Úrskurðarorð
Felld er úr gildi ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar frá 12. maí 2026 um að gefa Reykjavíkurborg fyrirmæli um lokun og vöktun Gufuneshauga.
Árið 2026, föstudaginn 4. september, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Aðalheiður Jóhannsdóttir prófessor og Geir Oddsson auðlindafræðingur. Arnór Snæbjörnsson formaður tók þátt í gegnum fjarfundabúnað.
Fyrir var tekið mál nr. UUA2606011 kæra á ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar frá 12. maí 2026 um að gefa Reykjavíkurborg fyrirmæli um lokun og vöktun Gufuneshauga.
- Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 10. júní 2026, er barst nefndinni 11. s.m., kærir Reykjavíkurborg þá ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar frá 12. maí s.á. að gefa borginni fyrirmæli um lokun og vöktun Gufuneshauga, landeignanúmer 221447. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði ógild. Jafnframt var gerð krafa um að réttaráhrifum ákvörðunarinnar yrði frestað og var fallist á þá kröfu með úrskurði nefndarinnar 30. júní 2026.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Umhverfis- og orkustofnun 19. júní 2026.
Málavextir
- Í Gufunesi við Reykjavík var starfræktur urðunarstaður um langt árabil. Á kortasjá Umhverfis- og orkustofnunar um mengaðan jarðveg kemur fram að Gufuneshaugarnir hafi verið urðunarstaður Reykjavíkurborgar á árunum 1967–1990. Holræsabílar hafi haldið áfram að urða á svæðinu þar til 2001. Allur úrgangur sem féll til í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Mosfellsbæ og víðar hafi verið urðaður á svæðinu. Spilliefni hafi verið urðuð í spilliefnapyttum eftir árið 1984, en fram að því hafi spilliefni verið urðuð með öðrum úrgangi á svæðinu. Stærð svæðisins sé um 45 hektarar og á að giska 2–5 miljónir rúmmetrar.
- Við meðferð þessa máls hafa verið lögð fram bréfaskipti stjórnvalda og nokkur önnur gögn sem varða starfsemi Gufuneshauga. Nefna má að í endurriti úr bréfabók Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur frá árinu 1967 kemur fram að á fundi 13. janúar þess árs hafi heilbrigðisnefndin samþykkt að hluti af sorpmagni borgarinnar skuli flutt í nyrðri hluta vogsins milli Gufuness og Gufunesshöfða. Mælt var með því að svæðið yrði afgirt og sorp hulið jafnóðum með fyllingarefni og rekstri að öðru leyti hagað svo að óþrifnaður eigi stafi af að dómi nefndarinnar. Fyrir liggja einnig gögn sem varða stækkun hauganna á áttunda áratugnum.
- Meðal annarra gagna er bréf Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur til heilbrigðisráðherra, dags. 24. apríl 1989, þar sem fram kemur að sorphaugarnir í Gufunesi hafi gilt starfsleyfi sem veitt hafi verið árið 1967. Heilbrigðiseftirlitið hafi haft reglulegt eftirlit með rekstri þeirra fram til þess að Hollustuvernd ríkisins hafi yfirtekið eftirlitið við gildistöku reglugerðar nr. 390/1985 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem gæti haft í för með sér mengun. Í bréfinu segir að brýnt sé að halda áfram eftirliti með haugunum eftir að notkun þeirra ljúki. Engin þétting sé í botni þeirra og því engin uppsöfnun eða hreinsun sigvatns. Einnig sé nær ekkert vitað um eiturefni og hættuleg efni sem þar hafi verið urðuð, en slík efni geti komið fram í sigvatni eða sem lofttegundir áratugum eftir að haugunum sé lokað.
- Fyrir liggur skýrsla Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur frá 2006 um gamla urðunarstaði í Reykjavík. Þar er frá því greint að urðunarstaðurinn sé u.þ.b. 400–450.000 m2. Í hann hafi farið allt almennt húsasorp auk spilliefna, bílhræja, garðaúrgangs, brotajárns, timburs, byggingarúrgangs og úrgangs úr holræsabílum. Í fyrstu hafi ekki verið gerð nein tilraun til að aðskilja úrgang sem farið hafi á haugana heldur hafi spilliefnum verið blandað saman við almennan úrgang. Eftir 1984 hafi olía verið sett í sér pytti og sé nokkurn veginn vitað hvar þeir séu. Nokkuð af rannsóknum hafi verið gerðar á haugnum síðan hann hafi verið aflagður, en ekki hafi verið að fullu gengið frá honum fyrr en árið 1992. Eftir lokun hins eiginlega urðunarstaðar hafi verið haldið áfram að urða úrgang frá holræsabílum í útjaðri svæðisins en þeirri urðun hafi verið hætt u.þ.b. 2001.
