Felld er úr gildi ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Austurlands frá 28. maí 2026 um útgáfu starfsleyfis að þeim hluta er varðar viðbótarsvæði. Að öðru leyti stendur hin kærða ákvörðun óröskuð.
Árið 2026, fimmtudaginn 29. október, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Arnór Snæbjörnsson formaður, Aðalheiður Jóhannsdóttir prófessor og Geir Oddsson auðlindafræðingur.
Fyrir var tekið mál nr. UUA2606013, kæra á ákvörðun heilbrigðisnefndar Austurlands frá 28. maí 2026 um að gefa út starfsleyfi fyrir tjald- og hjólhýsasvæði við Kaupvang 17 á Egilsstöðum.
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, 12. júní 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir HJH ehf., eigandi Skjólvangs 2, Egilsstöðum, þá ákvörðun heilbrigðisnefndar Austurlands frá 28. maí 2026 að gefa út starfsleyfi fyrir tjald- og hjólhýsasvæði við Kaupvang 17 á Egilsstöðum. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi. Einnig er krafist málskostnaðar úr hendi sveitarfélagsins.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands 12. júlí 2026.
Málavextir
- Á lóð nr. 17 við Kaupvang á Egilsstöðum hefur um árabil verið tjaldsvæði. Kærandi er eigandi lóðar handan götunnar, Skjólvangs 2. Í júlí 2025 krafðist kærandi þess fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála að ákvörðun sveitarstjóra Múlaþings um að synja beiðni um að stöðva rekstur tjaldsvæðisins yrði felld úr gildi. Með úrskurði nefndarinnar í máli nr. 118/2025, sem kveðinn var upp 26. ágúst 2025, var kærunni vísað frá þar sem ekki væri að finna sérstaka heimild til handa sveitarstjóra að taka ákvörðun um stöðvun reksturs tjaldsvæðis á grundvelli laga nr. 7/1998 og var því ekki talin liggja fyrir kæranleg ákvörðun í málinu. Yrði slík ákvörðun einungis tekin af heilbrigðisnefnd Austurlands.
- Með bréfi til Heilbrigðisnefndar Austurlands, dags. 27. ágúst 2025, krafðist kærandi stöðvunar reksturs tjaldsvæðisins á Egilsstöðum. Að sögn kæranda áttu frekari samskipti sér stað í kjölfarið og hafi heilbrigðiseftirlitið veitt rekstraraðila tjaldsvæðisins frest til 9. október s.á. til að fjarlægja aðstöðu utan svæðis sem starfsleyfi næði til, en það svæði liggur að lóð kæranda. Samkvæmt því sem segir í kæru mun rekstraraðili tjaldsvæðisins ekki hafa sinnt þeirri kröfu heilbrigðiseftirlitsins.
- Umsókn rekstraraðila um starfsleyfi fyrir tjald- og hjólhýsasvæði við Kaupvang 17 á Egilsstöðum barst Heilbrigðiseftirliti Austurlands 25. febrúar 2026. Við meðferð málsins hjá embættinu var aflað umsagnar skipulagsfulltrúa Múlaþings. Í umsögn hans, dags. 11. mars 2026, kom fram að lóðin Kaupvangur 17 sé viðskipta- og þjónustulóð og skráð 18.644 m2 í fasteignaskrá. Landnotkun svæðisins sé skilgreind í Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008–2028 sem opið svæði til sérstakra nota á reit O3: Tjaldsvæði, Egilsstöðum. Í Aðalskipulagi Múlaþings 2025–2045, sem sé í vinnslu, tilheyri reiturinn miðsvæði og komi fram í skilmálum að tjaldsvæði sé víkjandi samhliða uppbyggingu miðbæjarsvæðis. Í umsögninni kom einnig fram að rekstraraðila sé heimilt, samkvæmt samningi við sveitarfélagið, að hafa afnot af óbyggðu landi vestan Kaupvangs, 6.100 m2, á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst. Reitinn megi aðeins nota þegar eiginlegt tjaldsvæði sé fullnýtt og allar framkvæmdir skuli vera afturkræfar. Hann tilheyri svæði sem skilgreint sé fyrir uppbyggingu miðbæjar í aðal- og deiliskipulagi og sé um tímabundna notkun hans sem tjaldsvæðis að ræða. Starfsemin beri að víkja, með að hámarki þriggja mánaða fyrirvara, ef til framkvæmda komi á leigutíma.
