Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 142/2026 · Mál nr. UUA2608001 · Kveðinn upp 15. október 2026

Hamravík

Ógildingu hafnað
Úrskurðarorð

Hafnað er kröfu kæranda um að ógilda þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 30. júlí 2026 að synja beiðni um beitingu þvingunarúrræða vegna skjólveggjar á mörkum lóða Hamravíkur 50 og 52.

Árið 2026, fimmtudaginn 15. október, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Unnþór Jónsson varaformaður, Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður og Þorsteinn Þorsteinsson byggingar­verkfræðingur.

Fyrir var tekið mál nr. UUA2608001, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 30. júlí 2026 um að synja beiðni um beitingu þvingunarúrræða vegna skjólveggjar á mörkum lóða Hamravíkur 50 og 52.

  1. Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 3. ágúst 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir eigandi, Hamravík 50, þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 30. júlí s.á. að synja beiðni um beitingu þvingunarúrræða vegna skjólveggjar á mörkum lóða Hamra­víkur 50 og 52. Skilja verður málskot kæranda svo að þess sé krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
  1. Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Reykjavíkurborg 18. ágúst 2026.

Málavextir

  1. Hinn 30. mars 2026 sendi kærandi bréf til byggingarfulltrúa Reykjavíkur þess efnis að við lóðamörk Hamravíkur 50 og 52 stæði skjólveggur sem að hluta til hefði verið reistur án samþykkis kæranda. Krafðist kærandi þess að eigendum fasteignarinnar að Hamravík 52 yrði gert að fjarlægja umræddan hluta veggjarins. Í kjölfarið fór fram úttekt á vettvangi á vegum eftirlitsdeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur þar sem veggurinn mældist 187 cm þar sem hann var hæstur.
  1. Með bréfi byggingarfulltrúans til eigenda Hamravíkur 52, dags. 8. júní, var tilkynnt að um byggingarleyfisskylda framkvæmd væri að ræða og þeim veittur 30 daga frestur til þess að leggja fram undirritað samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóðar. Í svari þeirra, er barst Reykja­víkur­borg 30. s.m., kom fram að umræddur skjólveggur hafi verið reistur á árunum 2004 til 2005 og hefði honum ekki verið breytt frá þeim tíma að öðru leyti en því að hann hefði verið færður um 60 cm að lóðarmörkum. Veggurinn hefði staðið á lóðinni í um 17 til 18 ár án athugasemda frá nágrönnum eða sveitarfélaginu. Því væri óeðlilegt að gerð væri krafa um að hann yrði fjarlægður í ljósi þess að eina breytingin hefði verið tilfærsla hans að lóðarmörkum. Hinn 5. júlí 2026 sendu eigendurnir að Hamravík 52 frekari skýringar á málinu til borgarinnar þar sem fram kom að skjólveggurinn hefði upphaflega verið reistur með samþykki kæranda, en síðar hefði komið í ljós að hluti hans stæði ekki á lóðarmörkum og því hafi staðsetning hans verið „leiðrétt“ á árinu 2022.
  1. Málið var tekið fyrir á fundi byggingarfulltrúa og deildar afnota og eftirlits 23. júlí 2026. Í fundargerð var bókað að í ljósi þess að ekki hefði náðst samkomulag á milli eigenda Hamra­víkur 50 og 52 hafi byggingarfulltrúi skoðað erindið að nýju. Mat byggingarfulltrúa væri það að um byggingarleyfisskylda framkvæmd væri að ræða þar sem girðingin væri 187 cm að hæð. Byggingarfulltrúi hygðist þó ekki beita þvingunarúrræðum þar sem ekki væri séð að almanna- og öryggishagsmunum væri raskað. Með bréfi byggingarfulltrúa, dags. 30. júlí, var kæranda tilkynnt um ákvörðun embættisins.

