Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 103/2026 · Mál nr. UUA2605011 · Kveðinn upp 21. ágúst 2026

Sauðanesháls í Langanesbyggð

Ógildingu hafnað
Úrskurðarorð

Hafnað er kröfu um ógildingu á ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar frá 22. apríl 2026 að uppsetning tveggja vindtúrbína á Sauðaneshálsi í Langanesbyggð skuli sæta mati á umhverfisáhrifum.

Árið 2026, föstudaginn 21. ágúst, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Arnór Snæbjörnsson formaður, Aðalheiður Jóhannsdóttir prófessor og Geir Oddsson auðlindafræðingur.

Fyrir var tekið mál nr. UUA2605011, kæra á þeirri ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar frá 22. apríl 2026 að uppsetning tveggja vindtúrbína á Sauðaneshálsi í Langanesbyggð skuli sæta mati á umhverfisáhrifum.

  1. Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, 21. maí 2026, er barst nefndinni sama dag, kærir félagið Wpd wind Iceland North ehf. þá ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar frá 22. apríl 2026 að uppsetning tveggja vindtúrbína á Sauðaneshálsi í Langanesbyggð skuli sæta mati á umhverfisáhrifum. Er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
  1. Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun 22. júní 2026.

Málavextir

  1. Hinn 8. desember 2025 barst Skipulagsstofnun tilkynning kæranda til ákvörðunar um það hvort uppsetning tveggja vindtúrbína á Sauðaneshálsi í Langanesbyggð væri háð mati á umhverfis­áhrifum, sbr. 19. gr. laga nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 18. gr., sbr. tölul. 3.16 í 1. viðauka við lögin. Uppfærðri tilkynningu var skilað 20. janúar 2026. Kom þar fram að um tilraunaverkefni væri að ræða. Áformað væri að byggja allt að 9,9 MW vindorkuvirkjun með þeim helsta tilgangi að auka framboð raforku og stuðla að orkuskiptum í Langanesbyggð. Var greint frá tveimur valkostum. Fæli valkostur 1 í sér uppsetningu á tveimur 150 m háum vindtúrbínum hvorri með uppsettu afli allt að 4,9 MW eða samtals 9,9 MW. Valkostur 2 fæli í sér uppsetningu á tveimur 180 m háum vindtúrbínum hvorri með uppsettu afli allt að 7 MW, en heildarafl fyrir valkost 2 yrði takmarkað við 9,9 MW í stjórnstöð virkjunarinnar og með rofabúnaði. Með uppsetningu á vindtúrbínum þar sem uppsett afl hvorrar túrbínu væri meira en 4,9 MW fengist jafnari orkuframleiðsla og aukið afhendingaröryggi. Val á túrbínu lægi þó ekki fyrir og gætu nákvæmar stærðir breyst. Framkvæmdin myndi einnig stuðla að mikilvægri gagnasöfnun og rannsóknarvinnu um rekstur vindorku­virkjana á Íslandi til samanburðar við reynslu kæranda erlendis.
  1. Í tilkynningunni var rakið að kærandi hefði einnig tvær aðrar virkjunarhugmyndir á svæðinu, sem skilgreindar hefðu verið í rammaáætlun og væru kenndar við Brekknaheiði og Sauðanesháls, R4332A og R4333A. Matsáætlun vegna umhverfismats á þeim hefði þegar verið lögð fyrir Skipulagsstofnun og væri birt á vefsíðu hennar (nú Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun / HMS). Þar væri gert ráð fyrir að umhverfisáhrif þeirra yrðu metin sameiginlega. Var tekið fram að ekki lægi fyrir hvenær hugmyndirnar yrðu teknar til umfjöllunar af verkefnastjórn rammaáætlunar og að ekki væri talið að það ferli hefði áhrif á þá framkvæmd sem tilkynnt hefði verið. Virkjunar­hugmyndunum sem biðu umfjöllunar verkefnastjórnar rammaáætlunar var lýst með þeim hætti að þær hefðu 532,8 MW uppsett afl innan 36,7 km2 framkvæmdasvæðis og gert væri ráð fyrir að allt að 74 vindtúrbínur yrðu reistar í áföngum á 3–5 árum, en einnig væri gert ráð fyrir allt að tveggja ára undirbúnings­framkvæmdum. Heildarframkvæmdartími yrði því um 5–7 ár, en hraðinn yrði þó í takti við uppbyggingu iðnaðar og flutningskerfis á svæðinu og gæti áfangaskiptingin breyst.
  1. Hinn 19. febrúar 2026 tók HMS við málsmeðferð vegna tilkynningarinnar. Lá ákvörðun stofnunarinnar fyrir 22. apríl 2026. Kom þar m.a. fram að hún hefði í mars s.á. gefið út álit um matsáætlun vegna áforma kæranda um að reisa 74 vindmyllur á Sauða­nes­hálsi og Brekknaheiði, sem væru hærri, en þær tvær sem tilkynntar hefðu verið. Staðsetning þessara tveggja vindmylla væri í næsta nágrenni við hin áform kæranda. Taldi stofnunin þó að hægt væri að líta annars vegar á fyrirhugað vindorkuver með yfir 70 vindmyllum, sem myndu framleiða allt að 530 MW, og hins vegar þær tvær vindmyllur sem tilkynntar hefðu verið og framleiða myndu allt að 9,9 MW sem aðskildar framkvæmdir, sem sættu mismunandi máls­meðferð. Komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að uppsetning tveggja vindmylla á Sauðaneshálsi kynni að hafa umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. þau viðmið sem tilgreind væru í 2. viðauka við lög nr. 111/2021 og að hún skyldi háð mati á umhverfis­áhrifum. Er það hin kærða ákvörðun í máli þessu.

