Hafnað er kröfu kæranda um að felld verði úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúa Vestmannaeyjabæjar frá 2. júlí 2026 um að samþykkja byggingaráform fyrir einbýlishús á lóð nr. 3 við Goðahraun.
Árið 2026, miðvikudaginn 16. september, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður og Þorsteinn Þorsteinsson byggingarverkfræðingur. Arnór Snæbjörnsson formaður tók þátt í gegnum fjarfundabúnað.
Fyrir var tekið mál nr. UUA2606017, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa Vestmannaeyjabæjar frá 2. júlí 2026 um að samþykkja byggingaráform fyrir einbýlishús á lóð nr. 3 við Goðahraun í Vestmannaeyjum.
- Með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, er barst nefndinni 19. júní 2026, kærir eigandi, Goðahrauni 13, Vestmannaeyjum, þá ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyjabæjar frá 16. s.m. að samþykkja byggingaráform á lóð nr. 3 við Goðahraun. Er þess krafist að ákvörðunin verði ógild. Hin umræddu byggingaráform voru samþykkt á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 2. júlí s.á. Verður að líta svo á að það sé hin kærða ákvörðun í máli þessu og að gerð sé krafa um ógildingu þeirrar ákvörðunar. Kærandi fór jafnframt fram á að framkvæmdir yrðu stöðvaðar til bráðabirgða á meðan málið væri til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Var þeirri kröfu hafnað með úrskurði 6. júlí 2026.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Vestmannaeyjabæ 28. júní 2026.
Málavextir
- Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Vestmannaeyjabæjar 9. apríl 2026 var tekin fyrir umsókn lóðarhafa að Goðahrauni 3 um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóðinni. Var umsókninni vísað til umhverfis- og skipulagsráðs sem á fundi 13. s.m. fól skipulagsfulltrúa að grenndarkynna hana með vísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsóknin var grenndarkynnt á tímabilinu 21. maí 2026 til 25. júní s.á. og bárust umsagnir vegna málsins, m.a. frá kæranda máls þessa. Tók umhverfis- og skipulagsráð erindið fyrir á ný 16. júní 2026 og samþykkti byggingaráformin. Jafnframt var brugðist við athugasemdum er borist höfðu á kynningartíma. Hinn 2. júlí s.á. var umsóknin tekin fyrir að nýju á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og hún samþykkt í samræmi við 11. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki. Ekki liggur fyrir hvort byggingarleyfi hefur verið gefið út.
Málsrök kæranda
- Kærandi telur að sveitarfélaginu hafi ekki verið heimilt að grenndarkynna breytingar á einni lóð til að hliðra og breyta samfelldum byggingarlínum í götunni sem bindandi séu samkvæmt staðfestum mæliblöðum og eldri ákvörðunum. Þörf hafi verið á heildstæðri breytingu, en ekki sé í gildi deiliskipulag á umræddu svæði. Þá hafi málið ekki verið nægilega rannsakað sem fari gegn 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, en í bókun umhverfis- og skipulagsráðs frá 16. júní 2026 sé játað að skort hafi „heildstæða hverfissýn“ og að upplýsingagjöf hafi verið áfátt við afgreiðslu málsins.
- Kærandi hafi hannað og staðsett hús sitt með tilliti til útsýnis og gefinna hönnunarforsendna sem veittar hafi verið af sveitarfélaginu árið 2022. Með því að hliðra byggingarlínum eftir á sé brotið gegn réttmætum væntingum kæranda og eignarrétti hans. Leyft sé mannvirki sem fari út fyrir lögmætan byggingarreit samkvæmt áður útgefnum byggingarlínum. Hafi þetta í för með sér beina, verulega og óásættanlega skerðingu á útsýni frá húsi kæranda og rýri þar með verðmæti og nýtingarmöguleika eignar hans.
- Þá liggi ekki fyrir hver hafi óskað eftir breytingum á lóðarlínum. Fari það gegn reglum um skráningarskyldu og gagnsæi stjórnsýslunnar. Loks sé um hagsmunaárekstur að ræða þar sem aðalhönnuður hússins sé þáverandi byggingarfulltrúi sem staðfest hafi byggingarlínur í hverfinu árið 2022. Samrýmist þessi staða hvorki kröfum um vandaða stjórnsýsluhætti né hæfisreglum stjórnsýslulaga.
Málsrök Vestmannaeyjabæjar
- Af hálfu sveitarfélagsins er málsrökum kæranda hafnað. Undirbúningur hinnar kærðu ákvörðunar hafi verið lögum samkvæmt. Ekki sé í gildi bindandi deiliskipulag fyrir umrætt hverfi, en til staðar sé leiðbeinandi skipulag, gert á grundvelli skipulagslaga nr. 19/1964. Um sé að ræða eina afstöðumynd, án málsetninga, þar sem í texta komi fram að það sé til leiðbeininga og eftirbreytni. Á svæðinu hafi verið byrjað að byggja á ný fasteignir fyrir tveimur til þremur árum, en ekkert hafi þá verið byggt á svæðinu í um 30 ár. Þær byggingar sem síðan hafi verið reistar hafi verið grenndarkynntar. Enn hafi ekki verið byggt á lóðunum nr. 2 og 3 við Goðahraun.
