Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 124/2026 · Mál nr. UUA2607014 · Kveðinn upp 16. september 2026

Suðurnesjalína 2

Frávísun
Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.

Árið 2026, miðvikudaginn 16. september, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður og Þorsteinn Þorsteinsson byggingarverkfræðingur. Arnór Snæbjörnsson formaður tók þátt í gegnum fjarfundabúnað.

Fyrir var tekið mál nr. UUA2607014, kæra á þeirri afgreiðslu byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Voga að gefa út viðauka II frá 10. júlí 2026 við framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2, dags. 25. janúar 2024.

  1. Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 20. júlí 2026 er barst nefndinni sama dag, kærir Reykjaprent ehf., þá ákvörðun Sveitarfélagsins Voga að heimila Landsneti hf. „tilteknar framkvæmdir innan landamerkja jarðarinnar Heiðarland Vogajarða með útgáfu viðauka við áður útgefið framkvæmdaleyfi undirritaðan 10. júlí 2026“. Hinn 24. s.m. móttók úrskurðarnefndin bréf A og B, dags. sama dag, þar sem sama ákvörðun er kærð vegna tiltekinna framkvæmda innan landamerkja jarðarinnar Landakots. Með bréfi dánarbús S, dags. og móttekið 29. s.m., er einnig kærð sama ákvörðun varðandi tilteknar framkvæmdir innan landamerkja jarðanna Stóra Knarrarness og Heiðarlands Vogajarða. Hinn 30. júlí s.á. móttók úrskurðarnefndin tölvupóst þar sem tilkynnt var að R stæði jafnframt að síðastnefndu kærunni að því er varðar jörðina Stóra Knarrarness.
  1. Verða framangreind kærumál sem hafa númerin UUA2607019 og UUA2607022 sameinuð máli þessu, enda þykja hagsmunir kærenda ekki standa því í vegi. Téðir kærendur, sem telja til eignarréttar yfir greindum landareignum, gera kröfu um ógildingu hinnar kærðu ákvörðunar sem og að framkvæmdir verði stöðvaðar. Þykir málið nægilega upplýst til að taka það til endanlegs úrskurðar.
  1. Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Sveitarfélaginu Vogum 27. júlí 2026 og 4. og 5. ágúst s.á.