Málsrök kæranda

  1. Af hálfu kæranda er byggt á því að hin kærða ákvörðun sé haldin efnislegum annmörkum og brjóti í bága við meðalhófsreglu. Framkvæmdin sem um ræði falli undir flokk B, sbr. tl. 3.16 í 1. viðauka við lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana, þ.e. að meta skuli í hverju tilviki hvort hún skuli háð mati á umhverfisáhrifum, en ekki í flokk A, sbr. tl. 3.02 í sama viðauka, þ.e. að vera ávallt háð umhverfismati. Löggjöfin geri ráð fyrir að unnt sé að reisa mannvirki af þeirri gerð sem hér um ræði án umhverfismats og hafi löggjafinn ákveðið að ekki væri ætíð skylt að framkvæma slíkt mat, heldur væri það háð mati á aðstæðum hverju sinni. Lykilatriði við matið, og hvort framkvæmd skuli háð umhverfismati eða ekki, sé hvort umhverfisáhrif framkvæmdar séu nægilega upplýst áður en framkvæmdaleyfi verði veitt.
  1. Umhverfisáhrif hafi verið nægilega upplýst á grundvelli fyrirliggjandi gagna og ef þörf hefði verið talin á frekari aðgerðum hafi verið unnt að beita öðrum og vægari úrræðum. Til að mynda með því að binda virkjunarleyfi skilyrðum. Við meðferð málsins hafi legið fyrir umfangsmiklar upplýsingar og rannsóknir, líkt og sérstaklega hafi verið nefnt í forsendum hinnar kærðu ákvörðunar. Þannig hafi í umsögn Umhverfis- og orkustofnunar verið talið að umfjöllun um möguleg umhverfisáhrif í tilkynningu hafi verið fullnægjandi, framkvæmdin væri ekki líkleg til að valda umtalsverðum umhverfisáhrifum samkvæmt 2. viðauka við lög nr. 111/2021 og hún væri ekki háð umhverfismati. Þá hafi verið bent á að skv. 5. gr. raforkulaga nr. 65/2003 væri heimilt við útgáfu virkjunarleyfis að binda það skilyrðum.
  1. Fyrir hafi legið ítarlegar upplýsingar um fuglalíf á svæðinu. Í tilkynningu kæranda hafi m.a. verið vísað til niðurstaðna rannsókna á áflogi á vindorkuvirkjanir á Íslandi. Af þeirri rannsókn mætti draga þá ályktun að áhrif framkvæmdarinnar á fuglalíf yrðu óveruleg, miðað við fyrirliggjandi gögn um fuglategundir á svæðinu, stærð framkvæmdarinnar og mögulega áflugstíðni. Hafi það m.a. byggt á upplýsingum úr öðrum verkefnum, þar sem áhrif hafi verið metin óveruleg þrátt fyrir að um fleiri túrbínur hefði verið að ræða. Mætti þ.a.l. gera ráð fyrir að áflugstíðni væri lægri í þeirri framkvæmd sem hér um ræddi. Til að mynda hafi umhverfisáhrif í tengslum við áflugstíðni við Vaðölduver verið talin óveruleg, en þar væri um 28 vindmyllur að ræða. Óeðlilegt væri að umhverfisáhrif af þeirri framkvæmd kæranda að reisa tvær vindtúrbínur væru álitin meiri. Í tilkynningu kæranda hafi verið vísað til ítarlegra rannsókna sem Náttúrustofa Austurlands hafi unnið fyrir Vegagerðina vegna lagningar á nýjum Norðausturvegi yfir Brekknaheiði. Þær rannsóknir hafi verið álitnar fullnægjandi vegna veglagningarinnar og ekki þörf á umhverfismati vegna hennar. Þá hafi úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála í úrskurði uppkveðnum 21. júlí 2023, í máli nr. 