- Drög að starfsleyfi voru auglýst á vefsíðu heilbrigðiseftirlitsins 16. mars 2026. Veittur var fjögurra vikna frestur til að skila inn athugasemdum við tillögu að starfsleyfi. Kærandi í máli þessu var meðal þeirra sem skiluðu athugasemdum. Með þeim var gagnrýnt að vafi léki á því hvort starfsemi tjaldsvæðis og skilgreint viðbótarsvæði samræmdist aðalskipulagi og deiliskipulagi svæðisins og að verulegra grenndaráhrifa gætti af tjaldsvæðinu gagnvart eigendum aðliggjandi fasteigna, s.s. vegna hávaða, umferðar, ásýndar, rusls og almenns ónæðis. Þá væru heimildir til að nýta viðbótarsvæðið óskýrar og gagnrýniverðar.
- Í svörum Heilbrigðiseftirlits Austurlands við innsendum athugasemdum á auglýsingartíma starfsleyfisins var því hafnað að starfsleyfið rækist á við skipulag svæðisins. Rekstur tjaldsvæðis gæti haft í för með sér aukna umferð og tímabundið álag, einkum á háannatíma en um væri að ræða miðsvæði samkvæmt deiliskipulagi þar sem gera mætti ráð fyrir fjölbreyttri atvinnu- og þjónustustarfsemi. Þá lægju ekki fyrir neinar skráðar kvartanir, eftirlitsniðurstöður eða önnur staðfest gögn sem sýndu fram á viðvarandi brot á hollustuháttum, mengunarvanda eða öðru ónæði. Um viðbótarsvæðið kom fram að um væri að ræða takmarkaða og tímabundna notkun, einkum vegna álagstíma fáa daga á ári, en ekki varanlega og almenna stækkun tjaldsvæðisins. Þó væri rétt að skýra betur framkvæmd skilyrðisins í endanlegu starfsleyfi til að tryggja fyrirsjáanleika og eftirlitshæfni.
- Hið kærða starfsleyfi var gefið út 7. maí 2026 til 12 ára með fyrirvara um fullnaðarafgreiðslu heilbrigðisnefndar Austurlands. Á fundi nefndarinnar 28. s.m. var útgáfa starfsleyfisins staðfest. Er það hin kærða ákvörðun í máli þessu. Í 1. gr. starfsleyfisins kemur fram að um sé að ræða starfsleyfi fyrir tjald- og hjólhýsasvæði við Kaupvang 17. Á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst hafi starfsleyfishafi heimild til að nýta svæði vestan Kaupvangs, alls um 6.100 m2. Svæðið vestan Kaupvangs megi samkvæmt samningi við sveitarfélagið Múlaþing einungis nýta þegar eiginlegt tjaldsvæði sé fullnýtt. Í starfsleyfinu segir að umgengisreglur skuli vera til staðar sem taki m.a. til hávaða, aksturs, meðferð úrgangs o.fl. Reglurnar skuli vera sýnilegar gestum og þeim sem noti viðkomandi þjónustu. Rekstraraðili skuli tryggja að ónæði gagnvart nágrönnum sé lágmarkað. Vísað er til þess að rekstraraðili skuli m.a. fara eftir reglugerð nr. 1025/2022 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim og starfsleyfisskilyrðum fyrir hjólhýsa-, smáhýsa- og tjaldsvæði. Samkvæmt gr. 2.2. í starfsleyfinu er aðstaða á svæðinu til að tæma og hreinsa ferðasalerni og í gr. 2.3. kemur fram að allur úrgangur skuli meðhöndlaður í samræmi við reglur sveitarfélagsins.
Málsrök kæranda
- Kærandi bendir á að hann hafi orðið fyrir margvíslegum og neikvæðum áhrifum af rekstri tjaldsvæðisins. Hið kærða starfsleyfi taki til stærra svæðis og sé nær fasteign kæranda en heimild til rekstrar hafi áður staðið til.