Málavextir

  1. Undirbúningur framkvæmda við lagningu háspennuvirkisins Suðurnesjalínu 2 um Reykjanes­skaga á sér nokkra forsögu. Fjallað var fyrst um framkvæmdina í áliti Skipulagsstofnunar frá 17. september 2009 um mat á umhverfisáhrifum Suðvesturlína. Hinn júní 2023 samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga að veita Landsneti heimild til að leggja 17,26 km línuleið innan sveitarfélagsins með vissum skilyrðum vegna Suðurnesjalínu 2. Sætti sú ákvörðun kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem með úrskurði, uppkveðnum 25. janúar 2024 í máli nr. 107/2023, féllst ekki á kröfu um ógildingu hennar. Þann sama dag gaf skipulags- og byggingarfulltrúi sveitarfélagsins út framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2.
  1. Í 8. tl. 6. gr. hins útgefna framkvæmdaleyfis segir eftirfarandi: „Í upphafi tekur leyfið bara til framkvæmda á þeim fasteignum sem tilgreindar eru að samþykki landeigenda liggi fyrir í viðauka I við leyfið. Fáist samþykki eða heimild til umráðatöku þeirra eigna sem ekki liggur fyrir samþykki á samkvæmt listanum skal tilkynning þar [um] ásamt samningum eða leyfi til umráðatöku send sveitarfélaginu. Skal sveitarfélagið, að öðrum skilyrðum uppfylltum, þá staðfesta að leyfið taki jafnframt til þeirra jarða með gerð viðauka við leyfi þetta“. Með leyfinu fylgdi viðauki I „um eignir sem leyfið tekur til og þeirra eigna sem ekki hefur verið samið um og leyfið tekur ekki til.“ Samkvæmt honum tók leyfið ekki til landareignanna Heiðarlands Vogajarða, Landakots og Stóra Knarrarnes I, og voru tilgreindir þeir eigendur þessara landar­eigna sem ekki væri búið að semja við. Tekið var fram að framkvæmdaleyfið gilti í eitt ár, en félli úr gildi hæfust framkvæmdir ekki innan tólf mánaða.
  1. Með dómi Hæstaréttar frá 27. maí 2026 í máli nr. 41/2025 var hafnað kröfu um að ákvörðunin um að samþykkja framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 yrði felld úr gildi. Voru kærendur í máli þessu aðilar að því máli. Sama dag var með dómum Hæstaréttar í málum nr. 66–68/2025 hafnað kröfum um ógildingu ákvörðunar umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra frá 21. júní 2024 þar sem Landsneti var heimilað eignarnám vegna lagningar Suðurnesjalínu 2.
  1. Á fundi bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga 23. júní 2026 var tekin fyrir beiðni Landsnets um að staðfest yrði sú breyting á viðauka I við framkvæmdaleyfið að fyrirvaranum yrði aflétt og framkvæmdaleyfið næði nú einnig til þeirra jarða sem eignarnám hefði náð til. Á fundinum var byggingarfulltrúa falið að gefa út „viðauka við framkvæmdaleyfi“ þegar fyrir lægi staðfesting á umráðatöku hinna eignarnumdu réttinda.
  1. Með úrskurðum Héraðsdóms Reykjaness frá 3. júlí 2026 í málum nr. A-1700–1702/2026 varð héraðsdómur við beiðni Landsnets um að taka úr umráðum landeigenda greind eignarnumin réttindi. Hafa kærendur skotið þessum úrlausnum til Landsréttar með kæru 17. s.m.
  1. Hinn 10. júlí 2026 gaf byggingarfulltrúi út viðauka II við framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2, dags. 25. janúar 2024, með vísan til greinds 8. tl. 6. gr. framkvæmdaleyfisins og viðauka I við leyfið. Fólst í viðaukanum staðfesting, fyrir hönd leyfisveitanda, á því að veitt væri leyfi til framkvæmda fyrir Suðurnesjalínu 2, á landareignunum Landakoti, landnr. 130865, Heiðarlandi Vogajarða, landnr. 206748 og Stóra Knarrarnesi, landnr. 130884. Sú afgreiðsla sem í þessu fólst sætir kæru í máli þessu.