Málsrök kæranda

  1. Kærandi bendir á að skjólveggur við lóðamörk Hamravíkur 50 og 52 hafi verið reistur í tvennu lagi. Fyrri hluti veggjarins hafi verið reistur af fyrri eigendum Hamravíkur 52 á árinu 2002 með samþykki eiganda Hamravíkur 50. Síðari hluti veggjarins hafi verið reistur á árunum 2022 eða 2023 af núverandi eigendum Hamravíkur 52. Það hafi verið gert án samþykkis og gegn vilja kæranda. Þegar eigandi Hamravíkur 52 hafi hafið undirbúning framkvæmdanna hafi kærandi tjáð honum að hann væri mótfallinn þeim. Þá hafi ekki verið reynt að ná neinu samkomulagi við kæranda.
  1. Skjólveggurinn nái núna þaðan sem eldri veggurinn hafi staðið og út að lóðarmörkum. Hæð veggjarins sé allt frá 142,0 cm upp í 193,5 cm. Ljóst sé að um byggingarleyfisskylda fram­kvæmd sé að ræða skv. gr. 2.3.1. í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Þá eigi undanþáguákvæði e-liðar 2. mgr. gr. 2.3.5. ekki við. Hvorki byggingarleyfi né samþykki kæranda liggi fyrir vegna framkvæmdarinnar.

Málsrök Reykjavíkurborgar

  1. Af hálfu Reykjavíkurborgar kemur fram að við meðferð málsins hafi byggingarfulltrúi aflað skýringa frá eigendum Hamravíkur 52 og látið framkvæma vettvangsskoðun. Byggingarfulltrúi hafi komist að þeirri niðurstöðu að um byggingarleyfisskylda framkvæmd væri að ræða þar sem samþykki eigenda aðliggjandi lóðar hafi ekki legið fyrir.
  1. Þótt byggingarfulltrúa sé heimilt að beita þvingunarúrræðum samkvæmt 55. og 56. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki séu slík úrræði matskennd og honum ekki skylt að beita þeim í hverju tilviki. Byggingarfulltrúi hafi ekki talið umrædda girðingu raska almanna- eða öryggis­hagsmunum þeim sem mannvirkjalögum er ætlað að vernda og því hafi verið ákveðið að beita ekki þvingunarúrræðum.
  1. Ekki hafi verið sýnt fram á að rannsókn málsins hafi verið áfátt eða að mat byggingarfulltrúa hafi byggst á röngum forsendum. Ákvörðunin hafi því verið tekin á grundvelli fullnægjandi upplýsinga og innan þess mats sem byggingarfulltrúa er falið samkvæmt mannvirkjalögum. Þá hafi ekkert komið fram í málinu sem valdið geti ógildingu hinnar kærðu ákvörðunar.

Athugasemdir framkvæmdaraðila

  1. Af hálfu eigenda Hamravíkur 52 kemur fram að á árinu 2022 hafi hluti girðingar á lóð þeirra verið færður að lóðarmörkum, en hæð og útliti girðingarinnar hafi ekki verið breytt. Sátta­umleitan við kæranda hafi farið fram munnlega en samkomulag hafi ekki náðst. Þá hafi eigendur Hamravíkur 52 fengið þær upplýsingar frá fyrri eigendum að munnlegt samkomulag hafi verið gert við kæranda um að leiðrétta legu umræddrar girðingar á lóðinni.
  1. Framkvæmdin á lóð Hamravíkur 52 sé lítil í umfangi og girðingin hafi staðið þar frá árinu 2022. Ekki hafi verið sýnt fram á hættu, heilsutjón eða veruleg áhrif og því sé ákvörðun um að beita ekki þvingunarúrræðum eðlileg og málefnaleg. Við mat á nauðsyn slíkra úrræða skipti máli að kærandi hafi ekki leitað formlega til byggingarfulltrúa fyrr en um fjórum árum eftir að framkvæmdin hafi farið fram. Þá hafi málið verið rannsakað á vettvangi og ákvörðun byggð á mælingum, ljósmyndum og mati á raunverulegum áhrifum girðingarinnar. Því sé ekki sýnt fram á annmarka sem réttlæti að ákvörðuninni verði hnekkt.