- Kærandi hafi ekki fengið neina tilkynningu um hina kærðu ákvörðun. Gagnvart kæranda feli útgáfa starfsleyfisins í sér stjórnvaldsákvörðun og slíka ákvörðun beri að birta viðkomandi sérstaklega, sbr. 20. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þá skuli samkvæmt 5. mgr. 7. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir sérstaklega tilkynna þeim sem athugasemdir hafi gert við starfsleyfi um afgreiðslu málsins. Við skoðun starfsleyfisins sjáist að athugasemdir kæranda hafi verið léttvægt metnar eða engin afstaða verið tekin til þeirra.
- Skilyrði til útgáfu starfsleyfisins hafi ekki verið fyrir hendi og af þeim ástæðum beri að fella útgáfu þess úr gildi. Svæðið sem hið kærða starfsleyfi taki til sé skipulagsskylt í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Framkvæmdir eða rekstur og þar með útgefin starfsleyfi þurfi að samræmast því skipulagi sem í gildi sé á hverju svæði. Rekstrarleyfi þurfi að fá styrka stoð í skýrum ákvæðum deiliskipulags. Í tölvupósti sveitarstjóra Múlaþings til þáverandi lögmanns kæranda 8. júlí 2025 hafi verið staðfest að svæðið, sem liggi að lóð kæranda, sé ekki tilgreint sem tjaldsvæði í gildandi aðal- og deiliskipulagi og notkun hafi verið heimiluð með fyrirvara um að væri tímabundin. Þannig hafi beinlínis verið staðfest að starfsemin rúmist ekki innan skipulags sveitarfélagsins. Ekki sé kunnugt um að breytingar hafi verið gerðar á þessu sem leiði til þess að starfsleyfið rúmist innan skipulags. Þegar deiliskipulag fái ekki næga stoð í aðalskipulagi verði ekki á því byggt með íþyngjandi hætti í garð kæranda og hinu sama gegni varðandi útgáfu starfsleyfis. Því bresti skilyrði af skipulagsréttarlegum toga til útgáfu hins kærða starfsleyfis. Í umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa Múlaþings með hinu kærða starfsleyfi virðist því haldið fram að svæðið sem um ræði sé skipulagt sem tjaldsvæði. Hins vegar verði ekki séð að þær fullyrðingar fái stoð í gildandi skipulagi. Þá varði í raun engu tilvísanir til þess að um skammvinna starfsemi sé að ræða eða að stækkun svæðisins eigi eingöngu að nýta þegar álag sé meira og að sumri. Starfsleyfið sé gefið út til 12 ára og ekkert hindri að hið stækkaða svæði sé nýtt eins og rekstraraðila þóknist, enda séu engar hlutlægar reglur eða annað sem girði fyrir það í starfsleyfinu.
- Starfsleyfið lúti að starfsemi sem sé þess eðlis að hún hafi veruleg áhrif á grenndarréttarlega hagsmuni kæranda, t.d. vegna hávaða, ásýndar, umferðar og fleiri atriða sem ekki verði tæmandi talin. Skortur á viðhlítandi könnun feli í sér brot á reglum stjórnsýslulaga, sbr. m.a. rannsóknarreglu 10. gr. laganna. Á fyrri stigum málsins hafi kærandi áréttað að af rekstrinum hljótist mikil ónæði, rusl, hávaði, mikil umferð, sjónmengun o.fl. Þannig sé lögmætum hagsmunum kæranda verulega raskað. Enginn reki virðist hafa verið gerður að því að tryggja eða verja þá hagsmuni, þrátt fyrir skýrar ábendingar. Þar sem starfsemin hafi í för með sér sértæk grenndaráhrif þurfi sérstaklega að gera ráð fyrir slíkum með skýrum hætti í deiliskipulagi, sbr. dóm Hæstaréttar í máli nr. 384/2002.
