir hönd kæranda voru með tölvupóstum til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 21. og 24. apríl 2026, lagðar fram kvartanir vegna hávaða frá starfsemi Tjarnarbíós að Tjarnargötu 12. Í erindunum var m.a. farið fram á að opnað yrði formlegt eftirlitsmál, að framkvæmdar yrðu hljóðmælingar í íbúðum að Suðurgötu 15 og að ástand hljóðbúnaðar yrði skoðað. Þá fór kærandi fram á að Heilbrigðiseftirlitið tæki formlega ákvörðun um úrbætur og að viðeigandi þvingunarúrræðum yrði beitt.
- Með tölvupósti starfsmanns Heilbrigðiseftirlitsins 27. apríl 2026 var rekstraraðila Tjarnarbíós tilkynnt um framkomnar kvartanir og óskað upplýsinga um það hvort aflað væri gagna um hljóðstyrk á sýningum og hvaða sýningar hefðu verið í húsinu 17. og 21. s.m. Hinn sama dag var upplýst af hálfu rekstraraðila Tjarnarbíós að hljóðstyrkur í húsinu væri mældur og að þess væri gætt að hann færi ekki yfir leyfileg mörk. Þó hefðu mistök verið gerð 17. s.m. þegar hljóð hafi verið spiluð í röngum hátölurum, þ.e. utan sals, í stutta stund.
- Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur við meðferð málsins átt í nokkrum samskiptum við kæranda og rekstraraðila Tjarnarbíós. Í tölvupósti kæranda til Heilbrigðiseftirlitsins, dags. 15. maí 2026, var krafist tafarlausrar íhlutunar vegna hávaða frá starfseminni og jafnframt óskað upplýsinga um hvaða aðgerða Heilbrigðiseftirlitið hygðist grípa til og hvenær. Hinn 18. s.m. sendi starfsmaður eftirlitsins tölvupóst til rekstraraðila og ítrekaði beiðni um gögn um mælingar á hljóðstyrk og óskaði eftir að fá viðburðadagskrá, en þann sama dag var kærandi upplýstur um framgang málsins. Rekstraraðili Tjarnarbíós sendi viðburðadagskrá til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur 3. júní 2026 og 5. s.m. sendi hann „öll gögn og þær úrbætur sem orðið hafi hér í húsi tengt mælingum og hljóðmælingarbúnaði.“
- Hinn 13. júlí 2026 ítrekaði kærandi fyrri erindi sín og óskaði eftir því að Heilbrigðiseftirlitið tæki formlega afstöðu til málsins. Jafnframt var óskað upplýsinga um stöðu þess, hvort það hefði verið tekið til meðferðar og hvenær mætti vænta niðurstöðu í málinu. Með tölvupósti 17. s.m. upplýsti Heilbrigðiseftirlitið kæranda um að gögn hefðu borist frá rekstraraðilum Tjarnarbíós og að farið yrði yfir þau þegar starfsfólk sem hefði reynslu af slíkum málum kæmi til baka úr sumarleyfi. Þá var að auki upplýst að hljóðmælingar hefðu ekki farið fram í ljósi þess að engir viðburðir hefðu verið á dagskrá sem þættu líklegir til að valda ónæði. Hinn 26. ágúst s.á. óskaði kærandi eftir upplýsingum um stöðu málsins og hvenær hljóðmælingar væru fyrirhugaðar. Var fyrirspurnin ítrekuð með tölvupóstum 1., 3. og 14. september s.á.
- Eftir að kæran barst úrskurðarnefndinni óskaði Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur eftir frekari gögnum frá rekstraraðila Tjarnarbíós með tölvupósti 7. september 2026. Meðal þeirra gagna sem óskað var eftir voru niðurstöður hljóðstigsvöktunar fyrir síðustu fjórar sýningar í sal Tjarnarbíós. Hinn 14. s.m. upplýsti Heilbrigðiseftirlitið kæranda um að yfirferð á gögnum frá rekstraraðila væri lokið. Gögnin hefðu bent til þess að gerðar hefðu verið úrbætur á húsnæði Tjarnarbíós sem draga ættu úr ónæði. Þá var upplýst að óskað hefði verið eftir niðurstöðum hljóðstigsvöktunar frá rekstraraðilanum og að skipulagðar yrðu hljóðmælingar þegar þær mælingar hefðu borist.
Málsrök kæranda
- Af hálfu kæranda er vísað til þess að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafi tekið kvörtun þeirra til meðferðar 15. maí 2026. Kærandi hafi fengið þær upplýsingar að fyrirhugað væri að framkvæma hljóðmælingar vegna starfseminnar að Tjarnargötu 12 og að samantekt kvartana yrði send sýslumanni. Frá þeim tíma hafi kærandi ítrekað óskað eftir upplýsingum en þrátt fyrir það liggi hvorki fyrir efnisleg niðurstaða né skýr tímasetning á úrlausn málsins.
