Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 144/2026 · Mál nr. UUA2607011 · Kveðinn upp 20. október 2026

Fljótasel

Frávísun
Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.

Árið 2026, þriðjudaginn 20. október, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, fyrir:

Mál nr. UUA2607011, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 19. júní 2026 um að krefjast þess að girðing á mörkum lóðarinnar Fljótasels 1 verði lækkuð.

  1. Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 17. júlí 2026, er barst nefndinni 20. s.m., kæra, eigendur fasteignarinnar að Fljótaseli 1, þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 19. júní 2026 að krefjast þess að girðing á mörkum lóðar þeirra verði lækkuð. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Til vara er þess krafist að málinu verði vísað aftur til Reykjavíkurborgar til nýrrar meðferðar.
  1. Úrskurður þessi er kveðinn upp með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðar­nefnd umhverfis- og auðlindamála.

Málsatvik og rök

  1. Haustið 2021 munu kærendur hafa reist girðingu á lóðarmörkum fasteignar þeirra að Fljótaseli 1. Á árinu 2025 barst borgaryfirvöldum ábending um að girðingin hindraði sýn ökumanna. Með bréfi byggingarfulltrúa til kærenda, dags. 3. mars 2026, var þeim tilkynnt um þau áform embættisins að veita þeim 30 daga frest til að lækka girðinguna niður í 1,2 m til samræmis við ákvæði hverfisskipulags Breiðholts þar um. Andmæltu kærendur þeim áformum og bentu á að girðingin hefði verið reist fyrir gildistöku skipulagsins. Féllst byggingarfulltrúi ekki á það sjónarmið og með bréfi embættisins, dags. 19. júní 2026, var kærendum veittur 30 daga frestur til að lækka girðinguna. Undir rekstri málsins hjá úrskurðarnefndinni tilkynnti Reykjavíkur­borg nefndinni að fyrirhugað væri að afturkalla hina kærðu ákvörðun. Með bréfi byggingar­fulltrúa, dags. 5. október 2026, var kærendum tilkynnt um afturköllun ákvörðunarinnar. Tekið var fram að við nánari skoðun hefði girðingin verið reist fyrir gildistöku hverfisskipulagsins.
  1. Kærendur telja að málið hafi ekki verið rannsakað með fullnægjandi hætti, en ekki hafi verið lagt sjálfstætt mat á hvort girðing á lóðarmörkum kærenda skerti í raun sjónlínur ökumanna. Þá hafi jafnræðisregla 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 verið brotin þar sem víða í hverfinu sé að finna fjölmargar hornlóðir sem hafi jafn háar eða hærri girðingar. Fyrir liggi í gögnum málsins ábending frá nágranna þar sem fullyrt sé að slys hafi orðið vegna girðingarinnar, en engin gögn liggi fyrir sem styðji þá fullyrðingu. Einnig hafi ekki verið gætt að meðalhófi þrátt fyrir að kærendur hefðu boðist til að hafa samstarf um „vægari útfærslur“.

Niðurstaða

  1. Samkvæmt 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála geta þeir einir kært stjórnvaldsákvarðanir til úrskurðarnefndarinnar sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á, nema í tilteknum undantekningartilvikum sem þar eru greind. Verður að skýra þetta ákvæði í samræmi við almennar reglur stjórnsýsluréttar um aðild að kærumálum þar sem áskilið er að kærandi eigi beina einstaklingsbundna hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kærð er.
  1. Eins og að framan greinir hefur hin kærða ákvörðun verið afturkölluð og er því ljóst að hún hefur ekki lengur réttarverkan að lögum. Af þeim sökum hafa kærendur ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að fá skorið úr um gildi hennar og verður máli þessu því vísað frá úrskurðar­nefndinni, sbr. áðurnefnda 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011.

Úrskurðarorð

Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.