- Verði talið að breyting á skipulagi heimili starfsemi af því tagi sem starfsleyfið lúti að og að því marki sem þar greini þá leiði slíkt til þess að verðmæti fasteignar kæranda og nýtingarmöguleikar skerðist verulega og umfram það sem við eigi um sambærilegar eignir í næsta nágrenni. Af því og ákvæði 1. mgr. 51. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 leiði að kærandi eigi bótarétt vegna tjóns sem af hljótist úr hendi sveitarfélagsins. Hinu sama gegni þegar litið sé til þess að starfsleyfi sé gefið út í trássi við grenndarréttarlega hagsmuni kæranda.
- Samkvæmt greinargerð með hinu kærða starfsleyfi hafi að einhverju leyti verið brugðist við innsendum athugasemdum kæranda. Þær breytingar séu þó ekki þess eðlis að brugðist hafi verið við annmörkum. Einu viðbrögðin virðast lúta að óljósum markmiðsákvæðum í greinargerð sem ekki séu útfærð nánar af hálfu leyfisveitanda og virðist ætlað að plástra þá annmarka sem séu á leyfinu. Starfsleyfishafa sé þannig í sjálfsvald sett hvernig staðið sé að umgengnisreglum. Þá sé vísað til þess að viðbótarsvæði megi aðeins nýta tímabundið þegar megintjaldsvæði sé fullnýtt og að rekstraraðili skuli geta sýnt fram á forsendur nýtingar viðbótarsvæðisins samkvæmt beiðni eftirlitsaðila. Með þessu séu grenndarréttarlegir hagsmunir síður en svo tryggðir.
- Varðandi umgengni, salerni o.fl. sé vísað til þess að atriði sem að þessu lúti hafi verið ábótavant liðin ár án þess að sveitarfélagið hafi brugðist við. Þannig hafi salernisgámur verið á staðnum frá því sl. vor án nokkurs samráðs eða kynningar af grenndarréttarlegum toga, sem þó hefði verið einfalt að standa að og nauðsynlegt. Staðsetning gámsins hafi verið nærri inngangi í mannvirki í eigu kæranda, sem sé í senn til lýtis og armæðu.
Málsrök Heilbrigðiseftirlits Austurlands
- Af hálfu Heilbrigðiseftirlits Austurlands er tekið fram að hin kærða ákvörðun hafi m.a. verið byggð á umsögn frá sveitarfélaginu Múlaþingi, dags. 11. mars 2026. Í umsögninni hafi komið fram að lóðin Kaupvangur 17 væri skilgreind sem viðskipta- og þjónustulóð og að rekstur tjaldsvæðis væri í samræmi við þær forsendur sem sveitarfélagið legði til grundvallar. Einnig kom fram að tímabundin nýting viðbótarsvæðis vestan Kaupvangs væri byggð á samningi við sveitarfélagið og háð skilyrðum sem þar væru tilgreind. Heilbrigðiseftirlitið hafi ekki lögbundið hlutverk við að taka bindandi afstöðu til skipulagsmála eða endurskoða skipulagsákvarðanir sveitarfélaga. Við afgreiðslu starfsleyfisins hafi verið byggt á fyrirliggjandi umsögn þess stjórnvalds sem fari með skipulagsmál innan sveitarfélagsins.
- Svæðið, sem liggi vestan Kaupvangs og um ræði hafi að geyma óbyggðar lóðir í eigu Múlaþings. Svæðið hafi áður verið notað sem tjaldsvæði og hafi verið í slíkum notum undanfarin ár. Í eldra aðalskipulagi hafi svæðið verið tilgreint miðsvæði, en árið 2010 hafi aðaltjaldsvæði verið flutt. Aðalskipulag geri grein fyrir svæðinu sem miðsvæði og fyrirætlanir séu um að þar rísi byggingar. Í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 sé miðsvæði skilgreint sem svæði fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi og stjórnsýslu sem þjóni heilu landsvæði, þéttbýlisstað eða fleiri en einu bæjarhverfi, s.s. verslanir, skrifstofur, þjónustustofnanir, hótel, veitinga- og gistihús, menningarstofnanir og önnur hreinleg atvinnustarfsemi sem talin sé samræmast yfirbragði og eðli starfsemi miðsvæðis. Hafa beri í huga að ákvæði aðalskipulags Múlaþings hafi verið samþykkt í gildistíð eldri skipulagsreglugerðar nr. 40/1998. Vísað sé til skilgreiningar miðsvæða í þeirri reglugerð, en tjaldsvæði hafi samrýmst þeirri landnotkun, enda hafi aðaltjaldsvæði Egilsstaða beinlínis verið rekið á miðsvæði fram til 2011-2012.