51/2023, hafnað kröfu um ógildingu ákvörðunar Skipulagsstofnunar um að endurnýjun og uppsetning tveggja nýrra vindmylla á undirstöðum fyrri skyldi ekki háð umhverfismati. Þó hafi takmarkaðar upplýsingar legið fyrir um fuglalíf á svæðinu, sem hafi verið innan mikilvægs fuglasvæðis, ólíkt áformum kæranda. Þannig hafi Skipulagsstofnun, í hinni kærðu ákvörðun í máli nr. 51/2023, tekið fram að leggja þyrfti áherslu á vöktun áflugs og vöktun á fuglalífi á og við framkvæmdarsvæðið. Slíka vöktun væri eftir atvikum unnt að framkvæma í samráði við Náttúrufræðistofnun. Jafnframt hefði verið unnt að kveða á um nánari mótvægisaðgerðir og fyrirkomulag til að draga úr áflugstíðni, sem byggði á niðurstöðum slíkrar vöktunar, eftir atvikum. Til dæmis með sanngjarnri aðlögun á orkuvinnslu á ákveðnum tímum. Væri því unnt að mæta sjónarmiðum um hugsanleg áhrif á fugla með vægari úrræðum en umhverfismati.
  1. Það sé íþyngjandi að tilraunaverkefni sem þetta kalli á umhverfismat á þessu stigi, enda sé það bæði tímafrekt og kostnaðarsamt ferli og ekki hafi verið sýnt fram á nauðsyn þess. Mikilvægt sé að aðgreina þá framkvæmd sem hér um ræði frá síðari og umfangsmeiri framkvæmd, en þær séu eðlisólíkar hvað varði bæði umfang og eiginleika. Of langt sé gengið að gera, að því er virðist, sömu kröfur til umfangs rannsókna á áhrifum á fugla vegna tilraunaverkefnis með heildarafl að hámarki 9,9 MW og vindorkuvers með heildarafl að hámarki 530 MW.
  1. Það sé ekki gert ráð fyrir frekari rannsóknum eða sérstökum mótvægisaðgerðum vegna áhrifa framkvæmdarinnar á landslag, sem séu nægilega upplýst. Þá liggi fyrir fullnægjandi upp­lýsingar um áhrif á vistgerðir, gróður og votlendi. Vegagerðin hafi á stórum hluta framkvæmda­svæðisins rannsakað bæði votlendi og gróðurfar vegna lagningar á nýjum Norð­austurvegi yfir Brekknaheiði. Ennfremur hafi í tilkynningu kæranda til Skipulagsstofnunar verið að finna ýmsar upplýsingar varðandi mótvægisaðgerðir. Komi þar m.a. fram að staðsetning hefði verið valin sérstaklega með vernduð svæði og votlendi í huga. Staðsetning hafi þó ekki verið staðfest endanlega. Áætlað væri að rask á votlendi yrði minniháttar og bundið við framkvæmdatíma, en ekki yrði rask á öðrum svæðum sem nytu verndar. Leitað yrði leiða til að forðast rask á votlendi. Þá hafi kærandi þegar leitað frekari gagna um votlendi á framkvæmdasvæðinu. Ennfremur hafi komið fram að yrði rask á friðuðum plöntum vegna framkvæmdarinnar yrði haft samráð við Náttúrufræðistofnun varðandi flutning og verndun þeirra, en ekki hafi fundist friðaðar plöntutegundir í rannsókn á gróðurfari. Fyrirliggjandi gögn hafi því verið nægjanleg til mats á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar og unnt hefði verið að beita vægari úrræðum væri frekari gagna þörf, til að mynda með því að kveða á um fyrirkomulag vöktunar eða mótvægisaðgerðir í tengslum við rask á gróðri í framkvæmdaleyfi eða á öðrum stigum málsins.