- Samkvæmt afstöðumyndinni og uppdráttum séu þrjár fasteignir á lóðum við Goðahraun í beinni götulínu saman til vesturs, þ.e. lóðir nr. 13, 3 og 2. Kærandi hafi verið fyrstur til að reisa hús sitt, en ekki hafi verið byggt á hinum lóðunum. Sveitarfélagið hafi sent kæranda, sem lóðarhafa Goðahrauns 13, kortagrunn þar sem sýnd hafi verið drög að byggingarreitum, byggð á þeim húsum sem fyrir hafi verið í götunni. Hafi lóðarhafinn lagt fram byggingaráform sem verið hafi með nokkuð ólíkum hætti en áður hafi tíðkast í hverfinu. Þá hafi byggingarreitur verið stækkaður til vesturs, án þess þó að minnka til austurs. Byggingaráformin hafi verið samþykkt að lokinni grenndarkynningu. Í framhaldinu hafi Vestmannaeyjabær talið eðlilegt að götulína til vesturs væri hin sama vegna fasteignanna á lóðum nr. 13, 3 og 2 við Goðahraun. Með samþykki byggingaráforma fyrir Goðahraun 13 hafi einnig myndast fordæmi fyrir fjölbreyttara byggingarfyrirkomulagi í suðurhluta Goðahrauns og hafi þá verið útbúin nánari mæliblöð fyrir lóðir sem seinna hafi verið úthlutað, m.a. fyrir Goðahraun 3, 5, 22, 30 og 34. Þess megi geta að byggingaráform vegna Goðahrauns 2 hafi verið grenndarkynnt með sömu götulínu til vesturs, en engar athugasemdir hafi borist á kynningartíma.
- Ekki hafi legið fyrir bindandi byggingarlínur í því máli sem hér um ræði. Ef svo væri hafi kærandi skapað fordæmi fyrir því að breyta þeim, en eðlilegt sé að byggingarreitir við götulínu séu í sömu línu. Í tölvupósti frá sveitarfélaginu til kæranda í nóvember 2022 komi aðeins fram að bindandi byggingarlína sé til norðurs og að íbúðarhús og bílskúrar skuli standa innan byggingarreits. Verði ekki séð að kærandi hafi haft lögmætar væntingar til þess að byggingarreitir annarra lóða í sömu götulínu yrðu ákvarðaðar með öðrum hætti en byggingarreitur á lóð hans. Hann hafi hins vegar mátt gera ráð fyrir því að byggingarreitir í götulínu yrðu ákvarðaðir í framhaldi með sama hætti. Þá eigi fullyrðingar um bókun umhverfis- og skipulagsráðs 16. júní 2026 ekki við rök að styðjast. Jafnframt verði ekki séð að um vanhæfi sé að ræða, en fyrrverandi byggingarfulltrúi komi ekki að ákvörðunum á vegum bæjarins.
- Almennt geti eigendur fasteigna í þéttbýli ekki vænst þess að útsýni skerðist ekki. Slík skerðing sé almennt talin lögmæt og skapi t.a.m. ekki skaðabótaskyldu fyrir sveitarfélag. Tveir gluggar séu á norðurhlið húss kæranda og hugsanlega skerðist lítillega útsýni úr öðrum þeirra. Fullyrðingar kæranda um annað eigi sér enga stoð í gögnum málsins.
—–
- Úrskurðarnefndin tilkynnti leyfishafa um framkomna kæru en hann hefur ekki látið málið til sín taka.
- Færð hafa verið fram ítarlegri rök í máli þessu sem ekki verða rakin frekar, en úrskurðarnefndin hefur haft til hliðsjónar við úrlausn málsins.
Niðurstaða
- Í máli þessu er deilt um lögmæti þeirrar ákvörðunar byggingarfulltrúa Vestmannaeyjabæjar að samþykkja byggingaráform fyrir einbýlishús á lóð nr. 3 við Goðahraun. Kæruheimild til úrskurðarnefndarinnar er í 59. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki og barst kæran innan lögbundins kærufrests. Ágreiningsefni máls þessa lýtur að því hvort fært hafi verið að veita byggingarleyfi að undangenginni grenndarkynningu. Líkt og rakið er í málavaxtalýsingu tók umhverfis- og skipulagsráð 13. apríl 2026 fyrir umsókn um byggingarleyfi fyrir Goðahraun 3 og fól skipulagsfulltrúa að grenndarkynna erindið skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
- Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. skipulagslaga gildir sú meginregla að gera skal deiliskipulag fyrir einstök svæði eða reiti þar sem framkvæmdir eru fyrirhugaðar. Í 1. mgr. 44. gr. laganna má finna undanþágu frá þessari meginreglu en þar segir að þegar sótt sé um byggingar- eða framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem sé í samræmi við aðalskipulag en deiliskipulag liggur ekki fyrir geti sveitarstjórn eða sá aðili sem heimild hafi til fullnaðarafgreiðslu mála, sbr. 6. gr., ákveðið að veita megi leyfi án deiliskipulagsgerðar ef framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Skal skipulagsnefnd þá láta fara fram grenndarkynningu.