- Heimildir sveitarfélags til tímabundinna nota af óbyggðu svæði verði að skoða m.t.t. aðalskipulags og eðli skipulagsáætlana. Ákvæði aðalskipulags og deiliskipulags hafi ekki þá þýðingu að tímabundin afnot af landi, fram að því að uppbygging mannvirkja eigi sér stað, sé óheimil. Landið verði ekki „ónothæft“ fyrir eiganda þess þar til mannvirki hafi risið á því. Ljóst sé að á ýmsum byggingarsvæðum og lóðum eigi sér stað einföld og mannvirkjalaus landnotkun. Jafnframt geti verið veitt stöðuleyfi eigi það við. Fjölmörg dæmi séu t.d. um að á óbyggðum svæðum sem skipulagsáætlanir tilgreini sem byggingarlóðir fyrir atvinnu- eða íbúðarhúsnæði sé land notað fram að lóðaúthlutunum, t.d. sem beitarsvæði, útivistarsvæði, geymslusvæði, eða minniháttar starfsemi tengda framkvæmdum/starfsemi á nálægum lóðum o.s.frv.
- Það hafi engar skráðar kvartanir vegna ónæðis borist embættinu frá öðrum aðilum en kæranda við meðferð málsins. Ekki hafi legið fyrir eftirlitsskýrslur eða önnur gögn sem bent hafi til brota gegn lögum nr. 7/1998 eða reglugerðum settum samkvæmt þeim. Fullyrðingar um ónæði, rusl, mikla umferð og sjónmengun hafi því ekki verið studdar gögnum sem gefið hafi tilefni til að synja umsókn um starfsleyfi.
- Athugasemdir kæranda hafi verið teknar til skoðunar og leitt m.a. til breytinga á orðalagi starfsleyfisins. Sérstaklega hafi verið skerpt á skilyrðum um nýtingu viðbótarsvæðis vestan Kaupvangs til að auka skýrleika, fyrirsjáanleika og eftirlitshæfni skilyrðanna. Þá hafi jafnframt verið sett nánari ákvæði um umgengni og skyldu rekstraraðila til að lágmarka ónæði gagnvart nágrönnum.
- Kæranda hafi ekki verið send sérstök tilkynning um afgreiðslu málsins þrátt fyrir að hann hafi sent inn athugasemdir við auglýsta tillögu að starfsleyfi, sbr. 5. mgr. 7. gr. laga nr. 7/1998. Um mistök af hálfu embættisins hafi verið að ræða. Kærandi hafi síðar fengið vitneskju um ákvörðunina og hafi nýtt sér lögbundna kæruheimild sína til fulls. Því hafi þessi annmarki ekki haft áhrif á efni ákvörðunarinnar né skert efnisleg réttindi kæranda við meðferð málsins.
- Málið hafi verið nægjanlega rannsakað, framkomnar athugasemdir hafi fengið efnislega meðferð og ákvörðun um útgáfu starfsleyfis hafi verið byggð á málefnalegum og lögmætum sjónarmiðum.