Málsrök Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar

  1. Af hálfu HMS er vísað til þess að horfa þurfi til þess við töku ákvörðunar um matsskyldu hvort fyrirhuguð framkvæmd kunni að hafa umtalsverð umhverfisáhrif, með hliðsjón af viðmiðum í 2. viðauka við lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Ekki hafi verið unnt að ná sama markmiði með því að hvetja Umhverfis- og orkustofnun til að setja skilyrði í virkjunarleyfi. Vegna tilvísunar til umsagnar stofnunarinnar sé bent á að hún sé ekki bindandi. Það sé HMS sem vegi og meti innbyrðis vægi þeirra umsagna sem berist, að virtum gögnum máls.
  1. Þrátt fyrir að í máli þessu liggi fyrir ítarlegri upplýsingar og mat á mögulegum áhrifum á hina ýmsu umhverfisþætti, en gert sé ráð fyrir í tilkynningarferli, þurfi í ljósi eðlis fyrirhugaðrar framkvæmdar, einkum umfangs og staðsetningar auk eiginleika hugsanlegra áhrifa, að gera nánari grein fyrir og leggja mat á áhrif hennar á umhverfið. Þá sé það mat stofnunarinnar að þær upplýsingar sem fram komi í tilkynningu kæranda séu ekki fullnægjandi eða nægilegar. Þótt rétt sé að til staðar séu ítarlegar rannsóknir Náttúrustofu Austurlands vegna framkvæmda við Norðausturveg lúti hin kærða ákvörðun í máli þessu að uppbyggingu tveggja vindmylla í 150 eða 180 m hæð, en ekki vegaframkvæmd. Í matsskylduákvörðun Skipulagsstofnunar vegna vegaframkvæmdarinnar hafi verið komist að þeirri niðurstöðu að rask sem henni fylgdi hefði minniháttar áhrif á fuglalíf. Ekki sé um það að ræða í máli þessu. Áhrif á fuglalíf séu ekki sambærileg.
  1. Í tilkynningu kæranda hafi verið vísað til upplýsinga sem aflað hafi verið vegna framkvæmda við vindmyllur að Hróðnýjarstöðum, Vaðölduver og í Garpsdal. Ekki hafi verið gefið út álit um umhverfisáhrif vegna framkvæmdar að Hróðnýjarstöðum og liggi því ekki fyrir staðfesting á því að umhverfisáhrif vindmylla á því svæði séu óveruleg og nokkuð neikvæð. Þá hafi niðurstaða álits um umhverfisáhrif vindmylla í Garpsdal orðið sú að óvissa væri um áhrif áflugs á fugla, einkum haferni. Núverandi áform vegna Búrfellslundar, nú Vaðölduvera, geri ráð fyrir 28 vind­myllum, en Landsvirkjun hafi byggt á umhverfismati frá 2016 þar sem gert hafi verið ráð fyrir 58–67 vindmyllum. Samkvæmt matsskýrslu vegna þeirrar framkvæmdar hafi það verið niður­staða Landsvirkjunar að framkvæmdin hefði bein neikvæð áhrif á varpfugla innan framkvæmdasvæðis og á farleiðir fugla, en umfang áhrifa á fugla væri á heildina litið óverulegt og því væru áhrif á fugla metin óveruleg. Skipulagsstofnun hafi þó talið að setja yrði ákveðna fyrirvara við niðurstöður Landsvirkjunar um áhrif á fuglalíf, ljóst hafi verið að ályktanir í matsskýrslu um áhrif á fuglalíf byggðu á takmörkuðum gögnum, en fyrir lægi að á svæðinu væri að finna válista- og ábyrgðartegundir. Þess vegna væri mikilvægt að haft yrði samráð við Náttúrufræðistofnun Íslands við skipulagsgerð og undirbúning leyfisveitinga.
  1. Fram hafi komið í máli úrskurðarnefndarinnar í máli nr. 51/2023 sem varðað hafi tvær vindmyllur í Þykkvabæ í Rangárþingi að heildarhæð mastursturna þeirra yrði 46,6 m og að spaðar í hæstu stöðu myndu ná 67,6 m hæð. Turnar áformaðra vindmylla á Sauðaneshálsi væru 150 eða 180 m háir, samkvæmt valkostum eitt og tvö. Þau sjónarmið sem fram hafi komið í máli nr. 51/2023 eigi því hvorki við né hafi þau fordæmisgildi.
  1. Um sjónarmið kæranda um mikilvægi þess að greint sé á milli þeirrar framkvæmdar sem um ræði í máli þessu og síðari umfangsmeiri framkvæmdar hans sé vísað til þess rökstuðnings sem fram komi í niðurstöðu hinnar kærðu ákvörðunar. Þar hafi komið fram að fyrir lægi að ráðast ætti í fuglarannsóknir í tengslum við fyrirhugað 530 MW vindorkuver á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi á vegum kæranda. Varðandi umfang rannsókna sem snúi að uppsetningu þeirra tveggja vindmylla sem um ræði í máli þessu verði framkvæmdaraðili að hafa samráð við Náttúrufræðistofnun.
  1. Ekki liggi fyrir upplýsingar um umfang rasks eða stærð þess votlendis sem kunni að verða fyrir neikvæðum áhrifum. Álíti stofnunin að fram þurfi að fara nánari greining og mat á áhrifum fyrirhugaðrar framkvæmdar á gróðurfar og hvaða aðgerðir komi til greina til að koma í veg fyrir, draga úr eða bæta fyrir neikvæð áhrif. Framkvæmdaraðila hafi verið í lófa lagið að afla eða miðla upplýsingum um þessi atriði um stærð votlendis og/eða umfangs rasks á vistgerðum í stað þess að vísa til þess að votlendi og gróðurfar hefði verið rannsakað fyrir Vegagerðina.