Málsrök kærenda

  1. Kærendur álíta að hin kærða ákvörðun sé stjórnvaldsákvörðun í skilningi stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og slík ákvörðun sem fjallað sé um í skipulagslögum nr. 123/2010, sbr. einnig skipulagsreglugerð nr. 90/2013 og reglugerð nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi. Annars hefði umrætt skjal verið óþarft sem og undirbúningur þess. Sýni gögn málsins það glögglega að skjalið hafi verið nauðsynleg forsenda framkvæmda samkvæmt skilningi bæði stjórnvaldsins og Landsnets. Þá benda þeir á að í dómi Hæstaréttar frá 27. maí 2026 í máli nr. 41/2025 hafi hvorki verið undir útgáfa framkvæmdaleyfis né úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlinda­mála í máli nr. 107/2023.
  1. Samkvæmt skipulagslögum og skipulagsreglugerð annist skipulagsfulltrúi skipulagsmál. Jafnframt mæli lögin og reglugerðin fyrir um að framkvæmdaleyfi skuli gefa út eigi síðar en 12 mánuðum eftir að sveitarstjórn hafi tekið ákvörðun um veitingu þess. Hafi ekkert verið fært fram sem styðji að byggingarfulltrúa hafi með lögmætum hætti verið falið að annast skipulagsmál í sveitarfélaginu. Að auki hafi frestur til að gefa út leyfið verið löngu liðinn. Þá sé framkvæmdaleyfið efnislega rangt og uppfylli ekki kröfur um skýrleika samkvæmt stjórnsýslurétti. Einn kærenda, sem sé landeigandi Stóra Knarrarness, sé ekki tilgreindur í leyfinu og geti það því ekki átt við um þá landareign.
  1. Hin kærða ákvörðun feli í sér heimild til að leggja vinnuplön á landi sem ekki hafi verið eignarnumið. Þá virðist sem um endurbyggingu vegslóða sé að ræða sem ekki hafi verið fjallað um í umhverfismati framkvæmdar líkt og lög áskilji. Enga lýsingu sé að finna á vinnuplönunum eða vegslóðanum í aðalskipulagi og hafi þurft að gera ráð fyrir þessum framkvæmdum í deiliskipulagi. Í samræmi við 32. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd beri sveitarfélaginu við gerð aðalskipulags eða breytingu á því að gera skrá um vegi í náttúru Íslands. Falli nýir og endurgerðir vegir á svæðinu hér undir og hafi gerð skrárinnar að þessu leyti verið forsenda fyrir leyfi stjórnvaldsins. Þá hafi landeigendum hvorki verið veittur andmælaréttur við afgreiðslu leyfis 25. janúar 2024 né 10. júlí 2026. Hafi þeim ekki orðið kunnugt um síðargreinda leyfið fyrr en 17. júlí s.l. þegar lögmaður kærenda hafi óskað upplýsinga um það. Eigi þátttökuréttur sá sem almenningi sé tryggður í lögum nr. 112/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana ekkert skylt við andmælarétt sem aðila máls sé tryggður samkvæmt stjórnsýslulögum og sé sá síðargreindi sjálfstæður.
  1. Í matsskýrslu framkvæmdaraðila hafi verið lýst sex raunhæfum valkostum í skilningi laga um umhverfismat framkvæmda. Komi fram að flutningsgeta jarðstrengs 360 MVA uppfylli mark­mið framkvæmdar og eigi það m.a. við um leið D samkvæmt skýrslunni. Hafi stjórnvaldinu borið að leggja mat á þessa leið, þar sem ekki liggi fyrir samþykki landeigenda fyrir loftlínu um umrætt svæði. Engin rök hnígi heldur að því að stjórnvaldinu hafi verið óskylt að leita sjónarmiða landeigenda um valkosti við þessar aðstæður. Í gildandi aðalskipulagi sé sett fram sú stefna að flutningslínur raforku skuli vera lagðar í jörð þar sem því verði við komið.
  1. Í dómi Hæstaréttar í máli nr. 41/2025 hafi ekki verið fjallað um aðra valkosti samkvæmt framlagðri matsskýrslu en leið B og C og að litlu leyti leið C2. Ekki hafi verið vikið að raforkuflutningsþörf eða fjallað um skýrslur um m.a. samanburð líftímakostnaðar loftlína og jarðstrengs á Íslandi.
  1. Þá styðji varúðarregla umhverfisréttar, greiðslureglan og reglan um vísindalegan grundvöll ákvarðana í lögum nr. 60/2013 þá niðurstöðu að ógilda beri ákvörðun stjórnvaldsins.