Viðbótarathugasemdir kæranda
- Til viðbótar við fyrri málsrök bendir kærandi á að Heilbrigðiseftirlit Austurlands byggi sjónarmið sín einkum á tilvísunum til fullyrðinga af hálfu annarra innan sveitarfélagsins án þess að rök liggi til grundvallar. Þótt heilbrigðiseftirlitið telji sér ekki fært að taka afstöðu til skipulagsmála þá sé það ekki á færi þess að gefa út starfsleyfi þegar annmarkar séu á. Þannig geti tilvísanir eða afstaða sveitarfélagsins, sem samræmist ekki gildandi skipulagi og reglum, hvort sem slíkt varði aðal- eða deiliskipulag, ekki leitt til þess að uppfyllt séu lagaskilyrði til útgáfu hins kærða starfsleyfis. Tilvísanir til þess að heimildir standi til tiltekinnar landnotkunar í andstöðu við skipulag varði úrlausn málsins ekki nokkru. Þá sé því mótmælt að slík túlkun fái stoð í lögum eða að langvarandi óheimil not réttlæti starfsemina eða útgáfu starfsleyfisins nú. Ljósmyndir sem kærandi hafi sent úrskurðarnefndinni sýni hvernig leyfishafi hafi nýtt svæði langt út fyrir hið skilgreinda svæði samkvæmt starfsleyfi. Þessi háttur hafi einnig verið hafður á óháð því hvort aðalsvæðið hafi verið nýtt eða ekki.
Niðurstaða
- Í máli þessu er deilt um þá ákvörðun heilbrigðisnefndar Austurlands frá 28. maí 2026 að gefa út starfsleyfi til fyrir tjald- og hjólhýsasvæði við Kaupvang 17 á Egilsstöðum. Kæruheimild til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er að finna í 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og barst kæra innan kærufrests. Krafa um ákvörðun kærumálskostnaðar kemur ekki til álita þar sem úrskurðarnefndin hefur ekki heimild til töku slíkrar ákvörðunar.
- Samkvæmt 1. gr. laga nr. 7/1998 er markmið laganna að búa landsmönnum heilnæm lífsskilyrði og vernda þau gildi sem felast í heilnæmu og ómenguðu umhverfi, jafnframt því að koma í veg fyrir eða að draga úr losun út í andrúmsloft, vatn og jarðveg og koma í veg fyrir myndun úrgangs í því skyni að vernda umhverfið. Í 1. mgr. 6. gr. laganna er kveðið á um að allur atvinnurekstur, sbr. viðauka I., II. og IV., skuli hafa gilt starfsleyfi sem Umhverfis- og orkustofnun eða heilbrigðisnefndir gefa út. Hin umdeilda starfsemi í máli þessu er háð starfsleyfi heilbrigðisnefndar sem tjald- og hjólhýsasvæði, sbr. 104. tl. viðauka IV í lögum nr. 7/1998. Við útgáfu starfsleyfis ber heilbrigðisnefnd að fara að þeim málsmeðferðarreglum sem tilgreindar eru í nefndum lögum að teknu tilliti til ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
- Ákvörðun um útgáfu leyfisins var tekin af framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Austurlands og í greinargerð þess er vísað til þess að sú ákvörðun sé í samræmi við heimild í 13. gr. stofnsamnings byggðarsamlags um rekstur Heilbrigðiseftirlits Austurlands. Í þeirri grein samningsins segir m.a. að milli funda sé framkvæmdastjóra og öðrum heilbrigðisfulltrúum heimil afgreiðsla mála f.h. heilbrigðisnefndar Austurlands svo sem útgáfa starfsleyfa samkvæmt lögum nr. 7/1998. Starfsleyfið var gefið út 7. maí 2026 og útgáfa þess staðfest á fundi heilbrigðisnefndar Austurlands 28. s.m.
- Líkt og fram kemur í málavöxtum gerði kærandi athugasemdir við kynnt drög að starfsleyfi innan athugasemdafrests. Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 7/1998 segir að tilkynna skuli þeim sem gert hafi athugasemdir um ákvörðun um útgáfu starfsleyfis. Fram hefur komið bæði af hálfu kæranda og heilbrigðiseftirlitsins að ekki hafi verið fylgt þessum fyrirmælum. Gera verður athugasemd við það en ekki er þó um slíkan annmarka á málsmeðferð að ræða að varðað geti gildi hinnar kærðu ákvörðunar í máli þessu, en kærandi kom að kæru til úrskurðarnefndarinnar innan kærufrests.