Niðurstaða

  1. Í máli þessu er kærð ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar frá 22. apríl 2026 um að uppsetning tveggja vindtúrbína á Sauðaneshálsi skuli sæta mati á umhverfisáhrifum. Kæruheimild er í 30. gr. laga nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana og barst kæran innan kærufrests.
  1. Fyrirhuguð framkvæmd var tilkynnt til Skipulagsstofnunar til ákvörðunar um matsskyldu skv. 2. mgr. 19. gr. laga nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana sem framkvæmdir í flokki B, sbr. lið 3.16 í 1. viðauka við lögin. Skulu tilkynningarskyldar framkvæmdir sem tilgreindar eru í flokki B háðar umhverfismati þegar þær eru taldar líklegar til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif vegna umfangs, eðlis eða staðsetningar skv. 2. viðauka við lögin. Í tilkynningu skal framkvæmdaraðili leggja fram upplýsingar um framkvæmdina og líkleg umtalsverð umhverfisáhrif hennar. Skal hann, þar sem við á, taka tillit til fyrirliggjandi niðurstaðna um umhverfismat framkvæmdarinnar og leggja fram, þar sem við á, upplýsingar um fyrirhugaðar mótvægisaðgerðir, sbr. 2. mgr. 19. gr. laganna.
  1. Eðli máls samkvæmt fer það eftir þeirri framkvæmd sem ákvörðun snýst um hvert þeirra atriða sem tiltekin eru í 1.–3. tölul. í 2. viðauka við lög nr. 111/2021 vegi þyngst við mat HMS á því hvort umhverfisáhrif framkvæmdar teljist umtalsverð. Þegar það er metið verður að miða við þá tilhögun framkvæmdar sem kynnt er og leggja mat á það hvort framkvæmdin, svo sem hún er fyrirhuguð, sé líkleg til þess að valda umtalsverðum umhverfisáhrifum. Mat stofnunarinnar lýtur að því að sannreyna gildi gagna og gæði þeirra. Í þeim tilgangi skal stofnunin leita álits umsagnaraðila áður en ákvörðun um matsskyldu er tekin, sbr. 1. mgr. 20. gr. laganna. Til þeirra teljast opinberar stofnanir, stjórnvöld eða aðrir lögaðilar sem sinna lögbundnum verkefnum sem varða framkvæmdir og/eða áætlanir sem falla undir lögin eða umhverfisáhrif þeirra. Ber stofnuninni samkvæmt sömu lagagrein, að taka ákvörðun um hvort framkvæmdin skuli háð umhverfismati samkvæmt lögunum innan sjö vikna frá því að fullnægjandi gögn berast um framkvæmdina. Verður hún því að gæta þess að fullnægjandi gögn hafi verið lögð fram og hvílir á henni sú skylda að upplýsa málið að því marki að hún geti komist að efnislega réttri niðurstöðu.
  1. Við undirbúning hinnar kærðu ákvörðunar leitaði Skipulagsstofnun umsagna Langanesbyggðar, Fiskistofu, Hafrannsóknastofnunar, Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra, Náttúrufræðistofnunar, Náttúruverndarstofnunar, Umhverfis- og orkustofnunar, Landsnets, Veðurstofu Íslands og Vegagerðarinnar. Einnig var leitað umsagna Vopnafjarðarhrepps, Minjastofnunar Íslands og Samgöngustofu, en umsagnir bárust ekki frá þeim. Þá bárust umsagnir frá Landhelgisgæslunni, ISAVIA, Landvernd og tveimur ábúendum í Langanesbyggð.
  1. Í umsögn Vegagerðarinnar var komist að þeirri niðurstöðu að umfjöllun um möguleg umhverfisáhrif væri fullnægjandi og í samræmi við kröfur sem gerðar væru til tilkynninga um matsskyldu. Var það einnig afstaða Umhverfis- og orkustofnunar, sem áleit jafnframt að framkvæmdin væri ekki líkleg til að valda umtalsverðum umhverfisáhrifum samkvæmt 2. viðauka við lög nr. 111/2021. Benti stofnunin einnig á að henni væri heimilt að binda virkjunarleyfi skilyrðum skv. 5. gr. raforkulaga nr. 65/2003. Tók stofnunin undir með framkvæmdaraðila um að valkostur tvö væri ákjósanlegri til að skila jafnari orkuframleiðslu og auknu afhendingaröryggi, fram yfir valkost eitt. Ítrekaði stofnunin þó að ef til stæði að láta vindmyllurnar framleiða meira en 9,9 MW í framtíðinni yrði sú breyting að fara í umhverfismat.
