Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 127/2026 · Mál nr. UUA2606004 · Kveðinn upp 24. september 2026

Brekkustígur

Ógildingu hafnað
Úrskurðarorð

Hafnað er ógildingu ákvörðunar heilbrigðisnefndar Suðurnesja frá 6. maí 2026 um að leggja á félagið dagsektir, að fjárhæð 50.000 kr. á dag frá og með 22. maí 2026, þar til starfsemi þess að Brekkustíg 22–24 í Reykjanesbæ hefur verið stöðvuð.

Árið 2026, fimmtudaginn 24. september, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Unnþór Jónsson varaformaður og Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður. Arnór Snæbjörnsson formaður tók þátt í gegnum fjarfundabúnað.

Fyrir var tekið mál nr. UUA2606004, kæra á þeirri ákvörðun heilbrigðisnefndar Suðurnesja frá 6. maí 2026 að leggja dagsektir á Premium of Iceland ehf., að fjárhæð 50.000 kr. á dag, þar til starfsemi félagsins að Brekkustíg 22–24 í Reykjanesbæ hefur verið stöðvuð.

  1. Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. júní 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir Premium of Iceland ehf. þá ákvörðun heilbrigðisnefndar Suðurnesja frá 6. maí 2026 að leggja á félagið dagsektir, að fjárhæð 50.000 kr. á dag frá og með 22. s.m., þar til starfsemi þess að Brekkustíg 22–24 í Reykjanesbæ hefur verið stöðvuð. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
  1. Með bráðabirgðaúrskurði 29. júní 2026 var fallist á þá kröfu kæranda að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar yrði frestað þar til endanlegur úrskurður lægi fyrir um kröfu hans í málinu.
  1. Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja 16. júní 2026.

Málavextir

  1. Samkvæmt upplýsingum frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja hefur verið rekin fiskvinnsla að Brekkustíg 22–24 um áratugaskeið á vegum fjölmargra aðila. Starfsleyfi fyrri rekstraraðila mun hafa verið skilað inn 28. nóvember 2022. Félag með sama heiti og kærandi í máli þessu, en með annarri kennitölu, sótti hinn 30. janúar 2023 um skráningu fyrir starfseminni samkvæmt reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur nr. 830/2022. Þeirri umsókn var hafnað af heilbrigðisnefnd Suðurnesja 9. mars s.á. þar sem starfsemin væri ekki í samræmi við nýtt Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2020–2035, sem tók gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda 8. febrúar 2023.
  1. Hinn 30. apríl 2025 munu heilbrigðiseftirlitinu hafa borist upplýsingar um að kærandi í máli þessu væri með starfsemi að Brekkustíg 22–24 án skráningar og voru honum í framhaldi sendar leiðbeiningar um leyfisskyldu og að skrá bæri starfsemina. Með bréfi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, dags. 8. september 2025, var kæranda tilkynnt um að embættið hefði tekið til meðferðar mál sem tengdist starfsemi hans að Brekkustíg 22–24 í Reykjanesbæ. Kom þar fram að starfsemin félli undir reglugerð nr. 830/2022. Skorað var á kæranda að uppfylla skilyrði reglugerðarinnar og honum veittur frestur til 11. september 2025 til að leggja fram fullnægjandi skráningu á þjónustugáttinni Ísland.is.
  1. Hinn 15. september 2025 barst heilbrigðiseftirlitinu umsókn um skráningu starfseminnar þar sem fram kom að um væri að ræða vinnslu fisks og annarra sjávar­afurða. Með bréfi heilbrigðiseftirlitsins, dags. 10. október s.á., var kæranda tilkynnt að áformað væri að hafna umsókn hans á grundvelli umsagnar skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar, dags. 2. október 2025, þar sem fram hefði komið að starfsemi fiskvinnslu samræmdist ekki ákvæðum gildandi aðalskipulags. Var umsókninni að endingu hafnað á fundi heilbrigðisnefndar desember s.á. með vísan til þess að starfsemin uppfyllti ekki skipulagsskilmála samkvæmt umsögn skipulagsfulltrúa. Fól nefndin heilbrigðiseftirlitinu jafnframt að vinna áfram að málinu. Með bréfi heilbrigðiseftirlitsins, dags. 12. s.m., var kæranda tilkynnt um ákvörðunina og honum bent á að samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gæti hann komið að skriflegum athugasemdum til heilbrigðiseftirlitsins innan tveggja vikna. Þá var einnig leiðbeint um kæruheimild og kærufrest til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
  1. Í bréfi heilbrigðiseftirlitsins til kæranda, dags. 4. febrúar 2026, kom fram að fyrir lægi að rekin væri fiskvinnsla að Brekkustíg 22–24, án þess að fyrir lægi samþykkt skráning samkvæmt 8. gr. laga nr. 7/1998 og reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögunum. Var tekið fram að ljóst væri að láta bæri af starfseminni. Þá var vísað til þess að ekki hefðu borist athugasemdir frá kæranda vegna áforma um að hafna umsókn hans um skráningu og hefði málskotsréttur vegna þeirrar ákvörðunar ekki verið nýttur. Var kæranda veittur frestur til 19. s.m. til að leggja fram skriflega lokunaráætlun.
  1. Með bréfi heilbrigðiseftirlitsins til kæranda, dags. 21. apríl 2026, var þess krafist að látið yrði án tafar af starfsemi fiskvinnslu að Brekkustíg 22–24, enda ljóst að með því að hefja og halda áfram starfsemi án þess að hafa til þess samþykkta skráningu væri brotið gegn 8. gr. laga nr. 7/1998 og 2. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 830/2022. Þá var tilkynnt um að með hliðsjón af þessu hefði heilbrigðisnefnd tekið til meðferðar að leggja dagsektir á kæranda, sbr. 61. gr. laga nr. 7/1998. Var kæranda veittur frestur til 4. maí 2026 til þess að koma á framfæri sjónarmiðum sínum og afstöðu til fyrirhugaðra dagsekta, sem hann og gerði.
  1. Málið var tekið fyrir á fundi heilbrigðisnefndar Suðurnesja 6. maí 2026. Í fundargerð var fært til bókar að nefndin „staðfestir kröfu embættisins um stöðvun á starfsemi í samræmi við erindi þess efnis sem sent var til [kæranda] 21. apríl sl.“ Á sama fundi ákvað heilbrigðisnefnd að leggja dagsektir á kæranda, að upphæð kr. 50.000 frá og með 22. maí s.á., þar til starfsemi hans hefði verið stöðvuð. Var um leið vísað til erindis heilbrigðiseftirlitsins frá 21. apríl 2026 og kom fram að ákvörðunin væri í samræmi við þau áform um álagningu dagsekta sem þar hefði verið lýst. Kæranda var tilkynnt um ákvörðunina með bréfi, dags. 7. maí s.á., og jafnframt boðið að koma að skriflegum athugasemdum.
  1. Kærandi kom að athugasemdum með bréfi, dags. 18. s.m., þar sem þess var krafist að ákvörðun heilbrigðisnefndarinnar um höfnun skráningar starfseminnar yrði leiðrétt. Þeirri beiðni var synjað á fundi heilbrigðisnefndarinnar 15. september 2026.