—–
- Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir skal allur atvinnurekstur sem sótt er um starfsleyfi fyrir vera í samræmi við skipulag samkvæmt skipulagslögum. Eru þessi fyrirmæli af sama meiði og 1. mgr. 12. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem kveðið er á um að mannvirki og aðrar framkvæmdir og aðgerðir sem hafi áhrif á umhverfið og ásýnd þess skuli vera í samræmi við skipulagsáætlanir. Það skal þó athugað að skipulagsáætlun felur í sér stefnu til framtíðar um einstaka þætti, sbr. 20. tölul. 2. gr. skipulagslaga.
- Samkvæmt hinu kærða starfsleyfi gildir það fyrir tjald- og hjólhýsasvæði við Kaupvang 17. Er svo tekið fram í gr. 1.1. starfsleyfisins að á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst hafi starfsleyfishafi heimild til að nýta svæði „vestan Kaupvangs“, alls um 6.100 m2. Það svæði megi samkvæmt samningi við sveitarfélagið Múlaþing einungis nýta þegar eiginlegt tjaldsvæði sé fullnýtt. Með starfsleyfinu er afstöðumynd af svæðinu.
- Í gildi er Aðalskipulag Fljótsdalshéraðs 2008–2028. Samkvæmt breytingu sem gerð var á skipulaginu árinu 2010 er lóðin Kaupvangur 17 á opnu svæði til sérstakra nota, sem auðkennt er sem O32 Tjaldsvæði í miðbæ, sbr. gr. 4.12.1. í þágildandi skipulagsreglugerð nr. 400/1998. Um reitinn kemur fram í aðalskipulaginu að svæðið sé tjaldsvæði með tilheyrandi aðstöðu, leiksvæðum og þjónustuhúsum. Kemur og fram að tjaldsvæðið hafi áður verið milli Kaupvangs og þjóðvegs 1, en með breytingunni sé það fært yfir götuna, þ.e. austur yfir Kaupvang. Gert sé ráð fyrir að þjónusta sem veitt sé á svæðinu á forsendum tjaldsvæðisins standi öðrum en tjaldgestum til boða. Svæðið sem vísað er til í hinu kærða starfsleyfi sem „svæði vestan Kaupvangs“ tilheyri á hinn bóginn miðsvæði, M1 Miðbæjarkjarni á Egilsstöðum. Samkvæmt breytingu sem gerð var á aðalskipulaginu árið 2023 séu þar heimilar nýbyggingar, viðbyggingar og stækkanir þannig að það falli að landi, yfirbragði byggðar sem fyrir er og hlutverki svæðisins sem miðkjarna. Gert sé ráð fyrir blöndu verslunar, þjónustufyrirtækja, þjónustustofnana og íbúða. Íbúðir séu almennt ofan jarðhæðar eða á sérstökum íbúðalóðum. Ásýnd byggðarinnar verði aðlaðandi og frágangur gatna og torgsvæða sé vandaður, s.s. hvað varðar yfirborðsefni, gróður og lýsingu. Leitast verði við að nota náttúruleg efni sem vísa til einkenna byggðarinnar. Áhersla verði lögð á vistlegt gönguumhverfi, skjólsæl rými og vistvænar ofanvatnslausnir.
- Í gildi er deiliskipulag miðbæjar Egilsstaða, frá 14. júlí 2021. Innan skipulagssvæðisins er lóðin Kaupvangur 19, þar sem sýnt er tjaldsvæði. Í sérskilmálum fyrir lóðina kemur fram að hún sé notuð sem tjaldsvæði með tilheyrandi þjónustu og leiksvæði. Þjónustubygging sé staðsett á Kaupvangi 17. Tjaldbúar leggi bílum sínum við tjöld/tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi sín. Húsbílar leggi í þar til gerð stæði inni á tjaldsvæðinu. Einnig kemur fram að framtíðarnotkun reitsins breytist þegar búið sé að byggja upp miðbæinn samkvæmt deiliskipulaginu og þörf verði á nýjum uppbyggingarreitum innan miðbæjardeiliskipulagsins. Í greinargerð deiliskipulagsins segir að fyrirsjáanlegt sé að flytja þurfi tjaldsvæðið seinna meir vegna uppbyggingar miðbæjarsvæðisins. Tjaldsvæðið verði í notkun þar til svæði við Egilsstaðavík verði tekið í notkun. Deiliskipulag þetta nær einnig til svæðisins „vestan Kaupvangs“, þ.e. lóðanna Sólvangs 2–6 og Kaupvangs 20, þar sem er svokallað viðbótarsvæði samkvæmt umþrættu starfsleyfi. Í sérskilmálum fyrir þá lóð er gert ráð fyrir íbúðum og er önnur landnotkun ekki nefnd.