Málsrök Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
- Af hálfu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er krafist frávísunar í málinu þar sem ekki liggi fyrir kæranleg stjórnsýsluákvörðun. Í kjölfar kvartana kæranda hafi rekstraraðila Tjarnarbíós verið tilkynnt um framkomnar kvartanir og óskað nánari upplýsinga um viðburði í húsinu og gagna um hljóðstyrk á sýningum. Gögn rekstraraðila hafi borist 5. júní s.á. en við yfirferð hafi komið í ljós að einhver gögn hefðu ekki skilað sér, m.a. niðurstöður hljóðstyrksmælinga. Heilbrigðiseftirlitið hafi óskað eftir frekari gögnum með tölvupósti 7. september 2026. Beiðnin hafi svo verið ítrekuð 30. s.m. Erindi kæranda sé því enn í vinnslu hjá Heilbrigðiseftirlitinu, en með hliðsjón af rannsóknarskyldu stjórnvalda sé ekki um að ræða óeðlilegan málshraða. Eftirlitið hafi fáa hljóðmæla og sé þeim úthlutað í þau verkefni þar sem kvartanir séu töluverðar. Þá hafi illa gengið að afla upplýsinga frá rekstraraðila auk þess sem mikið álag sé á starfsfólki Heilbrigðiseftirlitsins sem valdi því að verkefni séu ekki unnin jafn hratt og vilji standi til.
Viðbótarathugasemdir kæranda
- Kærandi telur engar forsendur fyrir frávísun kærumálsins þótt ekki liggi fyrir endanleg ákvörðun í málinu. Málið eigi sér langa sögu, en kvartað hafi verið undan hávaða frá starfsemi í Tjarnarbíói allt frá árinu 2010. Því verði að skoða málið með tilliti til forsögu þess og taka rökstudda afstöðu til þess hvort núverandi varnir séu fullnægjandi. Bent sé á kæruheimild vegna óhæfilegs dráttar á afgreiðslu máls í 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, en slíkur dráttur geti ekki verið réttlættur vegna tafa rekstraraðila á afhendingu gagna.
- Meta þurfi sérstaklega hvort Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafi nýtt heimildir sínar til rannsóknar málsins án óþarfa tafa. Jafnframt hafi Heilbrigðiseftirlitið ekki veitt skýr svör við fyrirspurnum kæranda, svo sem varðandi búnað til að stilla hljóð eða hvenær ákvörðunar í málinu sé að vænta, sbr. 9. gr. stjórnsýslulaga. Þá hafi stjórnvaldið ekki upplýst um hvaða eftirlitsaðgerðir eða önnur úrræði hafi verið metin eða beitt til að afla nauðsynlegra upplýsinga.
Niðurstaða
- Kæra í máli þessu lýtur að drætti á afgreiðslu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á erindum kæranda vegna hávaða frá starfsemi Tjarnarbíós að Tjarnargötu 12. Samkvæmt 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er unnt að kæra óhæfilegan drátt á afgreiðslu máls til þess stjórnvalds sem ákvörðun í málinu verður kærð til. Verður kærumáli þessu því ekki vísað frá af þeirri ástæðu að engin kæranleg stjórnvaldsákvörðun hafi verið tekin í málinu, eins og Heilbrigðiseftirlitið gerir kröfu um.
- Í erindum kæranda var þess m.a. krafist að gripið yrði til aðgerða, svo sem hljóðmælinga, úttektar á búnaði og að lagt yrði fyrir rekstraraðila að gera viðeigandi úrbætur. Á grundvelli reglugerðarheimildar laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir hefur verið sett reglugerð nr. 724/2008 um hávaða, en reglugerðin hefur það að markmiði að koma í veg fyrir eða draga úr skaðlegum áhrifum af völdum hávaða. Í reglugerðinni er að finna ýmsar eftirlitsheimildir Heilbrigðisnefnda, svo sem um hljóðmælingar, sbr. 11. gr., og þvingunarúrræði til að knýja á um framkvæmd ráðstöfunar samkvæmt reglugerðinni, sbr. 12. gr. Samkvæmt 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 sæta stjórnvaldsákvarðanir sem teknar eru á grundvelli nefndrar reglugerðar kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Er málinu því réttilega beint til úrskurðarnefndarinnar, sbr. 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, enda ljóst að málinu getur lyktað með töku stjórnvaldsákvörðunar sem kæranleg er til úrskurðarnefndarinnar.
- Við úrlausn á því hvort um óhæfilegan drátt á afgreiðslu máls sé að ræða er til þess að líta að skv. 10. gr. stjórnsýslulaga ber stjórnvöldum að sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Fyrir liggur að þegar erindi kæranda var tekið til meðferðar af hálfu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur var óskað eftir gögnum frá rekstraraðila Tjarnarbíós. Þá hefur komið fram af hálfu Heilbrigðiseftirlitsins að yfirferð á gögnum hafi tafist sökum sumarleyfa en henni sé nú lokið. Hefur stjórnvaldið vísað til þess að fullnægjandi gögn hefðu ekki borist, m.a. niðurstöður hljóðstigsvöktunar í sal Tjarnarbíós. Eftir að kæra í málinu barst úrskurðarnefndinni óskaði stjórnvaldið eftir frekari gögnum frá rekstraraðilum og var kærandi jafnframt upplýstur um þá beiðni. Eins og atvikum er háttað í máli þessu verður ekki séð að óhæfilegur dráttur hafi orðið á afgreiðslu erindi kæranda, sem enn er til meðferðar hjá Heilbrigðiseftirlitinu.
Úrskurðarorð
Hafnað er kröfu kæranda um að leggja fyrir Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að taka erindi kæranda um beitingu þvingunarúrræða til afgreiðslu án frekari tafa.