  1. Bæði Náttúrufræðistofnun og Náttúruverndarstofnun töldu framkvæmdina kalla á umhverfismat og vísuðu til umsagna sinna við matsáætlun framkvæmdaraðila vegna stærri vindorkuáforma á svæðinu. Bentu stofnanirnar á neikvæð áhrif á vistgerðir og gróður, fuglalíf, jarðminjar, ásýnd og landslag, vernduð svæði og óbyggð víðerni. Taldi Náttúrufræðistofnun að meta þyrfti út frá nánari gögnum hversu neikvæð áhrifin yrðu. Af hálfu Landverndar var álitið að skila ætti heildstæðu umhverfismati vegna þessara tveggja vindmylla og stærri vindorkuáforma framkvæmdaraðila, en um sama verkefni væri að ræða. Gæti það ekki talist tilraun að reisa svo háar vindorkutúrbínur, þær gætu að óbreyttu náð framleiðslu allt að 14 MW, sem væri yfir viðmiði rammaáætlunar. Þá var gerð athugasemd við að ekki lægi fyrir hvaðan leita ætti jöfnunarorku, sem væri grundvöllur raforkuframleiðslu úr vindorku. Einnig sýndu ásýndarmyndir túrbínurnar ekki í réttum hlutföllum í landslagi. Ábúendur í Langanesbyggð töldu m.a. að um væri ræða augljósa tilraun til að komast fram hjá umhverfismati með fyrstu tvær vindmyllurnar í heildar áformum framkvæmdaraðila. Þá yrðu vindmyllurnar jafnvel aflmeiri en 9,9 MW samkvæmt því sem fram kæmi í tilkynningu framkvæmdaraðila og ættu því þegar af þeirri ástæðu að sæta umhverfismati.
  1. Af hálfu sveitarstjórnar Langanesbyggðar var m.a. bent á að það torveldaði mat á áhrifum framkvæmdarinnar að endanlegt val á vindtúrbínum lægi ekki fyrir. Veðurstofan tók fram í umsögn sinni að framkvæmdin tengdist áætlunum um uppbyggingu stærra vindorkuvers á sama svæði, sem þegar hefði verið veitt umsögn um og gerðar athugasemdir við vegna skorts á upplýsingum. Kom fram í umsögninni að líkt og verið hefði um stærra verkefnið kæmu engar upplýsingar fram um veðurfar á svæðinu og engar tölur hefðu verið nefndar um meðalvindhraða á fyrirhuguðu virkjanasvæði. Veðurathuganir á vegum framkvæmdaraðila hefðu þó verið í gangi frá árinu 2022. Ekki væri heldur minnst á mögulega náttúruvá, en öskufall gæti orðið í stórgosum í Öskju og nálægum eldstöðvum og hætta gæti stafað af jarðskjálftum á brotabelti í Öxarfirði. Þá hefði aðeins lítillega verið fjallað um vatnsformfræði í áhrifamati fyrir straumvatnshlotið Lónsá, 102-1412-R, en eðlilegt hefði verið að taka fyrir hvort möguleg vatnsformfræðileg áhrif gætu haft áhrif á lífríki þess.
  1. Hafrannsóknastofnun benti á að skilgreining á veiðivatni samkvæmt lögum nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði væri mjög víðtæk, eða á eða stöðuvatn sem veiði er í eða mætti vera í ef fiskur væri ræktaður þar. Ekki kæmi fram í tilkynningu hversu langt frá bökkum veiðivatna framkvæmdir yrðu, en á svæðinu væri fjöldi vatna og veiði í flestum þeirra. Taldi stofnunin ósamræmi í því hvort um væri að ræða framkvæmd eða tilraun. Tilgangur og markmið tilraunarinnar væri óskýr og tímalengd virtist ráðast af endingu vindtúrbína, án þess að rætt væri um niðurstöður tilraunar. Þáttur í tilraunaverkefni ætti að vera að meta veðrun spaða og skoða áhrif örplasts og annarra mengandi efna frá túrbínum á vatnalífríki svæðisins og væri það sérstaklega mikilvægt í ljósi þess að hugmyndir væru um allt að 74 vindtúrbínur á svæðinu. Þá bentu ISAVIA og Landhelgisgæslan á hugsanleg áhrif vindtúrbína á flugöryggi og fjarskiptaöryggi, t.a.m. tengd rekstri ratsjár- og fjarskiptastöðvar Atlantshafsbandalagsins á Gunnólfsvíkurfjalli.
  1. Í svörum framkvæmdaraðila við framkomnum athugasemdum er m.a. tekið fram að sótt verði um leyfi Fiskistofu verði lokahönnun framkvæmdarinnar innan 100 m frá bakka veiðivatns, ásamt því að samráð verði haft við stofnunina ef hönnunin breytist og hluti verði færður innan 100 m frá lækjarkvíslum. Samráð væri hafið við Landhelgisgæsluna varðandi mat á áhrifum á starfsemi hennar. Þá var ítrekað að tilgangur þess verkefnis sem tilkynnt hafi verið væri m.a. að afla gagna sem kæmu til með að nýtast við frekari uppbyggingu á svæðinu, ætti hún sér stað. Gæti verið að tilraunaverkefnið raungerðist en ekki stærri vindorkuvirkjunin og því væri um aðskildar framkvæmdir að ræða. Vindtúrbínur valkosts 2 í tilkynningunni yrðu sýnilegar á 271,6 km2 af hjúpsvæðum óbyggðra víðerna, sem væri 0,373% af slíkum svæðum á landinu. Þá var því hafnað að ásýndarmyndir sýndu ekki vindtúrbínur í réttum hlutföllum í landslagi.