Málsrök kæranda

  1. Af hálfu kæranda er vísað til þess að umsögn skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar frá 2. október 2025 sé röng um það að starfsemin að Brekkustíg 22-24 sé ekki í samræmi við gildandi Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2020–2035. Bendir kærandi á að í skilmálum skipulagsins, sem taki til miðsvæða, sé heimilaður áframhaldandi rekstur sem þegar fari fram á svæðunum. Kærandi hafi um árabil verið með starfsemi sína að Brekkustíg 22–24 og fyrir þann tíma hafi samskonar starfsemi verið í húsnæðinu. Fiskvinnsla hafi raunar verið starfrækt þar í áratugi. Með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 15. febrúar 2024 í máli nr. 124/2023 hafi verið felld úr gildi ákvörðun heilbrigðisnefndar Suðurnesja um að afskrá fiskvinnslustarfsemi á svæði sem einnig hafi verið skilgreint sem miðsvæði í aðalskipulaginu. Úrskurðarnefndin hafi talið ákvörðunina haldna þeim annmarka að litið hefði verið framhjá því að í aðalskipulagi væri gert ráð fyrir því að fjallað yrði um endurskoðun starfsleyfisskylds rekstrar við gerð deiliskipulags. Að breyttu breytanda verði að álíta að sömu sjónarmið eigi við í þessu máli. Þá verði einnig að líta til þess að heilbrigðisnefnd fari með eftirlit með skráningarskyldum atvinnurekstri og beri ábyrgð á að staðreyna hvort starfsemi uppfylli skilyrði skráningar. Beri henni að framkvæma sjálfstætt mat, sem verði ekki útvistað til skipulagsfulltrúa.

