Úrskurðarorð
Hafnað er kröfu kærenda um að stöðva framkvæmdir á lóð Fannborgar 2 til bráðabirgða á grundvelli hins kærða byggingarleyfis.
Árið 2026, mánudaginn 27. júlí, tók Unnþór Jónsson, varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, sbr. 1. mgr. 2. gr. sömu laga, fyrir:
Mál nr. UUA2607016, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa Kópavogsbæjar frá 17. júlí 2026 um að heimila niðurrif eftirstandandi mannvirkja á lóðinni Fannborg 2.
Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 20. júlí 2026, er barst nefndinni sama dag, kæra A, B, C og D, Fannborg 8 og 9, þá ákvörðun byggingarfulltrúa Kópavogsbæjar frá 17. júlí 2026 að heimila niðurrif eftirstandandi mannvirkja á lóðinni Fannborg 2. Verður að skilja málskot kærenda svo að krafist sé ógildingar hinnar kærðu ákvörðunar.
- Þess er jafnframt krafist að framkvæmdir verði stöðvaðar á meðan málið er til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni. Verður nú tekin afstaða til þeirrar kröfu.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Kópavogsbæ 22. júlí 2026.
Málsatvik og rök
- Á fundi skipulagsráðs Kópavogsbæjar 6. desember 2021 var deiliskipulagstillaga fyrir miðbæ Kópavogs í Hamraborg samþykkt, en tillagan tók m.a. til svonefnds Fannborgarreits. Hinn 9. s.m. vísaði bæjarráð afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar sem 14. desember s.á. staðfesti samþykki skipulagsráðs. Tók deiliskipulagið gildi með auglýsingu þess efnis í B-deild Stjórnartíðinda 20. desember 2021. Var ákvörðun bæjarstjórnar kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem með úrskurði, uppkveðnum 30. júní 2022 í kærumáli nr. 5/2022, hafnaði kröfu um ógildingu hennar.
- Hinn 19. maí 2025 voru drög að byggingaráformum á Fannborgarreit tekin fyrir á fundi skipulags- og umhverfisráðs. Auk þess voru þar lögð fram drög að aðkomuáætlun og kynnt voru drög að samskiptaáætlun um upplýsingagjöf til hagsmunaaðila á svæðinu á framkvæmdatíma. Í fundargerð kemur fram að ekki séu gerðar athugasemdir við að sótt verði um byggingarleyfi í samræmi við framlögð drög. Staðfesti bæjarstjórn þá afgreiðslu á fundi sínum 27. s.m.
- Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 30. janúar 2026 var samþykkt umsókn um leyfi fyrir niðurrifi á 3.199 m2skrifstofubyggingu á lóð Fannborgar 2. Byggingarleyfi fyrir niðurrifi hússins var síðan gefið út 3. febrúar s.á. Var ákvörðun byggingarfulltrúa kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem með úrskurði, uppkveðnum 20. s.m., vísaði málinu frá sökum aðildarskorts.
- Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 17. júlí var samþykkt að heimila niðurrif eftirstandandi mannvirkja á lóðinni Fannborg 2. Byggingarleyfi fyrir niðurrifi var síðan gefið út 21. s.m. Er það hin kærða ákvörðun í máli þessu. Af hálfu bæjaryfirvalda í Kópavogi hefur verið upplýst að umrætt leyfi sé áframhald af fyrri niðurrifsleyfum sem áður hafi verið gefin út og að nú hafi verið veitt leyfi til að rífa bílastæðaplötu sem sé síðasti áfangi niðurrifsfasa framkvæmdarinnar.
- Kærendur vísa til þess að í húsinu að Fannborg 8 sé að finna íbúðir fyrir aldraða og fjölmargir íbúar að Fannborg 1–9 séu með skerta hreyfigetu vegna fötlunar eða aldurs. Samkvæmt gr. 6.2.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 skuli bílastæði hreyfihamlaðra vera sem næst aðalinngangi bygginga og ekki fjær en 25 m í greiðfærri aðkomuleið. Á framkvæmdatíma verði fjarlægð heimila frá bílastæðum langt yfir þeim fjarlægðarmörkum. Í greinargerð með gildandi deiliskipulagi segi að „gera verði áætlun um framkvæmdatíma og vinna áfangaskiptingu í samráði við hagsmunaaðila“. Allir íbúar og íbúðareigendur á svæðinu séu hagsmunaaðilar. Í samráði felist að hlustað sé á skoðanir og að ákvarðanir séu byggðar á framkomnum sjónarmiðum. Samráð sé hvorki fundur þar sem einn aðilinn tilgreini áform sín né heldur miðlun á upplýsingum í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Þau gögn sem lögð hafi verið fyrir fund bæjarstjórnar 27. maí 2025 hafi verið unnin af framkvæmdaraðila og ekki hafi verið haft samráð við íbúa við gerð þeirra. Þá hafi kærendur ekki heldur fengið í hendur fundargerðir eða minnisblöð af samráðsfundum.