- Í matsáætlun Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar vegna Sundabrautar, dags. 15. september 2023, er fjallað stuttlega um Gufuneshauga og kemur fram að uppbygging þeirra hafi almennt verið með þeim hætti að neðst var komið fyrir rusli frá byggingarsvæðum og fyrirtækjum. Þar ofan á hafi verið komið fyrir heimilissorpi í tveimur til þremur lögum. Einnig hafi spilliefni verið urðuð í haugunum, m.a. úrgangsolía (olíusori) og efni sem innihéldu PCB og arsenik auk talsverðs magns af asbesti. Síðan var urðað yfir með jarðvegsfyllingu sem verið hafi allt að 3 m þykk og sáð í yfirborðið. Gasmyndun sé í haugunum en helstu gastegundir séu metan (CH4) og koldíoxið (CO2).
- Með bréfi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur til Umhverfisstofnunar, dags. 2. janúar 2023, var óskað eftir upplýsingum og leiðbeiningum um það hvernig best væri að standa að rannsóknum og vöktun á urðunarstaðnum vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á og við hann. Í bréfinu kom fram að engin reglubundin vöktun hefði verið á og við haugsvæðið frá því að urðun lagðist af, en fyrir lægju upplýsingar um að mikið magn spilliefna væri þar urðað. Í svarbréfi stofnunarinnar, dags. 9. febrúar s.á. kom fram að varhugavert og óráðlegt væri að rjúfa hauginn þar sem það gæti valdið ófyrirséðum breytingum á ástandi hans með tilliti til gasmyndunar, lektar í grunnvatn og sjó, dreifingu mengunar í jarðveg undir og umhverfis hauginn, lyktarmengunar, brunahættu og hættu á sjálfsíkveikju.
- Með bréfi Umhverfis- og orkustofnunar til Reykjavíkurborgar, dags. 30. september 2025, kom fram að stofnunin hefði til skoðunar að vinna fyrirmæli um vöktun urðunarstaðarins. Taldi stofnunin brýnt að urðunarstaðurinn yrði vaktaður og að þar færi fram að lágmarki reglubundin vöktun á grunn- og yfirborðsvatni. Með bréfi, dags. 1. desember 2025, tilkynnti stofnunin Reykjavíkurborg að unnið væri að fyrirmælum um frágang og vöktun urðunarstaðarins. Væri það álit stofnunarinnar að borgin bæri ábyrgð á viðhaldi og vöktun staðarins svo lengi sem telja mætti að mengunarhættu stafaði af honum, sbr. 61. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 24. gr. reglugerðar nr. 738/2003 um urðun úrgangs. Var óskað nánar tilgreindra upplýsinga og áttu sér stað nokkur samskipti milli stofnunarinnar og borgarinnar í kjölfarið.
- Í mars 2026 sendi Umhverfis- og orkustofnun tillögu að fyrirmælum um lokun og vöktun Gufuneshauga til Reykjavíkurborgar. Með bréfi, dags. 20. apríl s.á., var erindi þessu mótmælt. Kom um leið fram að mikilvægt væri að hefja reglubundna vöktun á urðunarstaðnum, en hún yrði ekki á grundvelli fyrirmæla skv. 6. mgr. 61. gr. laga nr. 55/2003. Með tölvubréfi stofnunarinnar til borgarinnar 10. apríl 2026 voru reifuð frekari sjónarmið vegna málsins og áréttað að enn væri vart mengunar á urðunarstaðnum og þörf væri á vöktun samkvæmt ákvæðum laganna.