- Nánar er mælt fyrir um grenndarkynningu í 44. gr. laga nr. 123/2010, en 1. mgr. lagagreinarinnar var breytt með lögum nr. 7/2016. Er tekið fram í almennum athugasemdum við frumvarp til þeirra laga að til að forsvaranlegt sé að falla frá meginreglu laganna um deiliskipulag við útgáfu leyfis þurfi framkvæmdin bæði að falla að aðalskipulagi sveitarfélags, sem geti falið í sér stefnumótun þess til a.m.k. tólf ára, ásamt því að vera í samræmi við núverandi landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðarinnar.
- Samkvæmt Aðalskipulagi Vestamannaeyja 2015–2035 er lóðin að Goðahrauni 3 á svæði ÍB-4, en skilgreind landnotkun þess er íbúðarbyggð. Í greinargerð aðalskipulagsins kemur fram að á svæðinu sé fjöldi lausra lóða, t.d. fyrir um 30 einbýli við Goðahraun og Búhamar. Þar segir einnig að allar tölur um fjölda íbúða séu til viðmiðunar þar sem stærð lóða og stærð íbúða geti haft áhrif á fjölda þeirra. Þá er tekið fram að deiliskipulag útfæri stefnu og skipulagsákvæði aðalskipulags nánar. Fyrir liggur skipulagsuppdráttur fyrir umrætt svæði, staðfestur af félagsmálaráðuneytinu árið 1982. Um er að ræða afstöðumynd þar sem sýndar eru götur, lóðir og tillaga að grunnfleti húsa. Þar eru ekki settir fram skilmálar um t.a.m. hæð og útlit húsa eða nýtingarhlutfall. Á uppdrættinum kemur fram að hann sé birtur til leiðbeininga og eftirbreytni öllum þeim er hlut eigi að máli.
- Þegar umhverfis- og skipulagsráð samþykkti byggingaráform Goðahrauns 3 á fundi 16. júní 2026 lá fyrir greinargerð vegna athugasemda er bárust við grenndarkynningu umsóknar um byggingarleyfi fyrir Goðahraun 3. Í greinargerðinni var m.a. vísað til skipulagsuppdráttarins frá árinu 1982 og má ráða af umfjölluninni að honum hafi ekki verið fylgt í hvívetna. Hafi lóðarhafi Goðahrauns 13 fengið sendan kortagrunn þar sem gefin hafi verið upp afmörkun byggingarreita. Kortagrunnurinn hafi ekki hlotið sérstaka staðfestingu, en tekið hafi verið mið af samræmi við byggingarreiti húsa sem fyrir væru. Við samþykkt byggingaráforma fyrir Goðahraun 13 hafi skapast fordæmi fyrir nýrri tegund bygginga í götunni og hafi þá verið útbúin nánari mæliblöð fyrir hverja lóð. Tilgreini þau t.d. viðmið um byggingarmagn, mænishæð og þakhalla. Fyrir Goðahraun 3 hafi byggingarreitur auk þess verið færður til vesturs í samræmi við byggingarlínu við Goðahraun 13.
- Í Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015–2035 er eins og áður segir tekið fram að deiliskipulag útfæri stefnu og skipulagsákvæði aðalskipulags nánar. Eigi að síður kusu bæjaryfirvöld í hinu kærða tilviki að neyta undanþáguheimildar 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga og grenndarkynna byggingarleyfisumsóknina. Þótt að vel hefði farið á því að ráðast í gerð heildstæðs deiliskipulags verður að telja að heimilt hafi verið, eins og á stóð, að láta nægja að grenndarkynna byggingarleyfið, enda verður ekki talið að byggðarmynstur eða þéttleiki byggðar breytist til mikilla muna við tilkomu hinnar umdeildu húseignar. Þá er framkvæmdin í samræmi við landnotkun svæðisins sem íbúðarbyggðar. Sú tilfærsla á byggingarreit sem kærandi gerir helst athugasemd við verður einnig talin í samræmi við byggðamynstur á svæðinu, svo sem Vestmannaeyjabær hefur fært rök að í máli þessu.
- Að öðru leyti telur úrskurðarnefndin ekki ástæðu til að fjalla um málsrök kæranda. Verða engir þeir annmarkar taldir á hinni kærðu ákvörðun að varðað geti gildi hennar.
Úrskurðarorð
Hafnað er kröfu kæranda um að felld verði úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúa Vestmannaeyjabæjar frá 2. júlí 2026 um að samþykkja byggingaráform fyrir einbýlishús á lóð nr. 3 við Goðahraun.
