Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
Árið 2026, mánudaginn 12. október, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir:
Mál nr. UUA2608007, kæra á ákvörðun Grímsnes- og Grafningshrepps frá 13. apríl 2026 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs, L168229.
- Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 12. ágúst 2026, kærir eigandi fasteignarinnar að Suðurbakka 20, þá ákvörðun Grímsnes- og Grafningshrepps frá 13. apríl 2026 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs, L168229, vegna niðurfellingu 11 lóða við svonefndan Sólbakka. Skilja verður málskot kæranda svo að þess sé krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Grímsnes- og Grafningshreppi 17. september 2026.
Málsatvik og rök
- Hinn 13. apríl 2026 samþykkti sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs, L168229. Breytingin felst í niðurfellingu 11 lóða við Sólbakka úr deiliskipulaginu og minnkun skipulagssvæðisins úr 218ha í 203ha. Tillagan var auglýst á tímabilinu 16. apríl 2026 til 29. maí s.á. og tók deiliskipulagsbreytingin gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda 14. júlí 2026.
- Af hálfu kæranda eru gerðar athugasemdir við skipulagsgerð í Ásgarðslandi í Grímsnesi, í grennd við Sogið, þar með talið tíðar breytingar á skipulaginu á síðustu árum sem haft hafi áhrif á ásýnd og notkun svæðisins. Þá bendir kærandi á ósamræmi í málsmeðferð sveitarfélagsins hvað varði heiti þeirra lóða sem deiliskipulagsbreytingin taki til. Af hálfu Grímsnes- og Grafningshrepps er talið óljóst hvaða hagsmuni kærandi hafi af málinu og sé erfitt um vik að greina hvert hið raunverulega ágreiningsefni sé og veita umsögn um það.
Niðurstaða
- Í máli þessu er deilt um þá ákvörðun sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi frístundasvæðis í landi Ásgarðs, L168229, vegna niðurfellingu Sólbakka úr deiliskipulaginu. Kæruheimild til úrskurðarnefndarinnar er í 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og barst kæra innan kærufrests.
- Samkvæmt 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála geta þeir einir kært stjórnvaldsákvörðun til úrskurðarnefndarinnar sem eiga lögvarða hagsmuni tengda ákvörðun sem kæra á. Að stjórnsýslurétti hefur skilyrðið um lögvarða hagsmuni fyrir kæruaðild verið túlkað svo að þeir einir teljist aðilar kærumáls sem eigi einstaklegra hagsmuna að gæta af úrlausn máls, umfram aðra, og að þeir hagsmunir séu verulegir.
- Kærandi hefur í máli þessu vísað til hagsmuna sinna sem eiganda lóðar innan deiliskipulagssvæðis í Ásgarðslandi en lóð hans liggur um leið allfjarri þeim lóðum sem felldar voru úr skipulaginu með hinni kærðu ákvörðun. Verður ekki séð hvernig ákvörðunin snerti persónulega lögvarða hagsmuni hans umfram aðra. Verður af þeim sökum að álíta að kærandi eigi ekki kæruaðild í máli þessu í skilningi 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011. Verður kröfu hans í málinu því vísað frá úrskurðarnefndinni.
Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