Niðurstaða

  1. Í máli þessu er deilt um lögmæti þeirrar ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 30. júlí 2026 að beita ekki þvingunarúrræðum 55. og 56. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki vegna skjólveggjar á lóðamörkum Hamravíkur 50 og 52.
  1. Það er hlutverk byggingarfulltrúa hvers sveitarfélags að hafa eftirlit með því að mannvirki og notkun þeirra séu í samræmi við útgefin leyfi og beita eftir atvikum þvingunarúrræðum. Í 1. mgr. 55. gr. laga um mannvirki er að finna fyrirmæli er varða heimild leyfisveitanda til að stöðva framkvæmdir eða notkun og fyrirskipa lokun mannvirkis. Þá er kveðið á um það í 2. mgr. 55. gr. laganna að sé byggingarframkvæmd hafin án þess að leyfi sé fengið fyrir henni eða hún brjóti í bága við skipulag geti byggingarfulltrúi krafist þess að hið ólöglega mannvirki eða byggingarhluti sé fjarlægt. Einnig er fjallað um aðgerðir til að knýja fram úrbætur í 56. gr. laganna. Er þar m.a. tekið fram í 1. mgr. að sé ásigkomulagi, frágangi, umhverfi eða viðhaldi húss, annars mannvirkis eða lóðar ábótavant að mati byggingarfulltrúa eða frágangur ekki samkvæmt samþykktum uppdráttum, lögum, reglugerðum og byggingarlýsingu, skuli gera eiganda eða umráðamanni eignarinnar aðvart og leggja fyrir hann að bæta úr því sem áfátt sé. Sé það ekki gert er heimilt að beita dagsektum eða láta vinna verk á kostnað þess sem vanrækt hefur að vinna verkið, sbr. 2. og 3. mgr. nefnds lagaákvæðis.
  1. Tekið er fram í athugasemdum við 55. gr. frumvarps þess sem varð að mannvirkjalögum að sú breyting hafi verið gerð frá fyrri lögum varðandi mannvirki sem reist séu í óleyfi að byggingarfulltrúa sé heimilt en ekki skylt að krefjast niðurrifs þeirra, að jarðrask sé afmáð eða starfsemi sé hætt. Þar kemur að auki fram að eðlilegt sé að ákvörðun um beitingu slíkra úrræða sé metin í hverju tilviki, m.a. með tilliti til meðalhófs. Ákvörðun um niðurrif mannvirkis eða byggingarhluta þess er því háð mati stjórnvalds hverju sinni og gefur sveitarfélögum kost á að bregðast við sé gengið gegn almannahagsmunum þeim er búa að baki mannvirkjalögum, svo sem skipulags-, öryggis- og heilbrigðishagsmunum. Með hliðsjón af þessu verður ekki talið að lögin tryggi einstaklingum rétt til að knýja byggingaryfirvöld til beitingar þvingunarúrræða vegna einstaklingshagsmuna. Ákvörðun þarf þó að vera rökstudd með viðhlítandi hætti, m.a. með hliðsjón af þeim hagsmunum sem búa að baki fyrrgreindum lagaheimildum auk þess sem fylgja þarf meginreglum stjórnsýsluréttarins, s.s. um rannsókn máls skv. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og að málefnaleg sjónarmið búi að baki ákvörðun.
  1. Ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík um að beita ekki þvingunarúrræðum vegna skjól­veggjar á lóðamörkum Hamravíkur 50 og 52 var studd þeim rökum að framkvæmdin raski ekki almanna- og öryggishagsmunum. Þá hefði byggingarfulltrúi skoðað málið með tilliti til meðal­hófs og heildstæðu mati á aðstæðum. Í málinu liggur jafnframt fyrir skoðunarskýrsla ásamt ljósmyndum, dags. 24. júlí 2026, í tengslum við úttekt eftirlitsdeildar umhverfis- og skipulags­sviðs Reykjavíkurborgar á vettvangi.
  1. Að teknu tilliti til þess sem að framan er rakið verður að telja að hin kærða ákvörðun hafi verið studd málefnalegum rökum sem ekki er efni til að hnekkja. Verður kröfu kæranda um ógildingu hennar því hafnað.

Úrskurðarorð

Hafnað er kröfu kæranda um að ógilda þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 30. júlí 2026 að synja beiðni um beitingu þvingunarúrræða vegna skjólveggjar á mörkum lóða Hamravíkur 50 og 52.