—–

  1. Hin kærða ákvörðun HMS um að þeir þættir sem falla undir eðli framkvæmdar­innar, staðsetningu eða eiginleika hugsanlegra áhrifa hennar væru með þeim hætti að þeir kölluðu á að framkvæmdin undirgengist umhverfismat, skiptist í nokkra kafla. Fyrirhugaðri framkvæmd er m.a. lýst ásamt því að gerð er grein fyrir öðrum virkjunaráformum framkvæmdaraðila á svæðinu, auk þess sem fjallað er um umhverfisáhrif hennar eins og þeim er lýst af kæranda og umsögnum umsagnaraðila. Þá er í ákvörðuninni einnig vikið að skipulagi á svæðinu og leyfum sem framkvæmdin er háð.
  1. Í niðurstöðukafla hinnar kærðu ákvörðunar er fjallað um eðli framkvæmdarinnar og staðsetningu auk þess að fjallað er um eiginleika hugsanlegra áhrifa framkvæmdar. Tiltók HMS að hin áformaða framkvæmd væri á svæði þar sem landslag einkenndist af löngum sjónlengdum, lítt snortnu heiðalandslagi og mikilli víðsýni. Taldi stofnunin áhrif framkvæmdanna á landslag verða mikil, með tilliti til staðsetningar, m.a. í ljósi þess að sýnileiki vindmyllanna næði inn á svæði sem félli undir skilgreiningu á óbyggðum víðernum. Sjónræn áhrif svo hárra vindmylla myndu ná yfir stórt svæði og breyta yfirbragði á Sauðaneshálsi og kunni að fela í sér breytta ásýnd frá þéttbýlinu á Þórshöfn, sem og frá býlum, útivistarsvæðum og þjóðvegi. Í ljósi umfangs framkvæmdanna væru áhrif þeirra á ásýnd því einnig líkleg til að verða mikil en möguleiki á að draga úr áhrifum á landslag og ásýnd væru takmarkaðir. Fyrir lægi að framkvæmdasvæðið væri ekki innan mikilvægra fuglasvæða, en að slík svæði væru í um 20–30 km fjarlægð. Þá væri Sauðaneslón í 10 km fjarlægð, en það væri á C-hluta náttúruminjaskrár vegna mjög auðugs fuglalífs. Þekkt væri að ein helstu neikvæðu áhrif vindmylla væri hætta á áflugi fugla en ekki lægju fyrir upplýsingar um það hvernig fuglar nýti svæðið og þá ááætlaða áflugstíðni. Þó lægi fyrir að tegundafjölbreytni fugla væri nokkur. Á og í grennd við svæðið hefðu fundist 10 tegundir á válista, þ. á m. fálki, sem væri talinn í hættu, og rjúpa sem væri talin í yfirvofandi hættu. Tekið var undir með Náttúrufræðistofnun um að án þekkingar á far- og flugleiðum fugla á þessum slóðum væri ekki hægt að leggja mat á áhrifin. Var því talið að fram þyrfti að fara nánari greining og mat á áhrifum á fugla og bent á að fyrir lægi að ráðast ætti í fuglarannsóknir