- Í gr. 6.2. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 er kveðið á um að stefna um landnotkun skuli sýnd með einum landnotkunarflokki, en sé gert ráð fyrir landnotkun á sama reit sem falli undir fleiri en einn landnotkunarflokk skuli sá flokkur tiltekinn fyrir reitinn sem sé ríkjandi, en umfang annarrar landnotkunar tilgreint í skilmálum skipulags. Samkvæmt b. lið reglugerðargreinarinnar telst til miðsvæðis svæði fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi og stjórnsýslu sem þjónar heilu landsvæði, þéttbýlisstað eða fleiri en einu bæjarhverfi, svo sem verslanir, skrifstofur, þjónustustofnanir, hótel, veitinga- og gistihús, menningarstofnanir og önnur hreinleg atvinnustarfsemi sem talin sé samræmast yfirbragði og eðli starfsemi miðsvæðis. Samkvæmt i. lið greinarinnar telst til afþreyingar- og ferðamannasvæðis svæði fyrir afþreyingu og móttöku ferðafólks, þ.m.t. þjónustumiðstöðvar á hálendi og verndarsvæðum, fjallaskálar, tjald- og hjólhýsasvæði og skemmtigarðar. Þótt tjaldsvæði séu með þessu talin upp í flokki afþreyingar- og ferðamannasvæða er ekki er loku fyrir það skotið að rekstur tjaldsvæðis geti talist samrýmanlegur þeirri landnotkun sem talin er falla undir miðsvæði.
- Í Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008–2028 er hvergi minnst á rekstur tjaldsvæðis á svæði M1. Þá er í deiliskipulagi ekki minnst á rekstur tjaldsvæðis á því svæði sem skilgreint er sem viðbótarsvæði samkvæmt starfsleyfinu, heldur kemur í sérskilmálum reitsins það eitt fram, sem áður er rakið, að þar sé gert ráð fyrir íbúðum. Samkvæmt 2. mgr. gr. 6.1. í skipulagsreglugerð skal, ef nýtt skipulag felur í sér breytingu á stefnu um landnotkun á tilteknum reit, gerð grein fyrir því hvenær og hvernig breytingin kemur til framkvæmda og hvað gildi fram að því. Var þeirrar heimildar ekki neytt árið 2010 þegar gerð var breyting á aðalskipulagi við það að tjaldsvæðið var fært yfir götuna Kaupvang þangað sem það nú er. Í 3. mgr. sömu greinar í skipulagsreglugerð er kveðið á um að heimilt sé að skilgreina landnotkun og takmarkanir á henni þrengra í deiliskipulagi en gert sé í aðalskipulagi og t.d. kveða á um mismunandi notkun og starfsemi á einstökum lóðum, lóðarhlutum eða byggingarhlutum. Var það heldur ekki gert við þetta tilefni.
- Samkvæmt framanröktu er rekstur tjaldsvæðis á svokölluðu viðbótarsvæði ekki í samræmi við skipulag svæðisins í skilningi 1. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 og verður ekki hjá því komist að fella úr gildi þann hluta starfsleyfisins sem tekur til þess svæðis þótt fyrir liggi að rekstur tjaldsvæðisins hafi farið þar fram síðustu ár. Eru að öðru leyti ekki neinir þeir ágallar á efni eða undirbúningi hinnar kærðu leyfisveitingar að raski gildi hennar.
Úrskurðarorð
Felld er úr gildi ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Austurlands frá 28. maí 2026 um útgáfu starfsleyfis að þeim hluta er varðar viðbótarsvæði. Að öðru leyti stendur hin kærða ákvörðun óröskuð.