Málsrök Sveitarfélagsins Voga

  1. Sveitarfélagið krefst þess aðallega að kærumálunum verði vísað frá úrskurðarnefndinni. Hæstiréttur hafi með dómi í máli nr. 41/2025 staðfest bæði gildi framkvæmdaleyfisins sem og niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar í máli nr. 107/2023. Dómurinn sé endanlegur um gildi leyfisins og hafi því svokölluð res judicata áhrif bæði fyrir úrskurðarnefndinni og dómstólum. Kærendur geti því hvorki kært leyfið á ný til nefndarinnar né höfðað nýtt dómsmál vegna þess. Á þeim grundvelli eigi þeir ekki lögvarða hagsmuni af niðurstöðu málsins. Þá sé ekki um kæranlega „ákvörðun“ að ræða. Þrátt fyrir að útgáfa viðaukans hafi staðið í beinum tengslum við framkvæmdaleyfið hafi hún ekki falið í sér nýja stjórnvaldsákvörðun. Hafi leyfið tekið til framkvæmdarinnar í heild sinni og viðaukanum hafi einungis verið ætlað að staðfesta að tiltekin atriði þess væru nú uppfyllt.
  1. Til vara sé þess krafist að öllum kröfum kærenda verði hafnað. Sveitarfélagið mótmæli því að hin kærða „ákvörðun“ brjóti í bága við lög eða sé að öðru leyti haldin slíkum annmörkum að ógildingu varði. Því hafi þegar verið slegið föstu að málsmeðferð sveitarfélagsins hafi verið í samræmi við fyrirmæli laga og reglugerða og þegar útgefið leyfi. Ekkert í aðdraganda hinnar kærðu „ákvörðunar“ geti því réttlætt að fella hana úr gildi. Liggi nú fyrir ótvíræðir dómar og aðfarargerðir um heimild Landsnets til umráða og framkvæmda á hinu eignarnumda svæði, í samræmi við leyfið. Sé úrskurðarnefndin ekki bær til að endurskoða þá málsmeðferð eða niðurstöðu.
  1. Samkvæmt viðauka um fullnaðarafgreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúa í Sveitar­félaginu Vogum sé honum heimilt að gefa út framkvæmdaleyfi. Að auki hafi bæjarráð sérstak­lega falið byggingarfulltrúa afgreiðslu umrædds máls. Einnig virðist um misskilning að ræða vegna athugasemda kærenda um að leyfið sé rangt að efni til. Jafnvel þótt um einhverja villu hafi verið að ræða í tilgreiningu eigenda jarða hafi það ekki áhrif á lögmæti leyfisins sem slíks. Fari ekki á milli mála til hvaða landareigna viðaukinn sem og framkvæmdaleyfið taki til. Því sé sérstaklega mótmælt að leyfið sé óskýrt.
  1. Framkvæmdaleyfið hafi verið gefið út innan 12 mánaða frá samþykkt sveitarstjórnar, þ.m.t. fyrir framkvæmdum í löndum kærenda. Settur hafi verið fyrirvari í leyfið um að framkvæmdir innan einstakra jarða væru ekki heimilar fyrr en að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ekki sé um nýtt framkvæmdaleyfi að ræða. Kærendur hafi hingað til byggt á því fyrir dómi að leyfið hafi tekið til framkvæmda innan jarða þeirra. Með vísan til meginreglu einkamálaréttarfars um lögvarða hagsmuni hefðu kærendur ekki getað krafist ógildingar á leyfi sem ekki hafi tekið til jarða þeirra. Annars hefði borið að vísa aðild þeirra að dómsmálinu frá.
  1. Ljóst sé að hvorki leyfið né viðaukinn veiti heimild til framkvæmda sem ekki séu í samræmi við umsókn eða utan marka hinna eignarnumdu réttinda. Sé ekki um að ræða endurbyggingu eldri vega, heldur hafi þeir einungis verið lagfærðir eftir því sem þörf hafi verið á. Sé því ljóst að ekki sé um aukna skerðingu að ræða og nýting á slóðunum sé í samræmi við það sem fram komi í greinargerð Landsnets um framkvæmdaleyfi. Komi skýrt fram í útgefnu framkvæmdaleyfi að fyrirliggjandi vegslóði muni nýtast við framkvæmdina. Jafnframt sé fjallað um vinnuplön í greinargerðinni. Loks sé ekki hægt að byggja á þeirri málsástæðu nú að vinnuplön og endurbygging slóða hafi átt að vera í deiliskipulagi með tilliti til niðurstöðu Hæstaréttar um lögmæti leyfisins og res judicata áhrifa dómsins.
  1. Í lögum sé ekki gert ráð fyrir sérstökum andmælarétti landeiganda áður en til leyfisveitingar komi, þegar þannig hátti til eins og í máli því sem hér um ræði. Gert sé ráð fyrir ítarlegu samráði við hagsmunaaðila og andmælarétti á fyrri stigum máls og hafi sveitarfélaginu ekki borið að veita kærendum frekari eða sérstakan andmælarétt áður en til útgáfu leyfisins eða viðaukans hafi komið. Að auki hafi afstaða kærenda legið skýr fyrir.
  1. Mál þetta varði ekki aðalskipulag sveitarfélagsins og verði því ekki haldið fram núna að framkvæmdaleyfið sé ekki í samræmi við aðalskipulag. Að auki hafi ekki verið nauðsynlegt að uppfæra vegaskrá skv. 2. mgr. 32. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd áður en framkvæmda­leyfið hafi verið samþykkt.
  1. Sú endurskoðun sem farið hafi fram á gildi framkvæmdaleyfisins hafi m.a. tekið til mats leyfishafa og sveitarfélagsins á hagkvæmni hinna ýmsu valkosta, svo og til undirbúnings ákvörðunarinnar. Með hliðsjón af res judicata áhrifum dóms Hæstaréttar í máli nr. 41/2025 verði kærendur að bera hallann af því að hafa ekki byggt á þessu á fyrri stigum.