- Með hinni kærðu ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar, dags. 12. maí 2026, var Reykjavíkurborg tilkynnt um útgáfu fyrirmæla um lokun og vöktun Gufuneshauga og kom fram að sýnatökubrunnar skyldu tilbúnir á svæðinu fyrir 1. júlí 2026. Ráðist yrði í lokunareftirlit og þyrfti að staðfesta lokun urðunarstaðarins í samræmi við 1. mgr. 61. gr. laga nr. 55/2003. Kom og fram að í gr. 1.7 í fyrirmælunum væri gerð krafa um vöktun og að skila skyldi niðurstöðum til stofnunarinnar fyrir 1. maí 2027. Samkvæmt gr. 1.8 í fyrirmælunum skyldi mæla stöðu grunnvatns, samsetningu grunnvatns, samsetningu yfirborðsvatns, mengunarefni í sjávarseti og magn og samsetningu hauggass fyrir 1. október 2026. Tekið var fram að fyrirmæli sem þessi gildi að jafnaði í 30 ár en þau verði endurskoðuð á þriggja ára fresti sem og að innheimt yrði gjald fyrir vinnslu og útgáfu fyrirmælanna.
Málsrök kæranda
- Af hálfu Reykjavíkurborgar kemur fram að hina kærðu ákvörðun skorti lagastoð, þ.e. hún standist ekki meginreglu um bann við afturvirkni laga og lögmætisreglu stjórnsýsluréttar. Nýjum eða yngri lögum verði ekki beitt um lögskipti sem lokið sé eða atvik sem gerst hafi áður en þau hafi tekið gildi. Sé þeim ætlað að ná til ástands og atvika sem orðið hafi til fyrir gildistöku þeirra þurfi þau að kveða svo á um. Gufuneshaugar hafi verið aflagðir við gildistöku laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Meginreglu um bann við afturvirkni laga sé ætlað að tryggja réttaröryggi og fyrirsjáanleika og að lögmætar athafnir hafi ekki íþyngjandi afleiðingar síðar meir vegna kerfisbreytinga.
- Lögum nr. 55/2003 sé ætlað að gilda um starfandi sem og nýja urðunarstaði. Í 23. gr. laganna sé kveðið á um skyldu rekstraraðila til að innheimta gjald fyrir förgun úrgangs sem m.a. skuli standa straum af kostnaði við lokun urðunarstaðar og nauðsynlegt eftirlit í kjölfar lokunar í 30 ár. Slíkar lokunaraðgerðir verði ekki ákveðnar fyrir urðunarstaði sem hafi verið aflagðir. Lögin hafi verið sett til innleiðingar á m.a. tilskipun Evrópuráðsins 1999/31/EB, um urðun úrgangs frá 26. apríl 1999. Samkvæmt 25. lið aðfaraorða þeirrar tilskipunar sé ákvæðum hennar um lokunaraðgerðir ekki ætlað að ná til urðunarstaða sem lokað hafi verið fyrir gildistöku hennar. Túlka beri lögin til samræmis við tilskipunina.
Málsrök Umhverfis- og orkustofnunar
- Af hálfu stofnunarinnar er reifað að hin kærða ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, einkum ákvæða 1.–3. gr. um markmið, gildissvið og skilgreiningar og 60. og 61. gr. laganna sem kveði á um ábyrgð rekstraraðila um eftirlit og vöktun með urðunarstað og lokun urðunarstaðar. Séu ákvæði fyrirmælanna um lokun og vöktun sett í samræmi við 61. gr. laganna og 24. gr. reglugerðar nr. 738/2003 um urðun úrgangs. Með mengunarvarnareglugerð nr. 48/1994, sem sett hafi verið áður en urðun úrgangs hafi verið hætt á Gufuneshaugum, hafi verið innleiddar tilskipanir Evrópuráðsins 74/442/EBE um úrgang og 91/689/EBE um hættulegan úrgang. Samkvæmt skilgreiningu á meðhöndlun úrgangs í þeirri reglugerð taki hún m.a. til eftirlits með urðunarstað, sbr. 2. gr. Í 3. gr. laga nr. 55/2003 komi fram að undir meðhöndlun úrgangs falli eftirlit með starfsemi og umsjón með förgunarstöðum eftir að þeim hafi verið lokað.
