Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
Árið 2026, föstudaginn 4. september, tók Unnþór Jónsson, varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, sbr. 1. mgr. 2., fyrir:
Mál nr. UUA2606007, kæra á ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar frá 5. júní 2026 um synjun bráðabirgðaheimildar fyrir starfsemi Skotveiðifélags Reykjavíkur og nágrennis á Álfsnesi.
- Með ódagsettu bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sem barst nefndinni 8. júní 2026, kærir Skotveiðifélag Reykjavíkur og nágrennis þá ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar frá 5. s.m. að synja félaginu um bráðabirgðaheimild fyrir starfsemi sinni. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi. Til vara er þess krafist að málinu verði vísað til nýrrar meðferðar hjá Umhverfis- og orkustofnun.
- Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Umhverfis- og orkustofnun 3. júlí 2026.
Málsatvik og rök
- Tvö félög hafa á annan áratug rekið sinn hvorn skotvöllinn á Álfsnesi og hafa álitamál vegna þeirra áður komið til kasta úrskurðarnefndarinnar. Í máli þessu er deilt um þá ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar frá 5. júní 2026 að synja um bráðabirgðaheimild fyrir starfsemi Skotveiðifélags Reykjavíkur og nágrennis á Álfsnesi. Í hinni kærðu ákvörðun kemur m.a. fram að stofnunin líti svo á að 7. gr. a. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir heimili ekki útgáfu nýrrar bráðabirgðarheimildar fyrir rekstri skotvallarins, enda sé um sömu starfsemi að ræða og hafi áður starfað á grundvelli slíkrar starfsemi og fengið hana framlengda. Af hálfu kæranda er m.a. byggt á því að stofnuninni hafi með þessu í raun mótað almenna reglu um að heimild samkvæmt greindu ákvæði verði aðeins nýtt einu sinni vegna sömu starfsemi, en slík regla verði ekki leidd af lögunum sjálfum.
—–
- Aðilar máls þessa hafa fært fram ítarlegri rök fyrir máli sínu, sem ekki verða rakin hér frekar, en úrskurðarnefndin hefur haft þau öll til hliðsjónar við úrlausn málsins.
Niðurstaða
- Í 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er kveðið á um að þeir einir geti skotið máli til úrskurðarnefndarinnar sem eigi lögvarða hagsmuni tengda hinni kærðu ákvörðun. Að stjórnsýslurétti hefur skilyrðið um lögvarða hagsmuni fyrir kæruaðild verið túlkað svo að þeir einir teljist aðilar kærumáls sem eigi einstaklegra hagsmuna að gæta af úrlausn máls umfram aðra og jafnframt að þeir hagsmunir séu verulegir.
- Samkvæmt 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir skal allur atvinnurekstur, sbr. viðauka I, II og IV, hafa gilt starfsleyfi sem Umhverfis- og orkustofnun eða heilbrigðisnefndir gefa út. Vinnsla umsókna um starfsleyfi byggist á lögum nr. 7/1998 og reglum settum með stoð í þeim. Umhverfis- og orkustofnun hefur með 7. gr. a. laga nr. 7/1998 verið fengin heimild í sérstökum undantekningartilvikum, þegar brýn þörf er talin á því að hefja eða halda áfram starfsemi sem heyrir undir lögin, til að veita bráðabirgðaheimild fyrir starfsemi sem ella væri starfsleyfisskyld. Bráðabirgðaheimildina er unnt að veita til allt að eins árs og er heimilt að framlengja hana um allt að eitt ár að uppfylltum skilyrðum ákvæðisins.
- Fyrir liggur að starfsleyfi fyrir rekstri skotvallar á Álfsnesi var gefið út af Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur 28. ágúst 2026 sem gildir til 31. desember 2028. Þar sem kærandi hefur þegar fengið útgefið starfsleyfi á hann ekki lengur hagsmuni af því að fá skorið úr um lögmæti hinnar kærðu ákvörðunar. Verður kærumáli þessu því vísað frá nefndinni.
Úrskurðarorð
Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
