Fara í efni
Afgreiðsla virka daga kl. 9–15:30575-8710
Úrskurður nr. 85/2015 · Mál nr. 75/2010 · Kveðinn upp 25. júní 2015

Þykkvibær

Ógilding

Árið 2015, fimmtudaginn 25. júní, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Skuggasundi 3, Reykjavík. Mættir voru Ómar Stefánsson yfirlögfræðingur, Ásgeir Magnússon dómstjóri og Þorsteinn Þorsteinsson byggingarverkfræðingur.

Fyrir var tekið mál nr. 75/2010, kæra á ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 4. nóvember 2010 um að synja um breytingu á deiliskipulagi Árbæjar – Seláss vegna lóðarinnar nr. 21 við Þykkvabæ.