- Lög nr. 55/2003 hafi verið sett með hliðsjón af tilskipun 1999/31/EB og í greinargerð með frumvarpi því sem orðið hafi að lögum nr. 55/2003 séu markmið tilskipunarinnar rakin. Í greinargerðinni komi einnig fram að helstu nýmæli frumvarpsins séu ákvæði um kerfisbundna vöktun rekstraraðila urðunarstaðar í kjölfar lokunar hans og ákvæði um tryggingu fyrir því að staðið sé við ákvæði starfsleyfis, þ. á m. lokunar- og eftirlitsaðgerðir eftir lokun urðunarstaðar. Með tilskipuninni hafi verið settar lágmarkskröfur um skyldur rekstraraðila urðunarstaða. Í 25. lið aðfaraorða hennar komi fram að urðunarstaðir sem hafi verið lokað heyri ekki undir tilskipunina, en þrátt fyrir það hafi verið heimilt að setja strangari reglur um meðferð úrgangs í íslensk lög en í tilskipuninni. Í ákvæði I. til bráðabirgða við lög nr. 55/2003 komi fram að urðunarstaðir sem væru í rekstri við gildistöku laganna skyldu uppfylla nánar tilgreindar kröfur fyrir 16. júlí 2009, en ella skyldi þeim lokað. Ákvæði laganna, að teknu tilliti til þeirra tilskipana og tilgangs sem að baki þeim liggi, séu skýr, en einnig sé nauðsynlegt að líta til eðlis lagasetningarinnar, markmiðs laganna og orðalags. Verði að skilja ákvæðin og lögin í heild á þann veg að þau gildi um eldri urðunarstaði þar sem rekstri hafi verið hætt og þar með urðunarstaðinn í Gufunesi, jafnvel þótt urðun hafi ekki verið í virkum gangi þegar lögin hafi verið sett.
- Meðferð úrgangs á urðunarstaðnum sé enn ólokið þótt urðun hafi verið hætt og gengið hafi verið frá svæðinu að einhverju leyti. Ákvæði 1. mgr. 61. gr. laga nr. 55/2003 sé skýrt um að urðunarstað teljist ekki endanlega lokað fyrr en eftirlitsaðili hafi skoðað vettvang og metið upplýsingar rekstraraðila fyrir lokun og veitt samþykki fyrir lokun. Meginregla laganna sé sú að rekstraraðili beri ábyrgð á urðunarstaðnum, einnig eftir að rekstri ljúki, þ.m.t. sé kostnaður vegna aðgerða samkvæmt fyrirmælum stofnunarinnar. Um þetta megi vísa til meginreglna umhverfisréttar, m.a. mengunarbótareglunnar og varúðarreglunnar. Sé ábyrgð rekstraraðila virk á meðan telja megi að mengunarhætta stafi af urðunarstaðnum, sbr. 2. mgr. 61. gr. laganna. Það séu að jafnaði 30 ár en það sé ekki nákvæmur mælikvarði heldur verði að leggja mat á aðstæður og mengunarhættu.
- Að lágmarki hafi verið urðaðir 5 milljónir m3 af óflokkuðum úrgangi á urðunarstaðnum. Ásamt úrgangi frá höfuðborgarsvæðinu hafi verið urðaður iðnaðar- og spilliefnaúrgangur af öllu landinu, sem og úrgangur frá varnarliðinu. Fyrir utan hefðbundinn heimilisúrgang sé að finna umtalsvert magn af brotajárni, bílum, úrgangsolíu og öðrum spilliefnum. Hafi urðun á Gufuneshaugum verið hætt árið 1991, en þó verið haldið áfram að urða þar úrgang frá holræsabílum í útjaðri staðarins. Þeirri urðun hafi verið hætt árið 2001.
- Stofnunin hafi svarað erindum kæranda og fundað með honum. Innheimt sé tímagjald vegna vinnu við gerð lokunarfyrirmæla skv. 33. gr. gjaldskrár Umhverfis- og orkustofnunar. Kæranda hafi verið gefinn kostur á að koma að andmælum áður en ákvörðun hafi verið tekin í málinu. Hafi andmælin verið yfirfarin, en ekki hafi verið talið tilefni til að gera breytingar.