Athugasemdir leyfishafa

  1. Málsrök leyfishafa eru um flest áþekk málsrökum sveitarfélagsins. Á það sé bent að framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 hafi náð til framkvæmdarinnar í heild sinni og hafi ekki verið gefið út leyfi til framkvæmda innan hverrar og einnar landareignar. Hafi leyfið tekið til framkvæmda í löndum kærenda og hafi kröfum þeirra um ógildingu leyfisins verið hafnað með efnislegum rökstuðningi í dómi Hæstaréttar í máli nr. 41/2025. Sé niðurstaða dómsins bindandi fyrir kærendur sem geti hvorki kært framkvæmdaleyfið að nýju til úrskurðar­nefndarinnar né höfðað á ný dómsmál um gildi þess. Engu breyti í þessum efnum þó svo að kærendur hafi ekki verið aðilar að máli úrskurðarnefndarinnar nr. 107/2023, enda hafi þeir verið aðilar að dómi Hæstaréttar.
  1. Kærufrestur vegna framkvæmdaleyfisins sé löngu liðinn og sé því alfarið hafnað að útgáfa viðauka II við leyfið feli í sér nýja kæranlega stjórnvaldsákvörðun. Hafi fyrirvarinn um eignarheimild verið settur vegna ágreinings um heimild til framkvæmda á grundvelli eignarréttar, sbr. 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar og 23. gr. raforkulaga nr. 65/2003.
  1. Því sé hafnað að framkvæmdir séu ekki í samræmi við veitt framkvæmdaleyfi og eignarnám leyfishafa og sé um það vísað til kynningu framkvæmda, umsóknar um framkvæmdaleyfi, umhverfismats og veitts framkvæmdaleyfis. Sé leyfið gefið út á grundvelli ítarlegrar umfjöllunar í aðalskipulagi. Hvers konar röksemdum varðandi mat á mismunandi valkostum lagnaleiða, mat á hagkvæmni raflína og málsmeðferð við útgáfu framkvæmdaleyfisins hafi þegar verið svarað og hafnað af úrskurðarnefndinni og dómstólum.
  1. Framkvæmdin Suðurnesjalína 2, þ.m.t. í löndum kærenda, sé á grundvelli framkvæmdaleyfis sem gefið hafi verið út 25. janúar 2024 með stoð í samþykkt sveitarfélagsins um veitingu þess. Leyfið hafi verið gefið út innan þeirra tímamarka sem skipulagslög nr. 123/2010 og reglugerð nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi kveði á um. Það að fyrirvari hafi verið settur í leyfið breyti ekki inntaki þess. Hafi fyrirvaranum enda verið aflétt þegar fyrir hafi legið sönnun á umráðum yfir þar til greindum eignum, þ.m.t. löndum kærenda. Standist enga skoðun að kærendur breyti nú afstöðu sinni til leyfisins. Þá sé því hafnað að það sé forsenda fyrir veitingu framkvæmda­­­leyfis að gerð hafi verið skrá skv. 32. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.

Viðbótarathugasemdir kærenda

  1. Kærendur árétta m.a. þau sjónarmið sín að gera hefði þurft deiliskipulag í tengslum við fyrirhugaða framkvæmd. Hafi löggjafinn gert ráð fyrir því frá árinu 2013 að flutningskerfi raforku sé lýst í deiliskipulagi. Þurfi það að liggja til grundvallar framkvæmdaleyfi fyrir stórum flutningslínum raforku og bæði þurfi að lýsa mannvirkjunum sjálfum og aðkomu að þeim. Þar á meðal þurfi að lýsa vinnuplönum, séu þau fyrirhuguð, en þetta séu allt að 400 m2 plön. Geti framkvæmdaleyfi ekki grundvallast á aðalskipulagi sem lýsi m.a. hvorki umfangi mastra né gerð vinnuplana. Hafi sveitarfélagið aldrei metið hvort þörf væri á gerð deiliskipulags. Þá hafi hvorki í máli nefndarinnar nr. 107/2023 né í máli Hæstaréttar nr. 41/2025 verið fjallað um hvort sveitarfélaginu hafi borið að hafa í gildi deiliskipulag áður en það hafi getað gefið út framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu mastra og loftlína, vegslóðagerð, endurbyggingu vegslóða og vinnuplana.
  1. Það sé útilokað að líta svo á að skriflegt framkvæmdaleyfi frá 25. janúar 2024 hafi falið í sér leyfi til framkvæmda á landareignum kærenda, sem hafi verið skýrlega undanskildar í leyfinu. Þá geti 116. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála ekki átt við um ákvörðun sem tekin hafi verið eftir uppkvaðningu dóms. Í máli úrskurðarnefndarinnar nr. 107/2023, sem kærendur hafi ekki átt aðild að, hafi ekki verið fjallað um útgefin framkvæmdaleyfi stjórnvaldsins, enda hafi þau ekki legið fyrir þegar sú málsmeðferð hafi farið fram.
  1. Líta verði á ákvörðun byggingarfulltrúa frá 10. júlí 2026 um að gefa út viðauka sem framkvæmdaleyfi. Þessu til frekari staðfestingar sé sent afrit af bókun þar sem fram komi sá sameiginlegi skilningur aðila að framkvæmdaleyfi hafi ekki verið gefið út fyrir framkvæmdum á jörðum kærenda. Jafnframt sé áréttað að hið umþrætta leyfisbréf veiti samkvæmt efni sínu ekki leyfi til framkvæmda í eignarhlutum kærenda að Stóra Knarrarnesi, enda sé dánarbúið ekki tilgreint í leyfisbréfinu sjálfu (viðaukanum).