Málsrök heilbrigðisnefndar Reykjanesbæjar

  1. Af hálfu heilbrigðisnefndar er gerð krafa um að ákvörðun um álagningu dagsekta verði staðfest og að úrlausn málsins verði afmörkuð við þá stjórnvaldsákvörðun sem kæru lúti en ákvörðunin frá 10. desember 2025 um að synja um skráningu starfsemi hafi ekki verið kærð og standi óhögguð. Heilbrigðisnefnd hafi verið heimilt og raunar nauðsynlegt, til að tryggja virkni lögbundins eftirlits, að beita dagsektum til að knýja fram lögmætt ástand. Ákvörðun um álagningu dagsekta hafi uppfyllt skilyrði 61. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Fyrirmæli stjórnvaldsins um að starfsemi án staðfestrar skráningar skyldi ekki haldið áfram hafi verið skýr.

Viðbótarathugasemdir kæranda

  1. Í viðbótarathugasemdum leggur kærandi áherslu á að málið þetta varði verulega fjárhagslega hagsmuni og stjórnarskrárvarinn rétt hans til að stunda þá atvinnu sem hann kjósi. Fasteignin sem um ræði hafi verið byggð árið 1985 sem iðnaðarhúsnæði í iðnaðarhverfi og sé skráð sem slík í fasteignaskrá. Ákvörðun um synjun skráningar á starfsemi kæranda hafi verið ólögmæt og ákvörðun um álagningu dagsekta geti ekki byggt á henni þar sem dagsektir séu þvingunarúrræði sem ætlað sé að knýja fram hlýðni við lögmæta ákvörðun stjórnvalds. Ekkert sé því til fyrirstöðu að kærandi skrái starfsemi sína að nýju, en fyrirséð sé að slík skráning verði ekki tekin til afgreiðslu. Álíti kærandi raunar að til staðar sé frumkvæðisskylda til þess leiðrétta ranga og ólögmæta synjun á skráningu sem gangi í berhögg við skýrt fordæmi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Upplýsingaöflun úrskurðarnefndarinnar

  1. Úrskurðarnefndinni er kunnugt um að hinn 18. maí 2026 fór kærandi fram á endurupptöku ákvörðunar um synjun skráningar á starfsemi hans, en þeirri beiðni var hafnað á fundi heilbrigðisnefndar Suðurnesja 15. september s.á. Í fundargerð nefndarinnar kemur fram að ákvörðunin hafi verið tekin að loknu mati á málsástæðum félagsins, gögnum málsins og viðeigandi skipulags­ákvæðum og að hvorki væru fram komnar nýjar upplýsingar sem gæfu tilefni til að ætla að synjunin hefði byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik sem þýðingu hefðu haft fyrir niðurstöðuna né verulegar breytingar á atvikum sem gætu leitt til endurupptöku.

—

  1. Aðilar máls þessa hafa fært fram ítarlegri rök fyrir máli sínu, sem ekki verða rakin hér frekar, en úrskurðarnefndin hefur haft þau öll til hliðsjónar við úrlausn málsins.