- Af hálfu bæjaryfirvalda Kópavogsbæjar er byggt á því að byggingarleyfi samkvæmt hinni kærðu ákvörðun feli í sér áframhald á niðurrifi á framkvæmdasvæðinu og sé í samræmi við gildandi deiliskipulag. Tekið sé á staðhæfingum kærenda um skert aðgengi íbúa í aðkomuáætlun og beri framkvæmdaraðila samkvæmt uppbyggingarsamkomulagi að tryggja fullnægjandi aðgengi að nærliggjandi svæðum á meðan á framkvæmdum standi, sbr. gr. 3.3.5. í samkomulaginu. Aðkomuáætlunin feli í sér útfærðar lausnir til að tryggja aðgengi á framkvæmdatíma og verði hún endurskoðuð reglulega með það að markmiði að tryggja besta mögulega aðgengi í hverjum framkvæmdafasa. Leggi framkvæmdaraðili til breytingar á aðkomuáætlun beri að leggja þær fyrir byggingarfulltrúa til samþykktar og verði allar breytingar sérstaklega kynntar fyrir íbúum og hagaðilum í nágrenninu. Lögð sé áhersla á að um tímabundnar ráðstafanir sé að ræða á meðan framkvæmdir standi yfir.
Niðurstaða
- Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er tekið fram að kæra til úrskurðarnefndarinnar fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en jafnframt er kæranda þar heimilað að krefjast stöðvunar framkvæmda séu þær hafnar eða yfirvofandi, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar. Með svipuðum hætti er kveðið á um það í 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en þó sé heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar til bráðabirgða meðan málið er til meðferðar hjá kærustjórnvaldi þar sem ástæður mæli með því. Tilvitnuð lagaákvæði bera með sér að meginreglan er sú að kæra til æðra stjórnvalds frestar ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar og er téð heimildarákvæði fyrir stöðvun framkvæmda undantekning frá nefndri meginreglu sem skýra ber þröngt. Verða því að vera ríkar ástæður eða veigamikil rök fyrir ákvörðun um stöðvun framkvæmda.
- Tekið er fram í athugasemdum um 5. gr. frumvarps þess sem varð að lögum nr. 130/2011 að ákvæði greinarinnar byggist á almennum reglum stjórnsýsluréttar um réttaráhrif kæru og heimild úrskurðaraðila til að fresta réttaráhrifum ákvörðunar, sbr. 29. gr. stjórnsýslulaga. Í athugasemdum með þeirri grein í frumvarpi til stjórnsýslulaga er tiltekið að heimild til frestunar réttaráhrifa þyki nauðsynleg þar sem kæruheimild geti ella orðið þýðingarlaus. Má hér nefna þau tilvik þar sem um óafturkræfa framkvæmd er að ræða. Í athugasemdunum kemur einnig fram að almennt mæli það á móti því að réttaráhrifum ákvörðunar sé frestað ef fleiri en einn aðili sé að máli og þeir eigi gagnstæðra hagsmuna að gæta. Það mæli hins vegar með því að fresta réttaráhrifum ákvörðunar ef aðili máls sé aðeins einn og ákvörðun sé íþyngjandi fyrir hann. Þetta sjónarmið vegi sérstaklega þungt í þeim tilvikum þar sem erfitt yrði að ráða bót á tjóninu enda þótt ákvörðunin yrði síðar felld úr gildi af æðra stjórnvaldi.
- Að virtum framangreindum lagaákvæðum og þeim sjónarmiðum sem liggja að baki þeim verður ekki talin knýjandi þörf á að stöðva framkvæmdir á meðan málið er til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Er þá einnig horft til þess að niðurrifsframkvæmdir á lóð nr. 2 við Fannborg eru langt á veg komnar og þótt fallist yrði á kröfu um stöðvun framkvæmda gætu kærendur ekki nýtt sér þau bílastæði sem kæra þeirra hverfist um. Verður kröfu þeirra þess efnis því hafnað.
- Rétt þykir þó að taka fram að framkvæmdaraðili ber áhættu af úrslitum kærumálsins kjósi hann að halda áfram framkvæmdum áður en niðurstaða þessa máls liggur fyrir.
Úrskurðarorð
Hafnað er kröfu kærenda um að stöðva framkvæmdir á lóð Fannborgar 2 til bráðabirgða á grundvelli hins kærða byggingarleyfis.