Viðbótarathugasemdir sveitarfélagsins

  1. Í viðbótarathugasemdum sínum bendir sveitarfélagið á að í dómi Hæstaréttar í máli nr. 41/2025 hafi stefnendur, m.a. kærendur í þeim málum sem hér um ræði, haldið fram þeirri málsástæðu að það ætti að ógilda framkvæmdaleyfið þar sem ekkert deiliskipulag hafi legið fyrir um framkvæmdina eða framkvæmdasvæðið. Hafi Hæstiréttur hafnað þessari málsástæðu og komi þetta því ekki til frekari skoðunar í kærumálum þeim sem hér um ræði með vísan til res judicata áhrifa dómsins. Þá sé því harðlega mótmælt að bókun sem kærendur hafi sett fram í málinu staðfesti einhvern sameiginlegan skilning aðila.

Viðbótarathugasemdir leyfishafa

  1. Af hálfu leyfishafa er því með öllu hafnað að fyrir liggi sameiginlegur skilningur um að leyfi „hafi ekki verið gefið út fyrir framkvæmdum“ á jörðum kærenda. Rétt sé að staðfest hafi verið við fyrirtöku hjá sýslumanninum á Suðurnesjum í málum nr. 1700–1702/2026 hinn 8. júlí 2026 að viðauki við framkvæmdaleyfið hafi ekki verið gefinn út, en það jafngildi því ekki að afstaða leyfishafa sé sú að framkvæmdaleyfi hafi ekki verið gefið út. Þá sé viðaukinn skýr um það til hvaða jarða hann nái. Augljós misritun sé á leyfinu þar sem S sé tilgreind sem einn eigenda Landakots í stað eins eigenda Stóra Knarrarness, en það breyti engu um gildi viðaukans við leyfið sem sé skýr að efni til.

—–

  1. Aðilar máls þessa hafa fært fram frekari rök fyrir máli sínu, sem ekki verða rakin hér, en úrskurðarnefndin hefur haft þau öll til hliðsjónar við úrlausn málsins.