Viðbótarathugasemdir kæranda
- Kærandi áréttar að urðun sorps í Gufunesi hafi verið hætt árið 1991 og gengið hafi verið frá urðunarstaðnum í samræmi við fyrirmæli stjórnvalda á þeim tíma, heilbrigðiseftirlits og Hollustuverndar ríkisins. Urðun uppsóps af götum fram til ársins 2001 hafi verið utan við starfssvæði urðunarstaðarins í Gufunesi og því ótengt rekstri Gufuneshauga. Hins vegar kunni áhrifasvæði þessara tveggja staða að skarast. Íþyngjandi stjórnvaldsákvarðanir verði ekki byggðar á almennum markmiðum, gildissviði og skilgreiningum heldur þurfi að byggjast á skýrum lagaheimildum, en ekki almennri skírskotun. Gangi ákvörðunin gegn grundvallarreglum íslenskrar stjórnsýslu og brjóti gegn réttaröryggi.
—–
- Aðilar máls þessa hafa fært fram ítarlegri rök fyrir máli sínu, sem ekki verða rakin hér frekar, en úrskurðarnefndin hefur haft þau öll til hliðsjónar við úrlausn málsins.
Niðurstaða
- Í máli þessu er deilt um lögmæti þeirrar ákvörðunar Umhverfis- og orkustofnunar frá 12. maí 2026 að gefa Reykjavíkurborg fyrirmæli um lokun og vöktun urðunarstaðarins Gufuneshauga í Reykjavík. Kæruheimild er í 1. mgr. 67. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og barst kæra innan kærufrests.
- Hin kærða ákvörðun var tekin á grundvelli 61. gr. laga nr. 55/2003 er mælir fyrir um lokun urðunarstaðar. Er þar í 1. mgr. tekið fram að urðunarstað teljist ekki endanlega lokað fyrr en eftirlitsaðili hafi skoðað vettvang og metið upplýsingar rekstraraðila varðandi lokun og Umhverfis- og orkustofnun veitt samþykki fyrir lokuninni. Í ákvæði I. til bráðabirgða við lögin sagði að þeir urðunarstaðir sem væru í rekstri við gildistöku laganna skyldu uppfylla kröfur þeirra fyrir 16. júlí 2009, ella skyldi þeim lokað. Að öðru leyti höfðu lögin ekki að geyma markverð fyrirmæli um atvik sem gerst höfðu fyrir gildistöku þeirra.
- Af hálfu Reykjavíkurborgar hefur komið fram að urðun sorps í Gufunesi hafi verið hætt árið 1991 og gengið hafi verið frá urðunarstaðnum í samræmi við fyrirmæli stjórnvalda á þeim tíma, heilbrigðiseftirlits og Hollustuverndar ríkisins. Meðal gagna þessa máls er skýrslan „Urðunarstaður í Gufunesi. Mælingar og áhættumat vegna fyrirhugaðrar breytingar á landnotkun“ sem unnin var af verkfræðistofu fyrir umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur árið 2008. Kemur þar fram að eftir að hætt var að urða úrgang í Gufunesi hafi verið fyllt ofan á urðunarstaðinn með efni úr húsagrunnum og öðrum framkvæmdum og landið mótað. Áætla megi að þykkt jarðvegs ofan á úrgangi sé á bilinu 2 til 5 m, en hulan sé líklega víða kringum 3 m. Ekki sé þó hægt að henda reiður á þetta mat og gæti lágmarks þykkt verið minni og hámarks þykkt meiri. Síðar hafi grasi verið sáð í yfirborð og trjám plantað. Segja megi að yfirborðið sé fullgróið. Að því virtu að urðun var hætt í Gufunesi og að gengið var frá urðunarstaðnum með þessum hætti getur ekki komið til álita að telja að haugarnir hafi „verið í rekstri“ við gildistöku laga nr. 55/2003, sbr. ákvæði I. til bráðabirgða við þau. Verður því að fallast á það með Reykjavíkurborg að skilyrði hafi brostið til þess nú löngu síðar að hafin verði málsmeðferð lokunarferlis sem byggi á 61. gr. laganna.