Niðurstaða

  1. Í máli þessu er kærð sú ákvörðun heilbrigðisnefndar Suðurnesja frá 6. maí 2026 að leggja dagsektir á kæranda á grundvelli 61. gr. laga nr. 7/1998 um um hollustuhætti og mengunarvarnir, að fjárhæð kr. 50.000 frá og með 22. maí 2026, þar til starfsemi félagsins hefur verið stöðvuð. Kæruheimild til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er að finna í 65. gr. sömu laga og barst kæra innan kærufrests.
  1. Samkvæmt 1. gr. laga nr. 7/1998 er það á meðal markmiða laganna að búa landsmönnum heilnæm lífsskilyrði. Samkvæmt 47. gr. sömu laga ber heilbrigðisnefnd að sjá um að framfylgt sé ákvæðum laganna og reglugerða settra samkvæmt þeim, samþykktum sveitarfélaga og ákvæðum í sérstökum lögum eða reglum sem nefndinni er eða kann að vera falið að annast um framkvæmd á. Gilda og stjórnsýslulög nr. 37/1993 um störf nefndarinnar. Í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 er kveðið á um að allur atvinnurekstur, sbr. viðauka I, II og IV, skuli hafa gilt starfsleyfi sem Umhverfis- og orkustofnun eða heilbrigðisnefndir gefa út. Í 8. gr. laganna er mælt fyrir um heimild ráðherra til að kveða á um í reglugerð að atvinnurekstur, sbr. viðauka II og IV, sé háður skráningarskyldu í stað útgáfu starfsleyfis, sbr. 4. og 5. gr., ásamt því að honum sé heimilt að setja í reglugerð almennar kröfur fyrir starfsemi, sbr. viðauka I–IV, sbr. og 4. og 5. gr. laganna.
  1. Í reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur er mælt fyrir um að rekstraraðili skráningarskylds atvinnurekstrar skuli skrá starfsemi sína áður en hún hefjist í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar og skuli hlutaðeigandi eftirlitsaðili staðfesta skráninguna og leiðbeina um hvaða reglur gildi um hana. Að Brekkustíg 22–24 í Reykjanesbæ er starfrækt fiskvinnsla og er slík starfsemi skráningarskyld samkvæmt 63. lið í 1. viðauka við reglugerð nr. 830/2022. Í 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar segir að óheimilt sé að hefja skráningarskyldan atvinnurekstur fyrr en skráning hefur farið fram, skráningargjald greitt og rekstraraðili fengið senda staðfestingu, sbr. 2. mgr. 4. gr. Í máli þessu liggur fyrir að kærandi hefur ekki öðlast slíka staðfestingu. Verður því ekki annað séð en að sú starfsemi sem fer fram að Brekkustíg 22–24 sé óheimil þar til skráning hennar hefur verið staðfest.
  1. Í 1. mgr. 63. gr. laga nr. 7/1998 er kveðið á um að Umhverfis- og orkustofnun eða heilbrigðisnefnd sé heimilt að stöðva starfsemi eða notkun þegar í stað. Einnig er heimilt að stöðva starfsemi eða takmarka hana til bráðabirgða sé um alvarlegt tilvik eða ítrekað brot að ræða, eða ef aðilar sinna ekki úrbótum innan tiltekins frests. Þá er í mgr. 61. gr. laga nr. 7/1998 kveðið á um að heilbrigðisnefnd geti ákveðið dagsektir þar til úr er bætt, sinni aðili ekki fyrirmælum innan tiltekins frests.
  1. Með bréfi, dags. 4. febrúar 2026, vakti heilbrigðiseftirlitið athygli kæranda á því að starfsemi hans væri óheimil og með bréfi, dags. 21. apríl s.á., var þess krafist að kærandi léti af starfseminni og upplýsti um að álagning dagsekta væri ráðgerð. Var kæranda veittur frestur til 4. maí 2026 til að bregðast við erindinu. Málið kom á borð heilbrigðisnefndarinnar á fundi 6. maí 2026 þar sem nefndin staðfesti kröfu heilbrigðiseftirlitsins um stöðvun starfsemi kæranda og tók jafnframt ákvörðun um að leggja á hann dagsektir frá 22. s.m. Í tilkynningu um hina kærðu ákvörðun, dags. 7. s.m., var kæranda veittur tveggja vikna frestur, frá dagsetningu bréfsins, til að koma að athugasemdum sínum með vísan til 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
  1. Það má gagnrýna að heimild sú sem heilbrigðiseftirlitið fékk á fundi heilbrigðisnefndar 10. desember 2025 til að „vinna áfram að málinu“ eftir að synjað hafi verið um skráningu starfseminnar að Brekkustíg 22-24 hafi ekki verið svo skýr sem gera verður kröfu um. Verður þetta þó ekki látið varða gildi hinnar kærðu ákvörðunar, sem tekin var af heilbrigðisnefndinni sjálfri, og er þá einnig litið til þess að kærandi hefur haft nægt tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við meðferð þessa úrskurðarmáls. Má og athuga að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar var frestað við málsmeðferð úrskurðarnefndarinnar.
  1. Kærandi hefur vísað til þess að ákvörðun heilbrigðisnefndar Suðurnesja frá 10. desember 2025 um að synja um skráningu starfseminnar hafi verið ólögmæt og að því verði álagning dagsekta ekki á henni byggð. Var sú ákvörðun þó skýr að efni til og verður ekki séð að hún sé haldin neinum bersýnilegum ágöllum en um lögmæti hennar verður ekki fjallað í máli þessu, þar sem kærufrestur vegna hennar er löngu liðinn.
  1. Að öllu framangreindu virtu verður að hafna kröfu kæranda um ógildingu hinnar kærðu ákvörðunar.

Úrskurðarorð

Hafnað er ógildingu ákvörðunar heilbrigðisnefndar Suðurnesja frá 6. maí 2026 um að leggja á félagið dagsektir, að fjárhæð 50.000 kr. á dag frá og með 22. maí 2026, þar til starfsemi þess að Brekkustíg 22–24 í Reykjanesbæ hefur verið stöðvuð.