Niðurstaða

  1. Í máli þessu er kærð sú ákvörðun Sveitarfélagsins Voga að heimila Landsneti hf. framkvæmdir innan tiltekinna landareigna, sem eru í eigu kærenda, vegna lagningar 220 kV háspennulínu, Suðurnesjalínu 2 „með útgáfu viðauka við áður útgefið framkvæmdaleyfi undirritaðan 10. júlí 2026“. Í 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er kveðið á um að stjórnvaldsákvarðanir sem teknar séu á grundvelli laganna sæti kæru til úrskurðarnefndarinnar.
  1. Samkvæmt 13. gr. skipulagslaga skal afla framkvæmdaleyfis sveitarstjórnar vegna meiri háttar framkvæmda sem áhrif hafa á umhverfið og breyta ásýnd þess. Er útgáfa framkvæmdaleyfis háð ýmsum skilyrðum, m.a. um að samþykki sveitarstjórnar liggi fyrir. Þá fellur framkvæmda­leyfi úr gildi hefjist framkvæmdir ekki innan tólf mánaða frá samþykki sveitarstjórnar, sbr. 15. gr. laganna.
  1. Í 23. gr. raforkulaga nr. 65/2003 er kveðið á um að nái fyrirtæki ekki samkomulagi við landeiganda vegna framkvæmda á grundvelli laganna, þar með talið um endurgjald fyrir landnot, geti ráðherra tekið eignarnámi nauðsynlegt land, landgæði, mannvirki, aðstöðu og önnur réttindi að því leyti sem nauðsyn ber til. Má einnig vísa til 21. gr. sömu laga þar sem kveðið er á um bann við lagningu raflína áður en náðst hefur samkomulag um endurgjald fyrir landnot eða eignarnám hafi farið fram og umráðataka samkvæmt því.
  1. Í 4. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 segir að framkvæmdaleyfi veiti ekki heimild til framkvæmda sem brjóti í bága við m.a. „rétt annarra“. Hvorki í lögum nr. 123/2010 né í téðri reglugerð er kveðið nánar á um að heimild landeiganda þurfi til vegna framkvæmda­leyfis en af 50. gr. laganna leiðir að komið getur til eignarnáms vegna skipulagsákvarðana.
  1. Hinn 30. júní 2023 tók bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga ákvörðun um að samþykkja framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2. Um gildi þeirrar ákvörðunar var fjallað í úrskurði nefndarinnar sem upp var kveðinn 25. janúar 2024 í máli nr. 107/2023. Þann sama dag gaf skipulags- og byggingarfulltrúi sveitarfélagsins út framkvæmdaleyfi fyrir línulögninni. Var þar kveðið á um að leyfið tæki ekki til landareigna kærenda, en á þeim tíma lá enda ekki fyrir samþykki þeirra fyrir framkvæmdinni. Verður sá fyrirvari sem settur var í 8. tl. 6. gr. leyfisins álitinn í góðu samræmi við framanrakta lagastaði.
  1. Framkvæmdaleyfið fyrir Suðurnesjalínu 2 tók til allrar ráðgerðrar framkvæmdar innan lögsagnarmarka Sveitarfélagsins Voga. Forsenda fyrir útgáfu viðauka við framkvæmdaleyfi Suðurnesjalínu 2 var að fullnægjandi eignarheimild væri í vörslum framkvæmdaraðila. Svo sem í mála­vöxtum greinir var með úrskurðum Héraðsdóms Reykjaness frá 3. júlí 2026 í málum nr. A-1700–1702/2026 fallist á beiðni Landsnets um að taka úr umráðum þeirra landeigenda sem eru kærendur í máli þessu eignarnumin réttindi vegna línulagnarinnar. Verður ekki annað ráðið en að með því hafi verið fullnægt skilyrðum til hinnar kærðu afgreiðslu.
  1. Ákvörðun sveitarstjórna um veitingu framkvæmdaleyfis er endanleg stjórnvaldsákvörðun í því efni og er unnt að skjóta henni til úrskurðarnefndarinnar innan mánaðar frá því að kæranda varð eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina, sbr. 52. gr. laga nr. 123/2010 og 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur til úrskurðarnefndarinnar vegna samþykktar framkvæmdaleyfis fyrir Suðurnesjalínu 2 er löngu liðinn, en nefndin hefur þegar fjallað um gildi þeirrar ákvörðunar líkt og að framan greinir.
  1. Kærendur í máli þessu hafa fært að því rök að hin kærða ákvörðun byggingarfulltrúa frá 10. júlí 2026 hafi í reynd falið í sér breytingu á réttarstöðu þeirra. Verður ekki á það fallist enda verður að telja að réttarstaða þeirra hafi hvað málefnið varðar þegar verið ákvörðuð með samþykkt sveitarstjórnar 30. júní 2023. Felur útgáfa framkvæmdaleyfis einungis í sér afgreiðslu að aflokinni samþykkt sveitarstjórnar, sbr. 15. gr. skipulagslaga, sjá einnig gr. 5.8.4. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013. Er þar ekki um að ræða sjálfstæða stjórnvaldsákvörðun sem skotið verði til úrskurðarnefndarinnar og markar ekki nýjan kærufrest. Gildir hið sama um viðauka þann sem um er deilt í máli þessu. Verður því að vísa máli þessu frá úrskurðarnefndinni.

Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.