- Nánar má rekja af þessu tilefni að í skýringum með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 55/2003 kom fram í athugasemdum við 11. gr., sem varðaði gjald fyrir meðhöndlun úrgangs, að gjaldtaka rekstraraðila skyldi standa undir kostnaði við förgun. Ákvæðið tæki mið af 10. gr. tilskipunar um urðun úrgangs 1999/31/EB. Skyldi gjaldið fyrir förgun hvers kyns úrgangs á urðunarstað nægja fyrir uppsetningu og starfrækslu urðunarstaðarins, áætluðum kostnaði við lokun staðarins og nauðsynlegt eftirlit í kjölfar lokunarinnar í a.m.k. 30 ár og, að svo miklu leyti sem hægt væri, kostnaði sem fylgdi því að setja fjárhagslega tryggingu eða jafngildi hennar. Væru þessar kröfur í samræmi við mengunarbótareglu þá sem væri hluti af rétti Evrópusambandsins og væri að finna sem markmið samningsaðila í 2. mgr. 73. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Engri slíkri gjaldtöku sem þarna var mælt fyrir um var til að dreifa þá Gufuneshaugar voru starfræktir. Í 25. lið aðfaraorða tilskipunarinnar kom fram að ákvæði hennar um tilhögun við lokun gildi ekki fyrir þá urðunarstaði sem sé lokað fyrir þann dag sem tilskipunin sé lögleidd. Segja má að ákvæði I. til bráðabirgða við lög nr. 55/2003 hafi verið í samræmi við þau fyrirmæli.
- Af hálfu Umhverfis- og orkustofnunar hefur verið bent á að heimilt sé að setja strangari reglur um meðferð úrgangs í íslensk lög en settar hafi verið í tilskipuninni. Hafi hin kærða ákvörðun einnig verið reist á fyrirmælum gr. reglugerðar nr. 738/2003 um urðun úrgangs þar sem segi m.a. að þegar „urðunarstað hefur verið lokað endanlega ber rekstraraðili ábyrgð á viðhaldi hans […] eftir því sem nánar greinir í ákvörðun Umhverfisstofnunar um lokun staðarins“. Með þessu er hjá því litið að reglugerðin hefur sama gildissvið og lög nr. 55/2003 sem hún sækir stoð í. Auk þess taka fyrirmæli 24. gr. reglugerðarinnar mið af fyrirmælum 23. gr. hennar sem varða ákvarðanir um lokun urðunarstaða í samræmi við ákvæði laganna. Verður því að hafna því að reglugerðin, svo sem hún er orðuð, feli í sér nánari heimildir en lögin að þessu leyti til.
—–
- Í 70. gr. laga nr. 55/2003 segir að reglugerðir sem settar hafi verið á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og eiturefni og hættuleg efni og varða úrgang haldi gildi sínu að svo miklu leyti sem þær samræmist lögunum. Voru á sínum tíma fyrirmæli um úrgangsmál í mengunarvarnareglugerð nr. 48/1994 sem m.a. var sett með stoð í lögum nr. 81/1988 um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit. Verður þó ekki ráðið að þar hafi verið skýrar heimildir settar til þess að gerðar yrðu kröfur um vöktun á kostnað framkvæmdaraðila áþekkar þeim sem hér eru til umfjöllunar.
- Til leiðbeiningar sagt er í gildi reglugerð nr. 1400/2020 um mengaðan jarðveg sem m.a. tekur til eldri svæða sem eru menguð eða þar sem grunur er um mengun, þ.e. skylt er að skrá þau og taka mið af þeirri skrá við gerð skipulags. Hefur reglugerðin auk þess að geyma fyrirmæli um hvernig að meðhöndlun slíks jarðvegs skuli staðið komi til þess að honum sé raskað. Segja má að þessi fyrirmæli endurspegli þá ábyrgð sem eigandi lands og/eða framkvæmdaraðili getur borið vegna mengunar sem þessarar við skipulagsgerð. Jafnframt má benda á gr. 15.1 í reglugerð nr. 797/1999 um varnir gegn mengun grunnvatns, þar sem segir að Umhverfis- og orkustofnun skipuleggi, hafi umsjón með og sjái um að framkvæmdar séu úttektarrannsóknir á vatnsmengun og vöktun.
- Með vísan til alls þess er að undan segir verður að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun.
Úrskurðarorð
Felld er úr gildi ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar frá 12. maí 2026 um að gefa Reykjavíkurborg fyrirmæli um lokun og vöktun Gufuneshauga.