í tengslum við fyrirhugað 530 MW vindorkuver á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi á vegum framkvæmdaraðila. Teldi stofnunin að varðandi umfang rannsókna sem sneri að uppsetningu umræddra tveggja vindmylla þyrfti framkvæmdaraðili að hafa samráð við Náttúrufræðistofnun. Fyrir lægi að vistgerðir með hátt eða mjög hátt verndargildi sé að finna á tæplega 40% framkvæmdasvæðisins sem og votlendi sem njóti sérstakrar verndar skv. lögum um náttúruvernd. Ekki liggi fyrir upplýsingar um stærð þess votlendis sem kunni að verða fyrir neikvæðum áhrifum eða umfang rasks á vistgerðum og telji HMS að fram þurfi að fara nánari greining og mat á áhrifum fyrirhugaðra framkvæmda á gróðurfar og hvaða aðgerðir kæmu til greina til að koma í veg fyrir, draga úr eða bæta fyrir neikvæð áhrif.
  1. Var það niðurstaða HMS að í ljósi eðlis og þá einkum umfangs sem og staðsetningar fyrirhugaðrar framkvæmdar auk eiginleika hugsanlegra áhrifa þyrfti að gera nánari grein fyrir og leggja mat á áhrif hennar á umhverfið og skyldi framkvæmdin háð umhverfismati. Tekið var fram að þrátt fyrir að fyrir lægju ítarlegri upplýsingar og mat á mögulegum áhrifum á hina ýmsu umhverfisþætti en gert væri ráð fyrir í tilkynningarskylduferli teldi stofnunin að í ljósi eðlis og þá einkum umfangs, sem og staðsetningar fyrirhugaðrar framkvæmdar auk eiginleika hugsanlegra áhrifa þyrfti að gera nánari grein fyrir og leggja mat á áhrif hennar á umhverfið.
  1. Að öllu framangreindu virtu verður talið að fyrir HMS hafi legið nægjanlegar upplýsingar til að meta hvort hin tilkynnta framkvæmd hefði í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif í skilningi laga nr. 111/2021, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Verður að auki ekki annað séð en að stofnunin hafi lagt fullnægjandi mat á þá þætti sem máli skiptu um það hvort umtalsverð umhverfisáhrif hlytust af framkvæmdinni. Tók stofnunin við það mat viðhlítandi tillit til viðmiða 2. viðauka laga nr. 111/2021. Þar sem enga þá annmarka er að finna á hinni kærðu ákvörðun sem leiða ættu til ógildingar hennar verður kröfu kæranda þar um hafnað.

Úrskurðarorð

Hafnað er kröfu um ógildingu á ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar frá 22. apríl 2026 að uppsetning tveggja vindtúrbína á Sauðaneshálsi í Langanesbyggð skuli sæta mati á umhverfisáhrifum.